Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1992, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1992, Side 8
8 FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 1992. Útlönd i>v La Coruna á Norður-Spáni hulin reykjarmekki frá miklum olíueldum: Börnin flutt á brott undan þykku kófi - óttast að mikil mengun verði á ströndinni nærri slysstaðnum ef olían fer öll 1 sjóinn Mikill reykjarmökkur hvílir yfir La Coruna á Norður-Spáni eftir að eldar kviknuðu í olíuskipinu Eyjahafi, sem strand- aði þar i höfninni í gær. Óttast er að ekki takist að ráða niðurlögum eldsins næstu daga. Þá er og viðbúið að strendur mengist af olíunni en 84 tonn af svartolíu voru um borð. Simamynd Reuter Þrír fórust er flugvél brotlenti á húsi í Stokkhólmi: Fólkið sá flugvélina stef na að útidyrunum - flugmaðurinn ætlaði að lenda á götu 1 íbúðahverfi Hafnarborgin La Coruna á Norð- ur-Spáni hefur verið hulin reykjar- menni frá því í gær þegar grískt olíu- skip strandaði í höfninni þar. Fljót- lega eftir strcuidið varð sprenging í skipinu og hefur það staðiö í björtu báli upp frá því. Fleiri sprengingar hafa orðið í nótt og er enn í morgun var óttast að eldurinn magnðist. Búið er að flytja börn af mesta hættusvæðinu vegna ótta við reyk- eitrun og fólki er ráðlagt að halda sig innandyra. Um 300 manns hafa verið fluttir frá heimilum sínum í nágrenni hafnarinar. Vart sá dagsins ljós í all- an gærdag og í morgun var sem myrkur grúíði yfir borginni. Björgunarmenn segja að allt aö 15 þúsund tonn af olíu hafi þegar brunnið en 80 þúsund tonn af svart- olíu voru í skipinu. Allir um borð, 28 manns, björguðust. Áhöfnin er frá Filippseyjum en skipið er skráð í Grikklandi og heitir Eyjahaf. Skipiö er brotiö í tvennt. Þegar síð- ast fréttist var eldur ekki kominn í tvo af tönkum þess. Lítil von er þó talin um að komið verði í veg fyrir að eldurinn berist í þá hka. Jóhann Karl Spánarkonungur hefur haft samband við heimamenn og heitiö öllum stuðningi við að koma í veg fyrir mikið mengunarslys. Þetta er þriðja sinn á 16 árum sem stór olíuskip stranda á þessum slóð- um og hafa alltaf hlotist af mikil umhverfisspjöll. Orsök slyssins nú er óljós. Skyggni var afar lítið og auk þess loft rafmagnað vegna mikfllar úrkomu. Er helst talið að sighnga- tækin hafi orðið óvirk og skipstjór- annum ekki tekist að stýra til hafnar eftir leiðarmerkjum. Reuter Seltúrvínsafni Yul Brynners Erfingjar Yul Brynners, leikar- ans sköUótta, högnuðust vel á sölu á fágætum vínum úr kjaUara kappans. Vínin voru boðin upp í gær og fengust nær átta railljónír fyrir veigarnar, talið í íslenskum krónum. Þó voru aöeins fáeinar flöskur seldar og má af því ráða að hann átti mikiö safn góöra eðalvína. Brynner lést úr krabba- meini árið 1985. Meðal þess sem boöið var upp voru 34 flöskur af Chateau Latour 1961 og 22 flöskur af Chateau Haut-Bnon 1959. Þetta voru dýr- ustu árgangarnir en þar fyrir ut- an voru seldar nokkrar flöskur af ódýrari vinum. Aftur verður selt úr safninu þann 10. desember í Lundúnum. Reuter Þrír Svíar létu lífiö eftir misheppn- aða nauðlendingu við flugvölhnn í Bromma í Stokkhólmi í gær. Eldur kviknaði í véhnni skömmu eftir flug- tak og reyndi flugmaðurin nauðlend- ingu á götu í íbúðahverfi. Ekki tókst þó betur til en svo að annar vængur- inn rakst í kyrrstæðan bíl og varð véhn stjórnlaus. Förin endaði við útidyr á fjölbýlis- húsi þar sein heimafólk sá vélina stefna á mikilh ferð að húsinu. Engin slys uröu þar á fólki þótt htlu mætti muna að illa færi því vélin stöðvaðist með þungu höggi á húsinu og sprakk. Allir í véhnni létu hins vegar lífið samstundis. Við sprenginguna þeyttist brak úr flugvélinni allt að 200 metra. Sjónar- vottar sögðu að þeir hefðu heyrt mikla sprengingu við húsið og þykkt eldský steig til himins. Síðan varð allt hljótt. Ekki er vitað hvað gerðist um borö í vélinni annað en að sjónarvottum ber saman um að eldur hafi verið laus í henni þegar hún kom inn til lendingar. Orsök slyssins er því rak- in til vélarbilunar. TT Kyrkislöngurog eitraðarköngu- lær í pósti Áströlsk yfirvöld hafa lagt hald á safn hættuiegrá snáka og köngulóa hjá manni sem fékk dýrin send í pósti frá útlöndum. „1 safninu voru tvær afrískar kyrkislöngur og tvær tarantúlur og ein fuglakönguló og það er tal- ið að dýrin hafi komið th landsins í bögglapósti," sagði hiö opinbera. Fuglaköngulæmar em stærri en meðalköngulær. Þeir éta nefnilega fugla. Embættismenn sögðust hafa áhyggjur af sjúkdómum sem dýr- in kynnu að bera með sér. Eig- andinn á ákæru yfir höfði sér. Vondurmaturí Austur-Þýskalandi Tveimur ámm eftir sameiningu þýsku ríkjanna er enn ekki hægt að mæla með einum einasta veit- ingastað i Austur-Þýskalandi. Svo segir að minnsta kosti í franska leiðsöguritinu Michelin. í Þýskalandsbókinni fyrir 1993 sem kom út í gær eru 527 hótel og veitingahús í austurhlutanum en ekkert fær eina af hinum eftir- sóttu stjörnum fyrir góðan mat. Morðiitgi Lenn- onssegist iðrast gjörðasinna Maöurinn, sem myrti fyrrum Bítilinn John Lennon, segir í við- tali sem sjónvarpaö verður í Bandaríkjunum í dag að hann hafi aldrei talið sig vera að drepa raunverulega manneskju heldur aðeins ímynd og „plötuumslag“. Mark David Chapman segir einnig í viðtalinu við ABC sjón- varpsstöðina að hann hafi nú sært út djöflana sem knúðu hann til að drepa Lennon og hann sagð- ist iðrast gjörða sinna. Chapman skaut Lennon árið 1980 og var dæmdur í fangelsi í tuttugu ár hið minnsta og til lífs- tíðar hið mesta fyrir vikið. Rollsinn hans Chaplinsfer undir hamarinn Fágætur Rolls Royce sem eitt sinn var í eigu Charlies Chaphn og sem kom fyrir í sígildri kvik- mynd hans „Einræðisherranum mikla“ verður boðinn upp í Lon- don i næstu viku. Rollsinn er af gerðinni „Phan- tom Two Tourer“, árgerð 1931, páfuglsblár að lit með gráu leð- uráklæði. Búist er við aö hann verði seldur á tæpar tíu milljónir. Vél og grind bflsins voru smíð- aðar á Englandi en yfirbyggingin var gerð af Brewster í Bandaríkj- unum. Aðeins 70 Phantom Two bílar eru enn til og Brewster gerði yfirbyggingu aðeins sex þeirra. Bíllinn komst í eigu leikkon- unnar Paulette Goddard eftir skilnað hennar og Chaplins. Fékk peningana semfóruíruslið Hollenskur sölumaður endur- heimti mestan part 50 þúsund gyllina sem fóru óvart út með rushnu hans fyrr í vikunni. Þaö eru tæpar tvær miHjónir króna. Maðurinn hafði sett peningana í ruslafotu til aö fela þá fyrir þjóf- um en gleymdi að segja konunni frá því. Hún setti ruSlafótuna út næsta morgun svo hægt væri að tæma hana. Maðurinn náði aö hringja í sorphirðuna í tæka tíð og eftir tveggja dag leit í bílnum var meg- inhluti fl árins kominn í leitirnar. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.