Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1992, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1992, Blaðsíða 26
34 FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 1992. Afmæli Hermann S. Bjömsson Hermann Sigurður Bjömsson, fyrrv. póstafgreiðslumaður og fleira, Hlíf n, Torfnesi við ísafjörð, er sjötíu og fimm ára í dag. Starfsferill Hermann fæddist á ísafirði og ólst þar upp. Hann fór ungur í sveit á sumrin og var síðan á sumrin við saltfiskverkun hjá foður sínum. Hermann lauk bamaskólanámi og var síðan tvo vetur í Kvöldskóla iðn- aðarmanna. Hann flutti með for- eldrum sínum að Langeyri við Álftafjörð við Djúp 1934 þar sem þau bjuggu í tvö ár. Þar stundaði Her- mann öll almenn störf og var m.a. við vélgæslu við frystihús. Þá var hann á síldveiðum á sumrin. Hermann hóf störf hjá Kaupfélagi ísfirðinga 1936, fyrst við vörubíla- akstur og síðan við vélgæslu í frysti- húsi, við birgðastörf og fleira. Hann starfaði hjá Kaupfélagi ísfirðinga í tuttugu og fimm ár en hóf síðan störf hjá Pósti og síma, fyrst við nætur- vörslu á Símanum en síðan við póst- afgreiðslu þar sem hann vann í tutt- uguár. Er Hermann hætti störfum hjá Pósti og síma fyrir aldurs sakir hóf hann aftur störf hjá Kaupfélaginu og var þar vélavörður við frystihús- ið í fimm ár. Hermann gekk í Slökkviliö ísa- fjarðar 1941 og starfar þar enn eftir fimmtíu og eitt ár. Hann tók öku- kennarapróf 1946 og stundaði síðan ökukennslu í hjáverkum í tæp fjöru- tíu ár en hann mun hafa kennt u.þ.b. eitt þúsund nemendum þann tíma. Fjölskylda Hermann kvæntist 11.10.1941 Sig- ríðiÁslaugu Jónsdóttur, f. 5.1.1922, húsmóður. Hún er dóttir Jóns Gests Vigfússonar, sparisjóðsgjaldkera i Hafnarfirði, og Sesselju Magnús- dóttur frá Skuld í Hafnarfirði. Börn Hermanns og Sigríðar Ás- laugar eru Erling Þór Hermanns- son, f. 12.3.1941, kvæntur Guðlaugu Grétu Þórðardóttur, f. 4.1.1945, en þau eru búsett í Hafnarfirði og eiga þrjú börn; Sesselja Áslaug Her- mannsdóttir, f. 6.8.1943, gift Páli Zóphoníassyni, f. 12.7.1942, en þau eru búsett í Vestmannaeyjum og eiga þrjú böm; Ásthildur Inga Her- mannsdóttir, f. 16.7.1945, gift Krist- jáni Rafni Guðmundssyni, f. 28.5. 1944, búsett á ísafirði og eiga þau tvö börn en þau misstu dóttur tíu ára; Björn H. Hermannsson, f. 21.4.1947, kvæntur Jensínu Guðmundsdóttur, f. 19.2.1948, en þau eru búsett á ísafirði og eigafjögur börn; Jón Gestur Hermannsson, f. 11.10.1948, kvæntur Bertu Gunnarsdóttur, f. 26.3.1952, en þau eru búsett í Hafn- arfirði og eiga tvo syni; Ásdís S. Hermannsdóttur.'f. 10.11.1949, gift Árna Ragnarssyni, f. 6.3.1949, en þau búa á Sauðárkróki og eiga þrjú börn. Systkini Hermanns: Herdís K. Bjömsdóttir, f. 4.4.1914, gift Ólafi Ámasyni, f. 8.4.1902, símritaraen þau eru búsett í Reykjavík og eiga tvö börn; Guðrún Elísabet Bjöms- dóttir, f. 27.9.1915, d. 31.8.1992, var gift Gunnari Hjálmarssyni, f. 15.9. 1915, skipstjóra en þau vom búsett í Reykjavík og em börn þeirra þrjú; Ólafur K. Björnsson, f. 12.3.1925, loftskeytamaður í Hafnarfirði, kvæntur Gróu Finnsdóttur, f. 24.9. 1924, og eiga þau fjögur böm; Marta Björnsdóttir, f. 15.11.1926, d. 24.8. 1989, var gift Magnúsi H. Magnús- syni, f. 30.9.1922, fyrrv. ráðherra og bæjarstjóra í Vestmannaeyjum, og eignuðust þau fjögur börn. Foreldrar Hermanns vom Björn Bjömsson, f. 7.7.1889, d. 19.7.1964, Hermann Sigurður Björnsson. formaður og verkstjóri á ísafirði, og Ingveldur Ó. Hermannsdóttir, f. 4.6. 1887, d. 5.5.1963, húsmóðir. Her- mann og Sigríður Áslaug taka á móti gestum á Hlif á morgun, laug- ardaginn 5.12., milli kl. 16.00 og 19.00. Njáll Guðnason, Keldulandi 1, Reykjavík. 80 ára Guðrún Franklín, Eskihlíð 20, Reykjavík. Dómhildur Klemenzdóttir, Aðalstræti 18, Bolungarvík. Guðrún Jónsdóttir, Hjallaseli 55, Reykjavík. Sigurlína Heigadóttir, Miðleiti 4, Reykjavík. Kristín Kristjónsdóttir, Brekkugötu 56, Þingeyri. Guðrún Jóhannesdóttir, Kambsvegi 15, Reykjavík. Gunnsteinn Gíslason, Kaupfélagshúsi, Ámeshreppi. 50ára 75 ára Guðrún Þorsteinsdóttir, Hálsi, Dalvík. Gústaf Lórusson, Jöldugrófa, Reykjavík. Vilborg Guðjónsdóttir frá Fremstuhúsum í Ðýrafirði, nú til heimilis að Álfheimum 60, Reykjavík. Vilborg bjó lengst af í Hafnarfirði ogstarfaðiviö bókasafniðþar. Ilúnogeigin- maðurhennar, Guðmundur Þorláksson, verðaaðheim- anídag. 70 ára Magnhildur Sigurðardóttir húsmóðirfrá EfstadalíLaug- ardal, til heim- ilisaðEspigeröi 16, Reykjavík. Kristin Hansdóttir, Brautarholti 10, Ólafsvik. Guðný Sigríður Þorsteinsdóttir, Leimbakka 8, Reykjavík. Þórunn Adda Eggertsdóttir, Ystaseli 1, Reykjavík. Þóra Kristinsdóttir, Grjótaseli 17, Reykjavík. Eiginmaður ÞóraerÁrni Ingólfsson. Þautakaámóti gestumidagkl 17.00-19.00 í Veislusalnum, Ármúla40, Reykjavík. Grétar Arnbergsson, Ránargötu 12, Flateyri. Gottskólk Óiafsson, Ásgarði8, Keflavík. Anna Elnarsdóttir, Ásgarði 105, Reykjavík. Sigríður Ingólfsdóttir, niugagötu 67, Vestmannaeyjum. Helgi John Fortescue, Reynilundi 2, Garöabæ. Kairl Friðrik Garðarsson, Safamýri 17, Reykjavík, Ríkey Eiriksdóttir, Drápuhlíð 10, Reykjavík. 40ára Vaidimar Ey vindsson, Stífluseli 2, Reykjavík. Torfi Karl Karlsson, Seljabraut 26, Reykjavík. Erlendur Guðnason, Holtsgötu 10, Njarðvík. Sjöfn Arnfinnsdóttir, Brautarlandi 1, Reykjavík. Alfred R. Daníelsson, Spóahólum 6, Reykjavík. Hjálmar Húnfjörð Eyþórsson Hjálmar Húnfjörð Eyþórsson, fyrrv. yfirlögregluvaröstjóri, Heiðarbóli 10, Keflavík, er 75 ára í dag. Starfsferill Hjálmar fæddist á Brúarlandi á Blönduósi og ólst upp hjá fósturfor- eldmm sínum á Blönduósi og ná- grenni frá átta ára aldri en þeir bjuggu að Meðalheimi. Hjálmar lauk bamaskólanámi í farskóla Torfalækjarhrepps, A-Hún. og var síðan tVo vetur í Reykholts- skóla. Hann stundaði ennfremur sjómennsku á sínum yngri árum. Árið 1958 lauk hann lögreglunám- skeiði og starfaði sem héraðslög- reglumaður þar til í byrjun apríl 1964 er hann fór á lögreglunámskeið í Reykjavík og var eftir það lögreglu- þjónníHúnaþingi. Hjálmar hefur einnig starfað að ýmsum félagsmálum um ævina, hann sat um tíma í stjórn Verka- lýðsfélags A-Húnvetninga, var í leikfélagi Blönduóss um skeið og var einn af stofnendum söngkvart- ettsins Húna, sem starfaði í ellefu ár undir stjórn Guðmanns Hjálm- arssonar og síðar Þorsteins Jóns- sonar, og einn af stofnendum björg- unarsveitarinnar Blöndu á Blöndu- ósi. Fjölskylda Hjálmar kvæntist á gamlársdag 1944 Kristínu Helgadóttur, f. 20.11. 1921, húsmóður og matráðskonu frá Hvarfi í Víðidal, V-Hún. Hún er dótt- ir Helga Björnssonar og Hansínu Guðmundsdóttur sem bjuggu á Hvarfi. Börn Hjálmars og Kristínar eru: Eygló, f. 7.12.1946,sjúkraliði í Kefla- vík, gift Sigurði Hólm Sigurðssyni skipstjóra og eiga þau Kristínu Ingi- björgu, Guöjón Hólm og Hjálmar Þór; PéturHólmgeir, f. 25.7.1949, rafvirkjameistari í Reykjavík, kvæntur Dagrúnu Hjaltadóttur og eiga þau Hjálmar Örn, Karenu Ósk og Kolbein Atla; og Magnús Helgi, f. 2.2.1958, sjómaður á Eskifirði, kvæntur Unu Svalrúnu Káradóttur Hjálmar Húnfjörð Eyþórsson. og eiga þau Kristínu Huld og Elvar Má. Fósturforeldrar Hjálmars eru Pét- ur Tímóteus, b. í Meðalheimi, Torfa- lækjarhr., Tómasson, b. í Brekku- koti, og Hólmfríður Erlendsdóttir sem ættuð var úr Fljótum í Skaga- firði. Hjálmar verður að heiman á af- mælisdaginn. Sigurður Kristófer Pétursson Sigurður Kristófer Pétursson yfir- læknir, Hrafnabjörgum 6, Akureyri, erfimmtugurídag. Starferill Sigurður fæddist í Grundarfirði og ólst þar upp. Hann varð stúdent frá ML1965 og lauk embættisprófi í læknisfræði við HÍ1972. Sigurður starfaði á ýmsum deildum sjúkra- húsanna í Reykjavík 1972-74, var héraðslæknir Hólmavíkurlæknis- héraðs 1974-76 og var aðstoðarlækn- ir við svæfinga- og gjörgæsludeild Borgarspítalans 1976-77. Sigurður stundaði framhaldsnám í svæfingalæknisfræði í Jönköping og Uppsölum í Svíþjóð 1977-81. Hann var sérfræðingur við svæf- inga- og gjörgæsludeild Borgarspít- alans 1981-82 og hefur verið yfir- læknir við svæfinga- og gjörgæslu- deild Fjórðungsjúkrahússins á Ak- ureyrifrál982. Sigurður hefur setið í stjórn læknaráðs FSA í mörg ár og setið í stjóm Læknafélags Akureyrar sl. tvöár. Fjölskylda Sigurður kvæntist 21.6.1969 Helgu Magnúsdóttur, f. 16.1.1946, skólastjóra. Hún er dóttir Magnúsar Bjamasonar og Brynhildar Stefáns- dóttur, bænda að Birkihlíð í Reyk- holtsdal í Borgarfirði. Böm Sigurðar og Helgu eru Bryn- hildur Sigurðardóttir, f. 26.2.1970, nemi við KHÍ, en hún á eina dóttur, írisi Gísladóttur, f. 5.12.1989; Kristín Sigurðardóttir, f. 16.2.1972, nemi við HI; Helga Sigurðardóttir, f. 1.4.1973, nemi við VMA, í sambýli með Jóni Skildi Karlssyni; Pétur Sigurðsson, f. 17.5.1979, nemi. Systkini Sigurðar: Aðalsteinn, læknir í Borgamesi, nú látinn, var kvæntur Halldóru Karlsdóttur, kaupmanni í Borgamesi; Ingibjörg, hjúkranarfræðingur í Garðabæ, gift Magnúsi Karli Péturssyni lækni; Kristján, skipstjóri á Akranesi, kvæntur Erlu Magnúsdóttur; Sig- rún, ljósmóðir í Hafnarfirði, gift Bimi Ólafssyni skólastjóra; Sigþór, efnafræðingur á Akureyri, kvæntur CeleeuPétursson. Sigurður Kristófer Pétursson. Foreldrar Sigurðar: Pétur Sig- urðsson, f. 17.7.1910, fyrrv. verslun- armaður, og Guðríður Kristjáns- dóttir, f. 29.8.1911, d. 11.5.1992, hús- móðir. Tekið verður á móti gestum í dag, 4.12., í þjónustumiðstöðinni, Víði- lundi 24, kl 17.00-19.00. Bridge Kauphallarmót Brídgesambands íslands og Verðbréfamarkaðar ís- landsbanka verður haldið á Hótel LofQeiðum helgina 4.-6. desember. Mótið hefst meö uppboðí paranna fostudagskvöldlð 4. desember. Upp- boöshaldari verður Haraldur Blön- dal. AUir eru velkomnir á þetta ein- staklega skemmtilega uppboö sem verður í Auditorium Hótel Lófi- leiða klukkan 21 föstudagskvöldið 4. desember. Spilamennskan hefst síðan klukkan 13 laugardaginn 5. desember og er spilað allan daginn og á laugardagskvöldið. Sunnudag- inn 6. desember er byrjað aftur klukkan 13 og spilað fram undir kvöldmat. Á meðan á mótinu stendur, starf- rækir Verðbréfamarkaður íslands- banka Kauphöll á staönum og þar er hægt að kaupa og selja hluti í pörunum sem eru að spila.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.