Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1992, Síða 14
14
FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 1992.
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjórar: PALL STEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift,
ÞVERHOLTI 11, 105 RVlK, SlMI (91)63 27 00
SlMBRÉF: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99
GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift: 99-6270
AKUREYRI: STRANDGÖTU 25. SlMI: (96)25013. Blaðamaður: (96)26613.
SlMBRÉF: (96)11605
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
PRENTSMIÐJA FRJALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11
Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1200 kr.
Verð í lausasölu virka daga 115 kr. - Helgarblað 150 kr.
Sjálfsögð hernaðaríhlutun
Sameinuðu þjóðirnar eru um það bil að senda allt að
þrjátíu þúsund manna herlið til Sómalíu. - þótt fyrr
hefði verið. Satt að segja er það hinum siðmenntuðu og
velmegandi þjóðum til skammar hversu lengi hefur
verið horft í aðgerðaleysi á neyðina í Sómahu. Friðar-
gæslusveitir og starfsmenn Rauða krossins og einhverra
annarra hjálparstofnana hafa að vísu reynt að bjarga
því sem bjargað verðiir og koma bágstöddum til aðstoð-
ar, en það er langur vegur frá því að þær aðgerðir hafi
borið nokkurn umtalsverðan árangur. Skil á sendingum
á hjálpargögnum og matvælum hafa verið með höppum
og glöppum og ringulreiðin algjör.
í Sómalíu ríkir stjómleysi og skálmöld. Stríðandi
kynstofnar og ættbálkar og fylkingar í þessu fátæka og
afskipta landi hafa ekki aðeins komið stjórninni og and-
stæðingum sínum á kné heldur hafa stríðsátökin leitt
til þess að þeirra eigið fólk hefur hvorki til hnífs né
skeiðar. Sjúkir fá ekki læknishjálp. Börn hrynja niður
í tugþúsunda tali og deyja í örmum mæðra sinna, eða
systkina þegar foreldrar eru ekki lengur til staðar.
Umheimurinn hefur fengið lýsingar og frásagnir af
þessum hörmungum í sjónvarpsstöðvum sem eru þó
aðeins brot úr allri myndinni og barnaleikur miðað við
hina algjöru og botnlausu neyð sem fólkið í Sómalíu býr
við.
Samviska umheimsins krefst þess að gripið sé til al-
varlegra og raunhæfra aðgerða. Það er kristalljóst að
stjórnvöld í Sómalíu sjálfri hafa engin tök á því að koma
skikki á ástandið. Það gengur ekki lengur að lítill hluti
hjálpargagna og matvæla komist til skila af því að megn-
inu af birgðunum er rænt áður en þær komast á áfanga-
stað. Sá góði hugur, sem fylgir aðstoð annars staðar
frá, er til einskis ef þeir sem aðstoðarinnar eiga að njóta
verða hennar'aldrei varir.
Bandaríkjamenn hafa haft forgöngu um að senda
herlið inn í landið í nafni Sameinuðu þjóðanna. Tilgang-
ur þeirra hernaðaraðgerða er ekki að taka völdin né
heldur vinna sigur á öðrum her. Sú hernaðaríhlutun
er af mannúðarástæðum og til að koma í veg fyrir að
hjálpargögnum sé rænt, til að bjarga sveltandi börnum
frá hungurdauða. Sjaldan hefur vopnaður her haft jafn
gilda ástæðu til afskipta og aldrei hefur þörfm verið
ríkari fyrir hernaði. Hér er ekki verið að berjast um
hugmyndafræði, ekki um þjóðerni, ekki um landvinn-
inga. Hér er verið að bjarga landi og lýð frá sjálfsmorði.
Sameinuðu þjóðirnar eiga sömuleiðis alvarlega að
íhuga þann möguleika að senda herlið í sínu nafni inn
í fyrrum Júgóslavíu. í raun og veru eru sömu hörmung-
arnar að eiga sér stað á þeim slóðum. Stríðsástandið
þar er komið í sjálfheldu. Enginn virðist stjórna og eng-
inn heima fyrir virðist geta fundið lausn á óhugnanlegu
þjóðarmorði. Herinn fer sínu fram, einstakir hermenn
fara sínu fram og stórir og einangraðir hópar öfga-
manna, þjóðernissinna og jafnvel glæpamanna vaða
uppi í upplausninni sem þarna ríkir.
Allt þetta er að gerast við túnfótinn hjá okkur. Júgó-
slavíá er ekki í Afríku. Serbar, Króatar og Slóvenar eru
Vesturlandabúar í næsta nágrenni. Evrópa getur ekki
horft upp á þennan hildarleik með hendur í vösum.
Sáttatilraunimar og afskiptaleysið er fullreynt. Það eru
sömu forsendur fyrir íhlutun Sameinuðu þjóðanna í
fyrrum Júgóslavíu eins og í Sómalíu. Ekki til að taka
völdin heldur til að bjarga sveltandi bömum óg örvænt-
ingarfullum þjóðarbrotum frá neyð og dauða.
Ellert B. Schram
I forsetakosningum í Serbiu hinn 20. þ.m. verður kosið á milli þeirra Milosevics forseta og Panics forsætisráð-
herra. Símamyndir Reuter
íhlutun er tímabær
Herlið Sameinuðu þjóðanna í
Bosníu hefur hingaö til ekki gert
annað en horfa á Serba gera það
sem þeir ætla sér. Þjóðir heims
reyta hár sitt, en geta ekki komið
sér saman um neinar raunhæfar
aðgerðir til að stöðva þetta mesta
blóðbað í Evrópu frá stríðsárunum.
Þegar hafa um 120 þúsund manns
látið lífið í fyrrum Júgóslavíu og
allt að þrjár milljónir flosnað upp.
Ailt mælir með því að þetta verði
stöðvað með vopnavaldi, ekki að-
eins af mannúðarástæðum, heldur
af kaldri hagsmunapólitík. Þetta
kann að vera innanlandsstrið, en
það hefur heimspóhtískar hættur í
fór með sér. Það er ljóst að næsta
skref í þeirri stefnu Milosevics for-
seta aö búa til Stór-Serbíu og út-
hýsa öllum af ööru þjóðemi af yfir-
ráðasvæði sínu, er að ráðast tÚ at-
lögu í Kosovo.
Önnur hætta
Önnur hætta er yfirvofandi í
Makedóníu, sem hefur hingað til
sloppiö við stríð, eitt lýðvelda fyrr-
um Júgóslavíu. Ef Serbar ráðast til
atlögu þar er fulivíst að því er Ghg-
orov, forseti Makedóníu, segir, að
enginn nágranna Makedóníu situr
hjá. Grikkir, Búlgarar og Albanir
munu allir skerast í leikinn, og
jafnvel Tyrkir. Ef svo fer mun allur
Balkanskagi loga í ófriði og óhugs-
andi annaö en önnur ríki drægjust
inn í þann hildarleik.
Þegar hafa íslömsk ríki ákveðið
að efla stuöning sinn við múshma
á Balkanskaga og svo gæti farið að
þetta stríð fengi á sig blæ trúar-
bragðastríðs þar sem hinn íslamski
heimur, væntanlega undir forystu
Tyrkja, mundi dragast inn í átökin.
Þegar hefur orðið vart við vopna-
smygl frá íran og Qeiri löndum
Miöausturlanda til múshma í
Bosníu.
Það er ekki aðeins af mannúðará-
stæðum að afskipti umheimsins af
Kjállariiin
Gunnar Eyþórsson
fréttamaður
stríðinu í Bosníu eru orðin tíma-
bær. Serbar eru að vinna það stríð
og vitað er hvað er næst á dagskrá.
Tími er kominn fyrir Bandaríkin,
Evrópubandalagið, Nato og Sam-
einuðu þjóðirnar að standa fyrir
stofnun bandalags sem skerast
mundi í leikinn af alvöru.
Milosevic hefur komist upp með
að lofa öllu fogru en svíkja jafn-
harðan og veik viðbrögð utanlands
frá hafa eyðilagt allan trúverðug-
leika hótana Bandaríkjamanna og
Evrópumanna. Efnahagslegar
refsiaðgerðir eru máttlausar því að
engar hömlur eru á flutningum um
Dóná sem er aðalflutningaleiðin til.
Serbíu frá Austur-Evrópu.
Kosningar
Hinn 20. þessa mánaöar verða
forsetakosningar í Serbíu og kosið
verður milU MUosevics og Panics
forsætisráðherra. Nú sem stendur
er Panic, sem vill binda enda á
stríðið, tahnn sigurstranglegur en
Milosevic hefur í hendi sér að láta
umheiminn fást við orðinn hlut
með því að heQa þegar í stað árásir
í Kosovo.
Nú loksins eru Bandaríkjamenn
farnir að taka við sér og eru að
kanna í samvinnu við Breta,
Frakka og ítali moguleika á hem-
aðaríhiutun í Bosníu. í áæOun sem
Dugan, fyrrum æðsti maður
bandaríska flughersins, hefur birt
opinberlega er því lýst hvernig
slíkt mætti gera og hann telur það
verkefni vel viöráðanlegt ef sam-
staða næst milU þeirra ríkja sem
málið varðar mest en þar yrðu
Bandaríkin að vera í forystuhlut-
verki.
Ef ekkert verður að gert munu
Serbar komast upp með að breyta
landamærum með vopnavaldi,
svelta tugþúsundir til bana,
hreinsa yfirráðasvæði sitt af öUum
öðrum en Serbum en setjast síöan
að friðarviðræðnaborði og lýsa yfir
friði þar til næsti liður í áæfiun
þeirra verður framkvæmdur í
Kosovo og Makedóníu. Umheimur-
inn getur ekki látið þetta viðgang-
ast. Gunnar Eyþórsson
„Nú loksins eru Bandaríkjamenn farn-
ir að taka við sér og eru að kanna í
samvinnu við Breta, Frakka og ítali
möguleika á hernaðaríhlutun í Bosn-
' , u
Skoðanir annarra
Eitthvað að
í réttarkerf inu
„Fréttir af tveimur stórum sakamálum sem
tengjast bæði eiturlyfjum benda til þess að það sé
eitthvaö meira en Utið að í íslensku réttar- og lög-
reglukerfi. Og þegar upp verður staðið er eins Uklegt
að dómur hafi fremur verið felldur yfir kerfinu en
meintum afbrotamönnum. Þaö er með öUu óskiljan-
legt að stærsta eiturlyfjamál í sögunni sé að drabb-
ast í kerfinu í heil 5 ár og það þrátt fyrir að játning-
ar Uggi fyrir. Og svo þegar gengið er í máUð, fyrst
og fremst vegna þess að hneykslaðir fjölmiðlar
neyddu kerfið til að taka til hendinni, þá er aUur
málatilbúnaður í hinu mesta rugU... Og ennfremur
bendir aUt tíl þess að dráttur málsins sé sakborning-
um tíl hagsbóta og þeirra helsta vöm.“
Úr Víkurblaðinu, Húsavík.
Allra veðra von
„íslenskur iðnaður er að hrynja. Þar á meðal
annars almenningur sök á. Við stöndum ekki vörð
um innlendan iðnað með því að kaupa innlenda iðn-
aðarvöru hvenær sem því verður viö komið. Afleið-
ingin er sú að íslenskur iðnaður heldur ekki mark-
aðshlutdefid sinni. Sjávarútvegurinn á einnig í mikl-
um erfiðleikum. Það er gömul saga og ný.
... Sá vetur sem nú er hafinn getur orðið örlagarík-
ur. Innleiðir hann að nýju atvinnuleysi og örbirgð
og festir það í sessi? Verður það hlutskipti imgs fólks
að missa í stórum stfi íbúðir sínar og þá í hendur
hverra? Hverjir geta keypt? Ég held að hver maður
sjái að Verkamannafélagið Dagsbrún stendur
frammi fyrir miklum vanda. Það er aUra veðra von.“
Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Dagsbrún-
ar, í málgagni félagsins.