Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1993, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1993, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 1993. Fréttir ______________________________________________________________________________pv Sveik út um 1 miUjón króna í greiðslukortaviðskiptum: Breytti upphæðunum á greiðslukortanótunum - 1.995 króna hálsbindi kostaöi 11.995 krónur á Visareikningnum „Við vorum í Austurveri um miðj- an desember og komum þar að tveimur hressum stelpum sem voru að selja hálsbindi við söluborð á ganginum. Okkur leist vel á bindi sem kostaði 1.995 krónur og ákvað konan að gefa mér það í jólagjöf. Þegar við síðan fengum Visareikn- inginn okkar milli jóla og nýárs virt- ist konan hafa verið heldur rausnar- leg þar sem bindið hafði hækkað í verði um 10 þúsund krónur, kostaði orðið 11.995. Við höfðum nótuna í höndunum og vorum viss um að þetta væru mistök. í bankanum kom hins vegar í ljós að tölunni 1 hafði verið bætt framan við upphæðina á sölunótunni og hún þannig hækkuð um 10 þúsund krónur," sagði mið- aldra maður í samtali við DV. Upp er komið stórfellt svikamál hjá greiðslukortafyrirtækjunum Visa og Kreditkortum þar sem söluaðili hef- ur breytt upphæðum á fjölda greiösluicortanótna og þannig svikið □5 5qi05b8 . ismsjs HEIMILDARNUMER . Autborizalion no. ' 'VORULYSING / D«scViplion UPPHÆD / Amount \fo( uV" - □ vOrur □ MATVÖRUR \ □ HÓTEL / RESTAURANT □ BÍLALEIGA / CAR RENTAL \ -05 5qiQgb8 ^IMILDAnNUMtH 'fjfthOruaUon no. r COflULÝClNG / bw’rtuon UPPHÆD/ Amouni ' " \\Wh>r 1 ;■ vORUR □ matvorur \ ‘ CJ HOTEL / RESTAURANT □ bIlaleica / car rental SAMTALS TOTAL KR. SAMTALS TOTAL KR. CARDHOLDER S DECLARATION The issuer ol the card idemilied on trns rfem is eulhorued lo pay Ihe amouni shown as TOTAL upon proper presemation I promise lo pay such TOTAL (looeiher with any oiher charges due ihe- reon) subiecl lo and in accordance with Ihe agree- menl governmg the use ol such card SÖLUNOTA SALESSLIP EINTAK KORTHAFA CAROMOLOERS OFClARATiON Tha itsurr ol (he eard Kferurfied un th.» n>n .» ■ulhonied to fur ln« Ann>mi sNr-w Jt 'OIAL upcm pnx»r preserrfita" I promisa w |.ar TOTAL l'ogethai «Mih any trfiarges dve ih« raon) lo and in accord jnca iv.m iha m/* me >l Qotermng the uia o' swji iwui Hér sést sölunótan sem notuð var þegar hálsbindi var keypt í Austurveri 12. desember. A eintaki korthafa stendur 1.995 krónur en á eintaki Visa hefur 1 verið bætt framan við og bindið orðið 10 þúsund krónum dýrara fyrir vikið. Svikin komu fyrst i Ijós þegar korthafinn fékk Visareikninginn sinn, þar stendur að bindið hafi kostað 11.995 krónur. út ríflega eina miUjón króna. Við- um tvítugt og selt hefur fatnað, aðal- skipti þessa manns, sem mun vera lega hálsbindi, áttu sér öll stað með svokölluðum strauvélum. Áttu við- skiptin sér stað á yfirstandandi kortatímabili, alveg fram að jólum, og eins á tímabilinu á undan. Manninum tókst að selja þriðja aðila flestallar folsuðu sölunótumar fyrir jól. Sá keypti þær í góðri trú og kom þeim síðan rétta boðleið um kerfið. Sölumaðurinn flúði land milli jóla og nýárs og herma heimildir að hann hafi haldið til suðlægra landa. Upp komst um svikin milli jóla og nýárs þegar kvartamr fóra að berast til kortafyrirtækjanna frá fólki sem komið hafði auga á misræmi milli upphæða á greiðslunótum og korta- reikningnum sínum. Ekki eru öll kurl enn komin til grafar í þessu máli en uppgjör yfir- standandi kortatímabiis er eftir. Svikin munu þegar nema um 800 þúsundum króna hjá Visa og tæpum 200 þúsundum hjá Kreditkortum. Sviknu sölunótumar eru merktar Söluskrifstofu Alfreðs Hermanns- sonar. Málið verður kært til RLR. Korthafar blæða ekki Einar S. Einarsson, framkvæmda- stjóri hjá Visa, segir umræddan sölu- mann hafa bætt einni eða tveimur töliun framan við upphæðimar á sölunótunum og hækkað þær þannig um allt að 30 þúsund krónur. „Þetta er í fyrsta skipti sem mál af þessu tagi á sér staö hér á landi. Það hefur reyndar verið fiktað við nótu og nótu en aldrei í þessum stíl. Það hafa hins vegar verið hrögð að svona svikum erlendis,“ sagði Einar. Einar og Gunnar Bæringsson, framkvæmdastjóri Kreditkorta, sögðu aö korthafar yrðu ekki fyrir tjóni svo framarlega að þeir hefðu afrit sölunótu undir höndum. Greiðslukortareikningar yrðu leið- réttir og ef fólk hefði þegar greitt fals- aðar upphæðir yrði því endurgreitt. -hlh Þrettándinn er i dag og af þvi tilefni verður viða efnt til þrettándagleði, kveikt [ bálkesti, flugeldum skotið, álfa- dans stiginn og sungið. Björn Einarsson virðist ekki ætla að láta sitt eftir liggja i þrettándagleðinni og kastar hér eldsmat á bálköst vlð Snælandsskóla i Fossvogsdal en þar mun eldur loga glatt í kvöld. DV-mynd BG Hald lagt á margar heimatilbúnar sprengjur: Sumar gætu sprengt upp heilu húsin Lögreglan í Hafnarfirði hefur upp- lýst mörg sprengjumál undanfama daga. Margir unglingspiltar hafa ver- ið handteknir og við húsleit hafa fundist bæði sprengjur og efni til að búa þær til. Að sögn lögreglu hafa sumar þessara sprengja verið nógu öflugar til að granda heiiu húsunum. Lögreglan hefur unniö mikið for- vamarstarf og lagt krafta sína í að finna sökudólgana og framleiðslu þeirra, bæði fyrir gamlárskvöld og fyrir þrettándahátíðina í dag. Flestir sprengjusmiðanna em unglingspiltar allt að 17 ára. Hópar af þeim hafa verið yfirheyrðir og í kjölfarið er leitað heima hjá þeim. Lögreglan hefur auk tilbúinna sprengja lagt hald á ýmiss konar búnað til sprengjugerðar, þar á með- ai nokkur slökkvitæki. Hlutislökkvi- tækjanna er notaður í sprengjumar en þaö gerir þær mjög öflugar og að sama skapi stórhættulegar. Lögregla vili beina þeim tilmælum til foreldra aö vera á varðbergi gagn- vart þessum hlutum og láta strax vita verði þeir varir við að böm þeirra séu að fikta við sprengjutil- búning. -ból Yfirdráttur Reykjavlkur: Knúði Landsbankann til að taka lán - sagðiPáUPétursson Yfirdráttm- Reykjavíkurborgar í ursson, þingflokksformaður Fram- Landsbankanum varð til þess að sóknarflokksins, á Alþingi í gær. bankinn varð aö taka 1.250 milljónir Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra króna að láni hjá Seðlabankanum sagðist ekki vera sammála skýringu um áramótin, þetta fullyrti Páll Pét- Páls á lántöku Landsbankans. -sme Halldór Blöndal í Egyptalandi og Jórdaníu ásamt fríðu föruneyti: 2 milljónir í viðræður um ferða- og f lugmál - sárafáir Jórdanar og Egyptar komið hingað síðastliðin þrjú ár Halldór Blöndal hélt til Egypta- lands ásamt fríðu fóruneyti á laug- ardag til viðræðna við feröa- og' flugmálaráðherra Egypta, Fouad Sultan, um ferða- og flugmál milli landanna. í dag, miðvikudag, held- ur íslenski hópurinn síðan til Jórd- aníu þar sem sömu málaflokkar verða ræddir við þarlendan ferða- málaráðherra, Yanal Hikmat. Ferðinni lýkur á laugardag. Ferð þessi er farin í boði fyrr- nefndra ráðherra Egypta og Jórd- ana en þar méð er ekki sagt að hún sé ríkissjóði að kostnaðarlausu. Með Halldóri í for em kona hans, Kristín Eymundsdóttir, Ólafur S. Valdimarsson, ráðuneytísstjóri í samgönguráðuneytinu, Þórhallur Jósepsson, aöstoðarmaður Hall- dórs, Bjöm Theódórsson, fram- kvæmdastjóri hjá Flugleiðum, og Birgir Þorgilsson ferðamálastjóri. Samkvæmt upplýsingum úr fjár- málaráðuneytinu fær ráðherrann fuila dagpeninga, rúmar 15 þúsund krónur á dag, konan .helminginn af þeirri upphæð og ráðuneytis- stjórinn og aöstoðarmaðurinn 80 prósent. Reglugerð heimilar að Bjöm og Birgir fái hálfa dagpen- inga og hótelkostnað greiddan eins og hinir. Dagpeningar fyrir hópinn nema þannig tæpum 500 þúsund- um. Ef miðaö er við gistingu á Sheraton hótelinu í Kaíró, sem ekki er mjög dýrt, er hótelkostnaður ekki undir 300 þúsundum króna. Flug á Saga Class fyrir hópinn kostar síöan um 1.200 þúsund krón- ur. Þar að auki fær ráðherrann greidda risnu en skilar reikningum yfir útlagðan kostnað. Alls getur kostnaöurinn við þessa ferð því numið ríflega 2 milljónimi króna, meiru ef hótelið er í dýrasta flokki. Sú óskrifaða regla er í gangi að gestgjafar HaUdórs komi hingað í boði hans en þá er kostnaður við ferðir og uppihald greiddur af þeim. Hvorki Egyptar né Jórdanar hafa verið tíðir gestir hér á landi síðastl- iðin ár þrátt fyrir að Steingrímur J. Sigfusson, fyrrverandi sam- gönguráðherra, hafi farið í sams konar ferð til Egyptalands fyrir um tveimur árum. Árið 1990 komu hingað 20 Egypt- ar og 17 Jórdanar. 1991 vora Egypt- amir 25 en Jórdanar aðeins 4. Þeg- ar rætt var við útlendingaeftirlitið í gær vom tölur yfir komu útlend- inga til landsins 1992 ekki tilbúnar en í nóvember 1992 kom enginn Egypti en 2 Jórdanar. Þess má geta að 1989 og 1992 kom Hussein Jórd- aníukonungur hingað í stuttar heimsóknir ásamt fóruneyti og hef- ur þáttur Jórdana þessi ár væntan- lega veriö vænlegri þess vegna. - Enhverertilgangursvonaferða? „Tilgangurinn er fyrst og fremst sá að kynna Island sem ferða- mannaland og hugsanlegt samstarf Flugleiða og þarlendra flugfélaga, koma á viðskiptum í flugi og ferða-' málum,“ sagði HaUdór Kristjáns- son, skrifstofustjóri í samgöngu- ráðuneytinu. - Verður uppskeran önnur en inn- antómar viijayfirlýsingar? „Það er rétt að ræða við ráðherr- ann um það.“ -hlh

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.