Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1993, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1993, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 1993. Uppboð Framhald uppboðs á eftirtalinni eign verður háð sem hér segir: 1. Sölvi Bjamason BA-65, sk.nr. 1556, þinglýst eign Útgerðarfélags Bíld- dælinga hf., eftir kröfu Garðars Briem hdl., Agústs S. Karlssonar lögfr., inn- heimtumanns ríkissjóðs, Kristins Hallgrímssonar hdl., Sigmundar Hannes- sonar hrl., Ásgeirs Magnússonar hdl. og Bjarna Þórs Óskarssonar hdl., miðvikudaginn 13. janúar 1993 kl. 16.00 á skrifstofu embættisins að Aðal- stræti 92, Patreksfirði. SÝSLUMAÐURINN Á PATREKSFIRÐI Fyrsta námskeiðið til aukinna ökuréttinda verður sett í Tækniskóla Islands 13. janúar kl. 18.00. Námskeiðið í Hafnarfirði hefst 20. janúar. Þeir sem þegar hafa skráð sig eru beðnir að ganga frá nám- skeiðsgjaldi hið fyrsta hjá Viðskiptamiðlun, Tryggva- götu 16, Reykjavík. Ökuskóli Sigurðar Gíslasonar Hirðing jólatrjáa Hirðing jólatrjáa hefst föstudaginn 8. janúar næst- komandi og verður framkvæmd samhliða reglubund- inni sorphirðu. Húsráðendur eru beðnir að setja trén út fyrir lóða- mörk og verða þau þá fjarlægð. Gatnamálastjórinn í Reykjavík Hreinsunardeild Jólahappdrætti Blindrafélagsins Dregið 17. desember 1992 Vinningsnúmer: 7949 4864 13115 13977 2788 11818 13906 14669 8159 10622 12051 12588 801 2871 5345 8428 11748 1584 4967 7915 8970 12826 Vinninga skal vitja á skrifstofu félagsins. Sími 91- 687333. Blindrafélagið, Hamrahlíð 17 ^6§p|f Trygging hf. óskar eftir tilboðum í neðanskráðar bifreiðar sem hafa skemmst í umferðaróhöppum: Daihatsu Charade 1991 Mazda 323 1990 Toyota HiluxX Cab 1990 Renault Express 1990 Skoda Favorit 1989 Dodge Van Pickup 1991 Nissan Bluebird 1988 Mazda 323 1987 Nissan Pathfinder 1987 MMC Lancer 1987 Lada Sport 1987 FiatUno 1987 Lada1500 1987 Chevrolet Monza 1987 MMCLancer 1991 LanciaThema 1987 Bifreiðarnar verða til sýnis fimmtudaginn 7. janúar 1993 í Skipholti 35 (kjallara) frá kl. 9-15. Tilboðum óskast skilað fyrir kl. 16 sama dag til Tryggingar hf. Laugavegi 178, 105 Reykjavík, sími 621110. Útlönd dv Daniela Perez og Guilherme de Padua léku elskendur I einni vinsælustu sápuóperunni í brasiliska sjónvarpinu. Samband þeirra endaöi með morði i raunveruleikanum en enginn veit af hverju Daniela var myrt. Simamynd Reuter Brasilía á öðrum endanum vegna fráfalls leikkonu: Myrti viðhaldið með skrúfjárni - grunur um að leikkonunni hafi verið fómað við djöfladýrkun „Viö skiljum ekkert í því af hveiju leikkonan var myrt,“ viðurkennir lögreglan í Rio de Janerio eftir margra daga rannsókn á umtalað- asta morðmáli sem upp hefur komið þar í landi um árabil. Daniela Perez, leikkona í sápu- óperu, var myrt af Guilherme de Padua, mótleikara sínum, og ef til vill konu hans einnig. Hann segir að hún hafi viljað sofa hjá sér og því hafi hann gripið til þessa óyndisúr- ræðis. Kona leikarans játaði á sig morðið og segir að þau hafi notað skrúfjám til að murka lífið úr leikkonunni. Hún hefur nú dregið játninguna til baka. Lögreglan segir að á líkinu séu 12 stungusár en telur að morðvopnið hafi verið skæri eða hnífur. Blöð í Brasiiiu segja að hin grun- uðu séu forfallnir djöfladýrkendur og hafi notað leikkonuna við fómar- athöfn. Upplýst er að þau hafi látið tattóvera nöfn sín á kynfæri hvort annars og sé það liður í djöfladýrk- uninni. Lögreglan vill ekki staðfesta þessar sögur. Múgur og margmenni kom til jarð- arfarar leikkonunnar og kom tíl upp- þota því fleiri vildu vera við útfórina en komust að. Upplausn í stjómmál- um landsins þykir ekki lengur frétt- næm enda nutu aðalleikendurnir í þessari raunverulegu sápuópem mikillavinsælda. Reuter Sænska kjamorkuverið í Barsebáck veldur úlfúð: Danir hóta Svíum stríði Gizur Helgason, DV, Kaupraannahö&r Sænska kjamorkuverið Barsebáck, sem liggur í sjónmáfi frá Kaupmannahöfn, verður tekið í notkun í lok þessarar viku. Það hefur verið lokað í marga mánuði, Dönum til óblandinnar ánægju. Þeir bjart- sýnustu vom að vona að verið yrði ekki opnað á ný eftir lekann sem varö í kælikerfi kfjúfsins þann 26. júlí. Danski innanríkisráðherrann Thor Pedersen fagnar ekki ákvörðun Svía um að opna verið aftur og sagði, með hinni afræmdu dönsku kímni, að Danir heíðu mesta löngun tif að ráöast gegn Svíum vegna Barsebáck. Sænski vamarmáfaráðherrann tók spaugi danska innanríkisráðherrans vel og sagöi að ef Danir sendu flug- her og flota á hendur Svíum mundu þeir varpa úldnum fiski yfir Dan- mörku alla. Carl BUdt, forsætisráðherra Sví- þjóðar, gat ekki tekið gamansemi Danans og sagði að danski innanrík- isráðherrann gæti gert að gamni sínu innan landamæra Danmerkur. Hann krafðist þess að danski forsætisráð- herrann veitti Thor Pedersen áminn- ingu fyrir ummælin. Sænski forsætisráðherrann kom fram í dönskum sjónvarpskvöldfrétt- um og var ekki þesslegur að hann sætti sig við minna en opinbera af- sökun danska innanríkisráðherrans. Hann sagði að menn yröu jáfnvel að gera ákveðnar lágmarkskröfur til danskra ráðherra. Forfaðir risaeðla f innst í Argenta'nu Höfuö eðlunnar var lítið, eins og sjá má á þessari röntgenmynd þar sem þaö er boriö saman viö mannshönd. Símamynd Reuter Vísindamenn skýrðu frá því í gær að þeir hefðu uppgötvað frumstæð- asta dínósár heimsins, pínulitið rán- dýr sem taliö er vera forfaðir sjö tonna risaeðla. Hin nýuppgötvaða skepna er köU- uö „Eoraptor" eða „dagrenningar- þjófur“ og gekk hún um á tveimur fótum fyrir um 225 milijónum ára, áður en fjölskyldutré dínósáranna greindist í aUar áttir. Það voru bandarískir og argent- ínskir vísindamenn sem fundu stein- gervinginn í AndesfjöUunum í norð- vesturhluta Argentínu. Stein- gervingurinn er frá tríastímabilinu þegar meginlöndin fór að reka í sundur. Dagrenningarþjófurinn er 101,6 sentímetra langur frá nefbroddi og aftur úr og hann vó líklega um eUefu kUó. Dínósárar voru til í 165 mUljónir ára áður en þeir hurfu með öUu fyrir 65 mUljónum ára, sennUega í gífur- legumnáttúruhamfórum. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.