Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1993, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1993, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR15. APRÍL1993 Fréttir Framkvæmdastjóri Norræna kvikmyndasjóðsins um bréf menntamálaráðuneytisins: Þetta kallar maður ráðherraafskipti - þegar svona bréf er lesið upp á stjómarfundi hefur það áhrif „Viö tókum á móti brefinu með nokkurri undrun - aö ráðuneyti skuli leggja sig fram í svona máli. Það er mjög óvenjulegt, slíkt hefur aldrei gerst. Þaö var erfitt aö lesa undirskriftina en ég hef nú fengið upplýst að það var Knútur Hallsson sem skrifaði undir. En þetta er skrif- aö í nafni ráðuneytisins og hann er næstráðandi menntamálaráðherra. Miðað við að aðilinn sem skrifaði bréfið spuröi og fullyrti allan tímann að hér væri um að ræöa óskir ráðu- neytisins Mtum viö svo á aö þetta væri að undirlagi ráðherrans," sagði Bengt Forslund, framkvæmdastjóri Norræna kvikmyndasjóðsins, í sam- tah við DV. Bengt var spurður um bréf frá menntamálaráðuneytinu, dagsett 29. október 1992, undirritað af Knúti Hallssyni, þáverandi ráðuneytis- stjóra, til kvikmyndasjóðsins. Þar var farið var fram á að hlutast yrði til um að mynd Hrafns, Hin helgu ve, fengi styrk. Bréfið var sent eftir að Hrafn fór fram á það í bréfi dag- settu 16. september, stíluðu á Ólaf G. Einarsson menntamálaráðherra, að hann hlutaðist til um að íslenski fulltrúinn í stjórn sjóösins gerði þá kröfu að Hrafni yrði úthlutað 2,1 milljón krónum sænskum f styrk úr sjóðnum. Stjórn sjóðsins ákvað að úthluta Hrafni 1 milljón sænskra króna þann 16. desember. - Telur þú að sjóðurinn hafi verið beittur póhtískum þrýstingi? „Þetta kallar maður hklega ráð- herraafskipti. Þegar ráðherrar blanda sér í hluti sem þeir eiga eigin- lega ekki að hafa afskipti af. Mín skoðun er að það eigi ekki að reka svona starfsemi og úthluta pening- um á slíku plani.“ - Hafði bréfið frá menntamálaráðu- neytinu áhrif á ákvörðun sjóösins um að veita Hrafni 1 milljón sænskra króna í styrk? „Það er ljóst að þegar svona bréf er lesið upp á stjómarfundi hefur shkt áhrif. Sjóðurinn þurfti ekki að taka þessa ákvörðun en niðurstaðan varð þessi,“ sagði Bengt Forslund. Bengt sagði að þrátt fyrir allt htist honum nú mun betur á kvikmynd Hrafns en honum fannst hún lofa á fyrri stigum hennar, á síðasta ári. „Stóra spurningin í þessu máli var hvort ég gaf loforð eða ekki. Málið var að ég fékk bréf frá Hrafni í febrú- ar í fyrra. Eftir það skrifaði ég honum og kvaðst gjama vilja vera með í verkefninu að einhverju leyti. Það var ekkert rætt um peninga eða upp- hæðir. Síöan fékk ég ekkert handrit fyrr en í Cannes, 14 dögum fyrir fund sjóðsstjórnar. Þá var ég ekkert spenntur fyrir handritinu. Þar sem svo mörg verkefni voru í gangi fékk Hrafn enga peninga. Eftir þaö vissi ég ekki að myndin fór í vinnslu um sumarið en venjulega em engir styrkir veittir til mynda sem vinnsla er byijuð á,“ sagði Bengt. Niðurlag bréfs Hrafns til ráðuneyt- isins var á þessa leið: „Það er mikilvægt að'leysa þetta mál innan sjóðsins og viljum viö því óska eftir því við þig, háttvirtur menntamálaráðherra, að fulltrúi ís- lands geri þá kröfu innan sfjómar að veittar verði 2,1 mihjón sænskar til að ljúka við Hin helgu vé. Þetta gæti gerst með þeim hætti að fyrri umsókn yrði látin ghda og tekin aftur upp til endanlegrar afgreiðslu í ljósi þeirra aðstæðna sem hér hefur veriö lýst.“ Niðurlag bréfs ráöuneytisins til Bengts Bergmagns, formanns Nor- ræna kvikmyndasjóðsins, var orð- rétt á sömu leið - þar var vitnað beint í bréf Hrafns. Að síðustu var ítrekað að umsókn hans, og hugsanlega aðr- ar umsóknir, fengju umfjöllun á ný hjá stjórn sjóðsins við næstu úthlut- un. -ÓTT Bref raðuneytisins til Norræna kvikmyndasjóðsins: Var kynnt á fundi í ráðuneytinu - með þeim innlendu aðilum sem eiga aðild að sjóðnum „Eg vissi af þessu bréfi. Það vissu allir af því. Það var búið að kynna það áður en það var sent á fundi í menntamálaráðuneytinu meö öUum þeim sem áttu aðild að Norræna kvikmyndasjóönum - Stöð 2, Ríkis- útvarpinu, Sjónvarpinu, mennta- málaráðuneytinu og Kvikmynda- sjóði. Ég vfi ekki segja hvort í bréfi ráðuneytisins hafi verið hvatt til þess að kvikmynd Hrafns fengi styrk heldur til þess að gefin loforð stæðu,“ sagði Kristín Jóhannesdóttir kvik- myndaleikstjóri. Kristín sat stjórnar- fund Norræna kvikmyndasjóðsins fyrir hönd íslands í desember þegar Hrafni Gunnlaugssyni var úthlutað 1 mfiljón sænskra króna vegna Hinna helgu véa. Að sögn Kristínar sat hún fundinn sem varamaður í forfóUum Ólafs Ragnarssonar. Kristín telur að bréf menntamála- ráðuneytisins, sem vitnað var í á fundi stjómarinnar, hafi ekki haft áhrif á ákvarðanatöku við úthlutun styrks til Hrafns Gunnlaugssonar. „Mín skoðun á þessum fundi er að þó að stjómarformaöur, Bengt Berg- man, hafi kynnt stjórninni að ráðu- neytið hafi sent bréf og lesið upp úr því þá hafi það ekki haft áhrif á umfjöllun um þetta mál. Ég merkti ekki í þessum umræðum að menn létu bréfið hafa einhver áhrif á sig. Þaö er ekkert út á það að setja aö ráðuneytið, sem á aðild að þessum sjóði, hafi eitthvað um það að segja þegar menn em settir út á kaldan klaka. í rauninni er ágætt tfi þess að vita að eiga þennan stuðning ef í hart fer þó ég voni að tfi þess komi ekki aftur,“ sagði Kristín. Um ummæh Bengts Forslund, framkvæmdastjóra sjóðsins, um að. bréf menntamálaráðuneytisins heíði haft áhrif á stjómina, sagði Kristín: „Ég hygg aö þetta sé ekki skoðun stjómarmanna. Þetta var skoðað út frá mjög faglegum forsendum, ekki bara Hrafnsmáhð, heldur annaö mál héðan frá íslandi. Hvaða möguleika menn ættu í að fjármagna ef þeir fengju enga peninga. Niðurstaðan varð sú að þetta væri eina leiðin tfi að klára kvikmyndaverkið. Það er hagur sjóðsins að verkefnið leggist ekki niður,“ sagði Kristín. -ÓTT Hætt verði við laxveiðitúra Landsbankamanna Kristín Sigurðardóttir, fuhtrúi Kvennalista í bankaráði Landsbank- ans, hefur lagt fram tillögu í banka- ráðinu um að forráðamenn bankans hætti við fyrirhugaöar laxveiðiferðir í sumar og næsta sumar. Mun þessi tfilaga hafa falhð í heldur grýttan jarðveg meðal banakaráösmanna. Kristín vildi ekkert láta hafa eftir sér um máhð þegar DV hafði sam- band við hana en játti því að hún hefði lagt tillöguna fram. Samkvæmt heimfidum DV vfil Kristín að bank- inn gangi á undan með góðu fordæmi þegar spamaður er annars vegar, ekki síst í Ijósi stöðu bankans og umræðna um hana undanfariö. Ef brýnt væri að bankinn ræktaði sam- bönd við ýmsa aöila yrði að leita annarra leiða en laxveiðitúra sem væru dýrir. DV sagði frá því á þriðjudag að forráðamenn Landsbankans ráð- gerðu laxveiðitúr í Þverá í Borgar- firði í sumar en slíkir laxveiðitúrar hafa veriö á dagskránni síðasthöinn áratug. Mun slíkur laxveiðitúr kosta um tvær milljónir króna. Bankaráð Landsbankans fundar í dag og verður laxveiðin þá væntan- lega aftur á dagskrá. -hlh Eflaust hafa margir notað tækifærið til að kanna bókakostinn á bókamark- aðnum i Framtíðarhúsinu i Faxafeni undanfarna daga. Úrvalið á markaðn- um er meira en áður hefur sést og kennir þar margra grasa, allt frá barna- bókum, reyfurum og ástarsögum upp f þekktar íslenskar skáldsögur, ævi- sögur og Ijóð. Hér má sjá skáldiö Jón úr Vör glugga í bók um listir en sérstök deild er meö bækur um listir. Segja kunnugir að hægt sé að gera góö kaup enda verðið allt frá 25 krónum og upp úr. DV-mynd ÞÖK Stuttarfréttir r>v Rekstur Þörungavinnslunnar á Reykhólum gekk illa á síðasta ári. Óseldar birgðir í Pinnlandi eru alls 740 tonn sem er um þriðj- ungur ársframleiöslunnar. Tölvulæknir Stefán Krisijánsson, íslenskur læknir í Stokkhólmi, hefur gert tölvuforrit fyrir hjartaþræðing- ar. Forritið er notað á öllum sænskum sjúkrahúsum sem framkvæma shkar aðgerðir. Borgnesingar vernda 60% Borgnesinga vfija ekki veg- fyllingu út í Brákarey. Undir- skriftahstar voru afhentir bæjar- yfirvöldum í gær. Sparisjóðir hagnast Hagnaöur sparisjóðanna á síð- asta ári var um 177 mifijónir. 324 milljóna hagnaöur var árið áður. Palsaðfyrir 134 tnilljónir Um 3.400 falsaðir víxlar, tékkar og skuldabréf upp á samtals 134 mihjónir voru kærð tfi RLR 1 fyrra. Þetta er rúmlega 50% aukning mihi ára. Stórskuld sjávarins Fyrirtæki í sjávarútvegi skuld- uðu 93 mfiljarða í september í fyrra. Stærstu einstöku lánveit- endur sjávarútvegsins eru Landsbankinn og Fiskveiðasjóð- ur en samtals hafa þessar lána- stofnanir lánaö 43,6 mfiljaröa til sjávarútvegsins. iðnrekendur mótmæla Iðnrekendur leggjast alfarið gegn hugmyndum um að hækka vörugjald á sælgæti og gos- drykki. Það fæh i sér mismunun, óeðlilega neyslustýringu og ógn- aði samkeppnisstöðu iðnaðarins. Þeir segjast hafna samningum sem innihalda þetta. Rannsaka Hrafn Nokkrir Alþýöuflokksþing- menn munu heimfia að rann- sóknartihaga stjómarandstöð- unnar vegna ráðningar Hrafns Gunnlaugssonar í stöðu fram- kvæmdastjóra komi til umræöu að sögn Össurs Skarphéðinsson- ar. Meiri velta Össurar Stoðtækjafyrirtækið Össur hef- ur gert umfanfangsmikla sölu- samninga í Bandarikjunum og búist er við 40% veltuaukningu á útflutningsverðmæti á þessu ári þannig að veltan fari yfir 200 mfiljónir. Ræstitæknar mótmæla Ræstingakonur í skólum mót- mæla útboöi á ræstingu í fram- haldsskólum á höfuborgarsvæð- ínu en menntamálaráöherra voru í gær afhentar á annað hundaö undirskiftir þar sem mót- mælt er launaskerðingu sem þær telja að útboöið hafi í fór með sér. 30% barna slasast Samkvæmt gögnum Slysadeild- ar Borgarspítalans slösuöust ár hvert að meðaltali um 30% ahra barna 14 ára og yngri í Reykjavík á tímabilinu 1974 tfi 1991. Bnstakirhestar Niðurstöður rannsóknar, sem gerð var um vöðvabyggingu ís- lenska hestsíns, gefa ótvirætt til kynna að vöðvabygging hans er gjörólik flestum öðrum hesta- kynjum. Menn_ teþa að hér sé komin skýring á því hvers vegna íslenski hesturinn er sterkari og úthaldsmeirienaðrir. -Ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.