Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1993, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1993, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 1993 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EVJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELiAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PALL STEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVlK. SlMI (91)63 27 00 FAX: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Áskrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDG. 25. SiMI: (96)25013. BLAÐAM.: (96)26613. FAX: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1200 kr. Verð I lausasölu virka daga 115 kr. - Helgarblað 150 kr. Frumstæð þjóð Formaður norræna kvikmyndasjóðsins hefur staðfest, að menntaráðherra íslands hafi beitt sig og sjóðstjómina óeðlilegum þrýstingi til að fá sjóðinn til að styrkja síð- ustu kvikmynd skjólstæðings forsætisráðherra íslands. Þrýstingurinn kom fram í bréfi „á vegum ráðherrans“. Formaður sjóðsins hefur líka staðfest, að hann og sjóð- stjómin hafi aldrei fyrr sætt þrýstingi af þessu tagi. Eigi að síður féllst stjómin á að veita rúmlega átta milljóna styrk út á sautján milljóna króna styrkbeiðni Hrafns Gunnlaugssonar til gerðar bíómyndarinnar Hin helgu vé. Formaðurinn segir óhugsandi, að menntaráðherra annars lands en íslands hefði komið fram á þennan hátt. Með þessu er formaðurinn að segja, að íslendingar séu á lægra siðferðisstigi en Norðurlandabúar. Taka verði tillit til þess og sýna hinum frumstæðu þolinmæðí. Því hefur löngum verið haldið fram í leiðurum þessa blaðs, að siðgæðishugmyndir væru frumstæðari á íslandi en í nágrannalöndum okkar beggja vegna Atlantshafs, Norðurlöndum og engilsaxnesku löndunum. Þessi skoð- un virðist nú vera viðurkennd í nágrannalöndunum. Atburðarásin í styrkveitingu Norræna kvikmynda- sjóðsins sýnir, að á Norðurlöndum er htið niður á íslend- inga sem frumstæða ribbalda, er kunni sér ekki hóf í að ota sínum tota. Að því leyti eru þeir taldir vera eins og skrumskæling úr bíómynd eftir Hrafn Gunnlaugsson. Hálmstráið, sem menntaráðherra íslands notaði í þrýstingnum á Norræna kvikmyndasjóðinn, var að halda því fram, að formaður sjóðsins hefði í faxi til skjólstæð- ings forsætisráðherra lofað honum styrki til verksins. Formaður sjóðsins neitar að hafa lofað nokkru í faxinu. Niðurstaða formanns sjóðsins er, að framvegis muni hann ekki þora að segja við kvikmyndaleikstjóra, að honum líki hugmyndir hans, af ótta við, að slík ummæh verði síðar túlkuð sem lpforð um styrk. Óbeint segir hann, að ekki megi rétta íslendingum htla fingurinn. Mál þetta varpar skýru ljósi á siðleysi íslenzkra ráða- manna, af því að það rekst á siðvenjur í nágrannalöndun- um. Það staðfestir í augum umheimsins, að ísland sé eins konar Ítalía norðursins, sem ekki geti staðið undir sömu siðferðiskröfum og gerðar eru á Norðurlöndum. Siðleysi menntaráðherra í máh þessu felst í að mis- nota aðstöðu sína til að hygla skjólstæðingi forsætisráð- herra. Sami ráðherra misnotaði aftur aðstöðu sína til að bola framkvæmdastjóra ríkissjónvarpsins í frí til að hygla þessum sama skjólstæðingi forsætisráðherrans. Svipað siðleysi kemur fram í eignarhaldi stjómmála- flokkanna á bankastjórastólum og meira að segja for- stjórastóh Veðurstofunnar, svo að nýleg dæmi séu rakin. Það kemur fram í, að htið er svo á ráðherra, að þeir megi haga sér eins og eins konar miðalda-lénsgreifar. Abyrgð þjóðarinnar á málinu felst í að velja sér stjóm- málaflokka og -foringja, sem ekki þættu gjaldgengir í nágrannalöndunum. Þetta stafar af, að þjóðin hefur ekki siðferðilegan þroska til að hafna spihtum stjómmála- flokkum og -foringjum með hugarfari lénsgreifa. Kjósendur telja þolandi, að fjármálum foringja, flokka og ríkis sé ruglað saman og að mismunandi reglur gildi um Jón og séra Jón. Kjósendur telja þolandi, að ráðherr- ar séu eins og smákóngar sem skafh og skammti skjól- stæðingum. Kjósendur telja þolandi að búa við hermang. Meðan þjóðin sættir sig við þetta ástand munu ráð- herrar halda áfram að haga sér sem fyrr. Og Ólafur G. Einarsson segir vafalaust ekki af sér sem ráðherra. Jónas Kristjánsson Lag til að lækka tilkostnað Lítil veröbólga eins og núna er að skapa skilyrði til alveg nýrra vinnubragða í okkar þjóðfélagi. Það sem áður var fjarlægt og ókleift er núna innan seilingar og fyllilega mögulegt; einfaldlega vegna þess að verðbólgan er sigin ofan í skap- legar stæröir. Enginn vafi er á því að verðskyn almennings hefur breyst mikið frá þeim tímum er verðbólgan var mikil og enginn vissi í raun og veru hvemig verðlag ýmissa vöruteg- unda myndi þróast. í 30 prósent veröbólgu og gott betur var það nefnilega svo að enginn tók eftir þvi hvort ein vörutegundin hækkaði um 50 prósent eða 20 prósent. Ef bara hin varanlega meðaltalshækkun var eitthvað nærri 30 prósentum. Það var á þeim tima sem seljend- ur og framleiðendur vöru gátu komist upp með alls konar fanta- brögð. Til viðbótar við verðbólguna bjuggum við lengst af við efnahags- lega þenslu þar sem seljandinn hafði kverkatak á kaupandanum. Væm menn ekki tilbúnir til að kaupa vöruna nánast við hvaða verði sem var gat seljandinn allt eins neitað að láta hana af hendi. Um slíkt þekktum við ótal dæmi. Góöæri en samt kreppa Menn mega muna árdaga tölvu- ævintýrisins þegar fyrirtæki og heimili voru að væðast tölvubún- aði með íslenskum methraða. Strákar, sem á þeim tíma voru glúrnir við tölvufikt, settu á stofn fyrirtæki og riðu um landið þvert og endilangt, ýmist til að selja tölvubúnað ellegar að setja upp námskeið í tölvukunnáttu og lokk- uðu landann í löngum bunum til sín á skólabekk. Á þessum tímum var ekki viðlit að reyna að spyrna við fótum. Kaupandinn hafði ofur einfaldlega ekki stöðu til þess. Á þessum tíma var hægt aö sýna fram á með auð- veldum hætti hvemig öll þjónusta og aðföng sjávarútvegsins hækk- uðu langt umfram tekjur greinar- innar. Þó voru þetta góðæristímar í hinum ytri skilyrði. Aflinn var góður og afurðirnar seldust við háu verði. En afkoma burðarássins okkar, sjávarútvegsins og þar með samkeppnisiðnaðarins var með endemum. Þannig bjuggum viö til okkar eigin kreppu, hin efnahags- legu harðindi sem stöfuðu af mannavöldum. Þessa tíma megum við aldrei end- urlifa. Þeir voru alltof dýru verði keyptir. Sveiílan og slátturinn, sem fylgdi þessum tímum, vom aö vísu þægileg fyrir sumar atvinnugreinar og fólkið í landinu sumpart á meðan á veislunni stóð. En eftirköstin urðu líka þeim mun hroðalegri. Þess vegna verður það seint of kveðin vísa aö benda á þá þýðingu og þann mikla árangur sem felst í því að ná niöur verðbólgunni. KjaUarmn Einar K. Guðfinnsson alþingismaður Sjálfstæðis- flokksins á Vestfjörðum Versta glapræðið, sem við gætum orðið fyrir nú, væri að varpa markmiðum um litla verðbólgu fyrir róða. Höfum í huga að sam- heiti verðbólgunnar er dýrtíð og líklega er það hugtak ennþá betur lýsandi fyrir hina efnahagslegu fylgifiska ört hækkandi verðlags. Óhugsandi án lítillar verðbólgu I lítilli verðbólgu geta heimilin í landinu fylgst náið með verðlags- þróun nauðsynjavara sinna og bruðist við ef þar ætlar eitthvað að bregða út af. Og fyrirtækin í land- inu geta með sama hætti fylgst með verðþróun aðfanga sinna. Nú upp á síðkastið hefur það gerst í fyrsta sinn að verðlag innanlands hefur hækkað minna en erlendis. Þaö er ómetanlegur árangur því þannig lækkar smám saman raungengi gjaldmiðilsins sem styrkir sam- keppnisstöðu innlendrar fram- leiðslu. Þær fréttir, sem berast nú af ein- stökum fyrirtækjum, sem freista þess að ná niður kostnaði með formlegri lækkun stórra kostnað- arliða, heföu verið óhugsandi á verðbólgu- og þenslutímum. Nú er hins vegar lag sem viö verðum að nýta okkur. Við þær aðstæður sem uppi eru nú, er tekjur þjóðarbúsins minnka, ríöur á öllu að okkur tak- ist að lækka tilkostnað. Lítil verð- bólga - með öðrum orðum engin dýrtíð - hefur skapað okkur skil- yrðin til þess. Viö hljótum að geta sameinast um að varðveita þann ómetanlega árangur og byggja á honum til frambúðar. Einar K. Guðfinnsson „í lítilli verðbólgu geta heimilin í landinu fylgst náið með verðlagsþróun nauðsynjavara sinna ...“ „I30 prósent verðbólgu og gott betur var það nefnilega svo að enginn tók eftir því hvort ein vörutegundin hækk- aði um 50 prósent eða 20 prósent. Ef bara hin varanlega meðaltalshækkun var eitthvað nærri 30 prósentum.“ Skoðanir annarra Smánarblettur á sögu Evrópu „Stríðið í ríkjum fyrrum Júgóslaviu hefur verið smánarblettur á sögu Evrópu og þar viðgengist margskonar viðbjóöur og stríðsglæpir. Aðrar þjóðir Evrópu hafa horft vanmegnugar á þær blóðsúthell- ingar sem þar hafa verið daglegt brauð... það hlýtur að vera meginmarkmið Vesturlanda að koma í veg fyrir stríð í þessum ríkjum. Þannig er ekki óeölilegt að Atlantshafsbandalagið endurskoði tilgang sinn í ljósi breyttrar heimsmyndar." Ur forystugrein Alþ.bl. 14. apríl Prófsteinn á NATO „Afskipti NATO af átökunum í Bosníu geta orðið prófsteinn á getu þess, rétt eins og Vestur-Evrópu- sambandsins og EB, sem virðast ekki hafa staðist þá prófraun... Engu skal spáð um þaö hvaöa áhrif þessi afskipti hafa á gang styrjaldarinnar. Menn eru hættir að trúa á skjótar lausnir í þeim efnum. Skelfi- legur veruleikinn sýnir að það eru tálvonir." Úr forystugrein Tímans 14. apríl Mikilvægi tungumálakennslu „Ég vil hvetja til þess að hvergi verði slakað á tungumálakennslu, það er nauösynlegt ef við ætlum að tryggja áframhaldandi uppbyggingu og þróun hér á landi. Áherslur kunna hins vegar að þurfa að breyt- ast í átt til aukinnar sérhæfingar þegar ofar dregur í skólakerfmu.Ég er sannfærð um að böm hafa þegar misst hluta af hæfileikum sínum til tungu- málanáms þegar kennsla hefst við 11 ára aldur. Ég teldi æskilegra að kennsla hæfist 1-2 árum fyrr en nú tíðkast. Með því móti ætti að vera hægt að bjóöa upp á sérhæfða tungumálakennslu þegar í fram- haldsskóla.“ Berglind Ásgeirsdóttir róðuneytisstjóri. - Mbl. 14. apríl

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.