Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1993, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1993, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 1993 Neytendur Mikill verðmunur á milli stórverslananna 508 kr. ER SKEMMTILEGIJR TÍMII RAMIMLW? Hin vikulega verðkönnun DV fór fram í gær. Farið var í íimm mat- vöruverslanir að þessu sinni en þær voru Mikligarður við Sund, Fjarðar- kaup í Hafnarfirði, Kjöt og fiskur í Mjódd, Hagkaup í Skeifunni og Bón- us í Faxafeni. Litið var á verðið á rauðum eplum, appelsínum, Cocoa Puffs (550 g), tóm- ötum, Þvol uppþvottalegi (485 g), 'A lítra af kóki, nautahakki (1 kg), SS pylsusinnepi, og Léttu og laggóðu. Mestur verðmunur reyndist vera á tómötum eða 130%. Lægsta verðið á tómötum var í Bónusi en þar er 'A kíló selt í pökkum á 65 krónur. Séu keyptir tveir pakkar fæst því kílóið á 130 krónur. Hæsta verðið á tómöt- um var í Hagkaupi en þar er kílóið selt í pökkum á 299 krónur. í lausu kostar kílóið af tómötum 329 krónur í Hagkaupi en 225 krónur í Bónusi. Næstódýrastir voru tómatarnir í Kjöti og fiski en þar var kOóið á 254 krónur. MikOl verðmunur var einnig á epl- um eða 83,5%. Bónus var með lægsta verðið eða 79 krónur kílóið. Kjöt og fiskur var einnig með hæsta verðið í þessu tilviki en þar voru rauð epli á 145 krónur. Sama verð er á rauðum eplum í lausu og í pökkum hjá Kjöti og fiski. Mikligarður var með næst- lægsta verðið á eplum en þar var kílóið á 98 krónur. í Miklagarði er veittur 3% staðgreiðsluafsláttur og er sá afsláttur tekinn inn í allt upp- gefið verð hér frá Miklagarði. í Hag- kaupi er kílóið á eplum 119 krónur en 139 krónur í Fjarðarkaupum í Hafnarfirði. Á SS sinnepi (200 g) reyndist vera 58% verðmismunur á miÖi verslana. Bónus var með lægsta verðið eða 43 krónur en Rjöt og fiskur með hæsta verðið 68 krónur. SS pylsusinnep fékkst ekki í Miklagarði. Töluverður verðmunur getur reynst á milli stórverslana í Reykjavík. Mestur verðmunur í könnuninni var á tómötum eða 130%. Ekki nema í góSum félagsskap. Hringdu og prófaðu Símastefnumótið þar sem fjöldi fólks ó öllum aldri hefur fundiS sér félaga. Þetta er spennandi og skemmtileg leiS til aS kynnast nýju fólki. Þetta er spennandi, þetta er rómantískt, þetta er öruggt. Mínútan kostar 39,90 kr. SÍMASTEEALMÓT 99/18/9S Teleworld ur í Miklagarði og 728 krónur í Kjöt og fiski. Töluveröur verðmunur var á app- elsínum eða aOs 66%. Bónus var með lægsta verðið eða 59 krónur kOóið. Hagkaup var hins vegar með hæsta verðið eða 98 krónur. í Miklagaröi fæst kOóið á 96 krónur en Fiarðar- kaup og Kjöt og fiskur eru með sama kOóverð á sínum appelsínum sem er 69 krónur. Hálfur lítri af kóki í plasti er ódýr- astur í Bónusi á 64 krónur en dýr- astur í Kjöti og fiski á 88 krónur. Verðmunurinn er því 37,5%. í Mikla- garði fæst hann á 67 krónur, í Hag- kaupi á 74 krónur og hjá Fjarðar- kaupum er hann á 79 krónur. Tekið var miö af Cocoa Puffs í 550 g pakkningu en sú stærð fékkst í öO- um búðunum. AOs var 12% munur á lægsta og hæsta verði. Lægsta verð- ið á Cocoa Puffs var í Bónusi á 263 krónur en hæsta verðið var í Kjöti og fiski á 294 krónur. Þá fékkst pakk- inn á 271 krónu í Miklagarði. í Fjarð- arkaupum og Hagkaupi var hann á sama verði eða á 289 krónur. Þvol uppþvottalögur, grænn, (485 ml) var lil í öOum verslununum nema Bónusi. Lægsta verðið var í Fjarðarkaupum eða 84 krónur. Hæsta verðið var hjá Kjöti og fiski en þar var hann á 109 krónur. í MOdagarði var verðið 92 krónur en 102 krónur í Hagkaupi. Létt og laggott var ódýrast í Bónusi á 149 krónur en dýrast í Hagkaupi á 165 krónur. Verðmunurinn er 11%. Mikfigarður og Fjarðarkaup eru með sama verðið eða 155 krónur. -KMH 145 kr Hæst Hæst Lægst Lægst 294 kr. 263 kr. Hæst Lægst 165 kr. 149 kr. Hæst Lægst Eitt kfló af nautahakki var dýrast í Fjarðarkaupum eða 769 krónur. Ódýrasta nautahakkið fékkst í Bón- usi á 508 krónur. Inni í því verði er 10% afsláttur sem gefinn var á öflu nautahakki. Næstódýrasta nauta- hakkið var í Hagkaupi á 639 krónur. Kflóið af nautahakki var á 706 krón- Tegundir Mikligarður Hagkaup Fjarðarkaup Bónus Kjöt ogfiskur Nautahakk, 1 kg 706 639 769 508 728 Kók, /i I 67 74 79 64 88 SS pylsusínnep, 200 g 59 52 43 68 Cocoa Puffs, 550 g 271 289 289 263 294 Þvol, uppþvottalögur, grænn, 485 ml 92 102 84 109 Tómatar, 1 kg 271 299 269 130 254 Rauöepli, 1 kg 95 119 139 79 145 Appelsínur, 1 kg 96 98 69 59 69 Létt og laggott, 400 g 155 165 155 149 164

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.