Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1993, Blaðsíða 4
4
FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 1993
Fréttir
Jeppa bjargað af Tungnafellsjökli:
HJól jeppans á sprungu-
brúninni beggja vegna
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Þarna er mikið sprungusvæði og
varasamt fyrir þá sem ekki þekkja
það vel. Mér virtist þessi hópur ekki
vera kunnugur svæðinu," segir
Sveinbjöm Sveinbjörnsson, en hann
stjórnaði snjóbO sem bjargaði jeppa-
bifreið af spmngu á TungnafeÚsjökli
á föstudaginn langa.
Sveinbjörn var í 14 manna hópi úr
Hjálparsveit skáta á Akureyri sem
kom að skála í Nýjadal. Þá bámst
fregnir af jeppanum og fóm skátam-
ir af stað á jökubnn til að bjarga
honum. Sveinbjörn segir að svæðið
sé svo varasamt vegna sprungna í
jöklinum að vélsleðar hafi farið fyrir
snjóbílnum og einnig gangandi menn
með spjóflóðastengur.
Jeppinn sem um ræðir var af
Bronco gerð, af Austurlandi að því
best er vitað. Sprungan sem jeppinn
- mikil ölvun á hálendinu um páskahelgina
Tveir menn sem voru í jeppanum komust úr honum um afturdyr. Snjóbíll dró hann síóan af sprungunni.
var á var ekki breiö og voru hjól jepp-
ans á sprangubrúninni beggja vegna
en hyldýpið imdir. Tveir menn vom
í jeppanum og komust þeir út úr
honum um afturdyr. Björgun jepp-
ans gekk vel þrátt fyrir myrkur, snjó-
bíllinn dró jeppann af sprungunni
og um leiö var slakað á böndum sem
sett vora á jeppann hinum megin frá.
„Það er mjög varasamt að vera að
ferðast á jöklum þar sem fólk þekkir
ekki til. Mér virtist að um páskahelg-
ina væri allt of mikiö af fólki þarna
bara vegna þess að það á að vera eitt-
hvað flott að fara á fjöll. Það var
mikið um ölvun þama og ekki góð
umgengni. Við hirtum upp bjórflösk-
ur við Fjórvörður og í kringum Laug-
arfell vora bjórdósir í lauginni og
ælur og annar óþverri allt um kring.
Að mínu mati veitir ekki af vörslu
við þessa skála um helgar a.m.k.,“
sagði Sveinbjöm.
Dæmdir fyrir að gefa úft símaskrá
- GimnarBergkærðiÁTVRogHéraðsdóminn
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Bræðumir Gunnar Berg og Stein-
dór Berg á Akureyri hafa verið
dæmdir í Héraðsdómi Norðurlands
eystra fyrir að gefa út „Upplýsinga-
rit um Akureyri" sem er fyrst og
fremst símaskrá fyrir bæinn. Þaö var
ríkissaksóknari sem höfðaði mál á
hendur þeim fyrir hrot á fjarskipta-
iögum og var Gunnar dæmdur í 40
þúsund króna sekt og Steindór til að
greiða 10 þúsimd krónur.
Gunnar hefur gefið þetta rit út í
um áratug en Steindór tók við útgáf-
unni á síðasta ári. Gunnar segir að
hægt hafi verið að fá leyfi fyrir þess-
ari útgáfu en þaö hafi þá verið háð
þvi skilyrði að birta símaskrána fyrir
Akureyri óbreytta upp úr símaskrá
Pósts og síma með þeim auglýsingum
sem þar era.
„Það er auðvitað með ólíkindum
og getur ekki staðist að einn aðili sem
selur öðram auglýsingar geti skikk-
að þriðja aðila til að birta þær auglýs-
ingar ókeypis, en svona er þetta nú
samt,“ segir Gunnar.
Hann segir einnig að símaskrá fyr-
ir einstaka staði séu gefnar út af ein-
stakhngum um allt land og sú útgáfa
sé látin afskiptalaus. Þannig sé t.d. í
Vestmannaeyjum þar sem slík síma-
skrá hefur verið gefin út síðan árið
1979 og mörg fleiri dæmi mætti
nefna.
„Pósti og síma heíði verið í lófa
lagið að stöðva þessa útgáfu með því
einfaldlega að stofnunin hefði gefið
út símaskrár fyrir einstaka staði
sjálf, en það er varla von á slíku
framtaki frá opinberri stofnun sem
er steinrannin. Póstur og sími skrif-
aði öllum prentsmiðjum landsins
fyrir tveimur áram bréf þar sem
sagði að óheimilt væri að prenta
símaskrár fyrir einstaka staði nema
senda stofnuninni áður ljósrit af öll-
um síðum skrárinnar og þetta er
auðvitaö ekkert annað en ritskoð-
un.“
Póstur og sími hefur lagt fram aðra
kæra á hendur Gimnari. Sú kæra er
fyrir það að hafa ekki í upplýsinga-
riti sínu birt auglýsingar sem vora í
símaskrá Pósts og síma.
„Þarna er kært fyrir að birta ekki
opinbert efni í riti sem ekki má gefa
út, og að sjálfsögðu mun ég halda
uppi vömum í þessu máli,“ segir
Gunnar.
Gunnar Berg hefur kært Áfengis-
og tóbaksverslun ríkisins og Héraðs-
dóm Norðurlands eystra. Kæran er
tilkomin vegna áfengisauglýsinga
sem hafa legið frammi á biðstofu
Héraösdómsins.
Gunnar sagöi að þegar hann kom
í dóminn vegna útgáfu upplýsinga-
ritsins hefði hann rekið augun í þess-
ar auglýsingar þar sem ýmis vín sem
hægt er að sérpanta erlendis frá eru
dásömuð. „Þetta er auðvitaö brot á
áfengislöggjöfinni sem segir aö ekki
megi auglýsa áfengi, en ég hef ekki
heyrt neitt um afdrif þessarar kæru
minnar,“ segir Gunnar.
Brunnur spillingarinnar
Þegar kirkjan var og hét á miðöld-
um vora syndugir menn ekki aö-
eins settir út af sakramentinu held-
ur bannfærðir með svo rækilegum
hætti að þeir vora nánast útskúfað-
ir úr þjóðfélaginu. Fyrir einhver
mistök eða misskilning hefur valdi
kirkjunnar manna hrakað á síð-
ustu öldum og er ekki lengur svip-
ur hjá sjón.
Það hefur verið helst að frétta frá
þjóðkirkjunni að söfnuðumir rífast
um kirkjubyggingar og prestamir
komast þá fyrst í ham þegar launa-
mál þeirra berast í tal. Gott ef for-
maður Prestafélagsins stendur
ekki í málaferlum viö ríkissjóð fyr-
ir að alþingi skyldi hafa hafnað því
að veita starfsbræðrum hans og
honum sjálfum kauphækkun sam-
kvæmt úrskurði kjaradóms.
Sem betur fer era margir trúaðir
hér á landi og era meira að segja
svo trúaðir að þeir treysta sér ekki
til að vera í þjóðkirkjunni. Þessir
trúaráhugamenn hafa hinsvegar
stofnað með sér allskyns sértrúar-
söfnuði svo sem aðventistar, Hjálp-
ræðisherinn, hvítasunnumenn og
ekki má gleyma Krossinum og Veg-
inum og blessuðum kaþólikkun-
um. Allar era þessar guðhræddu
sálir að leita að Guöi sínum og
kasta sínum syndum á bak við sig
og stundum gera þeir svo lítið að
hafa samráð við þjóðkirkjuna og
biskup og um páskadagana sam-
einuðust þessir söfnuðir allir í
einni og sömu bæninni, sem for-
stöðumaður Betelsafnaðarins í
Vestmannaeyjum flutti í útvarpi.
Eftir að hafa farið nokkram orð-
um um Krist og krossfestingu og
upprisuna eins og vera ber, ein-
henti guðsmaðurinn úr Eyjum sér
í það að fjalla um syndimar í þjóð-
félaginu og afneitaði þeim öllum
eins og vera ber. En ekki var nóg
með að hann fengi kvittun að ofan
um að sameinaðir trúarsöfnuðir á
íslandi væra svo gott sem synd-
lausir, heldur notaði guðsmaður-
inn sér sitt kristfiega skírlífi til að
taka fyrir þá syndugu og senda
þeim tóninn.
Vék hann tali sínu sérstaklega
að einhverju fyrirtæki sem heitir
SAM- útgáfan og fann það út í þess-
ari páskamessu sinni að þar væri
djöfulinn að finna í branni spilling-
arinnar. Guðsmaðurinn segir aö
SAM-útgáfan gefi út Bleikt og blátt,
sem sé klámrit, og gott ef SAM-
útgáfan gefur ekki út fleiri blöð sem
öll era með því marki brennd að
fjalla um svartar messur og djöfla-
dýrkun.
"í Biblíunni er talað um þessa
þætti: klám, djöfladýrkun, andatrú
og allt það kukl - þetta er bölvað
af Guði. Þeir sem fara inn í þetta
fá bölvunina yfir sig".
Veslings eigendur SAM-útgáf-
unnar höfðu alls ekki gert sér grein
fyrir því hlutverki sem þeir gegna
í þjóðlífmu. Ekki veit Dagfari hvort
Bleikt og blátt er klámrit en mikið
starf liggur augsýnilega fyrir söfn-
uðunum á íslandi ef þeir ætla að
taka sér það fyrir hendur að uppr-
æta allt klám sem birtist á prenti
og munu þá kirkjunnar menn ekki
hafa annað fyrir stafni næstu árin.
Það er hinsvegar gott til þess að
vita að kristnir menn í landinu
hafa loksins uppgötvað hvar brunn
spiilingarinnar er að finna og mun
nú tekist á um það hjá dómstólum
landsins hvor hafi betur, djöfullinn
eða kristindómurinn.
Þeir hjá SAM-útgáfunni ætla
nefnilega að höfða mál gegn Betel-
manninum fyrir ærumeiðingar og
atvinnuróg og lögmenn fá þaö nú
til meöferðar að fá dómsúrskurð
um það, hvað kristilegt megi teljast
í rituðu máh og hvort kirkjunni
takist að endurreisa þann gamla
og góða sið að bannfæra samborg-
ara og útgáfur fyrir það að skrifa
öðru vísi en guðsmönnunum þókn-
ast.
Þjóðkirkjan er greinilega komin
í góðan félagsskap með Hjálpræðis-
hemum, Betel og aðventistum og
fleira trúuðu fólki, þar sem eld-
messan á skírdag var flutt í nafni
þeirra allra og þjóðkirkjunnar um
leið. Það erengan veginn fullnægj-
andi verkefni fyrir kirkjuna að
sameina sjálfa sig og aðra þá sem
trúa á Guð. Það verður jafnframt
að útskúfa þeim sem era syndugir
og kunna ekki þá mannasiði að
haga sér eins og þeir hjá Betel viija
að þeir hagi sér. Fyrirgefningin á
ekkert erindi inn í þennan boðskap.
Burt með syndarana, burt með
klámið og kuklið og hrópum og
áköllum Guð á fundum hjá Kross-
inum og Veginum og bannfærum
syndarana. Þannig höldum við
páskana heilaga.
Dagfari