Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1993, Side 28
40
FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 1993
Meiming
Stamp World Cup 1992:
íslenskur sigur í stærstu
frímerkjasamkeppninni
- Fundur Ameríku, sem hannað er af Þresti Magnússyni, varð í þriðja sæti yfir fegurstu frímerkin
Þröstur Magnússon teiknari heldur hér á frummyndinni af Fundi Ameríku sem hlaut þriðju verðlaun i samkeppni
um fegursta frímerkið. Á myndinni má einnig sjá frummyndir af öðrum frimerkjum sem voru í hópi íslenskra fri-
merkja sem unnu til 1. verðlauna i landakeppninni. DV-mynd ÞÖK
Nylega voru kunngerð ursut 1
Stamp World Cup 1992 sem er
stærsta frímerkjasamkeppni milli
landa i heiminum. Postur og sími
sendi úrval frímerkja í samkeppnina.
Fyrst var keppt í riðlum og sigraði
ísland í einum Evrópuriðlanna, síð-
an í undanúrslitum og var ísland eitt
sex landa sem síðan tók þátt í úrslita-
keppninni og þeirri úrslitaviðureign
lauk með sigri íslands. Þessi árangur
íslands í keppnni er sérlega glæsileg-
ur, en þetta er í fyrsta skipti sem ís-
land tekur þátt í Stamp World Cup.
í keppninni um fegursta einstaka
frímerkið lenti Fundur Ameríku, frí-
merkjablokk, hönnuð af Þresti
Magnússyni í þriðja sæti á eftir frí-
merki frá Mónakó, sem varð í fyrsta
sæti, en myndin á því er af málverki
eftir Claude Monet og frímerki frá
Júgóslavíu.
Þáttur Þrastar Magnússonar er
mikill í þessum sigri. Þröstur teikn-
aði öll frímerkin utan eitt sem tóku
þátt í landakeppninni og átti fimm
frímerki í hópi þeirra þrjátíu og
tveggja sem kepptu um titilinn feg-
ursta frímerkið, fjögur íslensk og eitt
færeyskt (færeyska frímerki er hluti
af Fundi Ameríku).
Þessi árangur íslands er ákaflega
glæsilegur og á öruggléga eftir að
hafa mikil áhrif á sölu íslenskra frí-
merkja á erlendri grund. Keppni
þessi er haldin á tveggja ára fresti
og sigraöi Noregur fyrir tveimur
árum. Töldu Norðmenn að sigur
þessi hefði tvímælalaust veriö mjög
góð landkynning og aukiö sölu á
norskum frímerkjum.
Það er franska tímaritið Timbrolo-
isirs sem stendur fyrir keppni þess-
ari ásamt fyrirtækjunum Davo, sem
meðal annars gefur út frímerkjaalb-
úm og fyrirtækinu Phila-Mail. Eru
það tugþúsundir lesenda tímaritsins
sem meðal annars standa fyrir vali
á fegurstu frímerkjunum.
í stuttu spjalli við DV sagði Þröstur
að það hefði komiö sér algjörlega á
óvart hversu vel íslensku frímerkj-
unum var tekið. Fyrst og fremst
væri það ánægjulegt aö ísland skyldi
vinna keppnina og fyrir hann per-
sónulega að hafa átt fimm frímerki
í úrshtakeppninni um fegursta frí-
merkið. „Þessi keppni er fyrst og
fremst landakeppni og auglýst sem
shk en keppnin um fegursta frímerk-
ið er til hUðar, nokkurs konar auka-
keppni." Annars sagði Þröstur að
hann vissi ákaflega lítið um keppn-
ina sjálfa og hafði ekki hugmynd um
hvort einhver verðlaun fylgdu upp-
hefðinni.
Þröstur Magnússon er fremsti
hönnuður frímerkja hér á landi og
hefur starfað við teiknun á íslensk-
um frímerkjum síðastliðin tuttugu
ár. Má geta þess að hann fékk Menn-
ingarverðlaun DV í hönnun í fyrra
fyrir hönnun á íslenskum frímerkj-
um. Eina frímerkið sem keppti fyrir
íslands hönd á Stamp World Cup
1992 og var ekki teiknað af Þresti er
fálkafrímerki sem hannað var í
Sviss. Meðal verka Þrastar í þessari
samkeppni voru frímerki úr seríum
hans sem sýna gömul skip og gamla
bíla. Þröstur sagðist nú vera að vinna
að þriðja hlutanum í seríu þessari
sem kæmi út á degi frímerkisins í
haust, á henni væru teikningar af
gömlum flugvélum sem hefðu verið
í notkun hér á landi fyrir 1950. Verð-
launaafhending fer fram í París 28.
apríl.
-HK
Abstraktverk
níu listamanna
í Gunnarssal, sem staðsett- hluta af saftii hans á Kjarvals-
ur er að Þernunesi 4 í stöðum 1976. Safh Gunnars
Garðabæ, stendur yfir mál- gefurheilsteyptamyndaflist-
verkasýning, þar sem ein- sköpun á vissu tímabili en
göngu eru sýnd abstraktverk. flestar myndanna eru frá
Er um að ræða myndir úr sjötta áratugnum og á sýning-
safni hjónanna Gunnars Sig- unni í Gunnarssal leynast
urðssonar og Guðrúnar Lilju perlur sem ekki hafa komið
Þorkelsdóttur. fyrir almenningssjónir áður.
Gunnarssalur var opnaður Þeir myndhstarmenn sem
1990 i minningu Gunnars Sig- eiga verk á sýningunnl eru
urðssonar sem rak Listvina- Eirikur Smith, Hafsteinn
salinn (nú Asmundarsal) á Austmann, Jóhannes Jó-
sjöttaáratugnum.Gunnartók hannesson, Karl Kvaran,
virkan þátt í baráttu ungra Kjartan Guðjónsson, Kristján
myndlistarmanna við að Davíösson, Nína Tryggva-
vinna lúnu óhlutbundna mál- dóttir, Sigurjón Ólafsson,
verki fylgi og skapa því virð- Sverrir Haraldsson, Valtýr
ingarsess. Að Gunnarí látn- Péturson og Þorvaldur Skúla-
um var haldin stór sýning á son.
LeikfélagReykjavíkur: *
Skemmtiatriði á
undan sýningum
Þrjá sýningar eru eftir á söngleiknum
Blóðbræður eftir Willy Russell sem sýnd-
ur hefur verið í Borgarleikhúsinu aö und-
anfömu. Verða sýningamar á morgun,
fóstudaginn 16. apríl, miðvikudaginn 21.
apríl og fóstudaginn 23. apríl. Mikill fjöldi
leikara kemur fram í sýningunni ásamt
hljómsveit undir stjórn Jóns Ólafssonar.
Blóðbræðumir em leiknir af Magnúsi
Jónssyni og Felix Bergssyni en Ragnheið-
ur Elfa Amardóttir leikur móður þeirra.
Leikstjóri er Halldór E. Laxness.
í kvöld er sýning í Borgarleikhúsinu á
Tartuffe og Dauðanum og stúlkunni og
mun sönghópurinn Emil og Anna Sigga
syngja fyrir leikhúsgesti frá kl. 19.40. Á
laugardagskvöldið á undan sömu sýinng-
um munu dansarar úr íslenska dans-
flokknum dansa stuttan dans úr Coppelíu
í forsal og hefst það einnig kl. 19.40. Hópatriði úr söngleiknum Blóðbræður.
Alexander Melnikov.
Melniková
tónleikum
Hinn ungi rússneski píanóleik-
ari, Alexander Melnikov, mun
halda tónleika á vegum Tónlist-
arfélagsins í Reykjavik í íslensku
óperunni í kvöld. Melnikov fædd-
ist í Moskvu 1973 og kom fyrst
fram opinberlega aðeins 7 ára
gamall. Melnikov hefur unnið til
verðlauna fyrir leik sinn. Hann
hefur ieikið á tónleikum og tekið
þátt í tónlistarhátiðum víða um
heim og gerðir hafa verið um
hann sérstakir útvarps- og sjón-
varpsþættir. Þegar hafa veríð
gefnir út tveir geisladiskar með
leik hans. Á tónleikunum í kvöld
leikur hann verk eftir Beethoven,
Schumann, Skriabin og Proko-
fiev.
Gizur í. Helgason, DV, Kaupmannahöfn
Jón Gunnarsson, listmálari frá
Haöiarfirði, sýnir um þessar
mundir 19 vatnslitamyndir í
Jónshúsi i Kaupmannahöfn. Það
var listamaðurinn sjálfur sem
hafði samband við Helgu Guð-
mundsdóttur, menningar- og
upplýsingafulltúa íslendinga í
Kaupmannahöfn, og stakk upp á
því að hann kæmi til Hafnar og
héldi þessa sýningu. Helga sagði
að sýningin væri einn þáttur í að
koma íslenskri menningu á fram-
færi í Kaupmannahöfn og svo að
efla starfsemi þá sem fram fer í
Jónshúsi. Jón Gunnarsson hefur
auk þess að hafa haldið margar
sýningar í íslandi tekið þátt í
samsýningum í Svíþjóð og Þýska-
Iandi en þetta er i fyrsta sinn sem
hann sýnir í Danmörku.
LjóðVédísaríbók
Védis Leifedóttir lést úr eyðni
29. janúar síðastíiðinn. Védís,
sem vann að þvi hörðum hönd-
um, að vekja athugli á málefnum
HIV jákvæðra og eyðnisjúkra,
skildi eftir sig safn ljóða sem búið
er aö gefa út á vegum minningar-
sjóðs Védisar sem samkvæmt
hennar ósk verður veitt úr til
sjálfstyrktarhóps HIV jákvæðra.
í bókinni eru sextíu ljóö sem ort
eru frá árinu 1981 til 1992. í for-
mála bókarinnar, sem ritaður er
af Kristrúnu Gunnarsdóttur, seg-
ir: „Af allt aö þvi óþægilegri ein-
lægni og hispursleysi birtir hún
hér ástriður, vonir, hroka, ótta,
vonleysi og sterka tilfinningu fyr-
ir endalokum lifs síns.“ Silja Að-
alsteinsdóttir og Kristrún Gunn-
arsdóttir völdu Jjóðin í samráði
við Védisi.
Próða og alla hina grislingana
eftir Ole Lund Kirkegaard. Þetta
er í annað sinn sem leikrit þetta
er sýnt á íslandi. Leikstjóri er
Þórunn Magnea Magnúsdóttir en
aðalhlutverkin eru i höndum
Stefán V. Ólafssonar, Ólafs P.
Guðnasonar og Ragnheiöar
Magnúsdóttm*. Mikið er um börn
og unglinga í sýningu þessarí,
enda er veriö að gera átak til aö
þau verði virkari þátttakendur i
leikstarfseminni hér í bæ.