Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1993, Qupperneq 16
16
LAUGARDAGUR 29. MAÍ1993
Skák
DV
-Björgvin Jónsson náði alþjóðameistaratitli á alþjóðamóti íValby
Björgvin Jónsson: Lokaáfangi að titli alþjóðlegs meistara loks í höfn eftir
góða frammistöðu á alþjóðamóti i Valby í Danmörku.
Allar líkur benda til þess að eftir
mánaðamótin eignist íslendingar
sinn sjöunda stórmeistara í skák.
Hannes Hlífar Stefánsson, sem náði
tilskildum áfóngum fyrir ári, hefur
loks komið stigatölu sinni í 2500 Elo-
stig sem krafist er svo að formleg
útnefndin geti fariö fram. Þetta tókst
honum með ágætri frammistöðu á
opna mótinu í Gausdal í apríl.
Hannes varð einn í þriðja sæti á
mótinu, hlaut 6 v. af 9 mögulegum.
Ef stigaóttinn hefði ekki komið til
hefði hann allt eins getað orðið ofar.
Stórmeistaramir Spididon Skembris
frá Grikklandi og Sergei Tivjakov frá
Rússlandi deildu sigrinum með 6,5
v. Hannes tapaði fyrir Skembris en
vaim Tivjakov af öryggi.
Sjö stórmeistarar Islendinga er
heimsmet miðað við höfðatölu en
hins vegar eru alþjóðlegu meistarar
okkar mun færri en eðlilegt mætti
teljast. Svíar og íslendingar eiga sjö
stórmeistara en öll hin Norðurlöndin
samanlagt jafnmarga. Alþjóðlegu
meistaramir í þessum löndum eru
hins vegar fleiri en hér. Efniviðurinn
hérlendis er nægur en tækifærin
færri - yfir lengri veg að fara til að
sækja mót.
Við hækkun Hannesar í tign úr
alþjóðameistara í stórmeistara
stefndi í fækkun í fyrmefnda hópn-
um. Úr þessu hefur Björgvin Jóns-
son, lögfræðingur hjá Islandsbanka,
snarlega bætt. Um síðustu helgi náði
hann langþráðum lokaáfanga sínum
að titli alþjóðlegs meistara.
Björgvin var næstum fallinn á
tíma. Reglur FIDE gera ráð fyrir að
ekki megi líða lengri tími en sex ár
milli fyrsta og síöasta áfanga. Björg-
vin náði þessu á 5 'A ári. Fyrsti áfang-
inn kom á alþjóðamótinu í Njarðvík
í nóvember 1987, síðan á Skákþingi
íslands á Höfn í Homafirði og loks
nú á opnu alþjóðamóti í Valby í
Kaupmannahöfn. Oft hefur Björgvin
verið nálægt markinu, síðast í land-
skeppni íslendinga og Frakka er hon-
um tókst ekki að vinna í síðustu
umferö.
Björgvin og Þröstur Þórhallsson
voru meðal 18 keppenda í Valby og
voru tefldar 9 umferðir eftir
Monrad-kerfi. Skákfélagiö K-41 stóð
fyrir mótinu og var það allvel skip-
að. Úrslit urðu þessi:
1. Hector (Svíþjóð) 6,5 v.
2. -3. Lanka (Lettlandi) og L.B. Hans-
en (Danmörku) 6 v.
4. Bagirov (Lettlandi) 5,5 v.
5. -10. Björgvin Jónsson, Þröstur Þór-
hallsson, Danielsen, Schandorff,
Borge og Fuglasang (allri Dan-
mörku) 5 v. o.s.frv.
Þröstur hóf mótið með því að tapa
fyrir stórmeistaranum Lars Bo
Hansen en var fljótur að bæta það
upp og eftir sjö umferðir átti hann
möguleika á góðu sæti. í áttundu
umferð tapaði hann hins vegar fyrir
sigurvegaranum, Johnny Hector, og
gerði síðan jafntefli viö Zigurð Lanka
í lokaumferðinni.
Umsjón
Jón L. Árnason
Björgvin vann fyrstu skák sína og
vann síðan það afrek að gera átta
jafntefli í striklotu! Þetta nægði hon-
um til lokaáfanga - mótheijar hans
voru af 8. styrkleikaflokki FIDE sam-
kvæmt stigum. í síðustu umferð
haíöi hann svart gegn Dananum
Bimi Brinck-Claussen sem mun vera
af íslenskum ættum. Björgvin nægði
jafntefli en átti von á langri og er-
fiðri baráttu. Hann var því harla feg-
inn þegar Björn hóf spænskan leik
með 3. Bb5 og bauð jafntefli um leið!
Skák Björgvins í fyrstu umferð var
athyglisverð. Englendingurinn
Burgess beitti svonefndu Morra-
bragði sem er ekki sérlega hátt skrif-
að en þó hættulegt þeim sem þaö
ekki þekkir. Eftir skákina sagðist sá
enski hafa nýlokið við að rita bók
um þetta bragð sem er væntanleg á
markað í haust. Hann fékk góð færi
fyrir peðið en Björgvin tókst að slá
hann út af laginu með óvæntri fléttu.
Hvítt: Graham Burgess
Svart: Björgvin Jónsson
Sikileyjarvörn, Morra-bragð.
1. e4 c5 2. d4 cxd4 3. c3 dxc3 4. Rxc3
Rc6 5. Rf3 e6 6. Bc4 Dc7 7. De2 Rf6 8.
e5!?
Eftir 8. 0-0 Rg4! (sem hótar 9. -
Rd4!) má svartur vel við una.
8. - d5!?
Eftir skákina sagði Burgess að 8. -
Rg4 hefði sést áður í stöðunni. Leikur
Björgvins lofar góðu við fyrstu sýn
en á snjallan hátt tekst hvítum að
skapa sér nægjanlegt frumkvæöi.
9. exffi dxc4 10. 04)! gxffi 11. Rd5! Dd8
12. Hdl Bd7 13. Bf4 Hc8 14. Hd2 Bb4
Svartur á ekki um margt að velja.
Ef 14. - Rb4 kæmi 15. Rxf6+! DxfB
16. Be5 o.s.frv.
15. Rc3!
Mun betra en 15. Rxb4 Rxb4 er
svarti riddarinn nær að hreiðra um
sig á d3 og sókn hvíts verður að engu.
Næsti leikur svarts virðist þvingaö-
ur. Hvítur hótar einfaldlega 16. Hadl.
Ef t.d. 15. - Da5 16. Hadl Hd8 er 17.
Rd5! Bxd2 18. Rxf6+ Ke7 19. Bxd2
afar óþægilegt.
15. - Bxc3 16. bxc3 Da5 17. Hadl Hd8
18. Dxc4 e5 19. Rg5!
Að öðrum kosti tækist svörtum aö
bægja hættunni frá. Með þessum
óvænta þrumufleyg heldur hvítur
jafnvæginu.
19. - fxg5 20. Bxg5 Re7 21. Bf6 HfiS 22.
Hd6 Hg8
Ekki 22. - Hc8 vegna 23. Hxd7! og
vinnur. Svartur getur sig hvergi
hrært og verður að sætta sig við jafn-
teflislegt endatafl sem yrði niður-
staðan eftir 23. Bxe7 Kxe7 24. Hxd7 +
Hxd7 25. Hxd7+ Kxd7 26. Dxf7+ Kd6
28. Dxg8 Dxc3 o.s.frv. En hvítur vill
meira.
23. Dh4
23. - Hxg2! 24. Kxg2 Khl Hg6 og hótar
25. - Bc6 + með alvarlegum afleiðing-
um.
24. - Bc6+ 25. Kgl?
Svo er hvítum brugðið við hróks-
fómina að hann missir fótanna. Ekki
gengur 25. Hxc6 vegna 25. - Hxdl
með vinningsstöðu en eftir 25. Kh3!
virðist svartur ekki eiga neitt betra
en 25. - Hxd6 26. Hxd6 Bd7+ 27. Kg2
(27. Hxd7 Dxc3+ 28. Kg2 Dc6+ vinn-
ur) Bc6+ með þrátefli.
25. - Hxd6 26. Hxd6 Dxc3
Ekki 26. - Rf5? vegna 27. Db4! en
eftir textaleikinn er hvítur lygilega
vamarlaus. Skákinni lauk skjótt
með...
27. Dg4? Del mát.
Sírovefsturí
Miinchen
Eftir tíu umferðir á Mephisto-stór-
mótinu í Munchen var Lettinn Sírov
orðinn einn efstur með 7,5 v. Næstur
kom Gelfand með 6,5, Gurevich og
Adams höfðu 6 v., Bareev og Lutz
5,5, Jusupov 5, Hubner 4,5, Lobron
og Hertncek 4, Lautier 3,5 og Jóhann
Hjartarson rak lestina með 2 v.
Jóhanni hefur gengiö afleitlega á
mótinu. Tap fyrir Jusupov og
Hertneck í 7. og 8. umferð, síðan jafn-
tefli við Lautier og tap gegn Húbner
í 10. umferð.
í gærkvöldi átti að tefla 11. og síð-
ustu umferð og átti Jóhann þá að
mæta Lobron.
Bridge
Butlerkeppni BR:
Aðalsteinn og Bjöm sigmöu
Nýlega lauk Butlerkeppni Bridge-
félags Reykjavíkur og sigmöu tveir
af heimsmeisturunum, Aðalsteinn
Jörgensen og Bjöm Eysteinsson.
Þeir félagar em á leið á Evrópumót
í Frakklandi, sem spilað verður dag-
ana 12.-26. júní, ásamt kollegum sín-
um heimsmeisturunum Guðmundi
P. Amarsyni, Þorláki Jónsyni, Jóni
Baldurssyni og Norðurlandameist-
aranum Sævari Þorbjörnssyni. Fyr-
irliði sveitarinnar verður Karl Sigur-
hjartarson.
En víkjum aftur að Butlemum.
Flest sterkustu pör landsins vom
meðal þáttakenda þótt keppnin stæöi
að mestu leyti milli bræðranna Her-
manns og Olafs Lámssona og Aðal-
steins og Bjöms. Röð og stig efstu
para var annars þessi:
1. Aðalsteinn Jörgensen-Bjöm Ey-
steinsson 232
2. Hermann Lárasson- Ólafur Láms-
son 219
3. Eiríkur Hjaltason-Ragnar Her-
mannsson 209
Bridge
Stefán Guðjohnsen
4. Guðlaugur R. Jóhannsson-Örn
Arnþórsson 204
5. Þórður Sigfússon-Hjálmar S. Páls-
son 160
LítUlæti sigurvegaranna var í fyr-
irrúmi er ég falaðist eftir spili í þátt-
inn en þó veiddi ég upp úr þeim að
sigurinn hefði ekki byggst á mikilli
heppni. Til dæmis var tekin slemma
á þá félaga síðasta spilakvöldið sem
einungis tvö af 23 pömm náðu. Þú
situr í þriðju hönd með þessi spil:
♦ ÁG97653
¥ -
♦ Á4
♦ ÁG106
Makker segir pass, næsti líka og
þú opnar á einum spaða. Næsti pass,
makker segir tvo spaða, næsti pass
og hvaö segir þú? Flestir segja víst
flóra spaða, en vísindabridgemenn-
imir segja áreiðanlega þrjú lauf eða
þrjá tígla. En andstæöingur okkar
manna var með aUt á hreinu. Hann
sagði Qögur grönd (spurði um ása),
fékk fimm tígla (einn af fimm, þar
sem trompkóngurinn gildir), síðan
fimm grönd, fékk sex tígla og lét þá
sex spaða nægja. Það var nákvæm-
lega 50% alslemma, því makker átti:
* K104
¥ G105
♦ KG53
+ D73
Og hér er annað dæmi.
N/O
♦ K106
¥ K4
♦ 65
+ G107532
♦
¥
♦
+
♦ G8432
¥ Á1075
♦ ÁK7
+ 6
Með Aðalstein og Bjöm í n-s, og
Hrannar Erlingsson og Svein R. Ei-
ríksson í a-v gengu sagnir á þessa
leið:
Austur Suöur Vestur Norður
pass lspaði pass 2spaðar
dobl 3spaðar dobl pass
pass pass
Við skulum kíkja yfir öxlina á Bimi
meðan hann glímir við spihð. Vestur
spilar út hjartatvisti sem er líklega
þriðja hæsta. Bhndur kemur upp og
þetta lítur ekkert hla út. Með því að
trompa rauðu tapslagina eru sjö slag-
ir í húsi og sá áttundi kemur með
því að trompa lauf.
En áfram með sphið. Björn drepur
á kóng í blindum, sphar hjarta á ás
og trompar hjarta, meðan drottning-
in kemur frá vestri. Aht samkvæmt
áætlun. Nú heim á tígulás, hjarta
sphað, trompað í blindum, meðan
vestur losar sig við tígul. Heim á tíg-
ulkóng og tíguh trompaður. Það er
bara lauf eftir í blindum og vestur
lendir inni og sphar aftur laufi. Þar
með er áttundi slagurinn kominn og
allir eiga fjögur spil á hendi. Björn á
G 8 4 3 í trompi og þarf að fá einn
slag. Hverju myndir þú spha? Björn
sphaði gosanum, einn niöur því aht
sphið var þannig:
♦ K106
¥ K4
♦ 65
♦ G107532
* D
¥ G953
♦ DG82
+ KD94
♦ G8432
¥ Á1075
♦ ÁK7
+ 6
Hafnarfjarðarbær - lóðaúhlutun
Hafnarfjarðarbær mun á næstunni úhluta lóðum fyr-
ir íbúðarhús í Mosahlíð. Um er að ræða lóðir fyrir
tveggja hæða einbýlishús, parhús og raðhús, enn-
fremur parhús á einni hæð. Einnig eru nokkrar lóðir
lausar á Hvaleyrarholti.
Lóðirnar verða til afhendingar í sumar.
Umsóknarfrestur er til og með mándudagsins 14.
júní nk.
Eldri umsóknir þarf að endurnýja.
Nánari upplýsingar verða gefnar á skrifstofu bæjar-
verkfræðings, Strandgötu 6.
Bæjarverkfræðingurinn í Hafnarfirði
■P /AU/O
¥ D82
♦ 9743
JL ÁQ