Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1993, Qupperneq 18
18
LAUGARDAGUR 29. MAÍ 1993
Dagur í lífl Guðmundar Áma Stefánssonar, bæjarstjóra í Hafnarflrði:
Að loknum athafnadögum
„Það er mánudagsmorgunn. Anna-
söm helgi að baki, þar sem sýning-
una VOR 93 Athafnardagar í Hafnar-
flrði bar hæst. Sýningin gekk vonum
framar. Um 15 þúsund ánægðir gest-
ir og hundruð kraftmikhr starfs-
menn um 90 sýningarbása segja þá
sögu. Vorið í Hafnarfirði gaf líka
góðan þverskurð af atvinnu- og
mannlífi í Hafnarfirði, sem er íjöl-
breytt og skemmtilegt. „Nauðsynlegt
og gott framtak á þessum krepputím-
um þegar allir kvarta og kveina," var
viðkvæði margra sem ég átti tal við
á sýningunni. „Kominn timi til að
varpa jákvæðu ljósi á gang mála.
Gott fyrir Hafnarfjörð," bættu marg-
ir við.
Ég hafði eðliiega í ýmsu að snúast
á þessari sýningu þar sem fram-
kvæmdaraðúi hennar var Hafnar-
fiarðarbær. Skemmtilegar skyldur
bæjarstjóra. Meðal annarra heiðraði
forseti íslands okkur Hafnfirðinga
með komu sinni á sýninguna. Að-
dáunarverð kona, Vigdís. Sérstak-
lega hvemig hún sameinar hlýleika
í samskiptum við fólk og hinn nauð-
synlega virðuleika, sem hinu háa
embætti forseta fylgir. Hafi hún
bestu þakkir fyrir.
Ekki einmana
Fótaferðin á mínu fólki þennan
mánudagsmorgun var eihtið með
seinni skipunum. Börnin komin í
skólafrí og fótboltaleikir deginum
áður hjá tveimur strákanna minna
höfðu tekið sinn toll. Það var því lúrt
lengur en venja er til. Ég var kominn
til vinnu um níuleytið og hitti þá aö
máh bæjarritara, Qármálastjóra og
bæjarlögmann. Við ræddum ýmis
mál sem í gangi eru. Lögðum hnur
dagsins og komandi daga.
Síminn fór auðvitað í gang þegar í
stað. Samstarfsfólkið skaust inn og
út af skrifstofu minni með ýmis er-
indi. Ég hef stundum sagt að skrif-
stofa mín væri á stundum eins og
brautarstöð. Þaö er a.m.k. alveg ör-
uggt að enginn verður einmana í
starfi bæjarstjórans í Hafnarfiröi.
Klukkan hálfellefu hitti ég Gerði
Pálmadóttur, áður kennda við Flóna.
Hún vill markaðssetja í útlöndum
íslenska jólasveina, álfa og tröll. Við
Hafnfirðingar höfum kortlagt áha-
byggðir og hún vill samstarf við okk-
ur. Málafylgjumanneskja hún Gerð-
ur.
Vill flytja í bæinn
Meðal annarra sem áttu erindi á
kontórinn hjá mér þennan mánu-
dagsmorgun var kona nokkur frá
Selfossi sem baö um góð .ráð til að
flytja í Hafnarfiörðinn. Hún á rætur
í Firðinum og vih koma aftur heim.
Það er algengt að gamhr Hafnfirðing-
ar, sem fluttu úr bænum vegna náms
eða starfa, vilji koma á heimaslóðir
aftur. Og þeim og öðrum sem hingað
vilja koma er auðvitað tekið opnum
örmum.
Samskipti við fólk utan af götunni
eru mikil í starfi mínu. Ég er með
viðtalstíma tvisvar í viku, tvo tíma í
senn, og að öhu jöfnu eru það um
30-40 manns, flestir Hafnfirðingar,
sem hafa erindi að reka við bæjar-
stjórann sinn. Þau eru af ýmsum
toga. Smá og stór í sniðum. Hins veg-
ar má það aldrei gleymast að „litlu"
málin eru „stór“ í hugum þeirra sem
bera þau fyrir brjósti. Og ég reyni
að taka á þeim erindum sem til mín
koma í því ljósi. Auðvitað er ekki
hægt að segja já við öllu. En með því
að gefa sér tíma til að ræða við fólk
má vinna ýmis mál í réttan farveg.
Óneitanlega setur atvinnukreppan
sitt mark á mannlífið og æ fleiri
lenda í erfiðleikum vegna atvinnu-
leysis og samdráttar. Enda er það svo
í mínu starfi að stór hluti starfa
minna tengist atvinnumálunum
beint og óbeint og tilraunum í þá
veru að snúa vöm í sókn.
Stjórnmálin rædd
Klukkan eitt hitti ég að máli Hörð
Zóphaníasson, fyrram bæjarfuhtrúa
í Hafnarfirði og fyrrverandi skóla-
stjóra Víðistaðaskóla. Hann er að
vinna námsefni fyrir grunnskóla-
nemendur um Hafnarfiörö fyrr og
nú. Við fórum yfir textadrög og
ræddum máhð. Fleira bar raunar á
góma því Hörður kemur víða við.
Þannig spjölluðum við um málefni
skátanna í bænum og þeirra framtíð-
aráform. Auk þess ræddum við
landsmálin og stöðu Alþýðuflokksins
en viö Hörður höfum átt góða sam-
leið og samvinnu á þeim vettvangi.
Ég rauk síðan á verkstjórafund rétt
fyrir tvö en einu sinni í viku hitti ég
forsvarsmenn áhaldahúss bæjarins
og rafveitu, nokkra starfsmenn bæj-
arverkfræðings, garðyrkjusfióra og
aðra þá er standa fyrir verklegum
framkvæmdum af hálfu bæjarins. Á
þessum fundum er farið yfir stöðu
hinna fiölmörgu verka sem í gangi
era frá einum tíma til annars í bæn-
um, bæði stór og smá. Einnig eru
teknar fyrir ábendingar fólks og at-
hugasemdir um frágang gatna og
opinna svæði í bænum og sitthvað
fleira. Þau skipta fleiri tugum atriðin
sem tekin era fyrir á þessum viku-
legu verksfiórafundum. Stórfram-
kvæmdir í miðbæ Hafnarfjarðar,
sem eru í fullum gangi, eru vitaskuld
ofarlega á baugi þessara funda.
Gagnleg umræða og nauðsynleg.
Kafað í pappírum
Eftir fundinn var ég kominn í sím-
ann og hringdi til nokkurra þeirra
sem höfðu reynt að ná í mig og látið
effir skilaboð. Var í símanum meira
og minna til fimm en skaust þá heim
og náði í syni mína, Fannar og Heimi,
og renndi með þá á fótboltaæfingu
hjá FH. Fór niðrí vinnu meðan þeir
spörkuðu uppá Kaplakrika og blað-
aði í gegnum pappíra. Staðreyndin
er sú að það gefst yfirleitt enginn tími
til lesturs eða pappírsvinnu yfir há-
daginn meðan erilhnn er sem mest-
ur. Besti tíminn til þeirra starfa er
milli fimm og sjö ef ekki eru þá fund-
ir á þeim tímum.
í hópferð með krötum
Var í kvöldmat heima um sjöleytið,
ræddi málin við konuna og bömin
og fylgdist með útvarpsfréttum og
19:19. Fór síðan á bæjarmálaráðs-
fund hjá hafnfirskum krötum klukk-
an átta. Þetta var síðasti fundur vetr-
arins og óhefðbundinn. Hópurinn fór
í rútu um bæinn og ég gerði grein
fyrir helstu framkvæmdunum sem í
gangi era og því sem framundan er.
Glæsilegur 50 manna hópur nefndar-
manna Alþýðuflokksins í Hafnar-
firði gerði víðreist um Hafnarfjörð
og í lok ferðarinnar var drukkið kaffi
í Hafnarborg. Veðrið var dásamlegt
og augljóst á þessari hringferð um
bæinn að margt hefur gerst í Hafnar-
firði á örfáum áram, þ.e. eftir að við
jafnaðarmenn tókum við sfióm bæj-
arins árið 1986. Og miklar fram-
kvæmdir í gangi og framundan.
Yngstu drengimir tveir, Brynjar,
tæplega ársgamall og Fannar, sem
varð sjö ára þennan mánudag, vora
sofnaðir þegar ég kom heim um ell-
efu. Afmæhsboðinu hefur verið
frestað til helgarinnar. Ég ræddi við
konu mína, Jónu Dóra, um dag-
skrána næstu dagana og höfðum
samráð við tvö elstu börnin, Heimi
og Margréti Hildi, átta og ellefu ára.
Eiginkonan er nefnilega ekki stikkfrí
frá starfi bæjarsfióra og á stóra
heimili þarf að skipuleggja málin ef
þaö þá reynist unnt.
Ég sat hálfsofandi yfir sjónvarpinu
milh tólf og eitt. Staulaðist inn í rúm
meira sofandi en vakandi. Reyndi að
glugga í bók. Sofnaði á fyrstu blaðsíð-
unni. Hefðbundinn mánudagur að
baki.
Finnur þú fimm breytingai? 207
„Getið þið ekki talaö um eitthvað annað en innbrot, drengir?"
Nafn:.........
Heimilisfang:.
Myndirnar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur
er að gáð kemur í ljós að á
myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt.
Finnir þú þessi flmm atriði
skaltu merkja við þau með
krossi á myndinni til hægri
og senda okkur hana ásamt
nafni þínu og heimilisfangi.
Að tveimur vikum hðnum
birtum við nöfn sigurvegara.
1. verðlaun: Aiwa vasadiskó
að verðmæti 4.480 krónur frá
Radíóbæ, Ármúla 38.
2. verðlaun: Fimm Úr-
valsbækur að verömæti kr.
3.950. Bækurnar, sem eru í verð-
laun, heita: 58 mínútur, Sonur Ott-
ós, Kolstakkur, Leikmaðurinn og
Víghöfði. Bækurnar eru gefnar út
af Frjálsri fiölmiðlun.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 207
c/o DV, pósthóh 5380
125 Reykjavík
Vinningshafar fyrir tvö
hundraðustu og fimmtu get-
raun reyndust vera:
1. Vilborg Reynisdóttir
Heiðargarði 29, 230 Keflavík.
2. Sigurbjörn Þorgeirsson
Árskógum 6,109 Reykjavík.
Vinningarnir verða sendir
heim.