Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1993, Síða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1993, Síða 29
28 LAÚGARDAGUR 29. MAÍ 1993 LAUGARDAGUR 29. MAÍ1993 37 Hann vinnur við hjálparstörf í Eþíópíu: ara Evrópubúum í hugsun og við- horfum heldur en t.d. arabar." Það versta var vonleysið - segir Bjöm Óli Hauksson, sendifulltrúi Rauða krossins Matvæladreifing undirbúin. Fyrir miðri mynd er Björn Óli en með honum er starfsmaður Rauða krossins í Eþíópíu. Eldhús þar sem búinn er til matur fyrir nauðþurftarbörn Helgi Hróbjartsson trúboði hefur séð um miklar fram- Rauða krossins. kvæmdir í Eþíópíu. Hér er hann t.v. á myndinni. „Þegar marxistastjómin í Eþíópíu féll var enginn til þess að hafa stjóm á hlutunum. Þá byrjuðu hinir ýmsu þjóðflokkar að beijast innbyrðis. Það endaði með því að stór landsvæði urðu mannlaus því íbúamir flýðu. Þeir sem em í mestum nauöum á flóttamannasvæðunum er fólk sem hefur barist við aðra þjóðflokka og tapað landsvæðum sínum. Sums stað- ar hefur neyðin verið mjög mikil." Þetta segir Björn ÓM Hauksson, sendifulltrúi alþjóða Rauða krossins í Eþíópíu. Hann hóf störf á vegum Rauða krossins fyrir tveim ámm. Tildrög þess vora einfaldlega þau að móðir hans benti honum á auglýs- ingu um sendifulltrúanámskeið Rauða krossins og sagði um leið: „Sjáðu, þetta er eitthvað fyrir þig.“ Bjöm Óli sló til og fór á námskeið- ið og var síðan umsvifalaust ráðinn. Hann var síðan sendur til íraks. Þar var hann til áramóta 1991-92. Hann kom þá heim, dvaldi hér í hálft ár en fór síðan til Eþíópíu 17. júlí sl. og hefur starfað þar að undanfórnu. Björn Óli er verkfræðingur að mennt og hlutverk hans er að fylgj- ast með því sem er að gerast á við- komandi svæðum, gefa góð ráð og vinna að ákveðnum verkefnum með fulltrúum Rauða krossins. Hann sér einnig um að ýta við stjómvöldum vegna tiltekinna mála, útvega ýmis verkfæri, tæki og annað sem vantar. Hann er nú heima í fríi en hverfur aftur til hjálparstarfa í Eþíópíu að fáeinum dögum liðnum. íslendingar áberandi „íslendingar em mjög áberandi í starfi Rauða krossins um þessar mundir," sagði Björn Óli. „Ég held að ég geti fullyrt að það hafi u.þ.b. tuttugu íslendingar verið úti sl. ár á vegum Rauða krossins. Og það em víst um þúsund manns úti á hveiju ári á vegum Alþjóðahreyfmgar Rauða krossins. Við erum því um tvö prósent af öllum hópnum sem fer út sem er mjög há tala. _ íslendingamir standa sig mjög vel. Ég hef aldrei heyrt um íslending sem ekki hefur staðið í stykkinu. Þeir hafa alltaf haft mjög gott orð á sér. Ég er stoltur af því að vera innan vébanda þess hóps sem sendur er út héöan.“ Bjöm ÓM hefur aö undanfómu starfað í suðurhluta Eþíópíu, rúm- lega 200 kOómetra frá landamæmm Kenýa og rúmiega 300 kílómetra frá landamærum SómaMu. Hann hafði aösetur í bænum NegeUe í Borona- fylki. Á þessu svæði em einkum þrenns konar hópar. Þaö em flótta- menn sem höfðu hrakist til SómaMu vegna stríðsátaka milM SómaMu og Eþíópíu. Þeir hafa nú snúið aftur heim eftir 17 ára útlegð. Þama er einnig flóttafólk frá öðrum svæðum Eþíópíu sem hafði flúið vegna inn- byröis ættbálkaerja og svo er það flóttafóUí frá SómaMu. Flestir hinna síðastnefndu vom hópur sem var tengdur Barre, fyrrverandi forseta SómaMu. Eþíópíumenn vUdu ekki hafa fólkið við landamæri SómaMu og sendu þaö til Negelle. „Það var fyrst árið 1991 sem fólk byrjaði að flykkjast frá SómaMu yfir til Eþíópíu," sagði Björn Óli. „Það streymdu hundmð þúsunda manna mUli landa tU að flýja stríðið í Sómal- íu. Þegar ég kom til NegeUe var ástandið fremur bágborið. Barist hafði verið á svæðinu aðeins tveim mánuðum áður en ég kom þangaö. Ástæðan var sú að upp kom ágreiningur milU tveggja fylkinga sem barist höfðu gegn fyrri marx- istastjóm Mengistos. Þrátt fyrir ófriðinn er ekki hægt að ganga svo langt að segja að allt hafi verið í rúst á svæðinu. Fólkið þama hefur aðrar hugmyndir um bardaga heldur en við þekkjum. Þetta er ekki eins og stríðsátök í Evrópu þar sem maður fer og kveik- ir í húsi óvinar síns eða sprengir það í loft upp. í Eþíópíu er maðurinn rek- inn í burtu og ekki snert við neinu á heimiU hans. Einhveiju sinni kom ég tíl dæmis aö yfirgefnu þorpi þar sem íbúamir höfðu alUr verið flæmdir á brott. Það stóð þama eins og draugaborg. Þar var ekki nokkra lifandi sálu að sjá. Þrátt fyrir það hafði ekki verið hrófl- að við nokkrum hlut, hvorki innbúi, sem hægt hefði verið aö selja fyrir góðan pening, né öðra.“ Flóttamenn í eyðimörk „Versti staðurinn í Borona var í um 200 kílómetra fjarlægð frá okkur, við landamæri Sómalíu og Eþíópíu. Þar vom rúmlega 170 þúsund flótta- menn frá Sómalíu á svæði sem nefnt er Dolo. Aldrei hef ég séö neitt ömur- legra. Þetta svæði er eyðimörk. í gegnum hana renna að vísu tvær ár sem mætast. Rauður sandur þekur allt og ekki sést stingandi strá á þess- um slóðum. Þama er sífeUdur vindur og um 45 gráða hiti. Rykið og sandur- inn eru aUs staöar. Ég horfði á fóUdð koma banhungrað yfir brýrnar á ánum. Við vorum með verkefni þama en Sameinuðu þjóðirnar tóku síðan við af okkur. Það var ömurleg sjón að horfa upp á þetta fólk. Það var eins og maður getur ímyndað sér að verið hafi að ganga inn í fangabúðir Hitlers á stríðsárunum. Bömin vom greini- lega mjög Mla haldin. Fólkið hafði ekkert þama nema það sem því var gefið. Það versta var vonleysið. Manni fannst aMt vonlaust. En núna, eftir að um hægðist í Sómalíu, er nær aUt flóttafólkið þar farið tU síns heima." Málin að færast til betri vegar Á svæðinu þar sem Bjöm Óli hefur starfað aö undanförnu voru bág- staddir taldir um 60 þúsund þegar flest var. Þetta voru alls konar hóp- ar. Sá stærsti var flóttafólk frá Eþíóp- íu sjálfri, ættbálkar sem lent höfðu í innbyrðis deUum og verið hraktir frá landsvæðum sínum. „Það góða við mitt svæði er að máMn þar em að færast tU betri veg- ar. Þegar ég kom þama var ástandið slæmt. Þeir sem bjuggu við verstar að- stæður höfðu reist sér litla kofa úr timbri og strái sem héldu hvorki vatni né vindi. Við sáum um að út- vega fólkinu byggingarefni. Það sá sjálft um framkvæmdimar. Við dreifðum einnig tjöldum til fólks sem átti ekki þak yfir höfuðið á sér en það voru ekki mjög mörg tflfeUi.“ Aðstoð til sjálfshjálpar Stefnan í Eþíópíu er sú að fremur beri að hjálpa fólki tU að setjast ein- hvers staðar að en að koma því fyrir í flóttamannabúðum. Fólki er þá boð- in aðstoð fyrsta árið, m.a. með því að útvega því sáðkorn. „Hins vegar háttar svo tU á okkar svæði að þar eru flóttamennirnir að mestu leyti hirðingjar. Það er mjög erfitt að segja við þá að nú skuli þeir setjast einhvers staðar að og fara að rækta jörðina. Það er erfitt að breyta fólki og þeir hirðingjar, sem voru fyrir, vom ekki ýkja hrifnir af því að aðkomufólk færi að sá og rækta. Þeir þurftu sjálfir að nota mikið vatn. VandamáMn þama á svæðinu em að stómm hluta tilkomin vegna þess að þarna höfðu verið þurrkar í næst- um því þrjú ár. Síöan kom þessi hóp- ur frá Sómalíu og vUdi fá landsvæði tU að búa á og þá fór aMt í bál og brand. En svo gerist það hægt og rólega að við sjáum skyndUega fyrir endann á alls konar vandamálum. í fyrsta lagi tók núverandi stjórn sig tU og efndi til kosninga. í september tók við borgaraleg stjórn í Borona-hér- aði. í nóvember var gerður friðar- samningur miUi allra þjóðflokka nema eins. Loks kom mjög gott rign- ingartímabU á sama tíma. Allt þetta þýðir að aðstæður fjölda manns breytast. Því má ekki gleyma að menn sitja ekki meö hendur í skauti og bíða eftir matargjöfum frá Rauða krossinum. Það eru alhr aö reyna að bjarga sér á einhvern hátt. En við þetta sáum við hvernig and- inn breyttist. Fólk hefur öðlast meiri von og er bjartsýnna en áður. Við höfum getað skorið matargjafir mjög niður en við sjáum þó ekki fyrir end- ann á þessu enn.“ - Hvemig fer aðstoð Rauða krossins fram? „Við högum því þannig aö fyrst er ástand fólks skoðað. Ef ástæða þykir tU er fólkið á viðkomandi svæði kall- að saman. Við teljum þá fullorðnu, skoðum þá og tökum nöfnin á þeim. Síðan köllum við fólkið fram, hundr- að manns í einu, og afhendum því matarskammt tU mánaðar í senn. Við fómm mjög nákvæmlega ofan í máMn áður en við afhendum hvern matarskammt." Þrátt fyrir fátæktina og slæman aðbúnað margra á svæðinu er heUsufar sæmUegt. Eþíópíumenn eru mjög hreinlátir. Þeir borða með höndunum en þvo þær mjög vand- lega bæði fyrir og eftir máltíð. Versti sjúkdómurinn, sem heijar á svæðið, er malaría. Það veldur áhyggjum að nú er að koma inn á svæðið afbrigði af sjúkdómnum sem er ónæmt fyrir lyfjum. Annars er skortur á sjúkra- skýlum mikið vandamál en þau voru mörg eyðUögð í stríðsátökum á síöari ámm. „Fólkið þarna er mfög vingjam- legt. Það er greint og hefur svo sann- arlega sínar eigin meiningar. Eþíóp- íubúinn er þannig að þegar talað er við hann getur hann stundum sam- þykkt en haft allt aðra skoöun. Að þessu kemst maður seinna því þá er ekkert gert þótt viðkomandi hafi sagt já. Þegar ég haföi áttað mig á þessu fór ég varlegar í að tala við fólkið. Ég lagði mig meira fram um að fá fram skoðun viðmælenda minna og fá þeirra áMt. Mér fannst gaman að kynnast þessu fólki. Það er mun lík- Helgi trúboði Þegar Björn ÓM kom tíl NegeUe var hann eini hvíti maöurinn á stóm svæði. Einn daginn birtist inni á skrifstofunni hans hvítur maður, hár og mikUl. Þeir tóku tal saman á ensku. Þegar þeir höföu rætt saman um stund spurði Björn ÓU hinn hvaðan hann kæmi. „Ég kem frá skrýtnu landi,“ sagði sá aðkomni á ensku. „Það heitir ís- land.“ „Ég er líka frá íslandi," sagði Bjöm ÓM þá. Þar með upphófust þvílík fagnað- arlæti aö Eþíópíumennimir héldu að þeir hvítu væm orðnir vitlausir. En þama var sumsé kominn Helgi Hró- bjartsson, trúboði í Wattera, u.þ.b. 60 kUómetra frá NegeUe. Saga hans er skemmtUeg fyrir margra hluta sakir. Hann haföi komið til Eþíópíu 1967. Þá dvaldi hann í tiu ár í Wattera og NegeUe en hélt heim að þeim tíma Mðnum. „Helgi héfur unnið geysUega þýð- ingarmikið starf á svæðinu," sagði Bjöm ÓU. „Hann byggði upp skóla- kerfi í Austur-Borona með 40 skól- um. Auk þess hefur hann lagt vegi og komið upp einum 20 flugvöUum. Helgi var eini maðurinn sem annað- ist hjálparstarf á þessu svæði frá 1970-75. Það var ómetanlegt að kynnast hon- um. Hann er afbragðs félagi og góður vinur. Hann þekkti aUa og allir þekktu hann. Hann hefior stutt mikið við bakið á mér, t.d. með því að út- vega okkur ýmis verkfæri tíl að grafa fyrir nokkrum vatnsbólum, birgða- geymslum fyrir matvælin o.fl.“ Þegar Helgi kom fyrst til Eþíópíu reisti hann trúboðsstöð, kirkju, sjúkraskýM, skóla og heimavist fyrir bömin til að búa í. Eftir byltinguna 1974 var húsnæðið tekið og því breytt í herstöð. Helgi haföi m.a. málað stóra Kristsmynd fyrir ofan altarið í kirkjunni. Þegar hann kom aftur á gamla staðinn sinn nú fyrir nokkmm mánuðum sá hann að málað haföi verið yfir myndina og kapparnir Marx, Lenín og Engels komnir í staö- inn. Nú er verið að endurbyggja stöð- ina og er Helgi aö mála nýja Krists- mynd yfir myndimar af þeim félög- um. Inn á nýtt svæði Þegar Bjöm ÓU snýr út aftur, að leyfinu loknu, hefur hann starf á nýju svæði. Hann sagðist hlakka tíl að sjá nýjar hhðar á Eþíópíu. „Þetta svæði, sem ég fer á, er í rúm- lega 2000 metra hæð. Þar er verið að hjálpá fólki sem var á sínum tíma neytt til að flytja á ný landsvæði en sneri aftur eftir faU marxistastjórn- arinnar. í Eþíópíu er það svo að ætt- bálkarnir og íjölskyldurnar em afar mikUvæg. Hafi maður ekki slíkan hóp á bak við sig er maður einn í veröldinni. Það kemur enginn tíl hjálpar þótt maður sé svangur eða veikur. Maður er látinn deyja án þess að nokkur skiptí sér af því. TU mín kom einu sinni kona sem haföi orðið viðskUa við ættbálk sinn. Hún vUdi komast aftur á svæðið sitt. Hún haföi engan á bak við sig og gat enga björg sér veitt. Venjulega er farið mjög varlega í aö flytja fólk á milU landsvæða. En ég gerði þá und- antekningu frá reglunni og aðstoðaði hana viö að komast tíl heimiUs síns sem var rúmlega 1000 kUómetra í burtu." - En hvaö veldur því að fólk fer út í hjálparstarf af þessu tagi? „Það er sjálfsagt mismunandi eftír fólki. Sumir gera þetta af hugsjón, aðrir af ævintýraþrá. Hvað mig varð- ar þá Ut ég svo á að það sé gaman að geta starfaö við eitthvað jákvætt og gott í lífmu. Ég get nefnt þér dæmi. Liður í starfinu er að aka um svæðið og at- huga ástand fólksins. Ég haföi verið í minni fyrstu skoðunarferð við Genalefljótið eftir að stjómvöld leyföu ferðir þar. Á leiðinni tíl baka sá ég konu sem hélt baminu sínu á lofti, eins og hún væri að halda því á mótí sólu. Hún var í rúmlega 300 ■ DV-mynd ÞÖK Björn Oii er nú heima i stuttu leyfi. Að þvi búnu heldur hann aftur úttil Eþíópiu og tekur til viö hjálparstarfiö á nýjan leik. metra fjarlægð svo ég sá hana og bamið ekki glögglega. Ég hélt ferð minni áfram og fór heim. Næstu daga skaut myndinni af konunni upp í huga mér hvað eftir annað. Fáeinum dögum síðar fór ég í skoð- unarferð með hóp manna frá Addis Ababa. Ég notaði tækifærið og kom við í þessu Utla þorpi. Þar reyndist vera hópur endurkomumanna fi:á SómaUu og þama var alveg hrikaleg neyð. Viö sendum út mat strax um kvöldið. Samt dóu nokkur böm næstu daga en flestum tókst að bjarga. Öðra sinni haföi ég heyrt af smá- hópi Gabra-manna á einu svæðinu sem ætti í einhveijum þrengingum. Þrátt fyrir óljósar fregnir ákvað ég að taka mér ferð á hendur til að at- huga máUð. Ég fann hópnm og fékk hreinlega áfaU þegar ég sá hann því hann var í svo mikilU neyð. Það era þessi atvik sem gera starfið vel þess virði að helga sig því. Auðvitað verður maður að halda samúðinni með fólkinu en maöur má ekki láta hörmungamar, sem fyr- ir augu ber, hafa þau áhrif á sig að maður brotni alveg niður. í þannig hugarástandi getur maður ekki orðið að neinu Uði. Um þetta gildir sama lögmál og á spítala. Maður reynir eftír megni að hjálpa og gleðst ef eitt- hvað ávinnst.“ - Einhver saga af léttara taginu í lokin: „Skömmu áður en ég fór heim var ég á ferð með fuUtrúum frá stjóm- völdum og landbúnaöarráöuneytinu. TUgangurinn var að leita að svæðum sem hægt væri að búa á. Leiö okkar lá um óbyggt svæði, ’um veg sem er mjög sjaldan farinn. Þá vfldi ekki betur tíl en svo að ökumaðurinn festí bítínn og drap á honum í leiðinni. Þetta var LandCruiser, níðþungt fer- líki. Við stóðum alveg ráðalausir. Loks sagði fuUtrúi sljómvaldanna að hann ætlaði að freista þess að ganga eftír hjálp. Hann lagði af stað og lét sig hverfa. Stuttu seinna birtust tveir menn, vopnaðir vélbyssum. Ég hugsaöi sem svo að nú væri komið að því. En þetta reyndust vera hinir hugguleg- ustu náungar sem reyndu að hjálpa okkur að ná bílnum upp. Það reynd- ist hins vegar árangurslaust. Nú var klukkan farin að nálgast fimm og okkur langaði hreint ekki til að eyða nóttinni þama þar sem aUs kyns dýr em á flækingi, svo sem hlébarðar eða fleiri menn með vél- byssur. Við lögðum því af stað fót- gangandi. Þegar við höföum gengið um það bfl tvo kflómetra gerðist hið ómögulega: BUl renndi upp að okk- ur. Þetta reyndist vera maður sem haföi endflega ætlaö að hitta mig. Honum var sagt í hvaða átt ég heföi farið og af hreinni tilvUjun rambaði hann á mig. Þetta var ekki minna merkUegt fyrir það að þetta vora einu bUamir sem höföu verið á þessu svæði síðastUðna sex mánuði. Ég sendi síðan bU til að draga upp bUinn okkar. Hann festí sig líka. Nú vom góð ráð dýr svo við sendum vömbU til að reyna að ná hinum upp. Hann fór líka á bólakaf. Nú vom allir bUar Rauða krossins á svæðinu fastír á þessum eina vegarspotta. Síð- asta úrræðið var að fá hertrukk, sem var nánast skriðdreki, tíl aö losa bUa- flotann. Það tókst en þá var Uðin vika frá því aö þetta ævintýri hófst.“ -JSS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.