Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1993, Qupperneq 34
42
4
Útboð
Reykjanesbraut - vegamót við
Vogaveg og Grindavíkurveg
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ofan-
greint verk. Helstu magntölur: Fyllingar og burð-
arlög 5.800 m3, skering í berg 2.400 m3, malbik
17.000 m2, umferðareyjar 1.200 m2.
Verki skal lokið 27. ágúst 1993.
\
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins
í Borgartúni 5, Reykjavík, (aðalgjaldkera) frá og
með 1. júní nk. Skila skal tilboðum á sama stað
fyrir kl. 14.00 þann 14. júní 1993.
Vegamálastjóri
Aukablað
Hús og garðar
Miðvikudaginn 9. júní nk. mun aukablað um
hús og garða fylgja DV.
Meðal efnis:
* Verkfæraeign og umhirða
* Sumarblóm
* Rósir
* Qarðaskipulag
* Jarðarber fyrir ísl. aðstæður
* Vamir gegn meindýrum
* Qróðursetning í sumarbústaðarlandið
* Þurrskreytingar
* Sólpallar og heitir p>ottar
* Fmmskógargarðar
* ftýjungar hjá gróðrarstöðvum
* o.fl. o.fl.
Þeir auglýsendur, sem hafa áhuga á að auglýsa
í þessu aukablaði, vinsamlega hafi samband
við Sonju Magnúsdóttur, auglýsingadeild DV,
hið fyrsta, í sima 63 27 22.
Vinsamlegast athugið að síðasti skiladagur aug-
lýsinga er fimmtudagurinn 3. júní.
ATH.Í Bréfasími okkar er 63 27 27.
Iðnskólinn í Reykjavík
Innritun fyrir haustönn fer fram í Iðnskólanum í
Reykjavík, á Skólavörðuholti, dagana 1.-4. júní,
kl. 10.00-18.00. Innritað verður í eftirtalið nám:
I. Dagnám.
1. Samningsbundið iðnám (námssamningur fylgi umsókn)
2. Bókagerð (prentun, prentsmíð, bókband)
3. Fataiðnir
4. Grunndeild í háriðnum
5. Grunndeild í málmiðnum
6. Grunndeild i rafiðnum
7. Grunndeild í tréiðnum
8. Framhaldsdeild í bifreiðasmíði
9. Framhaldsdeild í bifvélavirkjun
10. Framhaldsdeild í hárgreiðslu
II. Framhaldsdeild í hárskurði
12. Framhaldsdeild í húsasmíði
13. Framhaldsdeild í húsgagnasmíði
14. Framhaldsdeild í rafeindavirkjun
15. Framhaldsdeild í rafvirkjun og rafvélavirkjun
16. Framhaldsdeild í vélsmíði og rennismíði
17. Almennt nám
18. Tölvubraut
19. Tækniteiknun
20. Tæknibraut (lýkur með stúdentsprófi)
II. Kvöldnám. (öldungadeild)
1. Meistarnám (auk annarra gagna fylgi sveinspróf)
2. Almennar greinar
3. Grunnnám í rafiðnum
4. Rafeindavirkjun
5. Tölvubraut
6. Tæknibraut (lýkur með stúdentsprófi)
7. Tækniteiknun
Innritun er með fyrirvara um þátttöku í einstökum
deildum og áföngum. Öllum umsóknum skal fylgja
staðfest afrit prófskírteina með kennitölu.
Fréttir
LAUGARDAGUR 29. MAf 1993
Nýtt fyrirkomulag gengisskráningar:
Gamla kerfið bauð
upp á misræmi
- sem hægt var að notfæra sér, segir Jóhannes Nordal
„Þessar breytingar nú hafa náttúr-
lega ekkert með þær fréttir að gera
sem hafa verið síðustu dagana því
breytingarnar voru ákveðnar fyrir
svo löngu síðan. En þetta er að því
leyti skylt mál að eitt af vandamálun-
um við kerfið, sem við höfum búið
við, var það að gengið erlendis gat
breyst innbyrðis milli gjaldeyristeg-
unda en við höfum verið með eina
fasta gengisskráningu yfir daginn.
Þarna hefur skapast misræmi sem
menn hafa getað notfært sér. Þetta
var ein af ástæðunum til þess að það
var orðið nauðsynlegt að taka upp
svona markað," segir Jóhannes
Nordal seðlabankastjóri aðspurður
hvort ný aðferð við gengisskráning-
una hafi veriö ákveðin vegna upplýs-
inga um að einstaklingar og fyrir-
tæki hafi hagnast verulega á milh-
færslum milh gjaideyrisreikninga.
Gengi krónunnar ákvarðaðist í
fyrsta skipti í gærmorgun í viðskipt-
um á skipulegum milhbankamark-
aði fyrir erlendan gjaldeyri. Mögu-
leiki verður á því að gengi verði sí-
breytilegt yfir daginn.
„Þegar fyrir lá 'að fjármagnsflutn-
ingar yrðu fijálsir þá var orðið alveg
nauðsyniegt að gera svona breytingu
því stórir aðilar hefðu getað hagnast
í mjög miklum mæli á því að nota
sér það að gengisskráning hér fylgdi
ekki gengisskráningu erlendis. Mjög
mikið af stórum viðskiptum, sem eru
á gjaldeyrismörkuðum erlendis, eru
einmitt þess eðhs að menn eru að
reyna að hagnast á shku misræmi
þegar það kemur upp. Þannig að það
er óhjákvæmilegur þáttur í fijáls-
ræði í gjaldeyrisviðskiptum að mark-
aðurinn hér fylgi ahtaf markaði ann-
ars staðar," segir Jóhannes.
Hið nýja fyrirkomulag opnar
möguleika á því að hver banki skrái
fyrir sig viðskiptagengi sem hann
býður sínum viðskiptamönnum og
því er opnaður möguleiki á sam-
keppni milh þeirra.
„Það getur aldrei orðið mikih mun-
ur á viðskiptagengi bankanna í sjálfu
sér en þó ætti að geta verið nokkur
munur. Það er eins og ahtaf er á
mörkuðum að verð leitar á nokkum
veginn sama punkt. Eftirtekt við-
skiptavina hlýtur þó að leiða til þess
að einhver samkeppni mun verða,“
segir Jóhannes.
-Ari
Áslaug Ottesen gaf Flugleiðaþotunni nafnið Svandis. Sigurður Helgason forstjóri stendur hjá. DV-mynd Ægir Már
Heilladísin Svandís bættist í flotann
Ægir Már Kárascm, DV, Keflavflc
„Það er mjög skemmtilegt og
ánægjulegt að fá tækifæri til þess að
gefa henni nafn og ég verð að segja
það að ég kann afskaplega vel við
þetta dísarnafn. Ég vona sannarlega
að Svandís bætist í hóp hinna heilla-
dísa Flugleiða," sagði Áslaug Ottes-
en, eiginkona Harðar Sigurgestsson-
ar, stjómarformanns Flugleiða, í
samtali við DV. Áslaug gaf flugvél-
inni nafnið Svandís og jós hana vatni
úr tveimur ám sem eiga það sameig-
inlegt að renna í Atlantshafið, Elliða-
ánum og Hudsonfljóti í New York.
Svandís er þriðja Boeing 757-200
flugvél félagsins en flugvéhn hafði
verið í leigu hjá breska flugfélaginu
Brittania síðasthðin 2 ár þegar Flug-
leiðir fengu hana afhenta.
Með komu þessarar flugvélar er
endurnýjun Flugleiðaflotans lokið að
sinni og dísimar orðnar 11.
Nú stendur yfir undirbúningur að fyrstu módelkeppni unglinga sem fram hefur farið á landinu. Það er Model 79
sem hefur veg og vanda af keppninni. Þátttakendur eru á aldrinum 13-16 ára. Valdir hafa verið 17 strákar og 17
stelpur úr 150 manna hópi sem sótti um að komast í keppnina. Hinir útvöldu munu keppa til úrslita þann 4. júní nk.
i Tónabæ. Auk sjálfrar keppninnar verða ýmis skemmtiatriði, svo sem tískusýning, undir stjórn Ástrósar Gunnars-
dóttur. Kynnir verður Páll Óskar Hjálmtýsson og hljómsveitin Hróðmundur hippi leikur. Fjöldi veglegra verðlauna er
í boði. Gert er ráð fyrir að keppni af þessu tagi verði árlegur viðburður. Meðfylgjandi mynd var tekin á æfingu
íTónabæ DV-myndÞÖK
i
i
€