Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1993, Side 2
2
LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 1993
Fréttir
Markús Örn Antonsson borgarstjóri og Sigurgeir Sigurðsson, bæjarstjóri á Seltjarnarnesi, hafa kynnt sér tillögu umdæmanefndarinnar á höfuóborgarsvæðinu undanfarið en þar er lagt til að
Reykjavik, Seltjarnarnes, Mosfellsbær, Kjalarnes og Kjósarhreppur sameinist i eitt sveitarfélag. í nýtt sveitarfélag þarf væntanlega nýjan sveitarstjóra og því er ekki úr vegi að besti kandídatinn
fáist úr blöndu beggja. Maðurinn í miðjunni verður þvi kannski nýr borgarstjóri eftir sveitarstjórnarkosningarnar næsta vor.
Margra milljóna flárdráttur hjá Lífeyrissjóði Austurlands:
Lögreglumaður og
eiginkona hans ákærð
Ríkissaksóknari hefur gefiö út
ákæru á hendur lögreglumanni í
Neskaupstað og eiginkonu hans
vegna fj árdráttarmálsins í Lífeyris-
sjóöi Austurlands sem þar kom upp
á síðastliðnu ári. Lögreglumaðurinn
hefur nýlega látið af störfum vegna
málsins samkvæmt fyrirmælum
þess efnis frá dómsmálaráðuneytinu.
Konan er ákærð fyrir að hafa dreg-
ið sér á sjöundu milljón króna úr
sjóðum lífeyrissjóðsins á árunum
1989-1992. Lögreglumanninum, eig-
inmanni hennar, er hins vegar gefið
að sök að hafa tekið þátt í aö eyða
fjármununum sem að miklu leyti
voru lagðir inn á reikning hans og
m.a. varið í að greiða skuldir hans
og gera upp hús hjónanna sem aðeins
var skráð á eiginmanninn. Hjónin
eru á fertugsaldri.
Málið verður tekið fyrir hjá Am-
grími ísberg héraðsdómara í Reykja-
vík á næstunni en hann hefur verið
skipaður setudómari í málinu. Ólaf-
ur Börkur Þorvaldsson, héraðsdóm-
ari á Austurlandi, úrskurðaði sjálfan
sig frá málinu vegna annars dóms-
máls sem hann fjallaði einnig um
fyrr á þessu ári vegna sömu konu.
Þá dæmdi Ólafur Börkur konuna
til þess að greiða lífeyrissjóðnum 8,9
milljónir króna í skaðabætur fyrir
þá fjármuni sem hún dró sér. í því
máh var eiginmaður hennar sýknað-
ur af kröfu lífeyrissjóðsins um að
fasteign hans skyldi kyrrsett - því
getur lífeyrissjóöurinn ekki gengið á
fasteign hjónanna við innheimtu
skaðabótanna. Kyrrsetningarmálið
fjallaði eingöngu um fjárhagslega
hagsmuni en sakamálið, sem ríkis-
saksóknari hefur nú höfðað á hendur
báðum hjónunum, fjailar hins vegar
um sekt eöa sýknu þeirra beggja af
refsiverðu athæfi.
Fyrir dómi í einkamálinu og jafn-
framt við opinbera lögreglurann-
sókn héldu bæði hjónin því fram að
eiginmaðurinn hefði ekki haft
minnstu hugmynd um þær milljónir
sem eiginkona hans ráðstafaði úr líf-
eyrssjóðnum í þágu þeirra beggja -
þrátt fyrir að tæpar 4 milljónir króna
hefðu farið um hans eigin banka-
reikning sem eiginkonan var pró-
kúruhafi fyrir.
Maöurinn hefur haldið því fram sér
til málsbóta aö konan hans hefði
haft það góð laun að hann hefði ekki
tekið eftir þessu og hún heföi séð um
fjármál heimilisins.
-Ótt
Sólóplata Bjarkar:
320 þúsund
seldíUSA
„Það er ekki á stefnuskránni að
taka sér frí í bráð og ég hef nóg að
gera. Mitt hlutverk er að sjá um tón-
listina en ég fylgist litið með því
hvemig salan á Debut gengur.
Ég kom hingað til íslands í mynda-
tökur fyrir breska blaðið Face sem
jafnframt tekur við mig viðtal. A
sunnudag fer ég aftur til London þar
sem ég mun spila og blaöra til skipt-
is,“ sagði Björk Guðmundsdóttir í
samtah við DV. ,
í gær var Björk afhent guUplata í
Gyllta salnum á Hótel Borg til merk-
is um að plata hennar, Debut, hefur
selst í yfir 5 þúsund eintökum hér á
landi.
„Fyrir tveimur dögum fór salan a
Debut yfir 100 þúsund eintökin í
Bretlandi og stendur nú í um 320
þúsund eintökum í Bandaríkjun-
nm,“ sagði Ásmundur Jónsson,
starfsmaður Smekkleysu. -IS
Björk Guömundsdóttir brosti sínu breiðasta er hún tók viö gullplötunni til merkis um að salan sé komin yfir 5
þúsund eintök hér á landi. DV-mynd Brynjar Gauti
Forsvarsmenn loönuverksmiðja hafa áhuga á Sildarverksmiðjum ríkisins:
íhuga kaup á SR-mjöli
Forsvarsmenn nokkurra loðnu-
verksmiöja sem hingað tíl hafa staðið
utan við bræðslur fyrrum Síldar-
verksmiðja ríkisins, nú hlutafélags-
ins SR-mjöls, íhuga kaup á hlutabréf-
um ríkisins í SR-mjöli.
Ekkert formlegt tilboð hefur komið
fram eða viðræður hafist mifii ríkis-
ins og verksmiðjanna. Málið er á við-
kvæmu stigi því enginn af þeim for-
svarsmönnum loðnuverksmiðjanna
sem DV ræddi við vfidi tjá sig um
máliö eða kannast við þaö.
SR-mjöl er með verksmiðjur á
Skagaströnd, Siglufirði, Raufarhöfn,
Seyðisfirði og Reyöarfirði. Ekki hef-
ur fengist staðfest hvaða loðnuverk-
smiðjur eru að íhuga kaupin á SR-
mjöli en þær munu vera nokkrar
saman. Loðnuverksmiðjur eru m.a.
á Þórshöfn, Eskifirði, í Neskaupstað,
á Höfn og í Grindavík, Vestmanna-
eyjum, Reykjavík, Bolungarvík og
Krossanesi í Eyjafirði.
Sem kunnugt er voru Síldarverk-
smiðjur ríkisins lagðar niður fyrr á
árinu og hlutafélag stofnað í eigu rík-
isins. Stefnt var að því að selja hlut
ríkisins um leið og tækifæri gæfist
en samkvæmt heimfidum DV er
hann metinn á um 600 milljónir
króna.
„Þaö er yfirlýst stefna ríkisstjóm-
arinnar að selja hlutafélagið þannig
að ef einhver er að spá í að kaupa
þá er það hið besta mál. Ef formleg
sala fer fram verður hún aö sjálf-
sögðu auglýst svo allir geti boðið í.
Stjórnin fékk það hlutverk að ákveöa
næstu skref og viö munum skila sjáv-
arútvegsráðherra skýrslu innan
skamms,“ sagði Amdís Steinþórs-
dóttir, stjómarformaður SR-mjöls og
deildarstjóri í sjávarútvegsráðuneyt-
inu, við DV.
-bjb
Stuttar fréttir
Flugleiðirlækkaekki
Flugleiðir ætla ekki að lækka
verð á viðskiptaferöum sínum tfi
jafns viö Samvinnuferðir-Land-
sýn. Samkvæmt Bylgjunni ætla
S-L að lækka verðið hjá sér um
60 prósent.
Trúnaðarbréf afhent
Sigríöur Á. Snævarr afhenti í
vikunni Milan Ðucan, forseta
Slóveníu, trúnaðarbréf sitt sem
sendiherra i landinu. Þá hefur
Tómas Á. Tómasson afhent aðal-
ritara Sameinuðu þjóðanna trún-
aðarbréf sitt sem fastafulltrúi ís-
lands hjá S.Þ. i New York.
Þiggurekkibiðlaun
Karl Steinar Guönason alþing-
ismaöur ætlar ekki að þiggja bið-
laun hjá Alþingi þegar hann tek-
ur við starfi forstjóra Ti’ygginga-
stofnunar. Yfirmaður hans, Guð-
mundur Árni Stefánsson trygg-
ingaráðherra, fær hins vegar biö-
laun í 6 mánuði hjá Hafnarfjarð-
arbæ auk ráðherralauna.
Gagnkvæm þjónusta
Lánasjóður islenskra náms-
manna og námsmannasamtökin
hafa gert samning um gagn-
kvæma þjónustu við námsmenn.
í lok mánaðarins geta nárasmenn
fengið upplýsingar hjá samtökum
sinurn um hvernig gangi aö af-
greiða umsóknir þeirra hjá LÍN.
Aksturdýra áhyggjuefni
Samband dýravemdarfélaga ís-
lands hefur þungar áhyggjur af
fiutningi búfjár tfi slátrunar og
lífs. Sambandiö telur að nokkuð
sé um slæma meðferö dýra í
flutningabílum enda oft farið með
þau um langan veg, meðal annars
vegna þess að sláturhúsum hefur
fækkað.
Villtar kaninur
Kanínur hafa komið sér fyrir
og tímgast i Öskjuhliðinni nokkra
undanfama vetur. í Kapellu-
hrauni, vestan Hafnarfjarðar, og
víðar suðvestanlands hefur einn-
ig sést til kanína. Samkvæmt
RÚV bendir ýmislegt tfi þess aö
þessi dýr hafi nú bæst við þann
hóp spendýra sem lifa villt á ís-
landi.
Eldur í nýbyggingu
Eldur kom upp í nýbyggingu í
Keflavík síðdegis i gær. Talsverð-
ar skemmdir urðu af völdum hita
og reyks þegar eldurinn náöi að
læsa sig í einangrun. Skamman
tíma tók aö slökkva eldinn.
Ekiðábam
Bam var flutt í sjúkrahús í
Keftavfk eftir að það hljóp í veg
fyrir bfl við Hringbraut í gærdag.
Bamiö fótbrotnaði
-kaa