Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1993, Side 3
LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 1993
3
'
aiilii
Fréttir
Efhahagsllfið:
Útlitekki
bjart næstu
■ ■ ■ m m
tvoarin
- að mati Handsals
„Útlit í íslensku efnahagsliíl næstu
tvö árin er ekki bjart, aðallega vegna
samdráttar í fiskveiðum. Ekki eru
miklar líkur á verulegum efnahags-
bata á næstu misserum.“ Þetta kem-
ur m.a. fram í nýrri skýrslu frá
Handsali hf. sem hagfræðingamir
Edda Helgason og Helga Valfells
unnu. Þar kemur einnig fram að
miðað við versnandi stöðu þjóðar-
búsins séu hættumerki sjáanleg að
fjárfesta í verðbréfum með ríkis-
ábyrgð. Fjárfestum er ráðlagt að
hugleiða meiri dreifmgu í fjárfest-
ingu sinni fram á við.
„Ef ríkisreksturinn heldur áfram
að ganga eins illa og hann hefur gert
undanfarin ár þá geta lánakjör ís-
lands á eriendum mörkuðum versn-
að. Þetta þýðir að menn, sem eiga
íslensk ríkisskuldabréf, sérstaklega
í erlendum gjaldmiðlum, geta orðið
fyrir tapi vegna vaxtamunar. Við
erum ekki að segja að íslensk ríkis-
skuldabréf séu stórhættuleg. Áhætta
á tapi er sáralítil en það gæti verið
ákveðin vaxtaáhætta, ef sama þróun
heldur áfram,“ sagði Pálmi Sigmars-
son, viðskiptafræðingur hjá Hand-
sali hf., í samtali við DV.
í skýrslu Eddu og Helgu kemur
fram að raungildi þjóðarframleiðslu
á tímabilinu 1989 til 1992 dróst saman
um 3,7%, pg falliö á hvem íbúa var
um 6,6%. Á sama tímabili varð sam-
dráttur í útflutningstekjum um
11,5% á meðan ársverkum opinberra
starfsmanna fjölgaði um 9%.
Erlendar skuldir hafa vaxið um 32
milljarða króna síðan 1990, eingöngu
hjá hinu opinbera. Samtals nema
erlendar og innlendar skuldir hins
opinbera ríflega 172 milljörðum
króna. Upphæðin samsvarar 45% af
þjóðarframleiðslu, samkvæmt
skýrslu Eddu Helgason og Helgu
Valfells hjá Handsah. -bjb
Bílastæði:
Gjaldið lækkar
Borgarráð hefur samþykkt að lækka
gjöld í miðamæla bílastæðasjóðs til
hagsbóta fyrir langtímanotendur mæl-
anna. Ákveðið hefur verið að gjaldið
verði 40 krónur á klukkustund fyrstu
tvær klukkustundimar en 15 krónur
eftir það á bíiastæðum við Landakotst-
ún, Tryggvagötu 13, Ingólfsgarð, Skúla-
götu 4-6 og Geirsgötu. Lækkunin tekur
gildi 1. október. -GHS
Miklilax 1 nauöasamningaumleitunum:
80% skulda gef in eftir?
fyrirtækið gjaldþrota ef Byggðastofnun kemur ekki til hjálpar
Miklilax í Fljótum hefur fengið leyfi
til að leita eftir nauðasamningum við
lánardrottna sína um niðurfellingu
skulda. Fiskeldisfyrirtækið skuldar
samtals tæplega 800 milljónir króna,
þar af tæplega 600 milljónir hjá
Byggðastofnun, en eignir fyrirtækis-
ins em að verðmæti um hálfur millj-
arður króna. Helstu lánardrottnar
fyrirtækisins fyrir utan Byggða-
stofmm em íslandsbanki með rúmar
25 milljónir og Búnaðarbankinn á
Sauðárkróki með tæplega 110 millj-
ónir króna.
Með nauðasamningaumleitunum
sínum sækjast stjómendur Miklalax
eftir þvi að fá felld niður um 80 pró-
sent af samningskröfum fyrirtækis-
ins og skuldum þess hjá Byggða-
stofnun. Eins og staðan er í dag geta
nauöasamningamir einungis náð til
80 prósenta af 60 milljóna króna
samningskröfum fyrirtækisins.
Heimildir DV telja að niðurfelling á
80 prósentum af samningskröfum
hafi lítið að segja nema veðkröfuhaf-
ar fáist til að fella skuldir verulega
mikið niður. Allar líkur era því á að
fyrirtækið verði lýst gjaldþrota nema
Byggðastofnun komi því til bjargar.
Búist er við að skýrist um næstu
helgi hvert verður næsta skrefið í
þessu máh en Brynjar Níelsson hér-
aðsdómslögmaður, sem hefur um-
sjón með nauðasamningaumleitun-
unum, segist bíða eftir viðbrögðum
Byggðastofnunar. Guðmundur
Malmquist, forstjóri Byggðastofnun-
ar, segir hins vegar að stjórn Byggða-
stofnunar geti ekki tekið nauða-
samningaumleitanir Miklalax,. th
umfjöllunar fyrr en erindi hafi borist
um það frá lögmanninum.
Eignir Miklalax, sem metnar eru á
um hálfan mhljarð króna, felast
einkum í fiskeldisstöð, seiðastöð og
íbúðum starfsmanna. -GHS
LAMELLA PARKET
Golflist fra Finnlandi!
■
ClS
LAMELLA
parketið fæst
nú í verslunum
byko og
HÚSASMIÐJUNNAR
ásamt 14 helstu bygginga-
vöruverslunum um land allt.
Vegna hagstceðra samninga í inn-
kaupum er Lamella parketið boðið á
mjöggóðu verði miðað við gceði.
Lamella ervandað og endingargott parket frá
fi? ÍÍSm'’'
Finnlandi sem setur fallegan svip á umhverfi þitt.
R K
♦
LAMELLA
- gólflist frá Finnlandi!
Útsölustaðir: HÚSflSMIÐJflN, Súðarvogi og Hafnartirði BYKO Breiddinni, Hafnartirði og Hringbraut KB bygg.vörur, Borgarnesi KH bygg.vörur, Blönduósí
KS bygg.vörur, Sauðárkróki KEA bygg.vörur, Lónsbakka KEA bygg.vörur, Dalvík KÞ Smiðjan, Húsavík KHB bygg.vörur, Egílsstöðum KHB bygg.vörur, Reyðarlirði
Kaupfélagið FRAM, Neskaupstað KASK bygg.vörur, Höfn HÚSEY, Vestmannaeyjum Vöruhús KÁ, Selfossi JÁRN 0G SKIP, Keflavík Byggingavöruverslun JFE, Bolungarvík
Innflutningsaöili Lamella á islandi: Krókháls hf. Sími 91-686550