Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1993, Qupperneq 8
8
LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 1993
Vísnaþáttur
Hvert sem
landann
byrinn ber
„Hver sú þjóð, sem er annað og
meira en samsafn hinna og þessara
þjóðflokka innan valdsettra landa-
mæra, á sér tilveru, sem að eðli og
uppruna er jafn leyndardómsfull
og líf einstaklingsins. Lífheild þjóð-
arinnar er óáþreifanleg. Samt er
hún til, og í þeirri lífheild er hver
einstaklingur þjóðarinnar hlekkur,
sem tengir þjóöina saman, ekki
aðeins í nútíð, heldur einnig hnýtir
fortíð við framtíö. Einn er sá hlut-
ur, er segir til um tilveru þjóðar
öðrum fremur: orðið í munni -
tungan... Eigi sjálfstæði landsins
að verða annað og meira en sýnd-
argjöf tvíræðra tíma til þjóðar, sem
vart hefur á sér fullan andvara
gegn þeim vandsénu og vandráðnu
Torfi Jónsson
hættum, er læðast að á mjúkum
þófum óverðskuldaörar velgengni,
verða íslendingar að gera sér ljóst,
hvar fjöregg þeirra er falið - og
vemda það.“
Þessi orð eru upphaf og endir
greinar eftir Gunnar Gunnarsson
skáld sem nefnist Þáttur tungunn-
ar og birtist í ritverki hans, Arhók
1945. Það dylst varla nokkrum að
þar talaði maður sem gjörþekkti
viðfangsefnið og gerði sér ljósa
grein fyrir þeirri hættu sem yfir
vofði: erlend áhrif á málfar og setn-
ingaskipan íslenskunnar. Lokaorð-
in birtust raunar í vísnaþætti fyrir
tveimur árum en þau verða aldrei
of oft birt, ekki síst vegna þess hve
mjög gengi íslensks máls hefur al-
mennt hrakað. Verstu „málblóm-
in“ nú undanfarið era orðið með-
vitaður sem æ oftar heyrist úr
munni sumra starfsmanna Rikis-
útvarpsins. Er þeim ekki lengur
ljóst hvað gerist, geta þeir ekki gert
sér grein fyrir hlutunum, þurfa
þeir endilega aö vera „meðvitaðir"
um þá? Ég hélt að orðtakiö „að
forða slysi“ væri smátt og smátt
að hverfa úr daglegu máli en heyrði
svo fyrrverandi skólameistara, nú-
verandi utanríkisráðherra, vekja
það upp aftur í viðtali við frétta-
mann Sjónvarpsins fyrir ekki all-
löngu. Og það hefur lifað góðu lífi
síðan. En ekki má gleyma þágu-
fallssýkinni, einhver mér óþekktur
höfundur kvað svo um hana:
Fer um landið farsótt ný,
finnst ei hennar líki.
Bólusetja þyrfti því
við þágufallasýki.
Annar höfundur birti svohljóð-
andi kveðskap í einu dagblaðanna,
nafnlaust:
Gera mér lund óglaða
göslarar vorra blaða.
Amböguhrannir hlaða
hugsun til meins og skaða.
í flaustri þeir síður fylla
og framleiðslunni svo dilla.
Tel ég þá af því illa
sem „ylhýru máli“ spilla.
Maður, sem hlustaði á fyrirlestur
Jóns Helgasonar prófessors um ís-
lensk handrit í British Museum,
orti í tilefni af frásögn Jóns af hand-
riti eins mæts klerks:
Fyrst alhr í helvíti íslenzku tala,
eftir að fordæmdra jarðvist er
lokið,
mun eflaust dönskum til enn
meiri kvala
í eymd sinni og píslum, að skilja
ekki „sproldð".
Ekki er ólíklegt að þeir sem bera
ugg í brjósti vegna þess hvert
stefnir með málfar íslendinga skilji
öðrum betur hvað höfundurinn á
við. Og líklega hafa fáir gert sér
eins góða grein fyrir mætti orðsins
og beitingu þess og Einar Bene-
diktsson sem kvað:
Meðan landsýn höfin hylja,
hamrar fjötra vatnsins æð,
meðan orð ei andann dylja
eru himnadjúpin væð.
Jón Pálmason, bóndi og Alþingis-
maður á Akri:
Ef við leitum ljómans hjá
lýðveldinu unga,
enn er bezta eignin þá
okkar fagra tunga.
Haraldur Zophoníasson frá Jaðri
- Móðurmálið:
Hvert sem landann byrinn ber,
bæði daga og nætur,
alltaf móðurmáliö er
mýkst við tungurætur.
Traust sem fjallatindurinn,
tært sem glaður hlátur,
voldugt eins og vindurinn,
veikt sem ungbamsgrátur.
Haraldur Ólafsson Briem, bóndi
á Búlandsnesi (1841-1919), orti
þessa málsháttavísu:
Metin er við silfri sögn,
satt má oft kyrrt liggja,
gulli betri þykir þögn,
þarfara að vita en hyggja.
Þorvaldur Þórarinsson frá
Hjaltabakka:
Vertu glaður heill og hreinn
heims þó reyni tálið.
Geymdu í hjarta um eilífö einn
æðsta tungumálið.
Stephan G. Stephansson nefnir
eftirfarandi erindi, sem er ort í til-
efni íslendingadags, Móðurmálið:
Vort djarfa, fagra móðurmál,
eins mjúkt sem gull og hvelft sem
stál,
þú sigurtunga í sögu og hrag,
þú sætast hljómar þennan dag
í brjósti hverju er bærist hér -
og böm þín aldrei gleymi þér.
Við megum ekki gleyma því að
það skiptir ekki minna máli hvem-
ig menn haga orðum sínum en
hvað þeir segja. Því „fyrsta skrefiö
að skrílmenna þjóð/er skemmdir á
tungunni að vinna".
Torfi Jónsson
Matgæðingur vikunnar
Lambalifur að aust-
urlenskum hætti
„Þar.sem nú stendur yfir sláturt-
íð ætla ég að hjóða upp á lambalifur
með grænmeti og engifersósú. Hins
vegar nota ég engar sérstakar
mælieiningar þannig að fólk verð-
ur að krydda eftir srnekk," segir
Ragna Fossberg, förðunarmeistari
hjá Sjónvarpinu og matgæðingur
vikunnar.
Ný lambalifur þykir herra-
mannsmatiu- og margir hafa gam-
an af að búa til hina ýmsu rétti úr
henni. Ragna hefur kosið að gera
hana svolítið austurlenska en hún
segir að þessi uppskrift hafi verið
mjög vinsæl hjá sér. Auk þess er
mjög auðvelt og fljótlegt að mat-
reiða lifur. Og hér kemur upp-
skriftin:
Það sem þarf
Lifur
3 pressuö hvítlauksrif
'A engiferrót
2 tsk. kóríander
2 tsk. turmeric
salt
A peli ijómi
2 msk. ijómaostur
1 dl kókósmjöl
'A ferskur rauður pipar, smátt sax-
aður
grein af steinselju
Aðferðin
Lifrin er hreinsuð og himnan tek-
in af. Þá er hún skorin í litla bita
um það bil 1x3 sm og velt upp úr
hveiti og rúgmjölsblöndu. Lifrar-
bitamir em snöggsteiktir á pönnu
og kryddinu, sem blandað hefur
verið saman, er stráð yfir með te-
Ragna Fossberg förðunarmeistari
og matgæðingur vikunnar.
DV-mynd Brynjar Gauti
skeið. Þá er ijómanum hellt yfir
og ijómaostinum bætt út í auk kó-
kósmjölsins. í lokin er pipamum
og steinseljunni stráð yfir þannig
að það sé ferskt yfir.
Með þessum rétti býður Ragna
upp á grænmeti sem hún eldar á
wok-pönnu. „Grænmetið er aðeins
léttsteikt þannig að það sé stökkt
þegar það er borið á horð. Maður
veltir því upp úr oliu en það má
alls ekki hrúnast," segir hún.
Ragna notar wokpönnuna á raf-
magnshellu og hefur gert í tíu ár
en margir telja að ekki sé hægt að
elda á wok-pönnu nema með gasi.
„Það er vel hægt að nota wok-
pönnuna á eldavélinni en einnig er
hægt að kaupa sérstaka wok-pönnu
sem er gerð fyrir rafmagn,“ segir
hún. Grænmetið sem hún notar er
t.d. eftirfarandi en má vera hvað
sem hver vill:
sveppir
púrrulaukur
blómkál
helgbaunir
gulrætur
matarolía
sesamolía
aromatkrydd
refasmári (alfalfaspímr)
Grænmetinu er velt upp úr ol-
íunni stutta stund og refasmáran-
um stráð yfir. Grænmetið er borið
fram í wok-pönnunni. Ragna segist
ekki bera annað með lifrinni en
þetta grænmetissalat en hún segir
að hver geti ráðið því hvort hann
vilji hafa brauð eða hrísgijón.
Ragna segist oft prófa eitthvað
nýtt í matargerð. Hún segist hafa
gaman af að prófa sig áfram eins
og t.d. núna með lifrina. „Ég er
mjög fyrir austurlenska matar-
gerö, indverska rétti, tælenska og
ýmsa sterka rétti. Þessi lifrarréttur
minn getur verið sterkur ef fólk
notar mikið af kryddinu en hann
getur einnig verið mildur."
Ragna segist hafa gaman af að
elda í wok-pönnu og segir mjög
fljótlegt aö elda í henni auk þess
sem maturinn sé ferskari þar sem
hann sé minna steiktur en á venju-
legri pönnu. Svo sé um að gera að
nota hugmyndaflugið og vera
óhræddur við krydd. „Maður verð-
ur einungis að vita hvaða krydd
passa saman þannig að maður
eyðileggi ekki eitt með öðm.“
Ragna ætlar að skora á vinkonu
sína, Bimu Sigurðardóttur auglýs-
ingakonu, að vera næsti matgæö-
ingur.
-ELA
Hinhliðin_____________________________
Indíánabyggðir heimsóttar
- segir Sigmiuidur Öm Arngrímsson leikhúsritari
Sigmundur Örn Arngrímsson
hefur unnið lengi hjá Sjónvarpinu
og margir kannast við hann frá
þeim vettvangi. Nú h'efur hann
hins vegar hafið störf sem leikhús-
ritari hjá Þjóðleikhúsinu og mun
starfa þar í vetur. Starfinu má að
hluta Úkja við störf blaðafulltrúa
hjá ýmsum fyrirtækjum og stofn-
unum. Sigmundur Örn er ekki alls
ókunnur leikhúslífinu en hann er
lærður leikari og hefur leikið í
mörgum leikritum í Þjóðleikhús-
inu. Hann sýnir á sér hina hliðina
að þessu sinni.
Fullt nafn: Sigmundur Öm Am-
grímsson.
Fæðingardagur og ár: 23. október
1941.
Maki: Vilborg Þórarinsdóttir.
Börn Fjögur, þar af tvær dætur frá
fyrri hjónaböndum.
Bifreið: Volvo herragarðsvagn, ár-
gerð 1990.
Starf: Leikhúsritari Þjóðleikhúss-
ins.
Laun: Lág laun ríkisstarfsmanna
en öll laun verða ekki mæld í pen-
ingum.
Áhugamál: Allt milli himins og
jaröar: mannlifið, tækniundur
mannsandans, listir, fjölmiðlar,
menningarmál, gönguferðir og
hjólreiöar.
Hvað hefur þú fengið margar réttar
tölur í lottóinu? Eina.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Fara í vinnuna.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Taka til heima hjá mér um
helgar.
Uppáhaldsmatur: Fiskréttur kon-
Sigmundur Örn Arngrímsson.
unnar minnar og samlokan sem ég
smyr mér í hádeginu.
Uppáhaldsdrykkur: Safi úr beijum
eða ávöxtum sem meðhöndlaður
hefur verið á sérstakan hátt.
Hvaða íþróttamaður finnst þér
standa fremstur í dag? Sigurbjörn
Bárðarson, knapi og hestaíþrótta-
maður.
Uppáhaldstímarit: Ekkert sérstakt.
Hver er fallegasta kona sem þú
hefur séð fyrir utan maka Amina,
franska söngkonan sem söng lagið
Black and White í söngvakeppn-
inni 1990.
Ertu hlynntur eða andvigur ríkis-
stjórninni? Tek afstööu eftir mál-
efnum.
Hvaða persónu langar þig mest til
að hitta? Barnabarniö mitt sem ég
hef ekki hitt í hálft annaö ár.
Uppáhaldsleikari: Róbert Arnf-
innsson.
Uppáhaldsleikkona: Halldóra
Björnsdóttir.
Uppáhaldssöngvari: Pavarotti.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Ingi-
hjörg Sólrún Gísladóttir.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Litli dvergurinn í Mjallhvíti.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Góðar
kvikmyndir.
Uppáhaldsmatsölustaður (veit-
ingahús): Ópera, Lækjargötu.
Ertu hlynntur eða andvigur veru
varnarliðsins hér á landi? Ég er
andvígur her hvar sem er í heimin-
um.
Hver útvarpsrásanna fmnst þér
best? Rás 1.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Jón
Ormur Halldórsson.
Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2? Sjónvarpið fyrir klukk-
an 23 en Stöð 2 eftir klukkan 23.
Uppáhaldssjónvarpsmaður? Þegi
yfir því svo hinir verði ekki sárir.
Uppáhaldsskemmtistaður: Leik-
húskjallarinn þegar hann verður
opnaður aftur í upprunalegum stíl.
Uppáhaldsfélag í íþróttum: Landsl-
iðið.
Stefnir þú að einhverju sérstöku í
framtíðinni? Já, að verða 100 ára
við jafngóða heilsu og í dag.
Hvað gerðir þú í sumarfríinu? Ég
ferðaðist ásamt fjölskyldunni og
góðum vinum í húsbíl um afskekkt
landsvæði og indíánabyggðir í vest-
urfylkjum Bandaríkjanna, haðaði
mig á sólarströnd, málaði glugga
og veggi á húsinu mínu og naut lífs-
ins. -hlh