Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1993, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1993, Side 26
26 LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 1993 Norska nei-drottningin Anna Enger Lahnstein fer fyrir bændahemum á þingi: Fullkomin föt og farði Fölgræn fót, hóflegur farði og eitt stórt NEI. Þetta er uppskriftin að pólitískum sigri nýju drottningar- innar í norskum stjórnmálum. Sérfræðingar í öllu milli himins og jarðar í Noregi eru sammála um að Anna Enger Lahnstein, formaður Miðflokksins, hafi hvergi misstigið sig í kosningabaráttu sem gerði áhrifalítinn smáflokk að stórveldi í norskum stjórnmálum. Anna Enger þrefaldaði þingstyrk flokks síns á Stórþinginu. Þennan flokk kalla Norðmenn bændaherinn. Alþýðleg og auðskilin Anne Enger er hjúkrunarfræðing- ur að mennt. Hún þykir mjög alþýð- leg í framkomu og fær mikið hrós fyrir að koma alltaf til dyranna eins og hún er klædd. Sveitakonan og stjórnmálaskörungurinn Anna Enger Lahnstein. TYNDI HEIMURINN A NÆSTA SÖLUSTAÐ EÐA í ÁSKRIF í SÍMA 63-27-00 ímarit fyrir alla BROSTIN BÖND bls. 113 Skop........................................... 2 Nóg ást til skiptanna........................ 3 Leyndardómur frænda míns............,......... 10 Er trúin eðlislæg?.......................... 14 Utangarðsmaður verður ofurlögga............... 23 Hvað veistu um augu?.......................... 29 Það sem allar konur þurfa að vita um estrógen. 31 Drengurinn sem heyrði inn í framtíðina........ 37 Lausn á krosstölugátu......................... 42 Týndi heimurinn............................. 43 Djörf áætlun um björgun Rússlands............. 50 Koffín og neysla þess......................... 58 Hvað er að heyra!............................. 68 Hugsun í orðum................................ 72 Raunasaga úr tölvuheiminum.................... 74 Sprengjuvargur í véum......................... 82 Létti kúrinn.................................. 91 Máttur draumsins.............................. 96 Krosstölugátan............................... 100 Lokuð inni í peningaskáp......................101 Aflvaki afreksmanns...........................107 Brostin bönd............................... 113 Ferðalag lífs okkar...........................120 Saga Víðidals eystra..........................147 5. hefti 52. ar Sept- okt. 1993 Hún reyndi aldrei að sveipa sig hátíðleika í kosningabaráttunni; formaður Miðflokksins er bara hjúkrunarfræðingur sem er á móti Evrópubandalaginu. Þetta er einiold pólitík sem allir skilja og hún hreif ófáa Norðmenn. Anna Enger er fædd árið 1949 og verður senn 44 ára. Heimasveit hennar er Trogstad á Austufold. Þar er Miðflokkurinn, systurflokkur ís- lenska Framsóknarflokkins, sterk- ur. Fjölskylda hennar hefur fylgt Mið- flokknum frá upphafi eins og margt bændafólk í Noregi. Erik, bróðir hennar, er óðalsbóndi á jörð ættar- innar og systirin Inger er líka bóndi. Það er málstaður bænda sem Anna Enger ætlar að verja á þingi. Felldi stjóm í sjónvarpinu Anna Enger þótti snemma ákveðin þótt hægt færi. Hún var kjörin á þing árið 1985 og hefur setið þar upp frá því þrátt fyrir að oft hafi hún naum- leg náð kjöri. í fyrstu bar lítið á henni á þingi. Það var ekki fyrr en haustið 1990 að Norðmenn fóru loks að spyija; hver er þessi rauðhærða kona? Þá hafði hún tekið sig til og fellt ríkisstjóm Jans P. Syse í beinni sj ónvarpsútsendingu. Auðvitað voru það Evrópumálin sem réðu gerðum Önnu Enger. Hún sætti sig ekki við samninga um Evr- ópska efnahagssvæðið og sagði nei. Formaður flokksins vildi sitja áfram í stjórn en „nei-drottningin“ sagði enn og aftur nei og var kjörin for- maður flokksins á næsta landsfundi. Þar með lágu tveir karlar óvígir eftir eina glímu. Heilsar öllum að sveitasið Sem dæmi um alþýðleik Öiuiu Eng- er eða jafnvel sveitamennsku hafa menn að hún heilsar afltaf öllum með handabandi. Þetta er auðvitað ekki vandamál þegar tveir eða tíu hittast en getur oröið vandræðalegur siður á 200 manna fundi. En nei-drottning- in heldur alltaf fast við sitt. Anna Enger þykir íhaldssöm í mörgum þjóðfélagsmálum. Hún er t.d. fremst í flokki kvenna sem vilja takmarka rétt til fóstureyðinga. Hjónaskilnaðir þykja henni og ekki til eftirbreytni. Það varð þó hlut- skipti hennar um síðustu áramót að segja skilið við Geir mann sinn eftir meira en tuttugu ára hjónaband. Sagt er að endalok hjúskaparins hafi orð- ið henni þungbær. Bömin fyrst Anna Enger hefur því ekki farið varhluta af erfiðleikum í einkalífnu. Hún hefur og orðið að sætta sig við þá raun að annar sonur hennar er sjúklingur. Á síöata landsfundi þurfti hann að fara í uppskurð á sama tíma og gengið var til mikil- vægra kosninga á fundinum. Móðirin Anna Enger skildi sæti sitt að sjálfsögðu eftir autt og var við sjúkrabeð sonar síns. Það kom ekki að sök. Bændaherinn stendur allur sem einn maður að baki drottningu sinni. Það er í samræmi við annað í fari Önnu Enger að hún býr í fátæklegri leiguíbúð. Leiðtogar annarra stjórn- málaflokka geta státað af glæsilegum húsakynnum en Anna er bara sveita- kona á mölinni og tjaldar þar til einn- ar nætur. -GK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.