Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1993, Page 28
28
LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 1993
Þýðir ekki að tipla
á tánum í fótbolta
- segir
„Þetta er enginn galdur enda til-
heyra galdrar liöinni tíö. Árangur
liösins byggist fyrst og fremst á mik-
illi vinnu. Við erum búnir aö æfa vel
og lengi, alveg síðan í nóvember.
Margir hafa efast um að þetta væri
hægt en áður en tímabilið hófst setti
ég mér það markmið að hækka
tempóið í fótboltanum á íslandi. Ég
taldi að það væri komin ládeyða í
fótboltann og reyndi að nýta mér þá
þekkingu sem ég héf verið að afla
mér á ferðalögum.erlendis undanfar-
in ár og heimfæra hana á þær að-
stæður sem við búum við. Það hefur
gengið upp,“ segir Guðjón Þórðar-
son, þjálfari íslands- og bikarmeist-
ara ÍÁ í knattspyrnu.
Árangur Guðjóns sem knatt-
spyrnuþjálfara síöastliðin ár er ein-
stakur. Hann gerði það sem flestir
töldu ómögulegt 1989 þegar KA varð
íslandsmeistari og bikarinn fór í
fyrsta skipti norður yílr heiðar. Guð-
jón sneri sér síðan að þjálfun heima
á Skipaskaga, leiddi ÍA til sigurs í 2.
deild 1991 og vann íslandsmeistara-
titilinn strax árið eftir. í ár hefur
hann haldið sínu striki og gott betur
þar sem ÍA er tvöfaldur meistari,
bæði í bikar og deild. ÍA-liðið hefur
heillað knattspyrnuunnendur í allt
sumar og á miðvikudag bættist enn
ein skrautíjöðrin í hatt ÍA-manna
þegar þeir lögðu hollenska stórveldið
Feyenoord, 1-0.
DV heimsótti Guöjón daginn eftir
leikinn við Feyenoord. Þá var hann
þreyttur en sæll, sagðist líða eins og
daginn eftir leiki á þeim tíma þegar
hann spilaði sjálfur með ÍA. I hús-
næði ÍA komst aðeins eitt að þennan
dag: Leikurinn í Rotterdam 29. sept-
ember og allir þurftu að tala við
Guðjón. Til að fá næði til aö rabba
héldum við heim til Guðjóns.
Æfum á léttu
nótunum
- Það hefur vakið athygh manna
hversu samheldnum hóp leikmanna
þú hefur yfir að ráða og hversu gam-
an menn virðast hafa af því að spila
fótbolta.
„Það sem við gerum, og kann að
vera frábrugðið þjálfun hjá öðrum
félagsliðum hér, er að við höfum
æfingarnar á léttu nótunum, iátum
hlutina ganga þægilega en um leið
markvisst og ákveðið fyrir sig. Það
er ekkert leyndarmál en öllu skiptir
að meðan menn eru á æfingu þá eru
menn á æfingu óg leggja sig alla
fram,. 1.10 prósent.-Það er síðan ekki
lengd æfinganna eða fjöidi sem skipt-
ir máli heldur gæðin. Það má heldur
' ekki gleyma því að velgengni fylgir
ánægja - þetta tvennt hangir eðlilega
samán."
Guðjón segir Skagaliðið vera bless-
unarlega laust við ýmis vandamál,
tengd aga og slíku, sem önnur félög
hafa þurft að glíma við. Honum hafi
gramist að sjá tvo leikmenn eins
fyrstudeildarliðsins setta í mánaðar-
bann fyrir agabrot en þegar til átti
að taka hafi bannið einungis varað í
þijá daga.
„Slíkt dregur tennurnar úr þeim
leikmönnum sem hafa samviskuna í
lagi og skemmir móralinn í liðinu.
Við erum þannig í sveit settir aö
skemmtanalíf tekur engan toll hjá
okkur. Við erum hka í miklu návígi,
erum bæði félagar og vinir, sem þó
getur verið tvíeggjað á stundum. Þeg-
ar upp er staðið held ég þó að þetta
návígi sé mikhl kostur. Við erum
eins og fjölskylda og það er hugsað
mjög vel um alla. Allt hefur þetta sín
áhrif. Síöan höfum við fyrst og fremst
gaman af að spila fótbolta og þaö
skín stundum úr leik hðsins.“
Þýðir ekki
að tipla á tánum
- Tvíburamir sögðu í viðtali í fyrra
að sigurlykt væri af Gauja og hún
smitaði?
„Menn þurfa að hafa kjark. Ef
maður tekur aldrei áhættu þá gerist
ekkert. Þannig ákváðum við að
stökkva á Feyenoord og reyna að
koma þeim virkilega á óvart. Til þess
þarf kjark. Undir slíkum kringum-
stæðum hlýtur að vera skelfilegt fyr-
ir leikmenn sem efast kannski um
eigið ágæti en þurfa að takast á við
stór verkefni að hafa þjálfara sem er
muldrandi og tuldrandi um það sem
þarf að gera. Það er aldrei trúverð-
ugt.
Það hefur oft verið sagt við mig að
ég sé mjög frekur og aðgangsharður
og svo kann að vera. En ef menn
ætla að tipla á tánum í fótbolta og
verða aldrei fyrir truflun á hjart-
slætti eða geðsveiflum eiga menn
ekki að standa í þessu.“
- Hjá ÍA virðist gilda lögmálið alhr
fyrir einn og einn fyrir alla. Það eru
engar prímadonnur í liðinu:
„í mínum augum eru ahir leik-
menn jafnir. Það á enginn óskahlut-
verk og enginn fær að ráða sínu
plássi í liðinu. Ég reyni að skipta
hlutverkum eftir því sem ég tel best
fyrir liðsheildina. Ég set menn ekki
í stöður sem þeir halda sjálfir að þeir
muni blómstra í heldur stefni ég allt-
af að sama lokatakmarki: að heildin
nái árangri. Það skiptir mig megin-
máh. Þegar það gengur upp losnar
maður við að vesenast í leikmönn-
um. Þeir ná ákveðnu vinnulagi, alhr
þekkja sitt hlutverk og enginn er með
múður eða væl. Þetta er það sem
Englendingar kalla „part of play“ eða
leikvenju."
Guðjón fer til útlanda á hverjum
vetri í þeim tilgangi að auka þekk-
ingu sína á þjálfun. Síðastliðiö haust
fór hann í mánaðarferð til Þýska-
lands, Frakklands og Ítalíu. Dvaldi
hann í 8 daga hjá AS Roma og fylgd-
ist þar með þjálfun hjá Vujadin
Boskov sem af mörgum er talinn
einn færasti knattspymuþjálfari
heims.
„Maður lærir ekki endhega ahtaf
einhveija stórkostlega hluti í þessum
ferðum en það síast alltaf eitthvað
inn sem maður getur nýtt sér þótt
seinna verði. Einhvem tíma lenda
alhr í því að verða hálfgeldir og þurr-
ausnir hugmyndum en þegar málið
er skoðað verður niðurstaðan oftar
en ekki sú að það sé einfaldleikinn
sem gildir; ekki eigi að flækja máhð
um of fyrir sér.“
Þjálfarar úti í heimi geta yfirleitt
valið úr herskara efnhegra leik-
manna en ná samt ekki árangri. Á
Skaganum ert þú með takmarkaðan
en styrkan stofn sem nær þessum
góða árangri:
„Upplagið í fótboltanum er gott og
mikill og góður efniviður hér á Skag-
anum. Strákar hér alast upp við
mikla og sterka hefð í fótbolta. Fót-
boltinn hefur nánast lagst í ættir sem
sést kannski best á því að Sigursteinn
Gíslason og Ólafur Þórðarson eru
skyldir og einnig Sigurður Jónsson
og Þórður, sonur minn. Síðan skiptir
miklu að ég fékk sterka menn th liðs
við okkur, eins og Sigurð Jónsson,
sem blómstrað hefur í sumar, og Ólaf
Þórðarson sem kom heim til að jafna
sig eftir meiðsli sem hann varð fyrir
ytra.“
Hafa fengið tilboð
frá erlendum liðum
Þegar árangur næst í fótbolta er
óhjákvæmhegt að útsendarar er-
lendra hða láti í sér heyra. Leikmenn
ÍA og Guðjón sjálfur hafa fengið th-
boð hér heima og einnig erlendis frá.
Þórður Guðjónsson fer th náms í
Þýskalandi og mun þreifa fyrir sér
þar. Guðjón viðurkennir að erlend
og innlend félög hafi borið víurnar í
sig en segist ekki ætla að spá í þau
mál fyrr en leiktímabiliö er að baki.
Það sé nóg að hugsa um eitt í einu.
En óttast hann ekki blóðtöku fyrir
næsta tímabh?
„Vissulega óttast maöur það alltaf.
Þegar htil hð gera góða hluti vekur
það athygli og menn fylgjast með
okkur. Við erum komnir á landa-
kortið í fótboltanum og tilboð hafa
borist. En það er mjög krefjandi og
slítandi að standa fyrir miklum
breytingum ár eftir ár, sækja sér
menn og byggja sífellt upp nýtt lið.“
- Það er þá ekkert öruggt að þú verð-
ir áfram með Skagahðið:
„Ég á eitt ár eftir af mínum samn-
ingi sem reyndar er uppsegjanlegur
af beggja hálfu. Það er ekkert öruggt
í þessu lífi.“
„Aður en tímabilið hófst setti ég mér það markmið að hækka tempóið i fótboltanum á Islandi. Eg taldi að það væri komin ládeyða í fótboltann og reyndi
að nýta mér þá þekkingu sem ég hef verið að afla mér á ferðum eriendis undanfarin ár og heimfæra hana á þær aðstæður sem við búum við. Það
hefur gengið upp,“ segir Guðjón Þórðarson sem hér fagnar Ólafi Þórðarsyni eftir mark hans gegn Feyenoord á miðvikudag.
LU
- Það heyrðist í gárungum eftir leik-
inn á miðvikudag að landshðið væri
komið í nýjan búning, gulan og svart-
an. Skagahðið er í sérflokki, malar
FH, liðiö í öðru sæti, 5-0 í báðum
leikjum. Er 1. deildin nógu góð fyrir
þetta lið; fær það viðfangsefni við
hæfi?
„Menn verða að eiga þetta með
landsliðiðívið sjálfa sig. En við erum
búnir að vinna dehdina þegar tvær
umferðir eru eftir og eigum 9 stiga
forskot á FH sem er í öðru sæti. Við
höfum skorað meira en nokkurt lið
hefur gert og meðalmarkaskor liðs-
ins í seinni umferð mótsins er 4,6
mörk. Það er kannski kokhreysti að
halda því fram að við fáum ekki
næghega ögrun í deildinni en ég er
nokkuð viss um að þetta lið gæti spil-
að í dehdunum á Norðurlöndunum,
jafnvel í Hollandi og Belgíu, og náð
þokkalegum árangri. Liðið mundi
aðeins bæta sig við þær aðstæður
sem þar eru.“
- Þú ert þekktur fyrir að láta skoðun
þína í ljós með miklum látum á leikj-
um, ekki síst í garð dómaranna.
Verður þú ekki fyrir mótlæti vegna
þess?
„Fólk hefur auðvitað ákveðnar
skoðanir á minni persónui og ekki
ahar jafn fallegar, en ég læf það ekki
á mig fá. Hvað dómarana varðar sér-
staklega tel ég mig geta fært rök fyr-
ir því að það virðist oft dæmt eftir
öðrum reglum þegar við eigum í hlut.
Það er eins og dómurunum finnist
við stundum of sterkir og grípi þá til
eins konar samúðardómgæslu. Það
er nóg að skoða myndbönd sjón-
varpsstöðvanna til að sjá að við njót-
um ekki alltaf sannmælis í dóm-
gæslu. Það er stundum eins og dóm-
ararnir vilji sýna að þeir hafi öh völd
leiksins í hendi sér - ekki Skagaliðið.
Það er röng ímynd hjá dómara að
halda að þeir hafi einhver völd. Þeir
eru bara hluti af leiknum. Bestu
dómararnir láta leikinn ganga; hafa
tök á leiknum án þess að vera í aðal-
hlutverki."
Mjólkursýru-
þjálfarinn
- Velgengni kallar oft á öfund og
andúð. Verður þú mikið var við slíkt?
„Nei, en það er ljóst að margir eiga
mjög erfitt með að sætta sig við vel-
gengni okkar. Það brýst út á ýmsan
hátt. Ég mætti á einn völl í sumar til
að horfa á leik og varð þá fyrir mikl-
um háðsglósum frá hópi forsvars-
manna annars liðsins. Menn köll-
uðu: Er þetta þessi mjólkursýruþjálf-
ari? Þegar menn ná ekki tökum á
leiknum reyna þeir stundum að gera
velgengni annarra tortryggilega í
stað þess að draga einhvern lærdóm
af henni."
Mjólkursýrupróf er fastur þáttur í
undirbúningi Skagaliðsins fyrir
hvert leiktímabh. Guðjón kynntist
þessum prófum í Þýskalandi, þar
sem þau eru mikið notuð, og byijaði
að nota þau fyrir íslandsmótið í
fyrra.
Mjólkursýra safnast fyrir í vöðvum
leikmanna við áreynslu, þreytir
menn og kvelur. Með hjálp þessara
prófa getur Guðjón séð hve mikið lík-
amlegt álag hver og einn leikmaður
þolir. Markmiðið er að auka þol leik-
manna og eru æfingarnar sniðnar í
samraémi við það. Leikmenn fara síð-
an í eitt mjólkursýrupróf á haustin
LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 1993
37
—
:
- : ‘i
:
.
.
.
>
III
WISSIISM
WijiiHk
.
. ■
„Ef maður tekur aldrei áhættu þá gerist ekkert. Þannig ákváðum við að stökkva á Feyenoord og reyna að koma þeim virkilega á óvart. Til þess þarf kjark,“ segir Guðjón Þórðarson, þjálfari ÍA
í knattspyrnu og sjálfur margfaldur íslands- og bikarmeistari með liðinu. Hann heldur hér á Mjólkurbikarnum sem lið hans vann á dögunum og íslandsbikarnum sem liðið vann í fyrra og fær
afhentan á ný við hátíðahöld á Skaganum í dag. DV-myndir Brynjar Gauti
th að sjá ásigkomihagið í lok tíma-
bils.
„Þetta eru engin töfrabrögð heldur
sjálfsagður þáttur í undirbúningi.
Það er ekki síður mikhvægt fyrir
leikmenn en mig að vita hvar þeir
standa. Þessi próf hafa sýnt mér að
við erum á sama þjálfunarstigi og
atvinnumannahð. Enda sýndi það sig
í leiknum á miðvikudaginn. Við héld-
um höfði og gott betur þrátt fyrir að
hafa spilað nærri tvo leiki á viku frá
því í byrjun ágúst."
En leikmenn verða líka aö vera í
góðu andlegu ásigkomulagi th að tak-
ast á við heht leiktímabh. Guðjón seg-
ist passa sig á að íþyngja ekki leik-
mönnum með stöðugum fundum um
aha skapaða hluti. Ef eitthvað þurfi
að lagfæra hnippir hann í viðkomandi
leikmenn og ræðir einslega við þá.
Magatruflanir
- Það er sagt að starfið hafi tekið
sinn toll hjá þér og þú gangir ekki
alveg hehl th skógar eftir sumarið.
„Menn hafa verið að hvísla um
magasár en ég er ekki með það, sem
betur fer. Það á að líta á meltinguna
hjá mér en það er ómögulegt að segja
hvort þau vandræði tengjast álaginu
úr fótboltanum. Annars hugsar þjálf-
arinn yfirleitt um aha aðra en sjálfan
sig. Ég er á kaupi við að hugsa um
leikmenn en það hugsar enginn um
þjálfarann nema eiginkonan. Hún
hugsar ósköp vel um mig þó ég sé
ekki ahtaf auðveldur í umgengni;
stundum dauðþreyttur og pirraður.
En það fylgir því óneitanlega mikið
álag að sinna þjálfarastarfmu al-
mennilega. Þar að auki er ég fram-
kvæmdastjóri ÍA og þarf aö halda
utan um fleiri Ihuti en þjálfunina.
Það gefur aukið vægi í þjálfun að fá
að ráða svona miklu, auk þess sem
það einfaldar hlutina þegar ekki eru
of margir að vafstra í þessu."
Margfaldur meistari
Guðjón Þóröarson er borinn og
bamfæddur Akumesingur. Hann lék
á sínum tíma með ÍA við góðan orðs-
tír - lék yfir 200 leiki í 1. deild. Hann
varð fimm sinnum íslandsmeistari
með ÍA, 1974,1975,1977,1983 og 1984,
og fimm sinnum bikarmeistari, 1978,
1982,1983,1984 og 1986. Þá var hann
í sigurliði Skagamanna í meistara-
keppni KSÍ og htlu bikarkeppninni.
Loks lék hann fjölmarga Evrópuleiki
með ÍA.
Guðjón er kvæntur Hrönn Jóns-
dóttur. Hann á fimm syni, þar af þijá
með fyrri eiginkonu sinni. Þórður,
elsti sonur Guðjóns, stefnir hraðbyri
á markakóngstitil 1. deildar í ár.
Tveir synir hans á unglingsaldri
leika með 4. flokki ÍA og 5 ára sonur
hans spilar með yngstu flokkunum.
Einn er í körfuboltanum hjá ÍA en
sá yngsti, tveggja ára, lætur sér enn
nægja að fylgjast með.
- Hvemig slappar Guðjón Þórðaron
af?
„Það geri ég aðallega með fjölskyld-
unni. En vegna anna eru frístundir
ekki margar. Ef ég ætla að fá gott frí
og slappa almennilega af á ég ekki
annars úrkosti en fara úr bænum eða
af landi brott. Hér heima reyni ég að
komast í sumarhús föður míns eins
oft og ég get og þar næ ég að slaka
aðeins á.“
Sonurinn
markakóngurinn
- Nú er sonur þinn einn af burða-
rásum hðsins; markahæstur í 1.
deild. Býður það ekki upp á alls kyns
vandamál að vera með son sinn í lið-
inu?
„Ég held að vandamáhn í því sam-
bandi séu hjá öhum öðrum en okk-
ur. Þegar Þórður var að byrja varð
hann oft fyrir mjög harðri gagnrýni
frá fólki. Áð sonur minn skuh vera
í hðinu hefur ekki verið neitt vanda-
mál meðal leikmanna. Þeir skhja
mjög vel hvaða lykilhlutverki Þórður
gegnir. Hann er líka mjög ósérhlíf-
inn, duglegur og fylginn sér, reglu-
samur og alltaf í toppformi. En hon-
um er ekkert hampað af mér. Ef eitt-
hvað er þá hður hann frekar fyrir
það að hafa föður sinn sem þjálfara
þar sem ég skamma hann stundum
meira en aðra leikmenn. Ég hef
meira að segja verið fullharður við
hann á köflum. En árangur hans og
alls liðsins bendir til að mér hafi
ekki alveg mistekist að rata rétta leið
í málinu."
Guðjón segist vera mjög kröfu-
harður þjálfari. Sú harka hafi síðan
hjálpað þeim á ýmsan máta, meðal
annars fengið þá th að gera miklar
kröfur til sjálfra sín. „Það er eitt af
lykhatriðum velgengninnar að menn
hti í eigin barm.“
Vill hafa
reglu á hlutunum
- Ertu hjátrúarfuhur?
„Já, á vissan hátt. En ekki þannig
að ég sé með neinar serimóníur varð-
andi föt eða annað. Ég er mjög fast-
heldinn á fyrirkomulag fyrir leiki og
vil að umgjörðin um leikina sé í föst-
um skorðum og hlutirnir gangi
snurðulaust fyrir sig. Fyrir leiki höf-
um við okkar fundi á nákvæmlega
sama tíma. Sama ghdir þegar við
fáum okkur te og kaffi og þegar við
borðum saman. Ef við þurfum að
ferðast og ætlum aö borða klukkan
tvö þá ætlast ég til að maturinn sé
kominn á borðið klukkan tvö, ekki
kortér fyrir eða kortér yfir. Þjón-
ustufólk hefur því stundum fengið
að heyra það hjá mér.“
Guðjón segir sumarið búið að vera
ánægjulegt og dásamlegt að upplifa
stemninguna meðal stuðnings-
manna IA.
„Stemningin í bikarleiknum var
einstök. Ég þorði ekki að vona að við
fengjum álíka stuðning í leiknum á
miðvikudag en hún varð enn magn-
aðri. Þreyttur leikmaður, sem fær
hvatningu á borð við þessa, magnast
upp og það sem virðist ómögulegt
verður mögulegt."
Höfum engu að tapa
- Hvernig ætlið þið aö taka á Feye-
noord í Rotterdam?
„Það fer eftir því hvernig mann-
skapurinn verður. Einhveijir leik-
menn verða ekki í leikformi í dag þar
sem hart var barist í leiknum á mið-
vikudag. Við förum í seinni leikinn
með sama hugarfari og þann fyrri.
Við höfum engu að tapa og allt að
vinna. Það er óraunhæft að ætlast th
þess að við sláum þá út en ég lét það
nú út úr mér fyrir leikinná miðviku-
dag að óraunhæft væri að ætlast th
sigurs af okkur. En fótboltinn er
brehinn og bröndóttur. Það getur
allt gerst og það má ekki gleyma því
að pressan er á leikmönnum Feye-
noord. Taugakerfi þeirra fær að titra
meðan við getum nú þegar verið sátt-
ir við okkar hlut í keppninni. Hættan
fyrir Feyenoord getur hins vegar fal-
ist í því að ætla sér að taka okkur í
nefið. En við höfum sýnt öhum að
það verður ekki vaðið svo létt yfir
okkur. Annars skiptir máh að hafa
rétt hjartalag í fótbolta - spila af lífi
og sál. Hjá stórliðum, þar sem mikhr
peningar eru oft í húfi, er fótboltinn
stundum spilaður á allt öðrum for-
sendum.“ 'i
Dreymt fyrir úrslitum
Guðjón segist oft fá upphringing-
ar frá fólki sem telur sig hafa dreymt
fyrir leikjum liðsins. „Svona er
undirvitund fólksins hér sterkhtuð
fótbolta - það lifa sig allir inn í þetta.“
Fyrir leikinn gegn Feyenoord fékk
Guðjón hringingu frá manni í Eyjum
sem fullyrti aö IA mundi vinna leik-
inn 1-0. Hann haföi einnig spáð 3-0
sigri gegn Partisan Tirana. Hvort
tveggja gekk eftir. Sami maður full-
yrðir nú að ÍA eigi eftir tengjast
óvæntustu úrslitum í Evrópu í lang-
an tíma.
Guðjón segist ekki vera að velta
öðru starfi fyrir sér en þjálfun. Hann
telur sig eiga mikið eftir á þeim vett-
vangi. En nú er Guöjón búinn að
vinna allt sem hægt er á íslandi og
kæmi því engum á óvart þótt hugur-
inn stefndi til annarra landa.
„Það væri vissulega gaman að
þjálfa í útlöndum og það eina sem
er virkilega spennandi í framhald-
inu. Þó er fullt af verkefnum á ís-
landi sem gaman væri að takast á
við en það er ekkert sem maður þarf
að kvíða.“