Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1993, Síða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1993, Síða 33
LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 1993 41 Trimm MargrétBjamadóttir, formaður Fimleikasambands fslands: Fimleikar lifa af alla tískustrauma Pálmi Þór Júdó Jiu-jitsu Sjálfsvöm Líkamsrækt Aldursflokkaskipting: 6-9 ára, 10-13 ára, 14-16 ára, 16 ára og eldri. Opnunartími mán.-föstudag kl. 08-22 Laugardaga 11-16 Sunnudaga kl. 12-5 Einholti 6 125 Reykjavík. Sími 627295 -gamla góða alhliða leikfímin kemur alltaf aftur 4-5 þús. manns stunda fimleika á vegum íþróttafélaga og áhuga- mannahópa hér á landi. Á erlendum tungumálum er orðið gymnastics notað fyrir það sem íslendingar að- greina í fimleika og leikfimi. Ef við höldum okkur við orðið fimleika sem yfirhugtak skiptast fimleikar annars vegar í keppnisfimleika og almenna fimleika hins vegar. Á íslandi eru miklu fleiri stelpur en strákar sem stunda fimleika. Sama þróun er víð- ast í Evrópu. Þetta hefur þó verið að breytast mikið síðustu áratugi sagði viðmælandi trimmsíðunnar, Margr- ét Bjarnadóttir, formaður Fimleika- sambands íslands. Eitthvað fyrir mig? Fimleikar eru fyrir alla. Alhr eiga að geta fundið sér grein við hæfi í fimleikum. í barnafimleikum er að- aláherslan lögð á hreyfiþörf og hreyfiþroska barnanna ásamt tján- ingu og leikþörf. Síðar meir er hægt að byggja ofan á þetta aht miðað við líkamlega færni viðkomandi og að einstaklingurinn hætti ekki að þjálfa. Hver og einn getur ráðið ferðinni þannig sjálfur og þú þarft ekki alltaf að vera á hæstu hæðum eða eins og Margrét orðar það með skemmtilegri líkingu: Það er alltaf hægt að skreppa Gamla góða leikfimin í fullu gildi. í smá gönguferð með hundinn jafn- vel þótt þú eigir engan hund. Keppnisfimleikar/ almennir fimleikar Fimleikar flokkast aðahega undir keppnisfimleika og almenna fim- leika. Keppni fer fram í eftirfarandi greinum fimleika: Áhaldafimleikar karla og kvenna sem keppt er í á ólympíuleikum, rythmuskir sport- fimleikar kvenna sem keppt er í á ólympíuleikum og hópfimleikar (TYupp). Undir almenna fimleika flokkast aUar greinar fimleika sem ekki er keppt í á ólympíuleikum, þar' má telja ótal gremar t.d.: Sýningar- fimleikar, djassfimleikar, dansfim- leikar, tramboUnfimleikar, þolfimi, leikfimleikar barna, leikfimi fyir eldra fólk, leikfimi með margvísleg tæki, kínversk leikfimi, jógaleikfimi o.fl. o.fl. Margrét Bjarnadóttir. Mörg fimleikafélög eru starfandi á höfuðborgarsvæðinu. Allar upplýs- mgar um þau eru á skrifstofu Fim- leikasambands íslands í Laugardal og í hverju bæjarfélagi ásamt skrif- stofu ÍSÍ. Fimleikafélögin hafa unnið kappsamlega að því að koma sér upp góðri æfingaaðstöðu. Þau hafa staðið í stórum átaksverkefnum til að safna fyrir kaupum á fimleikaáhöldum. Sum félög eiga nú eigin æfingahús og fimleikagryfjur eru til í 5 sveitar- félögum. Einstök sveitarfélög hafa byggt upp góða aðstöðu til fimleika- æfinga og keppni. Markviss ástundun skilar árangri Meðfædd líkamleg færni gefur for- skot til góðs árangur en markviss ástimdun skilar alltaf árangri. Tækniþekking og dugnaður þjálfara skiptir mjög miklu máU þegar spurt er um árangur við keppni og sýning- ar. Fimleikar eru ævagömul íþrótt og byggir upp grunn fyrir böm til aUiUða Ukamsþjálfunar. Einnig byggir hún upp sjálfstraust einstakl- ingsins og sveigjanleika í samstarfi, t.a.m. í sýningarhópum. Þrátt fyrir öU tískufyrirbrigði í þjálfun er það hin gamla góða alhliða leikfimi sem aUtaf kemur aftur. Við vorum á sýningarferðalagi á Norðurlöndunum og vorum að fara að sýna í mjög stórri sýning- arhöll í Köben. Við vorum þarna stór hópur sem kom fram ásarat sýningarflokkum frá mörgum þjóðum í Evrópu og víðar. í einu atriöa okkar íslendinganna vor- um viö 6 stelpur í sýnmgarhópn- um og hver og ein tók einhvers konar flick flack og svo heljar- stökk yfir gólfið. Ég var þriðja í röðinni og var eitthvað ógurlega taugastrekkt. Þetta gekk fióm- andi vel hjá fyrstu tveimur og þær stilltu sér upp til hliðar eftir sín stökk og þá var komið aö mér. Það gekk vel tíl að byrja með en í uppstökkinu missti ég allt jafhvægi og stefnumið og stefhdi heint á vinkonur mlnar tvær. Vinkona mín, sem hafði stokkiö fyrst, brást frábærlega viö og hljóp fram með útréttar hendur og í lendingunni ýtti hún upp á móti og ég stökk í hend- ingskasti aftur fynr mig og lenti í réttu liorni teinrétt með stíl. Dynjandi lófaklapp heyrðist utan úrsalog undirtektir voru frábær- ar og slíkt lófaklapp átti ekki eftir að heyrast meira það kvöldiö. Áhorfendur álitu þetta stökk meistaralega framkvæmt og sam- vinnu okkar einstaklega góða. Mér þóttí náttúrlega súrt i brotið aö stökkið hafði mistekist en að sjálfsögðu yljaði lófaklappið mér umhjartaræturnar. G.E. Þorbergsson, 15 ára, aefirfimleika hjá Gerplu Ég byijaði að stunda fimleika þegar ég var 7 ára og ég fékk strax áhugann og hef verið í þessu síð- an. Viö æfum 6 sinnum í viku, 2-3 klst. í senn. Sú grein innan fimleikanna sem mér finnst skemmtilegast aö stunda eru hringírnir enda er það mín sterk- asta grein. Féiagskapurinn er líka frábær. Fimleikarnir hafa gefið mér mikið og eiga örugglega eftir aö gera það enn í fjölmörg ár. Jónsdóttir, 19 ára, æfír fimleika hjá Gerplu Ég byijaði að stunda fimleika þegar ég var 9 ára gömul og hef stundað þá núna í 10 ár. Fimleik- ar eru mjög gefandi íþrótt en jafn- framt krefjandi. Við æfum 5 sinn- um í viku 2 'h tíma í senn. Ég stundaöi áhaldaleikfimi hér áður fyrr en hef alfarið snúið mér að trompleikfimi. Þetta er ný grein sem inniheldur dans, fimleika- stökk og trambolín. Viö erum 6 í hóp sem sýnum og keppum í þessu. Fimleikar eru ofsalega gef- andi og ég er að hugsa um að halda áfram að stunda þá um ókominár. Trimla Ef sértu mín frú með fætur og á fimleikum hafirðu mætur þá taktu undir þig stökk, svona vertu nú frökk, þú sefur svo vel þá um nætur. J.B.H.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.