Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1993, Blaðsíða 34
42
LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 1993
íþróttir
DV í samvinnu við íslenskar getraunir og Austurbakka velur 13 rétta í Getraunadeildinni:
Ólafur, Hörður og
Gylfi voru bestir
Ólafur Kristjánsson úr FH hefur ver-
ið útnefndur besti leikmaður í Get-
raunadeildinni í knattspymu í um-
ferðunum frá 11 til 15 að mati íþrótt-
afréttamanna DV. Hörður Hilmars-
son, þjáifari FH, besti þjálfarinn í
þessum sömu umferðum og Gylfi
Orrason besti dómarinn.
DV stóð að útnefningu á 13 réttum
í samvinnu við íslenskar getraunir
og Austurbakka hf. í þriðja sinn í
sumar en 13 réttir samanstanda af
11 bestu leikmönnum Getrauna-
deildarinnar á því tímabUi sem vabð
er eftir, besta þjálfaranum og besta
dómaranum. Til grundvaUar á val-
inu er metin frammistaða áður-
nefndra í fimm leikjum Getrauna-
deildarinnar og á þessu tímabiU eru
þaö umferðimar frá 11 til 15 aö báð-
um meðtöldum.
Austurbakki hf. gaf þessum þrem-
ur glæsUeg verðlaun sem eru Nike
hlaupaskór af bestu gerð og íslensk-
ar getraunir gáfu öUum sem skipa
13 rétta áritaða boU að gjöf.
Ólafur hefurverið
lykilmaður í
sterku FH-liði
Það er samdóma áUt flestra „knatt-
spymuspekinga" að FH-ingar hafi
komið allra Uða mest á óvart í sum-
ar. Hafnfirðingamir hafa látið aUa
spádóma um slakt gengi í sumar eins
og vind um eyru þjóta. í síðustu viku
tryggði Uöið sér annað sætið í Get-
raunadeUdinni og um leið Evrópu-
sætið eftir að hafa tekið Framara í
bakaríið og þegar tveimur umferðum
er ólokið hefur Uðið aðeins tapað
tveimur leikjum, báðum fyrir ÍA.
Einn sterkasti hlekkurinn í geysi-
sterku Uði FH í sumar hefur verið
fyrirliðinn, Ólafur Kristjánsson.
Hann hefur átt mjög góða leiki og
fróðir menn segja að hann hafi aldrei
leikið betur. Vöm FH hefur átt stór-
an þátt í velgengni Uðsins í ár og þar
hefúr Ólafur gegnt lykilstöðu. Ólafur
er 25 ára gamaU. Hann hefur leikið
113 leiki með FH í 1. deild og á að
baki 10 A-landsleiki.
Besti árangurFH
frá upphafi
undir stjóm Harðar
Undir stjóm Harðar HUmarssonar
hefur FH náð sínum besta árEmgri í
1. deild frá upphafi. Hörður tók við
Uðinu síðastUðið haust og þeir sem
grannt hafa fylgst með Uðinu hafa
séð miklar framfarir á Hafnarfiarð-
arUðinu frá því í fyrra. FH-ingamir
hafa verið að leika mjög léttleikandi
og skemmtilega knattspymu og eins
og einn maður sagði þá era þeir „lang
næstbestir“ á íslandi. Eins og áður
segir þá hefur FH aðeins tapað tveim-
ur leikjum í Getraunadeildinni í
sumar og aðeins fyrir einu Uði, Uði
Skagamanna. Á þessu tímabiU sem
vaUð er nú eftir sigraði FH í fjórum
leikjum, 4-2 gegn Víkingi, 0-2 á móti
Fylki, 3-1 gegn IBV og 0-1 á móti ÍBK
og gerði 1-1 jafntefli gegn Val.
FH-ingarnir Olafur Kristjánsson, til vinstri, og Hörður Hilmarsson besti leikmaður og þjálfari mánaðarins.
DV-mynd Brynjar Gauti
■s I I -I
Lárus Sigurðsson
.
I y' USL Wy>> ' "m t 11 l/
Lúkas Kostic
Petr Mrazek
Ólafur Kristjánsson
Hilmar Björnsson
Sigurður Jónsson
Gunnar Oddsson
jLLssJk
Sigursteinn Gíslason
Helgi Sigurðsson
Þórður Guðjónsson
Haraldur Ingólfsson
Leikmaður
mánaðarins:
Þjálfari
mánaðarins:
Dómari
mánaðarins:
Olafur Kristjánsson
K
Hörður Hilmarsson
Gylfi Orrason
IDV
Gylfi skipað sér
ábekkmeðal
þeirra bestu
Besti dómarinn á þessu tímabiU að
mati íþróttafréttamanna DV að þessu
sinni er Gylfi Orrason sem dæmir
fyrir Fram. Gylfi dæmdi þrjá leiki á
þessu tímabiU og fékk í öll skiptin
mjög góða umsögn hjá íþróttafrétta-
mönnum DV. Til dæmis leit umsögn
um störf Gylfa í DV eftir að hann
dæmdi leik Víkings og KR: „dæmdi
óaðfinnanlega og fær toppeinkunn"
og eftir leik FH og FyUds sem hann
dæmdi: „dæmdi mjög vel og hleypti
engum óboðnum gestum nálægt veU-
inum." Gylfi var staddur erlendis við
dómarastörf þegar verðlaunaafhend-
ingin fór fram.
Gylfi tók dómarapróf árið 1981 og
varð landsdómari 1986. í fyrra fékk
hann FIFA-réttindi sem dómari og
er einn af fjórum íslenskum dómur-
um sem hafa þau réttindi. Það er
engrnn blöðum um það að fletta að
Gylfi er orðinn einn af betri knatt-
spymudómuram landsins, hann hef-
ur góðan skilning á leiknum og hefur
þótt beita hagnaðarreglunni mjög
skynsamlega.
Flestir úr ÍA
og FHí liði
mánaðarins
Það kemur fáum á óvart að flestir
leikmenn sem skipa lið mánaðarins
koma úr ÍA og FH en þessi félög vora
áberandi best á þessu tímabUi sem
vaUö er eftir. Skagamenn eiga fimm
leikmenn: Lúkas Kostic, Sigurð
Jónsson, Sigurstein Gíslason, Harald
Ingólfsson og Þórð Guðjónsson. Þrír
koma frá FH: Tékkinn Petr Mrazek,
Ólafur Kristjánsson og Hilmar
Björnsson. Markvörðurinn Lárus
Sigurðsson kemur frá Þór, Gunnar
Oddsson úr Keflavík og Framarinn
Helgi Sigurðsson.
-GH/VS/BL/RR
Olafur Kristjánsson, fyrirliði FH, i
baráttu við Sigurstein Gíslason úr
ÍA. Þeir eru báðir í liði mánaðarins.