Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1993, Side 36
44
LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 1993
Sviðsljós
Erfitt tímabil hjá Janni Spies:
Auður Simonar
Spies að gufa upp
Nú eru tíu ár síðan ferðakóngur
Danmerkur kvæntist hinni ungu
drottningu, Janni. Simon Spies var
þá 62 ára en brúðurin, Janni Broder-
sen frá Herlev, var einungis tvítug.
Talað var um ævintýri Öskubusku
þar sem Janni var bláfáæk og óþekkt
skrifstofustúlka hjá ferðaskrifstof-
unni. En hamingjan varð skamm-
vinn hjá ferðakónginum því nokkr-
um dögum fyrir eins árs brúðkaups-
afmæliö lést hann. Hin unga ekkja
erfði um tólf milljarða króna.
Það höfðu orðið miklar breytingar
í lífi Janni er hún giftist Simoni Spi-
es og ekki urðu þær minni eftir lát
hans. Á blaðamannafundi stuttu eftir
dauða hans sagði hún fjölmiðlunum
að hún myndi sjálf setjast í stól for-
stjóra Spies-ferðaskrifstofunnar.
Margir voru hissa að Janni réði sér
ekki reynslumeiri forstjóra Nú
spyrja margir hvort hún hafi verið
nógu klár til að reka svo umfangs-
mikið fyrirtæki.
Janni Spies, er verður 31 árs á
morgun, er nú gift margmilljónaran-
um, lögfræðingnum og kóngavinin-
um Christian Kjær. Þau giftu sig árið
1988 og eiga saman eina dóttur, Mic-
hölu, sem er fjögurra ára. Fjölskyld-
an býr í lúxusvillu í Sandberggaard.
Janni kemur frá alþýðuheimili.
Foreldrar hennar unnu mikið og
börnin urðu að treysta á sig sjálf að
miklu leyti. Sagt er að það hafi hjálp-
að Janni heilmikið í gegnum vinnu
hennar hjá Spies. Janni reynir allt
til að dóttir hennar fái venjulegan
uppvöxt.
Það fyrsta sem Janni geröi þegar
hún varð forstjóri hjá Spies var að
ráða bróður sinn, Leif, sem skrif-
stofustjóra. Hann starfaði sem einka-
bókhaldari hennar og skipuleggj-
andi. Einnig sá hún foreldrum sínum
fyrir glæsilegri íbúð að búa í.
Offjárfestingar
Þegar Janni keypti Tjæreborg-
ferðaskrifstofuna áriö 1988 töldu
margir að hún væri að gera vitleysu
og Spies-fyrirtækið myndi ekki þola
slík kaup. Þegar hún síðan keypti sex
nýjar þotur árið 1990 héldu menn að
hún væri alveg orðin galin enda
þurfti hún þá að taka stór lán. Menn
spáðu því þá að hún myndi koma
fyrirtækinu yfir um og svo virðist
sem þeir hinir sömu hafi reynst
sannspáir. Fyrirtækið hangir nú á
bláþræöi.
og ferðaskrifstofan á barmi gjaldþrots
Á sama tíma og rekstur fyrirtækis-
ins fór að versna fóru fjölskyldusam-
skipti úr böndunum. Janni talar
hvorki við Leif bróður sinn né for-
eldra sína nú. Eiginmaður hennar,
Christian, rak Leif frá fyrirtækinu
en mörg vandamál þar innandyra
voru sögð honum að kenna. Leif hef-
ur hins vegar kært systur sína og
krefur hana um skaðabætur upp á
36 mihjónir sem hann segir að hún
skuldi sér. Leif hefur óskað eftir aö
hitta Janni svo þau geti rætt saman
en hún neitar. Hins vegar hefur Leif
ýmsa persónulega muni frá Simon
Spies undir höndum þar sem eru
m.a. bréf frá ferðakónginum til henn-
ar. Janni vill sjálfsagt ekki að þau
komi fyrir almenningssjónir. For-
eldrar hennar hafa nú fariö úr íbúð-
inni sem hún gaf þeim og skilja ekk-
ert hvers vegna dóttir þeirra vill ekki
tala við þau.
Fangi í gullbúri
Foreldrar Janni telja Christian
eiga hlut að máh og tala um að hann
haldi dóttur þeirra eins og fanga í
gullbúri. Hvorki foreldrar né gamlir
vinir hennar eru nógu góðir fyrir
eiginmanninn. Sumir segja að Kjær
banni henni beinlínis að hafa sam-
band við þetta fólk. Aðrir segja að
hann sé góður eiginmaður og faðir
sem einungis vUl fjölskyldu sinni það
besta.
Það eru erfiðir tímar hjá Janni
Spies og fyrirtæki hennar. Margir
hafa velt því fyrir sér hvort hún eigi
við heUsuvandamál að stríöa enda
hafi hún nokkrum sinnum verið lögð
inn á sjúkrahús. Sumir segja að það
sé vegna anorexiu sem hún sé haldin
en Janni er mjög grönn. Sjálf segist
hún hafa lagst inn vegna stress og
ofnæmis. Hún hafi verið útkeyrð.
Það er eins og Janni vilji gleyma
tíma sínum með Simoni Spies. Hún
íhugar að selja ferðaskrifstofuna en
þegar hefur hún selt draumaheimih
Simonar sem er rétt fyrir utan Kaup-
mannahöfn.
Þó tími Janni Spies sem ferðaskrif-
stofudrottningar sé kannski allur er
ekki þar með sagt að hún verði með
tómar hendur. Hún er á góöri leið
með að verða viðurkennt nafn sem
hönnuður. Hins vegar er það fjöl-
skyldulífið sem stendur henni næst
og hana langar mikiö að eignast ann-
að barn.
Janni Spies Kjær hefur átt erfiða daga undanfarið og sagt er að hún þjáist
af anorexiu ofan á allt annað.
Michala, dóttir Janni, er fjögurra ára gömul,
Um Janni Spies var sagt að hún væri ný Öskubuska þegar hún, bláfátæk
skrifstofustúlka, giftist auðkýfingnum Simoni Spies. Hún hafði verið ekkja í
nokkur ár þegar hún giftist öðrum vei efnuðum, Christian Kjær.
Ólyginn
. . . að barnastjarnan Macaulay
Culkin fengi ekki að sjá nýjustu
mynd sína þar sem hún er bönn-
uð börnum. Þar leikur fyrrum
Home Alone-stjarnan barn djöf-
ulsins og er víst ekki alit fallegt
I þeirri mynd. Macaulay er tólf
ára gamal! og verður víst að
sælta sig við aldursmörk að
myndinni eins og aðir.
. . . að nú væru þrjátíu ár siðan
Bleiki pardusinn varð til og verð-
ur haldið upp á það afmæli með
nýrri mynd. Julie Andrews og
eiginmaður hennar, Blake Ed-
wards, hafa gert sfna áttundu
mynd um þann bleika.
. . . að leikarinn Billy Ray Cyrus
hefði orðið heldur hissa er hann
leit vaxmynd sína augum í Hoily-
wood. „Þið hafið heldur betur
bætt við mig bringuhárum," hafði
hann á orði. Tekið var fram að
Billy var aldeilis ekkert ósáttur
víð vaxmyndína þráttfyrir að hún
væri loðnari.
. . . að söngvarinn stutti,
Prince, hefði lagt niður þetta
listamannsnafn. Hinn 34 ára
gamli söngvari, sem heitir í raun
og veru Roger Nelson, ætlar að
kalla sig Victor og vísar þar til
orðsins victory eða sigur. Söngv-
arinn, sem er aðeins 154 cm á
hæð, hefurgefið útfjórtán hljóm-
plötur. Nýlega gerði hann stóran
samning við plötufyritæki sitt um
fimm plötur i viðbót.
. . . að stórleikarinn Richard
Gere hefði eyðilagt póióhátið
sem Cartier hélt fyrlr stuttu á
Windsor-leikvanginum fyrir fina
fólkið. Um fjögur hundruð boðs-
gestir voru samankomnir á
Windsor og meðal þeirra var
drottningin. Þegar átti að snæða
hádegisverð í risatjaldi skipaði
Gere að Ijósmyndarar yrðu allir
sem einn reknir út. Þar með
misstu Cartier-menn heitmikla
auglýsingu sem þeir höfðu ætiað
sér að fá út úr hátiðinni.