Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1993, Qupperneq 48
56
LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 1993
Leikhús
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Sími 11200
Smíðaverkstæðið
FERÐALOK
efftir Steinunni Jóhannesdóttur
Frumsýning i kvöld kl. 20.30. Uppselt.
önnur sýning á morgun kl. 20.30.
Þridja sýning sunnud. 26/9 ki. 16.00.
Stóra sviðið
KJAFTAGANGUR
eftir Neil Simon
laugard. 25. sept. kl. 20.00,
sunnud. 26. sept. kl. 20.00.
Sala aðgangskorta stendur yfir.
Verð kr. 6.560 sætið.
Elli- og örorkulífeyrisþegar,
kr. 5.200 sætið.
Frumsýningarkort,
kr. 13.100 sætið.
ATH. Kynningarbæklingur Þjóð-
leikhússins liggur frammi m.a. á
bensínstöðvum ESSO og OLÍS.
Miðasala Þjóðleikhússins verður opin
alla daga frá kl. 13-20 meðan á korta-
sölu stendur. Tekið á móti pöntunum i
sima 11200 frá kl. 10 virka daga.
GREIÐSLUKORTAÞJÓNUSTA
Græna línan 996160-
Leikhúslínan 991015
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
Sala aðgangskorta stendur yfir
til 20. sept.
Stóra sviö kl. 20.00.
SPANSKFLUGAN
eftir Arnold og Bach
2. sýn. laugard. 18/9. Uppselt.
Grá kortgilda.
3. sýn. sun. 19/9. Uppselt.
Rauð kort gilda.
4. sýn. fim. 23/9. Örfá sæti laus.
Blá kortgilda.
5. sýn. fös. 24/9. Fáein sæti laus.
Gul kortgilda.
6. sýn. laug. 25/9. Fáein sætl laus.
Græn kort gilda.
Sala hófst laugard. 11. sept.
Miðasalan er opin frá ki. 13-20 alla
daga á meðan á kortasölu stendur.
Tekið á móti mlðapöntunum i sima
680680 alla virka daga kl. 10-12.
Bréfasimi 680383.
Greiðslukortaþjónusta.
Munið gjafakortin okkar, tilvalin tæki-
færisgjöf.
Leikfélag Reykjavikur-
Borgarleikhús.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirtöldum
eignum verður háð á þeim sjálf-
um miðvikudaginn 22. sept 1993,
sbr. nánari tímasetningar.
Króktún 9, Hvolsvelli. Kl. 15.30. Þingl.
eigandi: Jón Magnússon. Gerðarbeið-
andi er Kaupþing hf.
Fasteignin Geil, Fljótshlíðarhreppi.
Kl. 16.30. Þingl. eigandi: Árni Bald-
ursson. Gerðarbeiðendur eru íslands-
banki hf., Garðabæ, og Landsbanki
íslands.
Hlíðarvegur 14, Hvolsvelh. Kl. 17.00.
Þingl. eigandi: Vilborg Arinbjamar.
Gerðarbeiðandi er Þrotabú Ass hf.,
Hvolsvelli.
Hólavangur 11 N, Hellu. Kl. 17.30.
Þingl. eigandi: Rangárvallahreppur.
Talinn eigandi Sigurður B. Guð-
mundsson. Gerðarbeiðendur em
Rangárvallahreppur, Sjóvá-AImennar
og Landsbanki Islands, veðdeild.
Lóð nr. 18 í landi Rangárvallahrepps
við Hróarslæk. Kl. 18.00. Þingl. eig-
andi: Kristrún Ólaísdóttir. Gerðar-
beiðandi er Rangárvallahreppur.
Sýslumaðurínn i Rangárvallasýslu
FRJÁLSI
LEIKHOPURINN
Tjarnarbíó
Tjarnargata 12
STANDANDIPÍNA
„Stand-up tragedy“
eftir Bill Cain
Frumsýning 19. sept. Uppselt
Næstu sýnlngar:
22. sept. kl. 20.00. Úrfá sæti laus.
25. sept. kl. 20.00. örlá sæti laus.
26. sept.kl. 15.00.
29. sept. kl. 20.00.
Miðasala opin alla daga
frakl. 17-19.
Simi610280
cftirÁma Ibsen í íslcnsku Óperunni.
Leikstjóri: Andrés Sigurvinsson
Fö. 24. sept. kl. 20.30. Sýningum
Lau. 25. sept. kl. 20.30. fækkar.
Miðnsalan cropin daglcga írá kl. 17 - I1) og
svningardaga 17 - 20:30. Miöapantanir í símum
11475 og 650190. m
■ é LEIKHÓPURINN
Andlát
Baldvin Sigurðsson, Hvassaleiti 58,
lést á Landakotsspítala að kvöldi 15.
september.
Elín Egilsdóttir, Hæðargarði 35, lést
að morgni 16. september.
Málfriður Kristjánsdóttir frá Stein-
um, Aflagranda 40, Reykjavík, lést
miðvikudaginn 15. september.
Valberg Hannesson, fyrrverandi
skólastjóri 1 Fljótum, lést aðfaranótt
17. september.
Hans Normann Hansen, Tjamar-
lundi 13g, Akureyri, lést á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri að kvöldi
16. september.
Tilkyimingar
Félag eldri borgara
í Reykjavík
Opið hús í Risinu kl. 13-17 í dag. Tafl og
fijáls spilamenska, kaffi og spjall.
Samtök áhugafólks um
alnæmisvandann
halda skemmtun í Borgarleikhúsinu
þriðjudaginn 21. september. Skemmtun
þessi er haldin í minningu um þá sem
látist hafa úr alnæmi og rennur allur
ágóði tíl Alnæmissamtakanna. Allir þeir
sem koma fram gefa vinnu sína og verður
lögð rík áhersla á að gera skemmtun
þessa sem líflegasta þrátt fyrir alvöru
málefnisins.
Forsiðukeppni
Nú er að líða að lokum skilafrests for-
síðukeppni Hárs og fegurðar. Forsíðu-
keppnin hefur verið haldin árléga síðan
1986 og var eingöngu tileinkuð hár-
greiðslufólki. Skemmtileg þróun hefur
orðið í forsíðukeppninni og er hún nú
opin hárgreiðslufólki, snyrtifræðingum,
fórðunarfræðingum, tískuhönnuðum,
fatagerðarfólki og íjósmyndurum. Þeir
sem ætla að taka þátt í keppninni vinsam-
lega skili inn myndum sem fyrst. Annars
eru allar aðrar upplýsingar veittar hjá
Tímaritinu Hár og fegurð í síma 628141.
Friðarstund í Fríkirkjunni
Sunnudaginn 19. september kl. 14 verður
friðarstund í Fríkirkjunni í Reykjavík.
Undirbúningur friðarstundarinnar er
unninn af presti Fríkirkjusafnaðarins,
Cecil Haraldssyni, í samvinnu við nokk-
ur áhugamannafélög um mannrækt og
frið. Þau félög eru Lífssýn, Nýaldarsam-
tökin, Ljósheimar/lsl. heilunarfélagið,
Snæfellsás og Bahái samfélagið. Mark-
mið þessarar samverustundar er að sam-
eina fólk með mismunandi lífsviðhorf og
trúarskoðanir í bæn fyrir friði á jörðu.
Þeir sem eiga ekki heimangengt eða eru
fjarri Reykjavík geta fylgst með beinni
útsendingu Bylgjunnar og verið þannig
þátttakendur.
Málþing í Viðey
I tilefni af fimm ára afmæli endurreisnar
Viðeyjarstofu efnir Reykjavíkurborg til
opins málþings í Viðey nk. sunnudag. Þar
verða ilutt erindi um endurreisn Stof-
unnar, um höfund hennar, N. Eigtved,
og um dönsk áhrif á íslenska byggingar-
list. Farið verður með Viðeyjarfeiju úr
Sundahöfn kl. 10 árdegis. Fyrirspumir
og umræður verða á eftir hverju erindi
en gert er ráö fyrir að þinginu ljúki um
kl. 16.30. Þátttaka er öllum heimil.
Gömul óperumynd í
bíósal MIR
Kvikmyndin „Evgení Onegin", byggð á
samnefndri óperu eftir Pjotr Tsja-
íkovskíj, verður sýnd í bíósal MÍR, Vatns-
stíg 10, nk. sunnudag 19. september kl.
16. Aðgangur að kvikmyndasýningum
MÍR er ókeypis og öllum heimill meðan
i húsrúm leyfir.
Er heilsdagsskóli í
sjónmáli? Verður farsæld
barnsins
höfð í fyrirrúmi?
Um þessar spumingar og fl. verður fjall-
að og leitast við að svara á málþingi
Bernskunnar - íslandsdeildar OMEP,
laugardaginn 18. september kl. 13-17 í
Odda, stofu 101. Foreldrar em sérstak-
lega hvattir til aö koma og taka þátt í
umræðum um þetta mikilvæga mál sem
varðar farsæld allra bama grunnskólans
í bráð og lengd.
Furðufiskadagar á
Hótel Sögu
í Skrúði standa yfir furöufiskadagar.
Boðið er upp á úrval fiskrétta og er sér-
stök áhersla lögð á ýmsar nýstárlegar
tegundir eins og hnísukjöt, búra, lang-
hala, blálöngu, smokkfisk, geimyt, reykt-
an rauðmaga, grálúðu og keilu. Furðu-
fiskadagarnir standa til 20. september nk.
Verð á hádegishlaðborði er kr. 1290 en
kvöldverðarhlaðborði 1970 kr. Tekiö er á
móti borðpöntunum í síma 29900.
Kynning á tölvubúnaði
fyrir fatlaða
Starfsþjálfun fatlaðra og Tölvumiðstöð
fatlaðra verða með kynningu á starfsemi
sinni og tölvubúnaði fyrir fatlaða í Geys-
ishúsinu laugardaginn 18. september kl.
16. Kynningin er liður í dagskrá sýningar
SKÝRR um sögu tölvunnar sem haldin
er í tilefni 25 ára afmælis félagsins. Með-
al tölvubúnaðar sem sýndur verður er
íslenskt tölutal (Talgervill) og blindra-
skjár.
there
isno
cpsstion.
OSWO''
“b"wi
youi %
Bijan-happdrættið
Dregiö hefur verið í Bijan-happ-
drættinu sem snyrtivöruverslunin
Clara stóö að í tilefni af 6 ára afmæli
Kringlunnar. Vinningshafl er Helga
B. Bragadóttir sem hér tekur á móti
Bijan-vörum að verðmæti 36.000
krónur úr hendi Guðrúnar Ingólfs-
dóttur, eiganda Clöru.
Hjónaband
Þann 14. ágúst vom gefm saman í hjóna-
band í Hafnarkirkju af sr. Baldri Kristj-
ánssyni Guðrún Erna Þórhallsdóttir
og Ingólfur Steingrímsson. Heimili
þeirra er að Hraunbæ 190, Reykjavik.
Ljósm. Jóhannes Long.
Þann 14. ágúst vom gefin saman í hjóna-
band í Viðey af sr. Þóri Stephensen Birg-
itta Baldursdóttir og Óskar Guð-
mundsson. Þau em til heimilis að
Hvammsbraut 6, Hafnarfirði.
Ljósm. Jóh. Long.
Nýtt markaðstorg í
JL-húsinu
Laugardaginn 11. september sl. var opnað
nýtt markaðstorg á annarri hæð JL-
hússins að Hringbraut 121. Markaðstorg-
ið hefur hlotið nafnið JL-torg. Undan-
famar vikur hefur húsnæðið teki stakka-
skiptum eftir lagfæringar og breytingar.
Sölubásar em leigðir út á lágu verði.
Mikiö verður um uppákomur. NBA
skiptimyndabás, uppboð kl. 15 alla daga
sem opiö er. Kynningarsalur þar sem
fyrirtækjum gefst kostur á að kynna vöru
sína eða þjónustu. Kaffihúsið verður lán-
að út til líknar- og félagasamtaka eina
helgi í senn og verður því fjölbreytni í
kafiimeðlæti. JL-torg er opið alla laugar-
daga og sunnudaga kl. 11-17.
Þingvallaferð HÍN
18. september
í tilefni stórgjafar dr. Péturs M. Jónas-
sonar prófessors til Hins íslenska nátt-
úrufræðifélags, þegar hann gaf þvl 300
eintök af Þingvallabókinm (Ecology of
oligotropic subarctic Thingvallavatn),
efnir HIN til eins dags skoðunarferðar
umhveríis Þingvallavatn þann 18. sept-
ember nk., þar sem greint verður frá nið-
urstöðum áralangra rannsókna á lífríkl,
vistfræði og jarðfræði Þingvallavatns og
nágrennis. Farið verður kl. 9 frá Umferð-
amiðstöðinni og er endurkoma þangað
áætluð um kl. 18. Fararstjórar verða
Guttormur Sigbjamason, framkvæmda-
stjóri HÍN, og Freysteinn Sigurösson,
formaður HÍN. Farið verður um Þing-
völl, Vatnsvik, Útfall Sogsins, írafoss og
Nesjavelli. Gjald fyrir ferðina er kr. 1.800
en hálft gjald (900 kr.) fyrir böm. Skrán-
ing verður við brottför. Öllum er heimil
þátttaka. Minnt er á að hafa með sér
nesti, gönguföt og viðeigandi hlíföarföt.
Fyrirlestrar
Nýfengið frelsi og endurreisn
þjóðarvitundar
Uldis Bérzins ijóðskáld og stjómmála-
maður frá Lettlandi mun halda fyrirlest-
ur í samkomusal Mlðbæjarskóla, þriðju-
dagiim 21. september. Hann mun ræða
um það hve mikilvægan þátt ljóð og
skáldskapur ásamt þjóösögum og þjóðtrú
eiga í varðveislu og eflingu þjóðarvitund-
ar fólks þegar eriend stjómvöld leitast
við að afmá þjóðareinkenni þess og inn-
leiða menningu, mál og viðhorf herra-
þjóðar. Einnig mun hann fjalla um það,
hve mikilvægu hlutverki þessi menning-
arverðmæti gegna í eflingu þjóðarvitund-
ar og endurreisn sjálfstæðis. Fyrirlestur-
inn hefst kl. 17 og er öllum opinn. Hann
verður fluttur á ensku.
Þann 21. ágúst vom gefln saman í Breiö-
holtskirkju af sr. Lámsi Halldórssyni
Anna Sigurgeirsdóttir og Jóhann
Bergmann Loftsson. Heimili þeirra er
að Blöndubakka 20, Reykjavík.
Ljósm. Jóhannes Long.
Þann 24. júli vora gefin saman í hjóna-.
band í Fríkirkjunni af sr. CecO Haralds-
syni Tabitha Tyler Snyder og Jón
Helgi Bragason. Þau em til heimilis að
Álfaheiöi 28, Kópavogi.
Ljósm. Ljósmst. Þóris.
Þann 14. ágúst vora gefin saman í hjóna-
band í Veginum, Kópavogi, af sr. Stefáni
Ágústssyni Laufey Birgisdóttir og
Björgvin Þór Oskarsson. Heimili
þeirra er í Svíþjóð.
Ljósm. Ljósmst. Mynd.
Þann 14. ágúst vom gefin saman í hjóna-
band í HaUgrímskirkju af sr. Karli Sigur-
bjömssyni Sólrún Geirsdóttir og Jón-
as Guðmundsson. Þau em tU heimilis
að Miðstræti 1, Bolungarvík.
Ljósm. Ljósmst. Þóris.
LÁTTU EKKI 0F MIKINN HRAÐA A
VALDA ÞÉR SKAÐA!
iJUjffEPOAR