Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1993, Qupperneq 50
LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 1993
58
Afmæli__________________________
Til hamingju með afmælið 19. september
90 ára
Anna Oddný Signrðardóttlr,
SólVangsvegi 1, Ha/narfirði.
85 ára
Benedlkt Jónsson,
Skúlagötu 3, Stykkishólmi.
80 ára
Björn Þórðarson,
Hafnargötu 6, Sigluflröl.
Slgurður Finnbogason,
Sólvallagötu 10, Keflavík.
75 ára
Katrin Guðmundsdóttir,
Trööum, Hraunhreppi.
70 ára
Amdis G. Jakobsdóttir,
Merkjateigi 5, Mosfeflsbæ.
Ágúst Sœmundsson,
Þrúövangi 9, Hellu.
ÁgUst veröur í oriofshúsi vegageröar-
manna í Reykjaskógi í Biskupstungum
á afmæUsdaginn.
60 ára
Greta Jónasdóttir,
BrUsastööum, Þingvallahreppí.
Jón Gunnarsson,
TUngötu 39, Reykjavlk.
Þór Snorrason,
Hverafold 32, Reykjavik.
Björgvin Th. Hilmarsson,
Smáratúni 42, Keflavík.
Hallgrimur Aðalsteinsson,
Efri-Tungu, Rauöasandshreppi.
Hreínn EUasson,
Jörundarholti 108, Akranesi.
Sigurður Ingólfsson,
Rauöaiæk 42, Reykjavík.
50 ára
Sigriður E. Helgadóttir,
Hrismóum 1, Garðabæ.
Garðar Bergendal,
Langagerðí 124, Reykjavík.
Rafn Olafsson,
Hryggjarseli 10, Reykjavlk.
Viglundur Þorsteinsson,
Lindarflöt 39, Garöabæ.
Guðrún Guðmundsdóttir,
Hafnarbraut 9, Höfh í Hornafirði.
Vaiur Kristinsson,
Setbergi 35a, Þorlákshöfn.
Klemens Svenning Antoniusscn,
Vallarflöt 2, Stykkishóimi.
Hann er aö heiman.
Katrín Eyjólfsdóttir,
Hraunbæ 80, Reykjavik.
Kristín Jónsdóttir,
Holtastöðum, Englhliöarhreppi.
Gísli R. Sigurðsson,
Asparfefli 4, Reykjavík.
40 ára
Hrönn Þorsteinsdóttir,
Þóristúní 19, Selfossi.
Ólina Sigríður Einarsdóttir,
Fögrukinn 24, Hafnarflröi.
Margrét Helgadóttir,
Dalsbyggð 13, Garðabæ.
Margrét Hálfdánardóttir,
Hamrabergi 48, Reykjavik.
Aöulbjörg Sólrún Einarsdóttir,
Jörundarholti 41, Akranesi.
Jóhanna Óskarsdóttir,
Flókagötu 1, Hafnarfiröi.
Hafdis Eggertsdóttir,
Áshamri 3c, Vestmannaeyjum.
Aðalgeir Pétursson,
Einholti 8a, Akureyri.
Sigurrós Svavarsdóttir,
Ljósvaflagötu 32, Reykjavík.
VIÐ ERUM FIMM ÁRA.
í tilefni af afmælinu eru
þessi og ýmis önnur frá-
bær tilboð í gangi í verslun _
okkar í Kringiunni.
3.990
Verið velkomin í Euro-skóbúðina ykkar.
Ath., nýtt
kortatímabil.
RR skór JL
Sendum í
póstkröfu.
4.490
KAMPANJE
PRIS
3.990
Kringlunni 8-12, sími 686062
Laugavegi 60, sími 629092
Skemmuvegi 32-L, sími 75777
DV
Kristí n Lárusdóttir
Kristín Lárusdóttir húsmóðir,
Fífumóa 3E, Ytri-Njarðvík, verður
fimmtug á morgun.
Starfsferill
Kristín gekk í Melaskólann og síð-
ar í Gagnfræðaskóla Vesturbæjar.
Hún fór ung að árum að vinna hjá
Jóni Símonarsyni bakara og hóf síð-
an störf í Blómahöllinni í Kópavogi
árið 1969 og vann þar um árabil.
Síðar stofnaði hún eigið fyrirtæki,
Candís, Eddufelli, sem hún rak
ásamt eiginmanni sínum í tvö ár.
Kristín starfaði nokkum tíma hjá
Blómastofu Friðfinns á Suðurlands-
braut. Árið 1987 fluttist hún til
Njarðvíkur og keypti verslunina
Róm ásamt Gísla Kristinssyni skip-
stjóra, núverandi sambýlismanni
sínum. Kristín hefur unnið í Kven-
félagi Hvítabandsins og sótt nám-
skeið Dale Carnegie.
Fjölskylda
Fyrri maður Kristínar: Vilhjálm-
ur Þ. Vilhjálmsson, þau slitu sam-
vistum 1969. HÚn gíftist 22.12.1971
Hafsteini Pétri Alfreðssyni, f.
29.1.1941, bifreiðarstjóra og bónda.
Foreldrar hans: Alfreð Bjömsson
bóndi og Hulda Pétursdóttir rithöf-
undur. Kristín og Hafsteinn slitu
samvistum 1986. Núverandi sam-
býlismaður Kristínar er Gísli Krist-
insson.
Börn Kristínar: Lára Vilhjálms-
dóttir, f. 29.1.1961, verslunareigandi,
maður hennar Þórir P. Agnarsson,
f. 4.6.1954, verslunarmaöur; Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson, f. 24.7.1963,
rennismiður, kona hans Elsa Krist-
ín Helgadóttir, f. 20.3.1964, ritari,
barn þeirra Kristófer, f. 9.9.1991,
áður átti Vilhjálmur soninn Vil-
hjálm Þorra, f. 18.2.1986; Hjördís
Vilhjálmsdóttir, f. 17.10.1965, synir
hennar Viktor, f. 7.8.1986, Fannar,
f. 7.8.1986, faðir þeirra Eyjólfur Guð-
mundsson, þau slitu samvistiun;
Ragnheiður E. Hafsteinsdóttir, f.
22.12.1970, húsmóöir, makihennar
Guðlaugur Ágústsson, f. 11.2.1965;
Hafsteinn Þór Hafsteinsson, f.
25.8.1974, starfsmaður SS, Hvols-
velli; Arnar Þór Hafsteinsson, f.
2.3.1982.
Hálfsystir Kristínar: Ragnheiður
Kristjánsdóttir húsmóðir, maki
hennar Bóas Kristjánsson blóma-
skreytingamaður, böm þeirra:
Anna Birgitta, Kristján Jón, Bóas
Ragnar.
Foreldrar Kristinar: Láras Magn-
ússon, sjómaður frá Bolungarvík,
og Hjördís Pálsdóttir fiskvinnslu-
Kristín Lárusdóttir.
kona, látin.
Ætt
Hjördís Pálsdóttir var dóttir Páls
J.R. Ásmundssonar járnsmiðs og
Marenar Jónsdóttur húsmóður frá
Bergi á Akranesi. Þau áttu fjögur
böm.
Lárus Magnússon var sonur
Magnúsar Einarssonar sjómanns
frá Bolungarvík og Kristínar Lárus
dóttur húsmóður frá Hnífsdal, þau
áttutíubörn.
Kristín verður að heiman.
Þórunn Maggý Guðmundsdóttir
Þórunn Maggý Guðmundsdóttir,
miðill hjá Sálarrannsóknafélagi ís-
lands, Hverfisgötu 98, Reykjavík,
veröur sextug á morgun.
Starfsferill
Þómnn Maggý er fædd á ísafirði
en ólst upp hjá fósturforeldrum sín-
um í Keflavík. Hún lauk prófi frá
barna- og unglingaskólanum í
Keflavík og síðar fjögurra ára námi
við Spiritual Church í Bandaríkjun-
um.
Þómnn Maggý vann almenn fisk-
vinnslustörf á unglingsárum sínum
og síðar við afgreiðslustörf, hjá
unglingaathvarfi Breiðholtsskóla, í
Kvennathvarfinu og starfar nú hjá
Sálarrannsóknafélagi íslands.
Fjölskylda
Böm Þómnnar Maggýjar: Guð-
mundur Ragnar, f. 9.10.1950, maki
Ilhalm, f. 21.5.1960, þau eiga fimm
börn, Þómnni Maggý, f. 31.5.1979,
Ingunni, f. 13.10.1983, Raginu, f. 21.8.
1983, Rangit, f. 14.5.1982, Og
Amöndu, f. 1.9.1991; Kristján
Sveinn, f. 5.3.1953, maki Margrét
Ósk, f. 6.10.1958, þau eiga tvö böm,
Kristján Svein, f. 29.6.1978, ogÞór-
unni Maggý, f. 22.4.1981; Helgi Jó-
hann, f. 19.10.1954, maki Kristjana,
f. 21.9.1955, þau eiga þrjú böm,
Aðalstein Gunnar, f. 29.7.1978, Sig-
ríði Lindu, f. 9.2.1987, og Sunnu
Rós, f. 27.1.1992; Ingibjörg Dagmar,
f. 30.1.1957, hún á tvær dætur, Aðal-
heiði Dögg, f. 5.4.1986, og Örnu
Björgu, f. 1.1.1991; Alberta Marse-
lína, f. 4.5.1960, látin; Magnús Þór,
f. 11.5.1963; Eggert, f. 22.5.1964,
maki Sædís, f. 10.10.1967, þau eiga
tvö böm, Hlöðver, f. 17.9.1989, og
Guðrúnu Björgu, f. 1.8.1991.
Foreldrar Þórunnar Maggýjar
vom Ragnar Benediktsson og Guð-
rún Hjaltadóttir. Fósturforeldrar
Þórunnar Maggýjar: Guðmundur
Kr. Guðmundsson og Ingibjörg
Þórunn Maggý Guðmundsdóttir.
Benediktsdóttir.
Þórunn Maggý tekur á móti gest-
um í húsi I.O.G.T., á horni Eiríks-
götu og Barónsstígs, kl. 15-19 á af-
mælisdaginn.
Vilborg Eiríksdóttir
Vilborg Eiríksdóttir húsmóðir,
Skipholti 43, Reykjavík, er sjötug í
dag.
Starfsferill
Vilborg er fædd í Fíílholti, vestur-
hjáleigu í Vestur-Landeyjum og ólst
þar upp og gekk í farskóla sem þá
var.
Vilborg vann í frystihúsinu á Eyr-
arbakka þegar hún bjó þar. Hún
vann einnig sem starfsstúlka á
Sjúkrahúsi Suðurlands, á Reykja-
lundi og í Hátúni í Reykjavík. Vil-
borg bjó í nokkur ár á Hlemmiskeiði
íSkeiðahreppi.
Hún var félagi í Verkalýösfélagi
Bárunni á Eyrarbakka og í Kvenfé-
lagiEyrarbakka.
Fjölskylda
Vilborg giftist fyrri manni sínum
18.9.1942, Sigurjóni Kristni Jóhann-
essyni, f. 22.7.1908, d. 1967, bifvéla-
virkja. Foreldrar hans vom Jó-
hannes Jónsson og Sigríður Sigurð-
ardóttir. Vilborg giftist seinni
manni sínum 1.5.1972, Magnúsi Pét-
urssyni, f. 4.8.1918, d. 1984, forstjóra
Litla-Hrauns. Foreldrar hans voru
Pétur Magnússon og Ingibjörg Guð-
mundsdóttir.
Böm Vilborgar og Siguijóns: Ei-
ríkur Þór, f. 1942, mjólkurbússtjóri
á Selfossi, kona hans er Hrefna
Kristinsdóttir, þau eiga tvö böm;
Sigríður Ema, f. 1944, læknafulltrúi
á Selfossi, hennar maður er Karl
Birgisson, þau eiga fjögur böm; Sig-
urjón Vilberg, f. 1946, d. 1949; Kol-
brún Jenný, f. 1947, verslunarmaður
í Þorlákshöfn, hennar maður er Sig-
urður Einir Kristinsson, Kolbrún
Jenný á þijú börn; Sigurhanna Vil-
bergs, f. 1950, fóstra í Reykjavík,
hennar maður er Sigurður Eiríks-
son; Einar Sigurberg, f. 1952, leigu-
bílstjóri í Reykjavík, kona hans er
Sigríður Jónsdóttir, þau eiga tvo
syni, Einar Sigurberg átti son fyrir;
Oh Sverrir, f. 1953, lyfsali í Ólafsvík,
hans kona er Sigríður Þórarinsdótt-
ir, þau eiga tvö böm; Sigmundur
Guðmar, f. 1958, kjötiðnaðarmaður
í Reykjavík, kona hans er Ragnheiö-
ur Sverrisdóttir, þau eiga tvo syni,
Sigmundur Guömar átti dóttur fyr-
ir. Bamabarnabömin em fimm.
Bróðir Vilborgar er Sigurður Ei-
ríksson, f. 1928, hans kona er Guð-
finna Sveinsdóttir, þau eiga fimm
böm. Hálfbróðir, samfeðra: Ársæll
Eiríksson, f. 1915, hans kona var
Ingunn Böðvarsdóttir, látin. Hálf-
bróðir, sammæðra: Magnús Hjálm-
arsson, f. 1918, hans kona var Þór-
Vilborg Eiriksdóttir.
hildur Þorgeirsdóttir, látin, þau
eignuðust þijá syni.
Foreldrar Vilborgar vom Eiríkur
Bjömsson, f. 8.9.1887, d. 1943, bóndi,
og Þórunn Guðmundsdóttir, f. 28.4.
1888, d. 1972, húsfreyja, þau bjuggu
í Fíflholti, vesturhjáleigu í Vestur-
Landeyjum.
Vilborg tekur á móti vinum og
vandamönnum á afmælisdaginn frá
kl. 15 í sal Meistarafélags húsa-
smiða, Skipholti 70 í Reykjavík.