Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1993, Síða 56
F R ÉTT AS KOTIÐ
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- 7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
3.000 krónur.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskríft - Dreifing: Sími 63 2700
LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 1993.
Játarfjölda
innbrota hjá
Varnarliðinu
Keflvíkingur á þrítugsaldri hefur
viöurkennt viö yíirheyrslur lögregl-
unnar á Keflavíkurflugvelli innbrot
í fjölda íbúðarhúsa og fyrirtækja á
vamarsvæðinu á Keflavíkurflug-
velli.
Maðurinn viðurkenndi að hafa
brotist inn í íbúðir á varnarsvæðinu
þar sem hann stal meðal annars
myndum, myndbandstækjum og
fleim. Hann var handtekinn á
sunnudag þar sem hann var grunað-
ur um að vera undir áhrifum vímu-
efna á stolnu reiðhjóli en nokkurt
magn lyfja fannst á honum við hand-
tökuna. Ekki tókst að sanna á hann
innbrotin þá og var honum sleppt að
loknum yfirheyrslum.
Aðfaranótt þriðjudags var maður-
inn svo handtekinn aftur vegna
gruns um innbrot í tvær vöru-
skemmur í eigu Varnarliðsins þar
sem mörgum kössum af áfengi og
töluveröu af fatnaði var stolið. Ekki
tókst að sanna innbrotin og fékk
hann að fara út á ný.
í gær sást til hans þar sem hann
var að bera þýfið inn í hús og var
hann þá handtekinn í þriðja skiptið
á skömmum tíma.
Við yfirheyrslur í gær viðurkenndi
hann hins vegar öfl fyrrnefnd inn-
brot á sig, auk þess sem hann viður-
kenndi að hafa stolið mörgum fjalla-
reiðhjólum á vamarsvæðinu. Sagði
hann að öllu hefði verið komið í verð
og þannig hefði hann fjármagnað
fíkniefnaneyslu sína.
Að ósk mannsins og aðstandenda
hans leitar lögreglan nú úrræða til
að koma honum í fíkniefnameðferð.
Maðurinn hefur oft komið áður við
sögulögreglu. -pp
Eftirlitsmaður
' fer í Smuguna
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs-
ráðherra hefur ákveðið að fá for-
stjóra Landhelgisgæslunnar til að
senda eftirfltsmann til Noregs til að
fylgjast með veiðum íslensku togar-
anna í Smugunni.
íslenski varðskipsmaðurinn held-
ur til Noregs í dag en þar mun hann
fara um borð í norskt varðskip á leið
í Smuguna. Hann á að fara með
Norðmönnunum um borö í íslensku
skipin til að fylgjast með aflasam-
setningu skipanna fyrir íslensk
stjórnvöld.
Jan Henry T. Olsen, sjávarútvegs-
■*0hr ráöherra Noregs, kemur til íslands í
opinbera heimsókn í boði sjávarút-
vegsráðherraídag. -GHS
Pétur Blöndal, einn umsækjenda um Tryggingastofnun:
Verið að hafa
menn að f íf lum
„Mér frnnst mjög miöur að inn í stöðuna. Þeirri ákvörðun hef- Pétur segist áðui'hafa brennt sig
stjómmálamenn skuli halda áfi-am ur nú verið mótmælt af einum á því aö sækja um starf sern búið
þeirri stefnu að ráða óhæfa menn umsækjendanna og hefur hann hafi verið að ráðstafa fyrirfram.
til að reka stærstu fyrirtæki lands- leitað álits umboðsmanns Alþingis Þannig hafl hann sótt um stöðu
ins. Á sama tima og rnenn eru aö á málinu. forstjóra Tryggíngastofnunar þeg-
tala um niðurskurð á félagslegri Að sögn Péturs sótti harm um ar Eggert G. Þorsteinsson var ráð-
þjónustuograinnkakostnaðinnvið starfið þrátt fyrir að hafa heyrt inn á sínum tíma. Aðspurður segist
lrana þá skiptir sköpum að reka oröróm þess eftiis að staðan væri hann ekki efast um að í hópi um-
þau fyrirtæki vel sem veita þjón- ætluð Karli Steinari. í barnaskap sækjendanúhafiveriömargirmun
ustuna. Sein borgara, skattgreið- hafi hann ekki trúað að búið væri hæfari menn en Karl Steinar til að
anda og umsækjanda flnnst mér aðráðstafahenni.Sjálfurhafihann takast á við þau fjölmörgu verkefni
mjög leiðinlegt að þetta skuli hafa ekki litið á stöðuna sem bitling þvi sem þar bíða.
farið svona. Burtséð frá mér voru i raun væri um mjög kreflandi starf „Almemit séð tel ég að það sé
margir umsækjendur hæfari en sá að ræða. þjóðhagslega mjög liættulegt ef
sem fékk hana,“ segir Pétur Blön- „Náttúrlega er verið að hafa menn eru að ráða í stöður stærstu
dal stæröfræðingur. menn að iíflum með því að auglýsa fyrirtækía ríkisins fólk sem ekki
Pétur var einn þeirra þrettán sem stöður sem búið er að ráðstafa fyr- er hæft til þess. í ratm og veru er
sóttuumstarfforstjóraTrygginga- irfram. Það er ekki vist að í fram- ekki veriö að gera þeim manni
stofnunar. í gær tilkynnti Guð- tíðinni nenni menn að sækja um greiða sem fær stöðuna né því fyr-
mundur Árni Stefánsson trygg- stöður hjá rikisfyrirtækjum þegar irtæki sem nýtur starfskrafta
ingaráöherra aö Karl Steinar ítrekað kemur í ljós að það er verið hans.“
Guðnason alþingismaður yrði ráð- að gera þá að fíflum,“ segir Pétur. -kaa
Ævintýralegar uppákomur gera því miður ekki boð á undan sér og bíldekk getur sprungið hvar sem er og hve-
nær sem er - jafnvel á leiðinni í kirkjuna. Ungar brúðir deyja náttúrlega ekki ráðalausar í slíkum tilvikum og láta
hvitu klæðin ekki hindra sig. Þær draga fram tjakkinn og eru snöggar að skipta því tíminn er naumur og þeim
bráðliggur á. Hannes Vilhjálmsson, Tunguheiði 8 i Kópavogi, sendi inn þessa ævintýralegu mynd í keppnina um
sumarmynd DV. Hann kallar myndina „Fall er fararheill". Sjá fleiri myndir úr sumarmyndakeppninni á bls. 39.
Ökumaður á gjörgæslu:
Sveigði frá
barni og lenti
á húsvegg
Tvítugur Vestmannaeyingur liggur
á gjörgæsludeild Borgarspítalans eft-
ir að hafa afstýrt því að aka á 7 ára
stúlku með því að beygja út í húsa-
garð og aka á húsvegg.
„Hann kom akandi niður brekku
og virðist hafa séð stúlkuna nokkuð
seint og byrjaði að bremsa og virðist
hafa sveigt frá eða misst stjórn á bíln-
um með þeim afleiðingum að hann
valt út í garð. Ég var of langt í burtu
til að ná í telpuna en reyndi að veifa
til hennar. Hún fraus og kom svo á
eftir mér þegar ég hringdi á sjúkra-
bíl. Ég vildi ekki láta hana horfa upp
á þetta,“ sagði Bryndís Guðjónsdóttir
sem varð vitni að slysinu.
Slysið varð við Ólafsbraut í Vest-
mannaeyjum á fimmtudagsmorgun
um klukkan tíu og þurfti að nota
klippur til að ná manninum úr bíl-
flakinu. Hann var fluttur í sjúkrahús
í Vestmannaeyjum og reyndust
meiðsl hans það alvarleg að hann var
fluttur með sjúkraflugi til Reykjavík-
ur fyrir hádegi sama dag.
Síðdegis fór hann í aögerð og gekk
sú aðgerð vel og er hann á batavegi.
-pp
slapp í land
Rotta slapp í land í Bolungarvík
þegar rússneska flutningaskipið Ni-
kolai Kononoff lagöist að bryggju í
gærmorgun. Flutningaskipið var
búiö að fá leyfi til að landa frystum
þorski og rækju í Bolungarvík. Mein-
dýraeyðir fór um borð í skipið þegar
það lagðist að bryggju og fann um-
merki eftir rottu. Skömmu síðar sást
rottan koma. Skipinu var þegar í stað
vísað frá landi.
Sóttvamanefndin í Bolungarvík
tjaflaði um rottuganginn í flutninga-
skipinu á fundi í gærdag og var
ákveðið að vísa skipinu frá þar til
fullnægjandi vottorð fengjust. Mein-
dýraeyðir eitraði fyrir rottum í skip-
inu og var búist við að skipveijar
þyrftu bíða í tvo sólarhringa eftir að
fárottueyðingarvottorð. -GHS
Banaslys
Banaslys varð í gær þegar lítil rúta
frá Varnarliðinu á Keflavíkurflug-
velli og fólksbíll skullu saman í
Keflavík í gær.
22 ára piltur, sem ók fólksbílnum,
beið bana við áreksturinn og er talið
að hann hafi látist samstundis. Ekki
er hægt að greina frá nafni hans að
svo stöddu. -pp
LOKI
Fær rottan ekki pólitískt hæli
í Bolungarvík?
Veðriö á sunnudag
ogmánudag:
Hvöss
austlæg
átt
Á sunnudag og mánudag verð-
ur nokkuð hvöss austlæg átt.
Rigning verður víðast hvar um
landið sunnan- og austanvert en
skýjað og úrkomulítið vestan tii.
Hiti verður á bilinu 7-16 stig, hlýj-
ast í innsveitum vestanlands.
Veðrið í dag er á bls. 61
RAFMÓTORAR
Poulgett
SuAuHandsbraut 10. S. 886489.