Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1993, Qupperneq 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1993
Fréttir
Þing Alþýðusambands Norðurlands samþykkir:
Uppsögn samninga
og sameining félaga
- Guðmundur Guðmundsson kjörinn formaður
„í veigamiklum atriðum hafa for-
sendur gildandi kjarasamnings
brostíð. Gengis- og vaxtaþróunin hef-
ur verið með öðrum hættí en menn
reiknuðu með þegar gengið var frá
samningnum í vor. Og ríkið hefur
gengið harðar fram í að skerða kaup-
máttinn með álögum en gert var ráð
fyrir. Það er því eðlilegt að menn
veltí fyrir sér í fullri alvöru hvort
rétt sé að segja samningnum upp,“
segir Guðmundur Guðmundsson,
nýkjörinn formaður Alþýðusam-
bands Norðurlands.
Á þingi Alþýðusambands Norður-
iands um helgina var samþykkt aö
vinna þeirri hugmynd fylgis innan
ASÍ að segja upp gildandi kjarasamn-
ingum. A fundinum var jafnframt
kosin skipulagsnefnd sem gera á til-
lögur fyrir vorið til miðstjómar sam-
bandsins um sameiningu verkalýðs-
félaga á Norðurlandi. Fundinn sátu
90 fulltrúar frá 19 félögum.
Guðmundur segist eiga von á því
aö önnur aðildarsambönd- og félög
ASÍ álykti um kjaramálin á næstu
vikum. Hver framvindan verður og
hvort gripið verður til þess ráðs að
segja upp kjarasamningum segir
Guðmundur að muni meðal annars
ráðast af því til hvaða efnahagsað-
gerða ríkisstjórnin grípi í tengslum
við flárlagafrumvarp næsta árs.
„í næsta mánuði mun þetta ráðast
og það má segja að ríkisstjórnin geti
í raun ráðið því hver niðurstaðan
verður. Henni væri nær að takast á
við skattsvikin og neðanjarðarhag-
kerfið í stað þess að íþyngja sífellt
launafólkinu."
Að sögn Guðmundar er hann bjart-
sýnn á að af sameiningu verkalýðsfé-
laganna á Norðurlandi verði. Verði
af sameiningu allra verkalýðsfélag-
anna á Norðurlandi yrði það eitt
stærsta félag landsins með um 10
þúsund félagsmenn. Guðmundur tel-
ur þó ólíklegt að öll félögin sameinist
til að byija með.
„Ég er sannfærður um að verka-
lýðsfélögin sameinist í öflugri heild-
ir. En þetta verða menn að skoða vel
því að félögin veröa að geta tryggt
öllum félagsmönnum sömu þjónustu
ogáður,helstbetri.“ -kaa
SeyöisQörður:
Pétur Knstjámson, Seyðisfiröi:
Byggöastofnun hefur enn ekki
selt fiskimjölsverksmiðjuna Haf-
síld hér á Seyðisfirði sem hún
eignaðist á uppboði fyrr í sumar.
Tvö tilboð bárust til stofhunar-
innar um kaup á verksraiðjunni.
Tilboðin voru upp á um 65 millj.
króna hvort. Annað frá Elliða lif.
í Reykjavík en hitt frá Hraðirystí-
húsi Fáskrúðsíjaröar. Á stjórnar-
fundi Byggðastofnunar 22. sept-
ember var ákveðið að fresta end-
anlegrí afgreiðslu málsins um
eina viku. Væntanlegir kaupend-
ur verða beðnir um ítarlegri upp-
lýsingar varðandi kauptilboð sín.
Meðal aimai's óskar Byggðastofn-
un eför upplýsingum um banka-
viðskipti Elhða og upplýsingum
frá Ilraðfrystíhúsi Fáskrúðs-
fiarðar um hvemig þeir hyggist
nýta eignirnar og greiða fyrir
þær.
Benedikt Davíðsson, forseti ASÍ:
Afdrifaríkt að
fara út úr þjóð-
arsáttarfarinu
„Ég vil kanna rækilega hvort
við getum ekki verið áfram í þjóð-
arsáttarfarinu sem markað var í
febrúar 1990. Það væri afdrifarík
ákvörðun að fara út úr því fari.
Hins vegar kemur það ekki á
óvart þó menn íhugi nú uppsögn
samninga. Viðsemjendur okkar,
jafnt ríkisvaldið, bankamir sem
vinnuveitendur, hafa ekki staðið
sem skyldi við sinn hluta samn-
ingsins," segir Benedikt Davíðs-
son, forsetí ASÍ.
Benedikt segist á þessari
stundu ekki treysta sér til að
kveða upp úr um það hvort rétt
sé að segja upp gildandi kjara-
samningum. Það muni þó koma
í ljós á næstu vikum þegar ríkis-
stjómin kynnir efnahagsaðgerðir
sínar í tengslum við nýtt fiárlaga-
frumvarp. Þá segir hann ákvörð-
un um uppsögn ekki verða tekna
nema fyrir Uggi hvað taki við og
hvað menn treysti sér til að ná
fram í nýjum kjarasamningi.
-kaa
Vinkonurnar Unnur Björnsdóttir og Elín Baldursdóttir voru úti i garði hjá sér að leita að laufi handa dvergkanín-
unni hennar Elínar þegar þær rákust á þessa sérstæðu síamstvíbura af gljávíðisgerð. Elín segir að dvergkanínan
sín sé höfð í búrinu sínu úti í garði á sumrin en inni í húsi á veturna og lifi hún á laufbiöðum úr garðinum. Ekki
fylgir sögunni hvort kanínan fær að gæða sér á síamstvíburunum í kvöldmatinn enda úrvalið úr garðinum sjálf-
sagt nóg á þessum haustdögum. -GHS/DV-mynd BG
í dag mælir Dagfari
Herf anginu ójaf nt skipt
Ungir sjálfstæðismenn em óhress-
ir þessa dagana. Nýlega sendu þeir
frá sér ályktun sem lýsti óánægju
og harmi yfir þeirri herfangsstefnu
sem ríkir hjá Alþýðuflokknum.
Eiga þeir þá við að kratarnir farið
offari í stöðuveitingum til sinna
manna og benda á að þriðjungur
þingflokks Alþýðuflokksins hafi
komiö sér fyrir í hinuni ýmsu emb-
ættum. Ungir sjálfstæðismenn
segja að kratamir slái eign sinni á
embættí sem losna í utanríkisþjón-
ustunni og einnig í bankasfióra- og
ráðuneytisstöður.
í ályktuninni segir:
„Það hefur afhjúpast að flokks-
eigendur Alþýðuflokksins ráðstöf-
uðu forsfiórastöðunni í Trygginga-
stofnuninni til Karls Steinars
Guðnasonar í tengslum við ráðher-
raskipti flokksins í vor og aðrir
umsækjendur um stöðuna sem og
þjóðin öll hefur verið höfð að fifl-
um.“ Ungir sjálfstæðismenn segja
að svona vinnubrögð eigi heima í
bananalýðveldum og eru Alþýðu-
flokknum til vansæmdar.
Það er út af fyrir sig gott að ung-
ir sjálfstæðismenn hafi loks áttað
sig á að þeir búa í bananalýðveldi.
Þessu voru flestír aðrir íslendingar
búnir aö gera sér grein fyrir þó
þeir hefðu ekki ályktað sérstaklega
um það. Landsmenn eru enn sein-
þreyttir til að auglýsa hvers konar
þjóðfélagi þeir búa í. Bananalýö-
veldið hefur styrkt sig í sessi í tíð
núverandi ríkisstjórnar og er nú
svo komið aö ungir sjálfstæðis-
menn hafa loksins viðurkennt að
þeir séu þegnar í því lýöveldi.
Annars mega menn ekki mis-
skilja unga sjálfstæðismenn með
því að halda að þeir vilji breyta
bananalýðveldinu í alvörulýðveldi.
Það er af og frá. Það sem ungir sjálf-
stæðismenn eru að kvarta undan
og geta ekki duhð gremju sína yfir
er sú staðreynd að kratarnir eru
að fara fram úr þeim í mannaráðn-
ingum hjá hinu opinbera. Sjálf-
stæðisflokkurinn er að verða á eftír
í bitlingapólitíkinni.
Um tíma stóð Sjálfstæðisflokkur-
inn sig nokkuð vel, einkum þegar
flokkurinn náði sér á strik með
ráðningu Hrafns Gunnlaugssonar,
eftir að hann hafði verið rekinn frá
þeirri stofnun sem Sjálfstæðis-
flokkurinn skipaði hann fram-
kvæmdastjóra yfir. Það herfang
var vænt og bitastætt og kratarnir
áttu ekkert svar við þeirri tangar-
sókn sjálfstæöismanna.
En síðan þá hefur sigið á ógæfu-
hliðina og nú geta ungir sjálfstæö-
ismenn ekki lengur orða bundist
yfir þeirri frekju kratanna að ráða
stöðugt í stöður og bitlinga, án þess
að Sjálfstæðisflokkurinn geti eða
fái tækifæri til að jafna metin. Það
er auðvitað lágmark í stjómarsam-
starfi að sfiómarflokkarnir skipti
jafnt og hvorugur fari fram úr hin-
um. Annars er þjóðin höfð að fifl-
um, sem hún er, en slík vitneskja
er auðvitað reiðarslag fyrir ráða-
menn þjóðarinnar, sem hingað til
hafa tahð þjóðinni trú um að hún
væri ekki fifl!
Þessi staða er sýnu verri fyrir
unga menn í Sjálfstæðisflokknum,
aö það eru mennirnir sem eiga eft-
ir að erfa landið og þeir sjá ekki
fram á mikinn frama í póhtíkinni
eða í opinberum störfum ef krata-
amir ætla að gleypa öh störf sem
bitastæð eru. Það er tíl að mynda
grafalvarlegt mál ef ungir sjálf-
stæðismenn komast ekki lengur að
sem ambassadorar eða bankastjór-
ar.
Hvers vegna skyldu ungir menn
í Sjálfstæðisflokknum vera að
leggja á sig þrautleiðinlegt og taf-
samt starf í flokknum ef þeir eiga
ekki von á feitum bitum í bönkun-
um eða utanríkisþjónustunni? Og
hvers konar flokkur er það, sem
þeir styðja, sem ekki getur passað
betur upp á framtíðarhagsmuni
ungra og upprennandi manna í
flokknum? Það er kannske skiljan-
legt og þolanlegt að flokkurinn hafi
þjóðina aha að fíflum, en það er
óþarfi og ómaklegt að hafa sína eig-
in stuðningsmenn að fiflum.
Þetta þarf að laga. Alþýðuflokk-
urinn á ekki að komast upp með
það einn í sólói að úthluta bitling-
um meöan sjálfstæðismenn fá eng-
an. Herfanginu verður að skipta
jafnt. Það er krafa ungra sjálfstæð-
ismanna. Bananalýðveldið er
ómark ef banönum er skipt óréttl-
átíega. Bananalýðveldi verður aö
standa undir nafni og bananalýð-
veldi er ekki bananalýðveldi nema
Alþýðuflokkurinn skilji það að
Sjálfstæðisflokkurinn verður að fá
sitt.
Dagfari