Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1993, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1993
5
dv Fréttir
Ný ökuferilsskrá:
Fjorir oku-
menn verða
ákærðir
- fyrir ítrekuð brot
Mál fjögurra ökumanna, sem ekki
hafa sinnt áminningu lögreglunnar
í Reykjavík fyrir ítrekuð umferðar-
lagabrot, hafa verið send lögfræðingi
embættisins sem nú undirbýr útgáfu
ákæru á hendur einum þeirra. Um
prófmál verður að ræða og mun nið-
urstaða þess máls ráða framhaldinu.
Auk þessarra fjögurra mála hefur
á þriðja tug ökumanna verið send
áminning vegna síendurtekinna um-
ferðarlagabrota og mega þeir eiga
von á sömu meðferð og hinir fjórir
fyrsttöldu ef þeir bæta ekki ráð sitt.
Lögreglan byijaði að halda ökufer-
ilsskrá í byijun mars á þessu ári.
Ákveðnum umferðarlagabrotum
ökumanna er safnað saman í ökufer-
ilsskrá og þannig er hægt að fylgjast
með því hveijir brjóta aftur og aftur
af sér í umferðinni.
Ökumenn, sem komnir eru með
fjögur umferðarlagabrot, fá áminn-
ingu en bijóti þeir af sér í fimmta
sinn eiga þeir von á ökuleyfissvipt-
ingu. Ef ökumaður brýtur ekki af sér
í tvö ár fymast öll fyrri brot.
Flest eru brotin vegna hraðaksturs
en einnig vegna þess að ekið er yfir
á rauðu ljósi og stöðvunar- og bið-
skylda ekki virt. Mest áhersla er lögð
á þessi fjögur atriði þar sem-brot á
þeim valda mikilh hættu.
-PP
General Andryuchenko við bryggju
í Stykkishólmi. DV-mynd Kristján
Rússneskur
safnari
í Stykkis-
hólmshöfn
Kristján Sigurðsson, DV, Stykldshólnú;
í höfninni í Stykkishólmi er nú
stærsta skip sem lagst hefur þar við
bryggju - rússneskur safnari, það er
vinnsluskip sem ber nafnið General
Andryuchenko. Úr því er verið að
landa 200 tonnum af rækju til vinnslu
í hinni nýju og glæsilegu rækju-
vinnslu Sigurðar Agústssonar hf.
Skipið er 110 metra langt og ristir
7,5 m - 6000 tonn aö stærð með 48
manna áhöfn. Þrátt fyrir stærðina
tókst vel að sigla því inn á höfnina
og að bryggju að sögn Konráðs Ragn-
arssonar hafnsögumanns.
Þýsk gæði, betri ending!
Ef þú kaupir
Þennan glæsilega skutbíl
fyrir kr. 1.390.000,
færðu annan frían!
Sparaðu
-með Skoda!
Aukabúnaður á mynd; Álfelgur, þokuljós, þakrið.
1.390.000 kr. er ekki hátt verð fyrir
traustan og rúmgóðan skutbíl.
Hvað þá heldur tvo!
Eitt stykki Skoda Forman LXi skutbíll
fyrir kr. 695.000 á götuna!
Nýbýlavegur 2, Kópavogur, sími 42600.
Erlendir tungumálaskólar
Aukin samskipti við erlendar
þjóðir krefjast aukinnar mála-
kunnáttu. Við bjóðum nám við
eftirfarandi málaskóla:
Ensku: English 2000 í Bourne-
mouth og Harrow House í
Swanage á suðurströnd Eng-
lands.
Þýsku: Deutsch in Deutschland
- D.I.D. Víðs vegar um Þýskaland.
Frönsku: E.L.F.C.A. í Hyéresásuð-
urströnd Frakklands, skammt frá
Toulon.
Spönsku: Gala í Barcelona, C.L.I.C.
í Sevilla eða Malaga Instituto í
Malaga.
itölsku: Scuola Palazzo Malvisi í
Ravenna-Florence-Bagno di
Romagna.
Allir þessir skólar eru reknir allt
árið og geta nemendur á öllum
aldri (lágmark 17 ára) hafið þar
nám með litlum fyrirvara og dvalist
þar um lengri eða skemmri tíma
eftir því hvert takmarkið er og ósk-
ir standa til. Skólarnir taka
á móti byrjendum sem nemendum
lengra komnum í námi, nema í
frönsku, þar þarf að vera nokkur
undirstöðumenntun. Hægt er að
taka próf að loknu námi, þar á
meðal stöðupróf sem nauðsynleg
eru til frekara náms I erlendum skól-
um. Dvalist er á einkaheimilum og
er fæði þar eða í skólunum á
kennslutímum. Við fljúgum með
Flugleiðum og í tengiflugi, þar sem
það á við, á bestu fargjöldum. Nem-
endur eru sóttir á flugvellina við
komu og skilað þangað við heim-
flug.
Við veitum allar nánari upplýsingar
í skrifstofu okkar.
Ferðaskrifstofa
Kjartans Helgasonar-lstravel
Gnoðarvogi 44, sími686255,
og umboð okkar, Hálandi,
Eyrarvegi 31, Selfossi, sími 98 23444