Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1993, Síða 12
A - ■
12
Spumingin
Hvað er það jákvæðasta í
fari þínu?
Berglind Baldursdóttir: Bjartsýni.
Sigrún Magnúsdóttir: Ég er yfirleitt
í góöu skapi.
Lárus Guðmundsson: Mikil orka.
Sigurður Dagbjartsson: Mikil orka.
Valdimar Þorsteinsson: Manngæska.
fús.
ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1993
Lesendur
Heilsdagsskóli er
lausn í vanda
„Er ekki betra að vita a< börnnum í skólanum heldur en úti á götu?“ spyr
bréfritari.
Adda skrifar:
Aö undanfórnu hefur umræðan
beinst m.a. aö heilsdagsskólanum.
Hafa t.d. birst í DV 3 lesendabréf þar
sem bréfritarar mótmæla heilsdags-
skóla. Þar er farið fogrum orðum um
„skóla lífsins" og að auðvitaö ætti
hvert barn að dafna í faðmi fjölskyld-
unnar o.s.frv.
Þetta er allt gott og blessað og ég
væri hjartanlega sammála bréfritur-
um um að í raun er hverju barni
hollast að vera hjá móður sinni eða
geta leitað til hennar á daginn - ef
hún er þá til staðar. En það er hún
bara oftast ekki. Og ekki heldur fað-
irinn. Og um það snýst málið.
Það er alveg sama hversu margir
skrifa lesendabréf eða skammast yfir
fólki sem vinnur úti allan daginn og
lætur börn sín um að bjarga sér eftir
skólatímann - það breytist ekkert við
það. Ég ætla ekki að leggja neinn dóm
á fólk. Aðstæður geta verið svo marg-
víslegar hjá því. Það eru einstæðar
mæður eða láglaunafólk eða þá fólk
fast í skuldasúpu. Nú, eða fólk sem
er bara að nýta sér menntun sína. Á
hverju hausti koma fram uppeldis-
fræðingar með greinar eða fyrir-
lestra og allir viðurkenna að þetta
er vandamál og það þjóðfélagslegt
vandamál. - Því hljóta allir að sjá að
Jóhann Sigurðsson skrifar:
Ég var á leið í vinnuna í bílnum
morgun einn í síðustu viku og hafði
útvarpið opið. Þar hlýddi ég á viðtal
við Ólaf Ragnar Grímsson, alþingis-
mann og formann Alþýðubandalags-
ins. Og sá var ekki myrkur í máli
né svartsýnn. Þarna talaði maður
líkt og sá er aldrei heíði annaö gert
en stunda einkarekstur frá upphafi.
Svo góður talsmaður var hann fyrir
sjávarútveginn og atvinnugreinar
hans og svo bjartsýnn að hann lét
sem okkur íslendingum væru allir
vegir færir. - Ég uppveðraðist allur
af þessum orðum Olafs Ragnars.
Og flest sem Ólafur lét frá sér fara
Hrönn skrifar:
Ég sendi þessar línur til að mót-
mæla hundeiganda þeim sem skrifar
í DV þann 20. þ.m. - Það eru einmitt
margir sem eiga blendingshunda og
þykir alveg jafn vænt um þá og ofan-
nefndum hundeiganda þykir um
setter-tíkina sína. Ég á sjálf blend-
ingshund sem er einstakur því önnur
eins blanda er eflaust ekki til í heim-
inum.
Blendingshundar eru valkostur
fyrir þá sem ekki eiga næga peninga
til að kaupa dýra, hreinræktaða
hunda. Það gengur ekki að réttur til
hundahalds eigi að einskorðast við
hina efnameiri. Nógu dýrt er að fóðra
hundinn og borga leyfisgjald þótt
maður þurfi ekki að kaupa hann
dýru verði líka.
Ég vil einnig benda þessum hund-
eiganda á að þótt öllum blendings-
hundum yrði útrýmt fengi hann ekki
að hafa tíkina sína í friði nema hann
ætlist til þess að öllum hundakynjum
á íslandi verði útrýmt nema setter.
Ég býst heldur ekki við því að þeir
sem eiga hreinræktaöa hunda séu
duglegri við að þrífa upp eftir þá en
viö hin.
Ég vil að lokum koma með hug-
mynd til að fækka hundum og það
er að reka áróður fyrir því að fólk
fái sér ekki hunda nema aö vel athug-
heilsdagsskóli er samt lausn í vanda.
Er ekki betra að vita af börnunum
í skólanum heldur en úti á götu? Eða
þá í Kringlunni, eða aleinum heima?
Heilsdagsskóh er sannarlega lausn
fyrir lyklabörnin, fyrir pokabörnin
(þau sem koma að nestinu sínu á
útidyrahurðarhúninum heima hjá
sér), og fyrir foreldra sem eru komn-
ir meö magasár í vinnunni af áhyggj-
um yfir barninu sínu. Fyrir þjóðfé-
lagið í heild.
Þeir einu sem myndu tapa eru
í viötalinu þessa morgunstund átti
við góð rök að styðjast. Umræðan
spannst út frá ferð sem íslenskir aðO-
ar úr sjávarútveginum eru nú að
leggja í til Mexíkó til aö kanna að-
stæður til fiskveiða þar við strendur
og annaö sem koma mætti íslenskum
sjávarútvegi hér til góða. Ólafur
sagði að upphaf þessara samskipta
við Mexíkó hefði verið ferð hans
þangað fyrir nokkrum árum sem
hefði síðan leitt af sér gagnkvæmar
heimsóknir sjávarútvegsráðherra ís-
lands og Mexíkó. Ólafur vildi ber-
sýnilega sterkari „íslenska útrás“ til
annarra landa. Hann sagði útlend-
inga furða sig á því hverju íslenskur
uðu máli og aö allir tíkareigendur
gæti þess aö tíkur þeirra verði ekki
hvolpafullar nema þeir sjái fram á
sjoppumar og ef til vill einstaka dag-
mömmur. Ég hef þó ekki miklar
áhyggjur af þeim því hingað til hafa
þeir foreldrar verið fáir sem tíma að
borga pössun fyrir skólabörnin sín.
- Að endingu tek ég fram að ég er
sjálf heimavinnandi og dagmóðir að
auki svo að ekki ber ég neinn hag
af heilsdagsskóla. Ég er bara kona
að hugsa um öll þessi litlu böm sem
eru algjörlega eftirlitslaus hálfan
daginn.
sjávarútvegur hefur áorkað og hve
framaríega hann væri í meðferð og
sölu á sjávarvörum, búnaði og ööru
honum viðkomandi.
Ólafur fullyrti að við gætum hæg-
lega komist miklu framar á þessu
sviði, gætum t.d. orðið í forsvari fyr-
ir sameiginlegri sölu sjávarafurða
fyrir aðrar þjóðir. Hann benti á Hol-
lendinga sem í fyrstunni ræktuðu og
seldu aðeins sín eigin blóm en hefðu
nú tekið að sér sölu, dreiíingu og
markaðssetningu á blómum fyrir
fjölda þjóða. - Mér finnst að viðtal
þetta ætti að endurtaka í viðkomandi
útavarpsstöð sem ég tók ekki eftir
hver var.
að geta komið hvolpunum á góð
heimili.
DV
umferðarlögreglu
Bíleigandi skrifar:
Ég lenti á sjúkrahúsi í sumar
og var alllengi að ná mér eftir að
ég kom heim. Skoðun á bil mín-
um gleymdist og viðurkenni ég
fúslega mina sök þar. - Nýlega
hurfu númerin af bílnum og miði
var settur í hliðarrúðu þar sem
mér er tilkynnt að bíllinn sé tek-
inn úr umferð. Mér fmnst að setja
hefði átt miða á rúðuna þar sem
mér var tilkynnt að ég ætti tafar-
laust að fara með bílinn í skoðun.
Mér fmnst ruddamennskan vera
þarna í fyrirrúmi. Það kostar mig
og aðra sem lenda í þessu nokkur
þúsund krónur, t.d. að fá sendibíl
með taug svo að maður komist í
Bifreiðaskoðun íslands. - Ég
skora á lögreglustjóra að sýna í
verki að lögreglan er vinur fólks-
ins en ekki öfugt.
Friðjón hringdi:
Mér þykir orðin fyrirferð í ís-
lenska fegurðai-- og fyrirsætu-
bransanum. Fegurðardísir eru á
ferð og flugi um allan heim. Er
ekki hægt að virkja þennan fjár-
sterka atvinnugeira í þágu ríkis-
ins betur en gert er?
ÞarfÞjóðarsálin
aðsamþykkja?
Guðjón Sigurðsson hringdi:
Mér finnst það ljóður á ráði
Þjóðarsálar-þáttanna á rás 2, sem
eru oft áheyrilegir og fróðlegir,
að stjórnendur skuli sjálfir taka
jafn mikinn þátt í umræðum við
þá sem hringja og raun ber vitni.
Mun færri hlustendur komast þvi
að. - Og ennfremur finnst mér
ekki hæfa að stjórnendur Þjóðar-
sálar skuli sífellt vera að tjá sig
með eða á móti því sem viðmæl-
andi færir fram sem sína skoðun.
Hlutverk sjómenda svona þátta á
einfaldlega að vera það að leiða
umræðuna, gæta þess að fólk
undir áhrifum vímuefna komist
ekki langt.
Rennur Reykjavík
inn í Reykjanes-
kjördæmi?
N.K. skrifar:
Haraldur Blöndal varaborgar-
fulltrúi skrifar áhugaverða greín
í Mbl. þar sem hann ræðir kosn-
íngar um sameiningu sveitarfé-
laga á höfuðborgarsvæðinu.
Hann segir ekkert samráð hafa
veríð haft við borgarstjóm
Reykjavíkur um skiptingu, o.fl.
o.fl. í þeim dúr. Hann ræöir einn-
ig mörk sveitarfélaganna. Sam-
þykki Alþingi lagabreytingu til
sameiningar, standi spurningin
t.d. um það hvort sumir kjósend-
ur eigi atkvæðisrétt í Reykjavik
og aðrir í Reykjaneskjördæmi. -
Eða rennur Reykjavík inn í
Reykjaneskjördæmi? Er nú ekki
ráð að allt þetta fái faglega um-
fjöUun í íjölmiðlum?
Bílstoliö
Helga Þ. Arnardóttir skrifar:
Aðfaranótt sunnudagsins 19.
sept. sl. var bíl stolið frá mér þar
sem honum haíði verið lagt i
brekku Amtmannsstígs um kl.
15.30 laugard. 18. Um fimmleytið
aðfaranótt sunnudagsins 19. var
bíUinn horfinn. - Tekið skal fram |
að bílfinn var á sínum stað ura
tvöleytið þessa nótt þannig að
liann hefur verið fjarlægöur á
biUnu milli kl. 2 og 5.
BíUinn ver blá Lada 1200 árgerö
’87. Númeriö er G-25171. Hurð |
vinstra megin var ofulítið dæld-
uð. - Sjónarvottar að atvikmu eða
aðrir sem hafa orðið varir við
þennan bíl, vinsamlegast hafi
samband við lögregluna í Reykja-
vík eða Helgu í sima 689929.
Til Mexíkó ffyrir tilstilli Ólaffs Ragnars
Blendingshundar eru valkostur
„Það gengur ekki að réttur til hundahalds eigi að einskorðast við hina efna-
meiri,“ segir m.a. í bréfinu.