Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1993, Page 13
ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1993
13
dv___________________________________________________________Neytendur
Gæðakönnun DV á þriggja koma brauði:
Best hjá Björnsbakaríi,
Sveini bakara og Sandholt
- fengu öll 11 stig af 15 mögulegum
Matgæðingar DV tóku að þessu sinni
þátt í gæðakönnun á þriggja koma
brauði frá tíu bakaríum á höfuðborg-
arsvæðinu og eins og venjuiega vissu
þeir ekki hvaöa bakarí bakaði hvaða
brauð þegar smökkunin fór fram.
Matgæðingamir vora þau Sigmar
B. Hauksson, áhugamaður um mat-
argerðarhst, Dröfn Farestveit hús-
stjómarkennari og Úlfar Eysteins-
son matreiðslumaður. Þau vora beð-
in að gefa brauðunum einkunn frá
1-5 (l = mjög vont, 2=vont, 3=
sæmilegt, 4=gott, 5 = mjög gott).
Þrjú brauð stigahæst
Niðurstaðan varð sú aö þrjú
þriggja korna brauð fengu samanlagt
Útlit og lykt skipta ekki síður máli en bragð. Hér lyktar Úlfar af einni brauð-
sneiðinni áður en hann gefur henni einkunn. DV-mynd ÞÖK
Hvar eru bestu þriggja korna brauðin?1
Sveinsbakarí f
5 ' 4- 2 1
ll
11 í einkunn af 15 mögulegum en það
voru brauðin frá Sveini bakara,
Björnsbakaru og Sandholt.
Úlfar gaf brauðinu frá Sveini bak-
ara hæstu einkunn og sagði það
bragðgott, mátulega loftmikið og fall-
egt í sneið en Sigmar gaf því ekki
nema 2 og taldi það „lítið spenn-
andi“. Dröfn gaf brauðinu frá Bjöms-
bakaríi hæstu einkunn og sagði vera
. „vel af korni í því og brauðiö sæmi-
lega þétt í sér“. Úlfar var sammála
með kornið og taldi brauðið bragð-
mikið. Sigmar gaf því hins vegar 2
og taldi það „bragðlítið og klesst".
Brauðið frá Sandholt fékk ein-
kunnina 4 hjá Úlfari og Dröfn sem
töldu það „bragðmikið og fallegt í
sneið“. Úlfari fannst þó lyktin af því
súr en Dröfn sagði það hafa mest af
sesamfræjum á skorpunni. Sigmar
gaf brauðinu 3 og sagði það heldur
efnislítið en bragðmikið og gott.
Þriggja korna brauöin frá Bern-
höftsbakaríi og Miðbæjarbakaríi
þóttu síst og fengu umsögn eins og
„of blautt, ólöguleg sneið, lin skorpa,
nískupúka, lítið af korni, bragðlaust,
þurrt og ljótt á litinn".
-ingo
Hugmyndabankinn
- getur kostað yfir tvö þúsund kr. kg
„Það er hægt að binda allt að 80%
vatn í áleggi eins og skinku, þá er
bara notað hlutfallslega meira af
bindiefnum. Maður heyrir í dag að
það sé algengt að vatnsinnihaldið
sé langt yfir 50% og það taka lang-
flestir þátt í þessu,“ sagði Sigurður
Haraldsson kjötiðnaðarmeistari
sem eitt sinn framleiddi álegg sjálf-
ur.
Sigurður sagði að með aukinni
samkeppni og hörðu verðstríði
væri metnaðurinn minni og því
væra menn farnir að hafa vatns-
hlutfallið hærra. „í skinku er notað
svínakjöt, hakk, bindi- og bragð-
efni, trefjaefni, vatn og soya. Einnig
er bætt út í þetta C-vítamíni og salti
til að viðhalda Utnum. Menn kalla
þetta skinku fram í rauðan dauð-
ann, jafnvel þó það sé langt frá.því
að vera skinka."
Sigurður sagöi það skyldu fram-
leiðenda að skrá innihald vörunnar
og nefna fyrst það hráefni sem
mest er af. „En það gera það fæstir
og því er engin leið fyrir neytendur
að átta sig á því hvað þeir era að
kaupa. Þetta virðist vera eina leiðin
til að halda niðri verðinu en það
er það sem skiptir neytendur mestu
máli.“
Kílóverð á skinku getur farið yfir
2.000 krónur og hlýtur það að telj-
ast hátt verð fyrir 50% vatn. Tii
samanburðar má nefna aö það var
84% kjötinnihald í dönsku skink-
unni sem Hagkaup fékk ekki aö
flytja inn. -ingo
Ólgey en það er grænmetissúpa salt og pipar
fyrir fimm sem kostar ekki nema
25kr.ámanninn.Svonasúpurseg- Hreinsið grænmetiö vandlega,
ir hún best að bera fram brennhei t- skerið það í smátt og sjóðiö í vatn-
ar með brauði. inu, Ef notað er kjötsoð er græn-
metið sett soðið út í kjötsoðið.
2 1 vatn eða kjötsoð (Einnig má setja 1-2 kjötteninga út
250 g blómkál í vatnið í stað kjötsoðs.) Kryddið
250 g hvítkál meðsaltiogpipar. -ingo
-sparaðu með
kjaraseðlum
Kjaraseðillinn gildir
í versluninni sem
tilgreind er hér til
hliðar. Seðillinn
gildir fyrir éitt eintak
af vörunni.
Þessi seðill gildirtil:
15. október 1993
seppelfrickc
ddavélar mað
aða án blásturs.
Heimilistæki hf
Sætúni 8 Sími 6915 00 Fax 6915 55
Kjaraseðillinn gildir
í versluninni sem
tilgreind er hér til
hliðar. Seðillinn
gildir fyrir eitt eintak
af vörunni.
Þessi seðill gildir til:
------------- ■ ■ wfffl
8. október 1993
wmmmiK
WMMm
Einstakt tækifæri að eignast nýtt I
Hitachi sjónvarpstæki I
28 tommu - Black Mask flatskjár
Víðóma - Nicam 2x30 Wött I
Djúpbassahátalari
íslenskt textavarp .
Frábær hljómburður I
Björt og skörp mynd I
I
I
RONNING
SUNDABORG 15
SÍMI 68 58 68 |
■