Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1993, Page 16
16
ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1993
ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1993
17
íþróttir
Golf:
Ballesteros
fyrirliði 1997?
Berahard Gallacher, fyrirliöí
Evrópuliðsins í golfi sem tapaöi
Ryderbikarnum um helgina, er
hættur og menn velta því fyrir
sér þessa dagana hver verði eftir-
maður hans. Sjálfur hefur Gallac-
her nefnt Spánverjann Severiano
Ballesteros sem hugsanlegan eft-
irmann sinn. Gallacher sagöi þó
í gaer að líklega myndi Balleste-
ros leika með Evrópuliðinu i
næstu keppni í Bandaríkjunum
1995. „Hann á mikið eftir sem
golfleikari og er enn hungraður i
sigra,“ sagði Gallacher. Keppt
verður um Ryderbikarinn á
Spáni 1997 og þá er talið fullvíst
að Baliesteros veröi fyrirliði.
-SK
Knattspyma:
Bemto Floro
neitaraðfara
Spænska stórliðiö Real Madrid
á í miklum vandræðum þessa
dagana og sem stendur er liðið í
17. sæti 1. deildarinnar á Spáni.
Real tapaði um helgina fyrir
Real Oviedo á heimavelli og
margir álíta að þjálfari liösins
eigi ekki eftir marga daga i starfi.
f gær neitaöi þjálfarinn, Benito
Floro, hins vegar að láta af störf-
um og forseti félagsins, Rafael
Mendoza, lýsti því yfir að ekki
væri á dagskránni að reka þjálf-
arann.
-SK
Spurt um mörk
enekkirétt-
læti
Ófarir Real Madrid hafa vakið
feiknalega mikla athygli á Spáni
og blöð þar i landi voru í gær
uppfuU af fréttum af slakasta
gengi liðsins síðan áriö 1952.
Eitt dagblaðanna sagöi í risa-
stórri fyrirsögn að hö Real
Madrid væri í dái og nær meðvit-
undarlaust. Benito Floro, þjálfari
liðsins, sagði eftir leíkinn gegn
Oviedo um helgina: „Við áttum
ekki skilið að tapa. En í knatt-
spyrau er ekki spurt um réttlæti
heldur mörk.“
Forseta Barcelona leiddust ekki
úrslitin á Spáni um helgina því
að Barcelona vann stórsigur:
„Þetta hefur verið góöur dagur.
Lið Real Madrid á augljóslega við
stór vandamál aö stríða. Liðiö er
skipað gömlura leikmönnum og
er ekki eins sterkt og áöur."
-SK
Guðni búinn
að veija liðið
Guðni Kjartansson, þjálfari
ungfingalandsliðsins í knatt-
spyrnu, hefur valið lið sitt sem
leikur gegn Wales og Eistlandi í
2. riðli Evrópukeppni landsliða
og fara báðir leikirnir fram í
Wales. Fyrri leikurinn er gegn
Wales 3. október og sá síðari 5.
október. Liðið er þannig skipað:
Gunnar Sigurðsson.......ÍBV
Ólafur Kristjánsson....Fram
Bjarki Stefánsson........Val
Kjartan Antonsson.......UBK
Ragnar Árnason....Stjönnmni
Vilhjálmur Vilhjálmsson..KR
Brynjar Gunnarsson........KR
Guðmundur Brynjólfsson...Val
Guðni R. Helgason...Völsungi
Bjarnólfur Lárusson......ÍBV
Jóhannes Harðarson .....í A
Þórhallur Hinriksson.....KA
Sigurvin Ólafsson...Stuttgart
SigurbjömHreiðarsson.....Val
ÓlafurStígsson.........Fylki
Þorbjöm Sveinsson......Fram
-GH
fþróttir
Sportkom
Leikur Feyenoord og IA ekki sýndur beint 1 Sjónvarpinu:
„Alveg útilokað að
við getum gert þetta“
„Það hefur ekkert nýtt gerst í
þessu máli og við ráðum alls ekki við
þétta. Kostnaðurinn við þessa út-
sendingu er um 2,2 milljónir króna
og til samanburðar get ég sagt þér
að 15 klukkustundir frá Ryder Cup í
golíi, þar sem er á ferð besta golf sem
þú getur séð í heiminum í dag, kost-
aði okkur innan við 400 þúsund krón-
ur,“ sagði Ingólfur Hannesson, yfir-
maður á íþróttadeild Sjónvarpsins, í
samtali viö DV í gær.
Mikillar óánægju hefur gætt á með-
al knattspyrnuunnenda með þá nið-
urstöðu að sjónvarpið sýni ekki beint
frá leik Feyenoord og Akraness í
Evrópukeppni meistaraliða sem
fram fer í Rotterdam annað kvöld.
„Við gætum sem sagt haft aðgang
að mörgum Ryder keppnum í fram-
tíðinni fyrir þá upphæð sem við
þyrftum að greiða fyrir þennan eina
knattspymuleik í 90 mínútur. Þetta
er í raun hin harða staðreynd í mál-
inu.“
- Er alveg útilokað að afla auglýsin-
Milan tekur
sæti Marseille
AC Milan mun taka sæti Marseille
í heimsmeistarakeppni félagsliða og
leika gegn meisturum S-Ameríku,
Sao Paulo frá Brasilíu. Þetta var
ákveðið á sameiginlegum fundi Al-
þjóðaknattspyrnusambandsins,
FIFA, og Knattspyrnusambands Evr-
ópu, UEFA, í gær.
Marseille hefur verið vísað úr Evr-
ópukeppni, auk þess sem félagið hef-
ur verið svipt franska meistaratitlin-
um í kjölfar mútumálsins margum-
rædda. Þá má Marseille ekki taka
þátt í neinum alþjóðlegum keppnum.
AC Milan mun einnig taka sæti Mar-
seille í stórbikarkeppni Evrópu gegn
Evrópubikarmeisturum Parma frá
Ítalíu.
Gjaldkeri Marseille, Alain Laroc-
he, sagði í gær að tekjumissir félags-
ins væri mikill. Um 15 milljónir dala
eða rúman milljarð ísl. kr. vantaði
Þj áifararáöningar í kvennaboltanum:
Helgi þjálfar Val
Helgi Þóröarson, fyrrum þjálfari
Stjörnunnar, hefur verið ráðinn
þjálfari kvennaliðs Vals. Theódór
Halldórsson, formaður knattspyrnu-
deildar Vals, staðfesti þetta í samtali
við DV í gær.
„Ég er mjög ánægð með að þetta er
í höfn. Við höfum alltaf verið síðastar
til að ganga frá ráðningu á þjálfurum
en núna erum við fyrstar svo að þetta
er mjög jákvætt," sagði Bryndís Vals-
dóttir, leikmaöur Vals, í samtali við
DV.
Ráðning Helga er mjög mikill feng-
ur fyrir Val. Hann hefur náð mjög
góðum árangri með Stjömuna sl. þrjú
ár, tók við liðinu í 2. deild 1991 og
hefur komið því í hóp bestu kvenna-
liða landsins. Samkvæmt upplýsing-
um DV munu allir leikmenn Vals
halda áfram hjá félaginu og jafnvel
er von á liðsstyrk fyrir tímabilið.
Arna líklega áfram
með KR-stelpurnar
Arna Steinsen, þjálfari KR, sagði í
samtali við DV í gær að mál hennar
væru á gulu ljósi hjá stjórn KR, enn-
þá væri ekki búið að ganga frá ráðn-
ingu hennar en áhugi væri hjá báö-
um aðilum fyrir áframhaldandi
samningi.
Blikastúlkur funda í kvöld um
þjálfaramál sín. Ljóst er að Steinn
Helgason verður ekki áfram með lið-
ið og líklegast er að annað hvort
Vanda Sigurgeirsdóttir eða Jón Ott-
arr Karlsson taki við liðinu.
Enn er allt á huldu með þjálfara-
mál hjá nýliðum Hattar, áhugi er hjá
félaginu á að ráða spilandi þjálfara
enda munu vera nokkur afföll úr
hópnum frá í sumar. Blædís Guö-
jónsdóttir markvörður verður ekki
með þar sem hún á von á barni, Ein-
arína Einarsdóttir er farin utan og
Adda Birna Hjálmarsdóttir er á leið
út.
Ekki náðist í forráðamenn Stjöm-
unnar, ÍA, Þróttar á Neskaupstað eða
Hauka í gær.
-ih
gatekna til að hægt verði að sýna
beint frá Hollandi á morgun?
„Auglýsingadeildin hefur reynt
þetta en það gengur ekki. Auk þess
myndi þetta hafa þannig útslag á
okkar mörkuðum sem við þurfum
að semja á að við yrðum farnir að
borga verð sem er margfalt fyrir ofan
allt annað sem við greiðum fyrir. Það
myndi hækka verðmiðann á okkur á
öllum öörum mörkuðum. Það er al-
veg útilokað að við getum gert þetta,“
sagðiIngólfurHannesson. -SK
Stuttar fréttir
upp á að endar næðu samam og ljóst
væri að félagið yrði að selja einn eða
tvo leikmenn. Talið er að Marseille
verði að selja Króatann Alen Boksic
þegar í stað en hann átti að fara til
Lazio á Ítalíu eftir yfirstandandi
keppnistímabil. Þá er talið að Portúg-
alinn Paulo Futre verði seldur frá
félaginu til að rétta við fjárhaginn.
Eftir óeirðirnar um helgina, þegar
áhorfendur ruddust inn á leikvöllinn
í Marseille áður en leik lauk, vofir
eins leiks heimaleikjabann yfir félag-
inu í frönsku deUdinni. Eigandi fé-
lagsins, Bernard Tapie, hótaði að
segja af sér í kjölfar óeirðanna. „Þeg-
ar svona er komið þá er knattspyrn-
an ekki skemmtUeg lengur," sagði
Tapie. Hann sagði í gær að ákvörðun
FIFA og UEFA væri ósanngjörn en
hann myndi halda ótrauður áfram.
-BL
Helgi Þórðarson hættir hjá Stjörn-
unni og tekur við Val.
Arna Steinsen segir að mál sín hjá
KR séu á gulu Ijósi.
Leikmenn FH-liðsins ætla að
halda upp á glæsilegan árangur
á knattspymuvellinum í sumar
með því að bregða sér ásamt eig-
inkonum sínum tU Glasgow um
næstu helgi.
Tryggvi lék best
Tryggvi Traustson, GK, lék best
og sigraði á þriðja styrktarmóti
Keilis um síðustu helgi. Tryggvi
lék á 66 höggum. í keppni með
forgjöf sigraði Grímur Þórisson,
GÓ, á 61 höggi.
Ólympíumeistari lést
Einn lykilmanna ítalska ólymp-
íumeistaraliðsins í sundknatt-
leik, Paolo Calderella, lést í gær
eftir að hann ók vélhjóli sínu á
vörubifreið.
Stúdínurnáðuísilfur
Stúdínur gerðu góða ferð á
Norðurlandamót stúdentaliöa í
körfuknattleik. Þær sigruðu lið
frá Sviþjóð og Noregi en töpuöu
tvívegis fyrir Finnum. Það dugði
þeim þó til að ná sér í sUfurverð-
laun á mótinu.
Strejlau hættur
Andrzej Strejlau er hættur
þjálfun pólska landsliðsins í
knattspyrnu í kjölfarið á 1-9
ósigri á Norðmönnum í HM í síö-
ustu viku sem gerði það að verk-
um að Pólverjar komast ekki í
úrslitakeppnina.
RÚV sýnir beint
Ríkissjónvarpið mun sýna
beint frá leik Vals og KR á
Reykjavíkurmótinu í körfuknatt-
leik á laugardaginn kemur. Á
sama tima verður Stöð 2 með
berna útsendingu frá Evrópuleik
Vals og KH Tatra í handknattleik.
Jafntefli í ensku
Wimbledon og QPR gerðu 1-1
jaftitefli í ensku úrvalsdeildinni i
knattspyrnu í gær. Alan McDon-
ald kom QPR yfir en markaskor-
arinn mikli, Les Ferdinad,
ruglaðist eitthvað í ríminu, skor-
aði i eigið mark og jafnaði.
Leikirkvöldsins
Tveir leikir era á dagskrá í 1.
deild kvenna í handknattleik í
kvöld. FH tekur á móti Fram í
Kaplakrika kl. 18 og Grótta sækir
Fylki heim í Austurberg kl. 20.
Þá mætast Valur og KR á Reykja-
víkurmótinu í handknattleik að
Hlíðarenda.
Haukar-FHfrestað
Leikur Hauka og FH í 1. deild-
inni í handknattleik, sem vera
átti í kvöld, verður á fimmtudags-
kvöld kl. 20 í íþróttahúsinu við
Strandgötu.
Nick Faldo tekur hér upp golfkúluna eftir að hafa farið holu í höggi á 14. braut í keppn-
inni um Ryder-bikarinn á sunnudaginn. Símamynd Reuter
Faldostóð
við stóru orðin
Þrátt fyrir ósigur Evrópuúrvalsins gegn
Bandaríkjunum í keppninni um Ryder-
bikarinn í golfi um helgina er það hið
glæsilega teighögg hjá Bretanum Nick
Faldo sem lifir í minningunni - þegar
hann fór holu í höggi á lokadegi keppninn-
ar.
Kunningjar Faldos segja að þetta högg
hafi ekki verið tilviljun. Hann hafi sagt
við þá áður en keppnin hófst að hann
ætlaði sér að fara holu í höggi þar sem í
svona móti væri ekki nóg að leika undir
pari.
„Þannig verður að spila í svona keppni.
Maður er alltaf að reyna að koma boltan-
um sem næst holunni en nálægt er bara
ekki alltaf nógu gott. Maður verður að
reyna að fara holu í höggi,“ sagði Faldo
sem er talinn besti golfleikari heims í dag.
Colin Montgomerie, sem oft hefur leikið
með Faldo í Ryder-bikarnum, sagði á
sunnudaginn: „Nick Faldo er eini golfleik-
arinn sem hugsar um holu í höggi þegar
hann er 200 metra frá holunni. Hann lék
stórkostlega í keppninni."
-VS
Sænska knattspyman:
m
I
Eyjólfui Haröarson, ÐV, Svíþjóö:
Hacken, lið Arnórs Guðjohnsen, vann 0-1 sigur á Orgryte í sænsku úrvalsdeild-
irrni í knattspymu í gærkvöldi og skaust þar með upp i 4.-7. sæti deildarinnar.
Amór stóð sig með ágætum í leikhum sem Hácken þótti nýög heppið aö vinna.
Hlynur Stefánsson og félagar hans í Örebro töpuðu hins vegar íyrir Frölunda,
4-1, og eru í fjórða neðsta sæti deildarinnar og þurfa að öllum likindum að
heygja aukakeppni um að fá að halda sæti sínu. Norrköping er í efsta sæti með
52 stig, Gautaborg 51, AIK 37, TreUeborg, Malmö og Hácken og Öster hafa öll
33 stig.
Þór og Grindavík
vilja fá Kostic
„Við höfum talað við marga menn
og þar á meðal er Lúkas Kostic. Ég
tel líkumar á því að hann komi til
okkar ekki meiri en 50% og varla
það. Mér hefur skilist að annað félag
sé frekar inni í myndinni hjá hon-
um,“ sagði Gunnar Vilbergsson,
formaður knattspyrnudeildar
Grindavíkur sem leikur sem kunn-
ugt er í 2. deild.
„Við viljum fá hann til okkar, það
er engin spurning. Hann hefur hins
vegar sagt að hann vilji ekki ræða
þessi mál fyrr en eftir síðari leikinn
gegn Feyenoord og þá munum við
tala saman aftur. En við erum í 2.
deild og hitt liðið sem er inni í mynd-
inni er í 1. deild,“ sagði Gunnar í
samtali við DV í gær.
Lúkas aftur í raðir Þórs?
Samkvæmt öruggum heimildum DV
hafa Þórsarar frá Akureyri áhuga á
að krækja í Lúkas Kostic, fyrirliða
íslandsmeistara ÍA. Kostic lék meö
Þór áður en hann fór til Skaga-
manna. Sömu heimildir DV segja að
Kostic hafi mikinn áhuga á að fara
aftur norður og hann hafi áhuga á
aö fá Milan Jankovic, varnarmann
Grindvíkinga, með sér þangað.
Jankovic þessi er geysilega öflugur
varnarmaöur og var kosinn besti aft-
asti varnarmaðurinn í Júgóslavíu
árið 1989. Jankovic er góður vinur
Kostics og þeir léku saman um tíma
í Júgóslavíu.
-SK
Taugatitringur
-1 herbúðum Feyenoord fyrir lefkinn gegn ÍA á morgun
Eyþór Edvarösson, DV, Hollandi:
Talsverðs taugatitrings er farið að
gæta í liði Feyenoord vegna leiksins
gegn Akranesi annað kvöld. Hol-
lenska stórblaðiö Het Parool birti í
gær háðsleg ummæli aðstoðarþjálf-
ara Feyenoord, Geert Meyjer, þess
efnis að ef leikurinn gegn Akranesi
yrði eins og gegn Go Ahead Eagles í
hollensku úrvalsdeildinni á sunnu-
daginn, yrði Feyenoord að fá fram-
lengingu. Feyenoord vann þann leik,
1-0, með marki á lokamínútunum.
Meyjer segir að það sé orðið dæmi-
gert hollenskt var.damál að skora
ekki í leikjum. Landshðið hefði til
dæmis átt að vinna San Marino
minnst 12-0 á dögunum, í staðinn
fyrir 7-0, og Feyenoord hefði átt að
skora 10 mörk hið minnsta gegn Go
Ahead Eagles á sunnudaginn. Leik-
menn liðsins missi af fjölmörgum
góðum tækifærum en vegna mikillar
vinnslu á vellinum nái þeir að skora.
Varðandi leikinn gegn Akranesi
sagði Meyjer að Feyenoord missti
þrjá lykilmenn úr liðinu, sóknar-
manninn John van Loen, varnar-
manninn Ruud Heus og Ulrich van
Gobbel. Meyjer sagði að líklega yrði
Henk Fraser settur sérstaklega í
vörnina til aö gæta Þórðar Guðjóns-
sonar.
Meyjer og Wim van Hanegem,
þjálfari Feyenoord, telja að það geti
orðið erfitt að brjóta Skagamenn nið-
ur. Þeir verði erfiðir og búast megi
við svipuðum leik og gegn Go Ahead
Eagles, nema hvað Skagamenn muni
ekki spila mikið á miðjunni.
UMFNstendurbest
Reykjanesmótið í körfuknattleik
stendur nú sem hæst og úrslitin í
leikjunum fram að þessu hafa verið
á þessa leið:
Keflavík-Haukar.........90-70
Grindavík-Keflavík......78-80
Haukar-Njarðvík.........83-85
Njarðvík-Haukar.........90-75
Grindavík-Njarövík....105-103
Haukar-Grindavík........76-75
Njarðvík-Keflavík.......96-86
Njarðvík-Grindavík......85-78
Haukar-Keflavík.........97-77
Njarðvíkingar hafa hlotið 8 stig í 5
leikjum, Keflavik 4 stig eftir 4 leiki,
Haukar 4 stig eftir 5 leiki og Grinda-
vík 2 stig eftir 4 leiki. í kvöld eigast
við Keflavík og Grindavík í íþrótta-
húsinu í Keflavík klukkan 20.
-GH
Kristrúnerhætt
Kristrún Heimisdóttir, leikmaður í
liði íslandsmeistara KR, hefur
ákveðið að leggja skóna á hilluna.
Kristrún sagði í samtali við DV að
hún hefði tekið þessa ákvörðun að
vel athuguðu máh og hygðist snúa
sér að öðrum verkefnum.
Kristrún, sem er aðeins 22 ára göm-
ul, var í landsliðshópnum sem sigr-
aði Hollendinga á sunnudag. Hún
hefur leikið 155 leiki með meistara-
flokki KR, hún lék sinn fyrsta leik
með KR-ingum þegar hún var á ell-
efta ári og hefur verið lykilmaður í
hðinuundanfarinár. -ih
Gott kast Péturs
- kastaði 20,53 metra á móti í Svíþjóð
Pétur Guðmundsson kúluvarpari
náði mjög góðum árangri á móti í
Svíþjóö og bætti verulega stöðu sína
á listanum yfir bestu kúluvarpara
heims.
Pétur kastaði kúlunni 20,53 metra
sem er besti árangur sem náðst hefur
á Norðurlöndunum öllum í ár. Fyrir
mótiö var Pétur nálægt því að vera
í 40. sæti á heimslistanum en eftir
risakastið í Svíþjóð komst hann í 13.
sætið á listanum.
Jón Sigurjónsson sleggjukastari
keppti einnig á mótinu og kastaði
sleggjunni 61,38 metra.
-SK
Pétur Guðmundsson náði besta árangri ársins á Norðurlöndum þegar hann
kastaði kúlunni 20,53 metra á móti í Sviþjóð.
Kristrún Heimisdóttir.
Kristinn tekur
við Haukunum
Kristinn R. Jónsson verður næsti þjálfari meistaraflokks Hauka í knatt-
spyrnu og mun jafnframt leika með þeim í 3. deildinni á næsta keppnis-
tímabili. Kristinn hefur um langt árabil leikið með Fram í 1. deild og á
að baki 171 leik í 1. deild með félaginu. Þá hefur Kristinn leikið 10 leiki
fyrir íslenska landsliðið.
Kristinn tekur við af Ólafi Jóhannessyni sem þjálfaði liðið í 3. deildinni
í sumar þar sem Haukar höfnuðu 6. sæti. -GH
Gulir og glaðir
FyrirsögnDV
eftirbikarúr-
slitaleikinní ••••
knattspyrnuá
dögunum,
„Gidirogglað-
ir“, hefur held-
urbeturlifað
síðan.Einút-
varpssxöðv-
anna hefurnot-
aðhanaítúna
ogótímaásig-
urstundum
Skagamanna að undanfórnu, og í
auglýsingu ffá stuðningsidúbbi ÍA
fyrir leikinn við Feyenoord mátti sjá
yfirskriföna: „Gulirog glaðir". Okk-
urhefur verið bent á að sækjaum
einkaleyfi á þessu ágæta slagorði,
svipað og sagt eraö körfuboltaþjálf-
arinn ffægi. Pat Riley, hafi gert og
fengið. Hann fann nefnilega upp orð-
ið „threepeat'‘ um þrjá meistaratitla
Chicago Bulls í röð og er sagður hafa
hagnastvel!
Platrekur
Patrekur Jó-
hannesson
handboltamað-
! ur hefurveriðí:
fféttunumund-
anfarin sumur
vegnaþessað
hannhefurallt-
afveriðáleið
. fráStjömunmí
önnurfélögen
jafhansetið
kyrrheima
þegarupphef-
ur verið staðið. Þannig var hann
kominn í KA í fyrra og í FH í sumar.
Nú hafa gárungamír skírt piltinn
upp á nýtt og hjá þeim heitir hann
Platrekur!
Með ráðum gert
hjá Eyjamönnum?
Tvöáriröðhef-
urknatt-
spyrnuiið Eyia-
mannasloppið
viðaðfallaí2.
deildáævin-
týraleganhátt
ífyiravarð
ÍBVaövinna
þrjásíðustu
leikinaogallir
nðrir ieikir að ;
enda með hag- :
stæðum úrelit-
um - og það gekk eftir. Nú þurfti ÍBV
að vinna Fylki og gerði það með
markí á lokasekúndunum. í bæði
skiptin hafa öflugir shiðningsmenn
liðsins tekið sig til og heitið leik-
mönnunum utanlandsferð ef þeir
héldu sætinu í l, deild og nú eru þeir
á leið tii Dublin. í Eyjum er sá kvittur
kominn á kreik að allt sé með ráðum
gerthiáleikmönnum ÍBV, þeirkomi
sér í vandræöin og bjargi sér síðan
tíl að fá utanlandsferðina góðu!
Dapurt gengi
Reykjavíkurliða
Þaðeróhættað
segjaað
Reykjavíkur-
liðin í knatt-
spyrnu karla
hafiekkiriðið
feitumhestifrá
ísiandsmótinu í
knattspyrnuí
ár. „Reykjavík-
urrisai-nir"
Fram.KRog
Valurollu
stuðnings-
mönnum sínum miklum vonbrigð-
um. Framarar lentu í 4. sæti, KR-
íngar, sem spáð var islandsmeistar-
atitli, í 5. sæti og Valsmenn i 6. sæti
sem er slakasti árangur Hltðarenda-
liðsins fráupphafi í l. deild. í 2. deild-
inni léku tvölið úrReykjavík.Þrótt-
ur sem varð fyrir neðan miðja deild
og ÍR-ingar sem rétt sluppu riö fall í
3, deild. Eitt félag úr hofuöborgínni
getur þó borið höfuðíð hátt og það er
hið unga télag Fiölnis í Grafíin’ogi. ;
Bj ölnir vann sér sæti í 3. deildinni
meö þvi að hafna í öðru sæti 4. deild-
ar og telst því með réttu stolt Reykja-
vikur í knattspyrnunni!.
Umsjón: Viðir Sigurðsson
og Cuðmundur Hilmarsson