Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1993, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1993, Blaðsíða 23
T ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1993 23 Norrænahúsið: Raunsæi frá Skagen Á Skagen, nyrst á Jótlandi, var afskekkt samfélag fiskimanna í lok síöustu aldar. Þangaö var ekki hægt að komast nema akandi í hestakerru eftir sandgör- unni fram til ársins 1907 að þar kom höfn og síöar jámbraut og þungur straumur ferðamanna. Höfuöá- stæöunnar fyrir feröamannastraumnum á síðari árum er þó að leita til þess tíma er torfært var til staðarins. í lok nítjándu aldar gerðust nefnilega þau undur að menningarsamfélag blómstraði í Utla fiskimannaþorp- inu Skagen sem frægt varð um alla Evrópu. Nú hefur veriö stofnað þar safn um málverk fjölda listamanna sem fundu þar langþráðar fyrirmyndir að verkum sín- um. Mannlíf og náttúra á útskaga Sá listamaður sem segja má að hafi opnað augu umheimsins fyrir fegurð mannlífsins og náttúrunnar á þessum útskaga var Michael Ancher. Hann kom til Skagen árið 1874 og gerðist kostgangari á kránni þar sem hann kynntist konu sinni, Ónnu, sem einnig var málari. Þau hjón bjuggu alla tíð síðan á Skagen og máluðu nágranna sína og sambúð þeirra við hafið. Þau Ancher-hjón voru tvímælalaust frumherjarnir í þeirri hstamannanýlendu sem myndaðist á Skagen upp úr 1880. Árið 1882 var málverk Anchers, „Kemst hann fyrir nesið?“ vahö sem framlag Danmerkur á heims- sýningu í Vínarborg. Af því tílefni héldu þau hjón til Vínar og hittu þar danska málarann P.S. Kröyer. Sá fékk þegar áhuga fyrir að koma til Skagen og dvaldi þar langdvölum upp frá því. Kröyer var þá allþekktur málari og meistari í þeirri tækni raunsæisins að beita ljósgjafa til að skapa sannfærandi svipmyndir úr dag- legu lífi, samanber „Hip hip hurra“ frá 1888. Myndir Kröyers bera það þó með sér að hann leit á fyrirmynd- imar úr meiri íjarlægð en þau Ancher-hjón. í málverk- um hans eru áhyggjuleysi og gleði í fyrirrúmi á meðan alvara lífsins og samband manns og sjávar eru aðals- merki mynda Michaels Ancher og hjá Önnu Ancher vom áberandi myndefni seinunnin verk kvenna og hljóðlátt æðmleysi, s.s. í myndinni „Konur hnýta veislukrans“ frá 1906. Áhyggjuleysi andspænis hluttekningu Á sýningunni í Norræna húsinu koma fram þau andstæðu viðhorf sem fólust annars vegar í áhyggju- leysi hins velmegandi aristókrata úr borgarumhverf- inu, þ.e.a.s. Kröyer, og hins vegar í þeirri hluttekningu Myndlist Ólafur J. Engilbertsson með almúgafólkinu og baráttu þess við náttúmöflin sem sér stað fyrst og fremst í verkum Michaels Anch- er. Eftirtektarverðustu myndverkin á sýningunni eru einmitt þess konar verk eftir Ancher, „Sören Bondhag- en selur vísur“ og „Stúdía af gamalli konu“ þar á meðal. Myndir eftir P.S. Kröyer eru hins vegar of fáar til að samanburður geti veriö marktækur. Verk ann- arra listamanna en þeirra þriggja er hér hafa verið nefnd em aukreitis of léttvæg og persónuleikalaus til aö vekja áhuga á viðfangsefninu. Hér vantar sárlega myndir eftir norska listamanninn Christian Krogh sem var tvímælalaust einn merkasti málarinn á Skag- en og er kunnur hér á landi fyrir mynd sína af Snorra Sturlusyni. Carl Locher tengdist íslandi einnig með því að hann ferðaðist hingað til lands og er á sýning- unni fremur daufleg Þingvallamynd hans frá 1879. Abstrakt vatnshtamynd eftir Svavar Guðnason hangir og á sýningunni og mætti missa sig. Þetta „úrval verka úr Skagen-safninu" er því miður ekki gott og í það vantar of mörg af þeim verkum sem gerðu Skagen að miðstöð lista fyrir einni öld. Sýningar- skrá er glæsileg en sneydd hugmyndaflugi og gagnleg- um upplýsingum. Sýningin á verkunum frá Skagen stendur til 24. október. Menning Tónlist töl vutengd Nú um helgina var ákveðið að hleypa af stokkunum svonefndu tónhstar- svæði á íslenska menntanetinu. Með því opnast möguleikar á aö sam- tengja með tölvum aha þá sem geyma og nota upplýsingar um tónhst á öhu landinu. Þá munu einnig verða möguleikar á samtengingu viö er- lenda aðha í tónhst. Eins og mörgum er kunnugt háir það tónhstarstarfi töluvert hver skort- ur er í landinu á bókum, nótum og gögnum um tónhst. Það sem til er dreifist víðs vegar og hvergi er að hafa yfirsýn yfir hvar það er að finna. Sama ghdir um kennsluefni fyrir skóla á öhum stigum. Víða er verið að vinna margvíslegt slíkt efni, sem gæti nýst mörgum, ef einhvers staöar væri að finna upplýsingar um það sem tíltækt er. Tölvunetinu er ætlað að leysa úr þessum vanda. Það er ætiað fyrir tón- Tónlist Finnur Torfi Stefánsson hstarmenn og tónhstarskóla á íslandi. Th þess að tengjast því þarf venju- lega tölvu og mótald, sem gerir mögihegt að ná símsambandi frá tölvu th tölvu. Kostnaður er áætiaö að verði svipaður því og að greiða fyrir einn síma. Áætiað er aö tengja öh tónhstarbókasöfn á landinu netínu, og veröur því auðvelt að finna hvaða bækur eru til og hvar þær er að fá. Þarna veröur einnig eins konar tilkynningatafla með upplýsingum um helstu tónhstaratburði. Menntamálaráðuneytið mun tengjast netinu og nota þaö th að koma ýmsum skhaboðum áleiðis. Þá eru möguleikar á aö tengjast bókasöfunum og menntastofnunum erlendis meðal þess sem nettengingin getur haft upp á að bjóða. Ætiunin er aö hefja þess starfsemi 1. október næstkomandi. Sá sem hefur haft veg og vanda af undirbúningnum er Kjartan Ólafsson tón- skáld sem hefur síma 91-682299. Velgengni tónhstarnetsins byggist meðal annars á góðri þátttöku þeirra sem eitthvað hafa fram að færa og er ástæða th að hvetja skólamenn og tónhstarmenn yfirleitt til að hafa sam- band við Kjartan sem veitir ahar þær upplýsingar sem þarf. KREPPUTILBOÐ - SUNDAKAFFI V/DALVEG Kjötréttur (fiskréttur), súpa og kaffi, 550 kr. Kaffi, 80 kr. Hamborgarar og heitar samlokur. Opið virka daga frá kl. 8-17. Lokað laugardaga og sunnudaga. SUNDAKAFFI V/DALVEG við hliðina á áhaldahúsi Kópavogs, sími 643105 Sviðsljós Heiðar Jónsson snyrtir var kynn- ir á konukvöldí á Hótei íslandi á töstudag. Meðal þess sem hann træddi konurnar um var rétt handbrögð við að tara i og úr samfellu. Dóra Einars var ekki aiveg nógu klár á þessu svo hun skellti sér upp á svið tii Heiðars og fékk nánarl útskýringar. ■ Til sölu STURTUKLEFAR 15% STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR •Vald. Poulsen, Suðurlandsbraut 10, sími 686499. ert "ifandi DV komist • Hnattferð er á meðal fjölmargra frábœrra sumarvinn- s inga í Askriftarferða- getraun DV ogFlugleiða. Þeir einirgeta átt þessu sérstaka heimsláni að fagna sem er áskrifendur aðDV. Það borgar sig að vera áskrifandi aðDV. FLUGLEIÐIR FLUGLEIDIRjmr umhverf is Ea

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.