Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1993, Blaðsíða 24
24
ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1993
Merming
Frú Emelía frumsýnir þijú leikrit í vetur:
Okkur hef ur verið gert kleift
að starfa af f ullum krafti
- segir Hafliði Amgrímsson, annar stofnenda leikhússins
Tvíeykið Hafliði Amgrímsson og
Guðjón Pedersen hefur verið áber-
andi í leikhúslífi á undaníomum
ámm. Hafa uppsetningar þeirra fyrir
Leikfélag Reykjavíkur, Þjóðleikhús-
ið og Nemendaleikhúsið vakið mikla
athygli, verið lofaðar af almenningi
og gagnrýnendum, nú síðast á Rómeó
og Júlíu og Strætinu í Þjóðleikhús-
inu.
Það er ekki á allra vitorði að aOt
frá árinu 1986 hafa þeir Hafliði og
Guðjón rekið atvinnuleikhúsið Frú
Emelíu sem hefur starfað með hlé-
um. Með nýlegum samstarfssamn-
ingi við menntamálaráðuneytið og
leiklistarráð hefur leikhúsinu verið
gert kleift að starfa af fullum krafti
næstu tvö árin:
„Við setjum upp í vetur að minnsta
kosti þrjú verk,“ segir Hafliöi Am-
grímsson, „Afturgöngur eftir Henrik
Ibsen, sem nú er verið að æfa og
verður framsýnt 9. október. Barna-
sýninguna Ævintýri Trítils sem
einnig er verið að æfa. Það er leikrit
sem Ása Hlín Svavarsdóttir hefur
skrifað upp úr barnasögu eftir hol-
lenska barnabókahöfundinn Dick
Laan og leikstýrir hún verkinu. Sú
sýning veröur farandsýning. Eftir
áramót hefjast svo æfingar á hinu
klassíska gamanleikriti Kirsuberja-
garðinum eftir Anton Tsjekhov og
mun Guðjón Pedersen leikstýra
verkinu, er framsýning áætluð í
apríl.“
Aðspurður um sýningaraðstöðu
segir Hafliði: „Við höfum fengið
ágæta sýningaraðstöðu í Héðinshús-
inu en það húsnæði hefur ekki verið
áður notað undir leiklistarstarfsemi.
Síðast var þarna starfræktur vegg-
tennissalur. Salur þessi er kjörinn til
leikhússtarfsemi, hann er um átta
hundruð fermetrar að stærð og viö
munum haga sætaíjöldanum eftir
því hvað við á hverju sinni. Við höf-
um látið búa til þar til gerðar sæta-
Barði Guðmundsson, Helga Braga Jónsdóttir og Kjartan Bjargmundsson
leika í barnaleikritinu Ævintýri Trítils.
; ; - 1 i
Ipllliirar . „ . - í|ÍhL*P
Leikritið Afturgöngur eftir Henrik Ibsen verður frumsýnt í október. A myndinni, sem tekin er á æfingu, eru frá
vinstri: Sigríður Margrét Guðmundsdóttir leikstjóri, Margrét Ákadóttir, Ari Matthíasson og Þröstur Guðbjartsson.
DV-myndir BG
einingar sem auðvelt er að færa til.
í þessum sal verður heldur ekki neitt
fast leiksvið. Sýning verður sett upp
þar sem best hentar. Þegar leikritið
Afturgöngur verður tekið tfl sýninga
verður salurinn nýttur á tvennan
hátt. Afturgöngurnar sýndar í einu
horninu og barnaleikritið Júlía og
mánafólkið, sem leikhópurinn
AugnabOk sýnir um þessar mundir,
í hinu horninu.“
Eins og fyrr segir verða Afturgöng-
ur fyrsta verkið á verkefnaskrá Frú
Emilíu í vetur, en þetta er eitt þriggja
stórverka norska skáldjöfursins
Henriks Ibsen, hin tvö era Brúð-
heimflið og Hedda Gabler. Þessi þrjú
leOcrit vora leiklesin á vegum Frú
EmiOu 1991 undir yfirskriftinni
Haust með Ibsen. Leikstjóri verksins
er Sigríður Margrét Guðmundsdóttir
sem starfað hefur sem leikhúsritari
Þjóðleikhússins síðasthðin tvö ár.
Með hlutverkin í Afturgöngunum
fara Margrét Ákadóttir, Ari Matthí-
asson, Þröstur Guðbjartsson, Sigurð-
ur Skúlason og Jóna Guðrún Jóns-
dóttir.
-HK
Glerþrenna
Um þessar mundir stendur yfir sýn-
ing þriggja glerlistamanna í Hafnar-
borg í Hafnarfirði. Era það Osta-
mennimir Lharne Tobias Shaw,
Svafa Björg Einarsdóttir og Inga Elín
Kristinsdóttir. Inga Elín er einn
þeirra myndOstarmanna sem hefur
aðstöðu á Álafossi og er með verk-
stæði þar í elsta húsi staðarins. Svafa
og Lahame, sem era hjón, era aftur
á móti búsett í Notthingham á Eng-
landi og er þetta fyrsta einkasýyning
þeirra hér á landi.
Þegar blaðamann DV bar að garði
í Hafnarborg var Lhame farinn aftur
til Englands, þar sem biðu hans verk-
efni, en þær stöOur gengu með blaða-
manni og ljósmyndara innan um
marglit og fógur verk myndOstar-
mannanna sem eru á veggjum og
stöOum vítt og dreift um salinn.
Svafa sagði að það hefði verið hún
sem smitaði eiginmann sinn af gler-
listinni. Áður en þau ragluðu saman
reytum sínum hafði hann fengist við
að mála á léreft en í dag ynni hann
eingöngu í gler. Ekki eru nein blásin
glerverk á sýningu þremenninganna
og sögust þær Inga Elín og Svafa það
aðallega stafa af aöstöðuleysi.
Inga Elfn segist vera farin að vinna meira við veggmynd-
ir en áður. Hún er hér við nokkrar litlar veggmyndir sem
hún hefur gert. DV-myndir GVA
Svafa Björg Einarsdóttir segir að ekki sé neinn heildar-
svipur á verkum hennar á sýningunni en verkin sýni
það sem hún hefur verið að gera á undanförnum árum.
Fyrr á árinu smíðaði Svafa verð-
launagripi fyrir DV, vegna menning-
arverðlauna blaðsins. Áður hafði
hún smíðaö menningarverðlauna-
gripi fyrir Liverpoolborg. Svafa og
eiginmaður hennar, Lharne Tobias
Shaw, hafa sýnt víða á Bretlandseyj-
um og Svafa auk þess í HoOandi og
Þýskalandi. Svafa sagði það nánast
eingöngu vera út af hjúskaparmálum
að hún hefði ílengst úti. Hún og
Lhame væra búin að koma sér vel
fyrir í Nottingham en efnahags-
ástand væri nú mjög slæmt í Eng-
landi og listin ætti erfitt uppdráttar.
Um verk sín á sýningunni sagði
Svafa að þau væra í raun yfirlit yfir
þaö sem hún heföi verið að gera und-
anfarin misseri en veggmyndimar
væra nýjastar.
Inga Elín hefur verið stórtæk í sýn-
ingum að undanfórnu og er sýning
hennar í Hafnarborg hennar fjórða á
þessu ári. Hún sagði að nú væri kom-
iö nóg í biO og yrði varla um að ræða
aðra sýningu hjá henni í bráð. Það
fylgir glerOstinni að hún getur verið
nýtanleg og meðal þess sem Inga Elín
hefur verið að þróa eru fallegir lamp-
ar sem hún sýnir. Sagði Inga EOn að
það hefði tekið mörg ár að þróa lamp-
ana í það form sem þeir væra nú í.
Svafa og Inga EOn eru mjög ánægð-
ar með aðsóknina að sýningunni og
þrátt fyrir að í öllum stærstu sýning-
arsölunum, að Hafnarborg meðtal-
inni, hafi verið opnaðar sýningar á
sama laugardegi hefði verið fullt hús
gesta hjá þeim fyrstu tvær helgamar
en sýningu þeirra lýkur mánudaginn
4. október.
Býr íslend-
mgur fi©r«
Fyrir fáum árum kom út ævi-
saga Leifs Muller en hann bjó
meirihluta ævi sinnar á íslandi.
Á árum seinni heimsstyrjaidar-
innar dvaldi hann lengi í fanga-
búöum nasista og segir frá þeirri
reynslu sinni í bókinni. Þórarinn
Eytjörð hefur nú skrifaö leikgerö
eftir sögu Leifs og er hann leik-
stjóri. Leikritið verður frumsýnt
í Tjarnarbæ 7. október. Aöeins
tveir leikarar koma fram. Pétur
Einarsson, sem leikur Leif, og er
nánast um einleik hans að ræða.
Hin persónan er læknir sem kem-
ur fram í byrjun verksins. HaO-
dór Bjömsson leikur hann.
Danskurdjass
Christian Vuusts Nordic Quart-
ett er mikilsvirtur danskur djass-
kvartett sem kominn er hingað
til landsins og leikur í Norræna
húsinu í kvöld. Kvartettinn leik-
ur bæði framsamda tónlist og
nýjar útsetningar á norrænum
og bandarískum lögum. Auk Vu-
ust, sem leikur á tenórsaxófón,
skipa kvartettinn Claus Gade,
trommur, Tobias Sjögren, gítar,
og Johannes Lundberg, bassa.
Allt era þetta viöurkenndir djass-
snillingar á Norðurlöndum.
Djasskvartett þessi er víðfóruO,
hefur auk þess aö leika á öOum
Norðurlöndunum komiö fram á
Spáni, Litháen og Grænlandi.