Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1993, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1993, Side 9
MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1993 9 __ Síðasta vika ___ borðdúkaútsölunnar Gerið góð kaup til brúð argjafa og jólagjafa. Handunnir borðdúkar. Straufríir borðdúkar með 30% afslætti. Jóladúkar og jólavörur. Ódýrar svuntur. Tilvalið á basara. Uppsetningabúðin Hverfisgötu 74 sími 25270 Utlönd Áform um hluta- félagsvæðingu sænska póstsins íuppnámi Svo kann að fara að hætt verði að breyta sænsku póstþjónustunni í hlutafélag. Hvorki jafnaðarmenn né þingmenn hins hægrisinnaða Nýs lýðræðis vilja sjá það. „Ég fæ ekki séð nokkurn ávinning að þessu,“ segir Bert Karlsson, vara- formaður Nýs lýðræðis. Hann telur einnig að póstþjónustan mundi segja upp tíu þúsund starfsmönnum um leiö og hún yrði gerð aö hlutafélagi. Sænska ríkisstjómin lagði fram til- lögur um málið á þingi þann 18. okt- óber og samkvæmt þeim á að stofna hlutafélagið á næsta ári. Öll hluta- bréf verða í eigu ríkisins. Göran Persson, talsmaður jafnað- armanna í efnahagsmálum, sagði að flokkurinn væri á móti tillögunni. TT Ugglastalarum öryggismál í Maríuhöfn Margareta af Ugglas, utan- ríkisráðherra Sviþjóðar, ætl- ar að leggja út ai' greinargerö um norræna utanríkispóli- tík í umræðun- um utanríkis- og öryggismál á fundi Norðurlandaráös i Maríu- höfn á Álandseyjum í næstu viku. Utamikis- og öryggismál hafa löngum verið bannvar a áfundum Norðurlandaráðs en á undan- förnum tveimur til þremur árum hefur orðið breyting þar á. Það var Thorvald Stoltenberg, þáver- andi utanríkisráðherra Noregs, sem reið á vaðið á fundi Norður- landaráös í Árósum i fyrra. FNB Leynifundir um Júgóslavíu í Noregi: Króatíuf orseti skemmdi f yrir Leiðtogar Serba í Krajinahéraði í Króatíu sökuðu Franjo Tudjman, forseta Króatíu, um að hafa grafið undan leynilegum friðarviðræðum sem haldnar voru í Ósló með því að krefjast þess að héraðið, sem er und- ir yfirráðum Serba, yrði áfram hluti af Króatíu. ' Tanjug fréttastofan hafði það eftir Serbunum að viðræðurnar hefðu gengið vel þar til Tudjman skipaði sendinefnd sinni að vísa til Krajina- héraðs sem hluta af Króatíu. Norska fréttastofan NTB segir að leiðtogar Serba og Króata hafi komið til Óslóar á mánudag og fundur þeirra hafi verið að undirlagi sátta- semjara Sameinuðu þjóðanna, þeirra Thorvalds Stoltenbergs og Knuts Vollebáks. Stoltenberg kom til Stokkhólms í gær og aðspurður vildi hann ekkert segja um leynilegar viðræður milli Serba og Króata. „Þá væru þær ekki leynilegar lengur," sagði hann. Reuter, NTB, TT Forlagtvöfaldar verðlaunaféí máli Nygaards Norska Aschehoug bókaforlag- ið hefur tvöfaldað þá fjárhæö sem í boði er fyrir þann sem getur veitt upplýsingar um morðtil- ræðið viö William Nygaard út- gáfustjóra í síöasta mánuði. Verð- launaféð nemur nú um 25 millj- ónum íslenskra króna. Fjölmiðlar settu morðtilræðið þegar í samband við Salman Rus- hdie og útgáfu bókar hans, Söngva satans, á norsku á vegum Aschehoug. írönsk stjómvöld hafa dæmt allta sem hafa komið nálægt útgáfu bókarinnar til dauða Clinton borgar ekkijafnhá laun ogforverinn Bíll Clinton Bandaríkjafor seti greiðir hæst settu að- stoðannönnum sínum rúmlega sex hundruð þúsund krón- um minna í laun á ári en George Bush gerði. Samt fa þeir launahæstu hjá Clinton rúmar átta milljónir króna á ári. Daglbaöið Washington Post skýrði frá því að 26 karlar og 17 konur í starfsliði Clintons fái sjö milljónir eða meira í árslaun. Þá þiggja hundruð starfsmanna for- setans mjög lág laun miðað við það sem gengur og gerist í Was- hington, eða um tvær milljónir króna á ári eða minna. Skipgrænfrið- unga kyrrsett í einavikuenn Lögreglan í Tromsö í Norður- Noregi hefur fengið heimild dóm- stóla til að hindra brottför Solo, skips m'ænfriðunga, frá bænum fram til 10. nóvember vegna mót- mælaaðgerðanna við olíuborpall- inn Ross Rig í Barentshaíi fyrir stuttu. Lögreglan hefur lagt hald á vegabréf Alberts Kuikens skip- stjóra og Pauls Horsmans leið- angursstjóra. Þá hefur hún einn- ig tekiö ijóra gúmbáta í sína vörslu vegna rannsóknar máls- ins. Að sögn lögfræðings grænfrið- unga munu tafírnar í Tromsö verða til þess að erfltt verður fyr- ir samtökin að standa við samn- inga um aðgerðir í sjö löndum til áramóta. NTB,Rcuter Kaþólikkar og mótmælendur á Norður-írlandi ætla að halda á lofti minningu unglingsstúlkunnar Kar- enar Thompson sem lét lífið í tilræð- inu á kránni við Londonderry um síðustu helgi. Karen var aðeins 16 ára þegar hún var myrt eftir að hafa boðið byssu- mönnunum birginn. Hún sagði að sér þætti þetta ekkert fyndið þegar þeir spurðu hvort hún vildi heldur grikk eða greiða. Þeir svöruðu með því að skjóta hana í andlitið með vélbyssu af stuttu færi. Það þykir kaldhæðnislegt að faðir Karenar heitinnar er mótmælandi en móðirin kaþólsk. Báðir aðilar þurfa því að hefna hennar en óvíst er hvort úr verður enda er nú leitað allra leiða til að semja um frið. Útför fómarlamba tilræðisins á Sólrisukránni var gerð í gær. Alls féflu sjö menn þegar byssu- menn úr liði mótmælenda réðust inn á krána og skutu á allt sem hreyfðist. Kar- en var yngst Karen Thompson. þeirra sem lét- ust en elsta fómarlambið var 81 árs. Ellefu særðust í árásinni. Áhrifamenn í söfnuðum kaþólikka og mótmælenda hafa heitið því að nú verði lát á ofbeldisverkunum á Norður-írlandi. Öfgamenn eru þó að sögn staðráðnir í að láta ekki hér staðar numið og hefna fyrri ódæðis- verka með nýjum. Fórnarlömbin voru valin af handa- hófl. Kráin var líka valin af handa- hófi. Byssumennimir hugsuðu um það eitt að finna krá kaþólikka og drepa þar sem flesta. Thomas Mullen missti Steven bróður sinn í tilræðinu á kránni. Mikið fjöl- menni var við útförina í Greysteel í gær. Mikið er nú gert til að ná sáttum milli manna en óvíst er um árangur. Símamynd Reuter BoyGeorgesver árastráks „Ég vildí að þessi stákur væri sonur minn en s\ o er baraekki," seg- ir poppsijarnan :;Íþý::ÖéÖÍ|é:ÚÍÍÍ:::: kröfu bandar- iskrarkonuum meðlag með sjö ára gömlum syni sínum. Konan heitir Carol Wison og vann um tíma hjá fyrirtækinu sem gefur út plötur stjörnunnar. Boy George sagðist í gær þess albúinn að láta reyna á málið fyr- ir rétti. Hann er yfirlýstur hommi og hefur búið með sama mannin- um i átta ár. „Sambýlingur minn er ekki þungaður svo að ég viti,“ sagði kappinn. Skólasfjóri setti byssumann í skammarkrók „Ég sagði bara við manninn að svona höguðu menn sér ekki í mínum skóla," segir George Hirchberg, skólastjóri við barna- skóla í New Jersey í Bandarikj- unum. Skólastjórinn mætti byssu- manni á göngum skólans og virt- ist sá eiga eitthvað vantalað við starfsmann þar. Stjóri hellti sér yfir manninn sem varð lafhrædd- ur og iét frá sér byssuna fremur en að sitja lengur undir reiöilestr- inum. Skauthrottann eiginmannsinn íréttarsalnum Ellie Nesler, rúmlega fertug húsmóðir í Kaliforníu, fær trú- lega 15 ára fangelsisdóm fyrir að skjóta eiginmann sinn til bana í réttarsal. Konan hafði kært mann sinn fyrir barsmíðar og kynferðislega misnotkun á syni þeirra og þrem- ur öðrum drengjum. í réttinum ákvað hún að taka dómsvaldið i eigin hendur og skaut manninn. Flóttakonanvill >á glæpsínum Katherine Ann Powers, konan dyljast rísku lögregl- unni i 23 ár, hefur ákveðiö að áfrýja dómnum yfir sér. hefur þó ekkert við 12 ára fanga- vist að athuga en hún telur ót- réttlátt að dómarinn skyldi banna sér aö selja útgáfurétt á ævisögu sinni. Katherine Ann hefur fengið fiölda tilboða í söguna en dómar- inn taldi óréttlátt að hún fengi að hagnast á að óvirða lög og rétt órum saman. Enginnerlátinn úreyðni, 3Tára Stjómmálamaðurinn Afls Eng- inn er látinn úr eyöni í Kalifor- íriu, 37 ára gamall. Hann varð frægur fyrir að breyta nafni sínu úr David Powers i Alls Engan eöa Absolutely Nobody áður en hann bauð sig fram til ríkisstjóra i Washingtonríki árið 1992. Slagorð hans var: „Kjósiö Afls Engan". Enginn fékk 7% atkvæða og kom sjálfum sér og öðrum á óvart. Norður-írar heiðra minningu Karenar Thompson, 16 ára: Fékk vélbyssu- skotin í andlitið

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.