Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1993, Blaðsíða 24
24
MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1993
Fréttir
Sgurjón J. Sgurösson, DV, faafirði:
Hreppsnefnd Súðavíkurhrepps
kannar nú þann möguleika að
kaupa eigin sorpbrennslustöö sem
anna mun þörf byggðarlagsins á
komandi árum, Er hér ura að ræða
svokallaða Hoval sorpbrennslu-
stöð en slíkri stöð hefur veríð kom-
ið upp aö Svínafelli i Örœfum og
gefið góða raun.
Hoval stöðin getur þjónað 3-4(K)
manna byggðarlagi og uppfyllir öll
skilyrði selii slíkum stöðvum hafa
verið sett. Heildarkostnaöur við
hana uppsetta er 5-6 millj. króna
og aðalkosturinn við hana er að
hún gefur af sér 1,5 megavatta orku
sem mun nýtast Súðvíkingum vel
m.a. við upphitun nýs íþróttasalar
sem er í byggingu og sundlaugar
sem ráðgert er að byggja viö hliö
íþróttasalarins.
Sveitarstjóri Súöavíkur, Sigríður
Hrönn Eiíasdóttir, skoðaði stöðina
að Svínafelli og segir að það sé engin
spuming aö slík stöð verði mun ódýr-
ari fyrir Súðvíkinga heidur en þátt-
taka í sorpbrennslustöð f>>rir norðan-
verða Vestfirði i Engidal við Skutuls-
íjörö.
TÆKNI
////////////////////////////
AUKABLAÐ UM
TÆKNI
Miðvikudaginn 10. nóvember mun aukablað um tækni fylgja
DV. Blaðið verður fjölbreytt og efnismikið en í því verður fjallað
um flest það sem viðkemur tækni til nota á heimilum og víðar.
í blaðinu verða upplýsingar um sjónvörp, myndbönd, heimabíó,
myndavélar, símtæki, faxtæki, þjófavarnakerfi og ýmsa hagnýta
tækni sem notuð er bæði heima og heiman.
Þeim sem vilja koma á framfæri nýjungum og efni í blaðið er
bent á að senda upplýsingar til ritstjórnar DV, Hauks Lárusar
Haukssonar, fyrir 2. nóvember.
Þeir auglýsendur, sem hafa áhuga á að auglýsa í þessu auka-
blaði, vinsamlega hafi samband við Björk Brynjólfsdóttur, aug-
lýsingadeild DV, hið fyrsta, í síma 63 27 23.
Vinsamlegast athugið að síðasti skiladagur auglýsinga er
fimmtudagurinn 4. nóvember.
Ath.l Bréfasími okkar er 63 27 27
Þverholti 11-105 Reykjavík-Sími 91 -632700 -Símbréf 91 -632727
Unglingar i Feliahelli höfðu hafið undirskriftasöfnun til að halda lögreglumönnunum
Svo virðist hins vegar að lausn sé fundin á málinu.
Breiðholti áfram í hverfinu.
DV-mynd Sveinn
Farsæl lausn líklega fundln segir lögreglustjóri:
Breiðholtslöggan verður
áfram I BreiðhoHinu
- unglingar höföu hafið undirskriftasöfnun
„Ég held að við séum búnir að
finna einhverja lausn á þessu máli
sem menn geta búið við. Það er háð
því að ég hef ekki vald á launamálum
eða öðru en innan þess ramma er
maður að vona að það sé fundinn
punktur á þetta,“ sagöi Böðvar
Bragason, lögreglustjóri í Reykjavík,
í samtali við DV í gær um mál lög-
reglumanna í Breiðholti.
Lögreglumennimir þrír höfðu allir
óskað eftir flutningi, að minnsta
kosti tveir þeirra, vegna þeirra lágu
launa sem þar voru í boði. Nú er
hins vegar von að fundist hafi lend-
ing í málinu. „Hverfastöðvamar eru
það munstur sem maður hefur viljað
útfæra og það hefur ýmislegt nýtt
komið upp á í sambandi við fjölgun
þessara litlu stöðva okkar. Það er
eins og það hafi aldrei verið gert ráð
fyrir þeim í kerfinu þegar síðustu
samningar voru gerðir. Nú er bara
að finna lausn á þessu til frambúð-
ar,“ sagöi Böðvar.
Arnþór Heimir Bjamason, lög-
reglumaður í Breiðholti, sagði í gær
að eftir að hafa rætt viö yfirmenn
sína hefði hann og félagi hans, Einar
Ásbjörnsson, ákveðið að vera áfram
við störf í Breiðholtinu. Hann sagði
að viðbrögð íbúa og unglinganna í
hverfinu hefðu komið sér verulega á
óvart og ákvörðunin hefði verið tek-
in með þau til hliðsjónar. Auk þessa
heföu viðbrögð yfirmanna hans átt
stóran þátt í ákvörðuninni.
Unglingar í félagsmiðstöðinni
Fellahelli í Breiðholti höfðu hafið
undirskriftasöfnun til að knýja á um
að lögreglumennirnir hættu ekki
störfum.
Bjami Björnsson, starfsmaður í
Fellahelli, sagði í samtali við DV í
gær að á 6. hundrað undirskriftir
hefðu safnast og enn bættust nöfn á
listana.
Síðastliðinn fóstudag sendu skóla-
stjórar í Breiðholtinu formlega álykt-
un sína til Böðvars Bragasonar lög-
reglustjóra, einnig var sent samrit til
borgarstjóra. Sigurjón Fjeldsted,
skólastjóri í Hólabrekkuskóla, sagði
áður en ljóst var að niðurstaða fékkst
í máhnu að hann vonaðist til þess
að hægt yrði að gera eitthvað til að
sömu menn gætu starfað þarna
áfram. Þama hefði myndast trúnað-
artraust milli unghnga í hverfinu og
lögreglumannanna sem langan tíma
heíði tekið að byggja upp. „Það er
að okkar mati ekki hægt að leggja
það í einhvern launaflokk. Ekki það
að við séum að dæma annað fólk sem
hugsanlega kæmi hingað. Menn
verða að líta á eitt, sem við kennarar
og skólastjórar þekkjum úr eigin
starfi, að ef við eram ahtaf að skipta
um kennara í einum bekk þá verður
sá bekkur aldrei eins og bekkur sem
hefur haft sama kennarann í langan
tíma. Það gildir alveg það sama um
lögregluna," sagði Siguijón.
-PP
Óendanleiki hringsins
- Hólmfríður Sigvaldadóttir í Nýlistasafninu
Hólmfríður Sigvaldadóttir er ein þeirra þriggja lista-
kvenna sem á laugardag opnuðu sýningu í Nýhstasafn-
inu. Hólmfríður útskrifaðist fyrir fimm árum úr mynd-
mótunardeild MHÍ og hélt þá til Flórens þar sem hún
hefur nú nýlokið námi við listaakademíuna. Hólmfríð-
ur, sem býr enn og starfar í Flórens, hefur áður hald-
ið eina einkasýningu.
Tólf stjörnur og tólf baugar
Verk Hólmfríðar skírskota til óendanleika hring-
formsins og hringrásarinnar. Tólf stjörnur og tólf
gullnir baugar vísa til stjömumerkjanna tólf og tylfta-
kerfis tímans. Þessi tvö verk em máluð beint á vegg-
inn í Gryfjunni, neðsta sal Nýhstasafnsins. Þau láta
htið yfir sér en við nánari skoðun kemur í ljós að lista-
konan hefur lagt talsverða alúð í útfærsluna. Hug-
myndimar virðist hún sækja aftur til miðalda; í guh-
gerðarhstina og heimsmyndarhugmyndir frá tímum
Leonardos og Kópernikusar. Fróðlegt hefði verið að
vita nánari deili á þeim hugmyndum sem hgga að
baki verkunum en enga sýningarskrá var að finna er
undirritaðan bar að garði.
Myndlist
Ólafur Engilbertsson
Umpólun og uppbrot hrings
Veggskúlptúr, er nefnist „Afsprengi", eftir því sem
ég komst næst, og gólfskúlptúrinn „L)ós“ eru nokkuð
annars eðlis en fyrmefnd tvö verk. Hér hefur lista-
konan unnið af natni þríhyrnt viðarform, sem í raun
er uppbrotinn hringur, og samhangandi form sex
hringa úr gifsi. Hringformin ganga hér í gegnum um-
pólunarferli og listakonan reynir á þanþol hins óend-
anlega hrings. En víst er um það aö þanþol hringsins
er meira en hér kemur fram. Hér er nánast stað-
næmst viö lágmyndarformið. Inntak sýningarinnar
er það yfirgripsmikið að sýningin hefði helst þurft að
vera stærri. Hugleiðingar hstakonunnar um inntakiö
hefðu einnig getað skýrt heildarmyndina enn frekar.
En vinnubrögðin eru vönduð og markviss og sjálfsagt
á óendanleiki hringsins eftir að vera Hólmfríði við-
fangsefni enn um sinn, af nógu er að taka.