Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1993, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1993, Side 10
10 MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1993 Utlönd Drengirnir tveir hafa játað á sig morðið á James litla Bulger en neita hvor um sig að hafa ráðið ferðinni við ódæðið. Þeir hafa setið rólegir i réttarsalnum og ekki látið alvöru malsins á sig fá. Bannað er að taka af þeim myndir og því hafa teiknarar dregið upp baksvip þeirra og aðstæður i réttarsalnum. Simamyndir Reuter Morðingjar James litla Bulger hafa játað á sig verknaðinn: Strákurinn reis alltaf upp aftur - þannig lýstu morðingjamir tveir aðförunum fyrir lögreglunni „Strákurinn reis alltaf á fætur aft- ur þegar við börðum hann,“ segir í lögregluskýrslu sem tekin var af morðingjum James litla Bulger eftir að þeir komust undir manna hendur. Drengimir, sem nú em ellefu ára gamhr, sögðu lögreglunni að þeir hefðu notað jámstöng og múrsteina við að brjóta höfuðkúpu James htla áður en þeir hentu hkinu á brautar- teina þar sem lest ók yfir þaö. Þeir hafa játað á sig ódæðið fyrir lögreglunni og þykir ekki leika vafi á sekt þeirra. Hvor um sig vísar þó á hinn þegar spurt er um ástæður morðsins. Réttarhöldin yfir drengj- unum tveimur hófust í gær og verður fram haldið næstu daga. Málið hefur vakið að nýju óhuginn sem það olh víða um lönd eftir að vitnaðist um morðið í febrúar á þessu ári. Almenningur krefst þess að morðingjunum verði refsað en það má ekki samkvæmt lögum. í gær var köhuð til vitnis móðir Diana Power rétt bjargaði ungu barni sínu úr höndum morðingj- anna. barns sem morðingjarnir reyndu að lokka til sín í þeim tilgangi að veita þvi sömu meðferð og James hth fékk síðar. Hún bar kennsl á drengina og sagði að litlu hefði munað að barn hennar hefði orðið fómarlamb þeirra. Henni tókst þó að koma í veg fyrir ódæðið. Myndir af morðstaðnum voru sýndar i réttinum í gær og komust kviðdómendur við þegar þeir sáu hvemig hk James htla var útleikiö þegar það fannst. Richard. Henriques saksóknari sækir máhð af miklum þunga. Hann segir að ekki skuh taka mark á þótt morðingjarnir verði tvisaga því þeir vilji koma sem mestu af sökinni af sér. Hins vegar leiki ekki vafi á sekt þeirra beggja. Réttað er í Preston fyrir norðan Liverpool því ekki er tahö óhætt að fjalla um svo viðkvæmt mál á heima- vettvangi. Reuter Héraðskosningar 1 Bandaríkjunum: Repúblikanar fengu þá stóru Republikanaflokkurinn hreppti ahar æðstu stöðumar sem kosið var um í bæjar- og sveitarstjómarkosn- ingum í Bandaríkjunum í gær. Fram- bjóðendur flokksins sigmðu í borg- arstjórakosningum í New York og í ríkisstjórakosningunum í New Jers- ey og Virginíu. Úrshtin þykja mikið áfah fyrir Bih Clinton forseta. „Þessir sigrar era stórkostlegir og þeir gefa tóninn fyrir kosningar til fuhtrúa- og öldungadeildar þingsins á næsta ári, svo og ríkisstjórakosn- ingamar," sagði Haley Barbour, formaður Repúblikanaflokksins. Rudolph Giuliani, fyrrum saksókn- Rudolph Giuliani verður næsti borg- arstjóri New York. Simamynd Reuter ari, verður fyrsti repúblikaninn til að gegna borgarstjóraembætti í New York frá 1965 en hann sigraði David Dinkins, fráfarandi borgarstjóra, naumlega. Þegar 96 prósent atkvæða höfðu verið tahn hafði Giuhani 35 þúsund atkvæða forskot. Alls greiddu 1,7 milljónir manna atkvæði. George Ahen verður fyrsti ríkis- stjóri repúblikana í Virginíu í tólf ár en hann sigraði frambjóðanda demó- krata með yfirburðum. í New Jersey sigraði Christie Whit- man Jim Fiorio, fráfarandi ríkis- stjóra úr flokki demókrata, en Fiorio hafðiveriðspáðsigri. Reuter Hundurskaut eigandaslnn Hundur skaut eiganda sinn á leið heim af veiðum nú á dögun- um eftir því sem rúmensk blöð herma. Að sögn lögreglunnar í Transil- vaníuhéraði voru atvik með þeim hætti að hundurinn fór að kljást við byssu mannsíns i aftursætinu ábíihans. Skot hljóp úr byssunni í gegn- um sætisbakið og særðist maður- in lífshættulega. Hann lést síðar á sjúkrahúsl fundin 75árum Breskir sagn- fræðingar sega að ekki fari nailli mála að stríðshetjan Edward Mick Mannock maj- or sé grafinn í ómerktri gröf í Noröur-Frakklandi. Enginn vissi um örlög Mannocks í 75 ár en hann var mesti flugkappi Breta í fyrra striðinu og skaut niður 73 þýskar flugvélar. Mannock var skotinn niður yfir Frakklandi sumarið 1918. Eftir dauða sinn var Mannock sæmdur mörgum heiðursmerkjum. Voru þau seld í fyrra fyrir jafnvirði 13 mihjóna íslenskra króna. Héltframhjá inkonu sinni „Ekkert annað en skhnaður kemur til greina. Maðurinn held- ur fram hjá mér,“ sagði 84 ára gömul kona í ísrael við Jjölmiðla eftir að upp komst um kvennafar 86 ára gamals eiginmanns henn- ar. Viðhald mannsins reyndist vera áttræð kona og fóru þau ekki leynt með ást sína hvort á öðru. Hjónin höfðu búið saman í sátt og samlyndi í 60 ár þegar karlinn fór að leita á önnur mið. Ástkon- an hafði um langt árabil verið náin vinkona þeirra hjóna. BjargaðiCIAIifí Saddamsíraks- forsetaísumar? Útlagar frá írak segja að bandaríska leyniþjónust- an, CIA, hafi neitað að styöja hóp uppreisn- armanna í hemum þegar þeir hugðust ráða Saddam Hussein af dögura í sumar. Tilræðisraenn- irnir vhdu að Bandaríkjamenn gera loftárásir á tvær herstöðvar en var neitað. Mennimir ákváöu að láta engu að síður th skarar skríða. Áður en stundin rann upp voru menn- irnir handteknir og skotnú. Rjörn drepur sauðféfyrirsex miiyónir Fjórtán bændur á Heiðmörk í Noregi hafa krafið hið opinbera um jafnvirði 6 mhljóna íslenskra króna í bætur fyrir að skógar- björn drap um hundrað kindur fyrir þeim í sumar. Samkvæmt norskum lögum á ríkið að greiöa skaða sem rándýr valda. Bjöminn er enn á fríum fæti og óttast menn að hann taki upp fyrri háttu næsta sumar. Dóttir Jean-Paul Belmondofórst íhúsbruna Patricia, fertug dóltir franska stórleikarans Jean-Paul Bel- mondo, fórst í húsbruna í latínu- hverfinu í Paris á sunnudaginn. Lögreglan segir að eldur hafi komið upp í svefnherberginu í íbúð Patridu um klukkan fimm aö nóttu. Hún var þá sofandi og lést í svefni. Jean-Paul Belmondo er einn ástsælasti leikari Frakka og lék fyrr á áram í fjölda kvikmynda. Hann á nú dóttur og son á lífi. Sendiherra- embætti Díönu aðeins „ýkt“ Talsmaður Johns Major forsætisráö- herra Breta, segir að sögur um væntanlegt embætti fár- andsendiherra Díönu prins- essu til handa séu nokkuö yktar þótt málið hafi borið á góma á fimdi þeirra í liðinní viku. Fundurinn var aö sögn aðeins í kurteisisskyni og ekkert er af- ráðið um hvort Díana verður næstu árin á ferö um heiminn fyrir þjóð sína. Vinir hennar voru bjartsýnni á framtíðarverkefni prinsessunnar en efhi stóðu til. Lög um mæling- arábjórenduðu ífroðusnakki Breskir kráaeigendur mega hafa froðu sem nemur 5% af rúm- máli i kollunum sem þeir afgreiða yfir barborðin. Fyrir siðustu kosningar lofuðu íhaldsmenn að breyta þessu á þann veg að hálfþottur skyldi mældur án froðu. Málið er nú endanlega strand í þinginu og er froðusnakki þingmanna kennt um málalokin. Sprengjaálög- reglustöðíTallin Sprengja sprakk á lögreglustöð í Tallin í Eistlandi um helgina. Nokkrir bílar eyöilögöust en eng- inn slasaöist. Borgarbúar eru nú mjög uggandi ura að hryðju- verkamenn færi sig upp á skaftiö því síöustu vikur hafa sprengjur sprungið á ýmsum stöðum í borg- inni. Þetta er í fyrsta sinn sem ráðist er gegn lögreglunni. Ekki er vitað hveijir standa aö thræðunum. Vaxandi óánægja er þó meðal almennings i landinu, einkum vegna versnandi lífs- kjara. Fuhvíst þykir að tilræðin séu af pólitískmn toga þótt engar kröfur hafi verið bornar fram. biðurAristide forseta á Haítí „Þeir finna á sér að Arfstide kemur aftur. Þeir hafa það líka á tilfinn- ingunni að hann komi til að dcyja,“ segir woodoo-galdra- maður á Haítí. Hann hefur spurt anda hinna framliðnu um frara- tíðarhorfur í stjómmálum eyjar- innar og ekki fengið uppörvandi svör. Viti andamir sínu viti bíður Aristide ekki annað en dauði og djöfull við heimkomuna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.