Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1993, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1993, Qupperneq 14
14 MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1993 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PALL STEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVlK. SlMI (91)63 27 00 FAX: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDG. 25. SlMI: (96)25013. BLAÐAM.: (96)26613. FAX: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ARVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1400 kr. m/vsk. Verð í lausasölu virka daga 140 kr. m/vsk. - Helgarblað 180 kr. m/vsk. Falskur kór Aðgerðir ríkisstjómarinnar 1 vaxtamálum hafa nú mestmegnis fengið góðar viðtökur. Þeir em fáir, sem ekki syngja þeim lof og prís. Raunar læðist fljótt að mönn- um sá grunur, að ekki sé allt með felldu með þann hal- elújakór. Meinið er, að kórinn er falskur. Stjórnarandstaðan fagnar aðgerðum ríkisstjómarinn- ar og segir, að þær hefðu átt að koma fyrr. Alþýðubanda- lagsmenn em einkum ánægðir með, að stefna markaðs- vaxta hafi orðið að víkja. Horfið hafi verið frá frjáls- hyggju í vaxtamálum, og það „vígi sé fallið“. Stjórnarand- stæðingar vildu hvort sem er, að við tækjum stór lán erlendis til að halda okkur uppi 1 samdrættinum. For- ystumenn á vinnumarkaðnum, beggja vegna borðsins, taka aðgerðunum eins og himnasendingu. Nú fari „allt af stað“. Þetta sé það, sem lengi hafi þurft að gera. Jafn- vel bankamenn þora ekki annað en að taka aðgerðunum vel. En er allt sem sýnist? í aðgerðunum felst einmitt, að tekin verða lán erlend- is, þar sem ríkið fær ekki nóg hér á landi eftir lækkun vaxtanna. Því hggur að baki þessum aðgerðum það sjón- armið, að við þurfum ekki að óttast um skuldastöðu okkar erlendis og greiðslubyrði gagnvart útlöndum. Þar skýtur því skökku við, skömmu eftir að til dæmis utan- ríkisráðherra hafði margsinnis varað sérstaklega við því, að erlendar skuldir okkar væru komnar á hættulegt stig. Það sem gerzt hefur er í reynd, að ríkisstjórnin hef- ur gefizt upp á aðhaldi. Nú er þjóðinni gefin sprauta til að fleyta sér á að minnsta kosti fram yfir sveitarstjórnar- kosningar og kannski eitthvað lengur. Til þess er tekin mikil áhætta. Þjóðhagsstofnun hafði spáð, að við ættum enn eftir erfitt samdráttarár, 1994. Nú er ætlunin að fleyta sér fram yfir það, hvað sem.það kostar. Það er kosninga- lykt af þessu máli. Þetta er slæm stefna. Það er einfaldlega röng kenning, að skuldastaða þjóðarinnar sé allt í einu orðin „ásættan- leg“. Þorvaldur Gylfason prófessor er einn þeirra, sem var- ar við þessari nýju stefnu ríkisstjómarinnar. Hann segir í viðtah við DV í gær, að ekki sé hyggilegt að lækka vexti með því að taka erlend lán og auka þannig peningamagn í umferð. Þessi ákvörðun sé íghdi peningaprentunar hér heima fyrir. Erlendar skuldir aukast og greiðslubyrðin þyngist, jafnvel þótt þjóðin sé komin út á yztu nöf í þeim efnum. Aukið peningamagn í umferð kunni einnig að stofna stöðugleikanum í þjóðarbúinu í hættu. Ríkisstjómin fari þessa leið í stað þess að ráðast í nauðsynlegar og löngu tímabærar skipulagsbreytingar í sjávarútvegi, landbúnaði og bankakerfmu. Þetta viður- kenni stjómvöld og við það aukist hættan á að iha fari. Skuldir þjóðarinnar nálgast að verða 68 prósent af framleiðslunni í landinu á næsta ári. Greiðslubyrði vaxta og afborgana af erlendum lánum verður um 37 prósent af öllum tekjum okkar af útflutningi. Þar erum við kom- in að hættumörkum. Stjómvöld hunza þessa stöðu og fara þá leið að auka enn á erlendu skuldirnar. Við riálgumst því hengiflugið eftir síðustu aðgerðir stjómarinnar. En Þorvaldur Gylfason segist þó eiga von á því, að „stjómvöld eða almenningur grípi í taumana, áður en við förum fram af hengifluginu“. Þessi uppgjöf ríkisstjómarinnar kom flestum á óvart. í bih reyna menn að una glaðir við sitt og telja sér trú um, að ríkisstjómin viti hvað hún gerir. í rauninni veit stjómin það ekki. Haukur Helgason Gildi stöðug- leikans Nú er að líða vel fram á sjötta árið af sjö mögrum árum í efna- hagssögu okkar. Við horfum fram á 22% lækkun kaupmáttar ráðstöf- unartekna á mann á árunum 1987- 1994 og 6% fækkun starfa í atvinnu- lífinu. Að vísu má segja að árið 1987 hafi verið algjört toppár og ekki eðlileg viðmiðun en engu að síður hefur tíminn síðan þá verið lengsti erfiðleikakafli í efnahags- sögu lýðveldisins. Miklar tiltektir Þessi langi erfiðleikatími hefur líka verið tími mikilla tiltekta í ís- lensku efnahagslífi sem skilar sér í mun sterkara atvinnulífi þegar ytri skilyrði fara að snúast okkur í hag. Verðbólgan er nú smáræði miðað við það sem áður var. Við- skiptahallinn hefur náöst verulega niður þannig að erlendar skuldir vaxa ekki að raungildi og innra jafnvægi milli atvinnugreina og landsvæða er betra en áður. Skatt- kerfið hefur verið fært í nútíma- horf. Samkeppnislög hafa tekið við af lögum um verðlagshöft og sam- keppni hefur stóraukist á flestum sviðum atvinnulífsins. Miklar umbætur hafa verið gerð- ar á fj ármagnsmarkaði með já- kvæðum raunvöxtum og pólitísk stýring á fjármagni er nánast horf- in. Gjaldeyrisviðskipti eru að verða frjáls og krónan er skráð á mark- aði. Við höfum gengið í EES sem færir okkur mikilvæg réttindi á stærsta markaði heimsins. Sóknarhugur Með lítilli verðbólgu eykst verð- skyn og meira verður úr peningun- um. Rekstur bæði heimila og fyrir- tækja verður markvissari. Þegar utanríkisviöskiptin eru svo nálægt KjaUarinn Vilhjálmur Egilsson alþingismaður, framkvæmda- stjóri Verslunarráðs íslands jafnvægi sem nú fær sjávarútveg- urinn aukið svigrúm. Bæði er raungengi krónunnar lágt en ekki hefur síður þýðingu að mun betur gengur að hagræða og ná niður kostnaði við aðfóng. Jafnvægi út á við gerir atvinnugreinarnar líka jafnt settar inn á við. Mikið er um nýsköpun í atvinnulífinu og ekki síst í útflutningsgreinum. í sjávar- útvegi er mikill sóknarhugur í mörgum fyrirtækjum þrátt fyrir samdrátt i þorskveiðum. Menn sækja nú hver af öðrum út úr landhelginni og gera meiri verðmæti úr því sjávarfangi sem er að hafa við strendur landsins. Þetta sést vel, t.d. á nýjum tölum um eftirspurn eftir starfsfólki þar sem fyrirtæki í fiskvinnslu búast við að fjölga starfsfólki. Stöðugleik- inn og jafnvægið hafa leitt til þess að fólk er nú farið að leita aftur út á land þar sem atvinnuástand er víða vel þokkalegt. Fjárfest í innri vinnu Atvinnulífið hefur verið á fleygi- ferð að búa í haginn fyrir framtíð- ina. Þótt íjárfestingar í byggingum, vélum og tækjum hafi dregist sam- an er mikið um ósýnilegar fjárfest- ingar í bættum vinnubrögðum, innri skipulagningu, markaðssetn- ingu og leit að nýjum möguleikum. Allt þetta er fyrst og fremst spurning um vinnu og í íslenskum fyrirtækjum er mikið lagt á sig þessa dagana til þess að auka sam- keppnishæfni þeirra. Vissulega hafa gjaldþrotin og rekstrarerfið- leikarnir tekið sinn toll. En stöðug- leikinn og jafnvægiö munu skila sér í fleiri störfum, hærri launum og betri lífskjörum. Vilhjálmur Egilsson „Stöðugleikinn og jafnvægið hafa leitt til þess að fólk er nú farið að leita aftur út á land þar sem atvinnuástand er víða vel þokkalegt.“ Skoðanir annarra Útgefendur til f yrirmyndar „Það er fátt, ef nokkuö, mikilvægara fyrir at- vinnulífið, heimilin og þjóðarbúskapinn en að halda þeim stöðugleika í efnahagslífi og verðlagi sem unn- izt hefur og sýnir sig í minni verðbólgu hér en í helztu viðskiptalöndum okkar síðustu misserin. ... Það er því af hinu góöa þegar áhrifaaðilar á verðlag í landinu taka ákvarðanir af þeim toga sem þorri bókaútgefenda hefur nú gert. ... Fólkið í landinu þarf að láta bókina njótaþessarar jákvæöu afstöðu." Ur forystugrein Mbl. 31. okt. Réttindi og skyldur milliríkjasamninga „Nú er ekki rifist um skinku eða kalkúna, heldur meðlætið, grænmetið.... Þegar þjóðir gera með sér milliríkjasamninga öölast samningsaðilar tiltekin réttindi og takast einnig á hendur skyldur. Með EES-samningnum fengu Islendingar umtalsverð toll- fríðindi á mikilvægustu útflutningsvöru þjóðarinn- ar, sjávarafurðum. Ýmsir aðrir möguleikar opnast fyrir atvinnufyrirtæki og almenning, en á móti verð- ur samkeppnin harðari en verið hefur.“ Úr forystugrein Tímans 2. nóv. Forsendur erlendrar lántöku „Forsendur fyrir því að ríkissjóður getur nú í auknum mæli leitað á erlendan lánamarkað eru annars vegar að ríkissjóðshallinn vaxi ekki umfram það sem áformað er í fyrirliggjandi fjárlagafrum- varpi og hins vegar aö stöðugleiki haldist í efna- hags- og atvinnulifi landsmanna. Almenn vaxta- lækkun i kjölfar ákvörðunar ríkisstjórnarinnar skapar skilyrði fyrir atvinnufyrirtækin til að fjár- festa á nýjan leik og leggja þannig grunn að hag- vexti. Bankar og lífeyrissjóðir þurfa að sjálfsögðu að fylgja vaxtalækkuninni eftir.“ Friðrik Sophusson fjármálaráðherra í Mbl. 2. nóv.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.