Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1993, Side 5
LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 1993
5
!
!
dv Fréttir
Fjármálaráðuneytiö:
Mótmælir
fullyrðingum
um lélega
innheimtu
skatta
Fjármálaráöuneytið hefur sent frá
sér mótmæli gegn þeirri fullyrðingu
talsmanna ASÍ að virðisaukaskatts-
kerfið sé að hruni komið vegna lé-
legrar innheimtu og skattskila.
Sömuleiðis er mótmælt órökstudd-
um fullyrðingum um að innheimta
álagðra gjalda sé illa stödd.
Segir ráðuneytiö aö talsmenn ASÍ
hafi látið skýrslu Ríkisendurskoðun-
ar og svokallaöa skattsvikaskýrslu
leiða sig til fljótfærnislegra ályktana
og órökstudds áfellisdóms yfir virðis-
aukaskattskerfinu. Þar sé blandað
saman innheimtu álagðra gjalda
annars vegar og skilvirkní virðis-
aukaskattsins hins vegar. Bent er á
að afskriftir virðisaukaskatts séu
ekki nema 1,4 prósent af álagningu á
móti 3,6 prósentum í öllum öðrum
sköttum samtais.
Síðan er þetta rakið með töludæm-
um. í niðurstöðu fjármálaráðuneyt-
isins segir svo orðrétt.
„Fjármálaráöuneytið deilir áhyggj-
um með þeim sem líta skattsvik og
skattaundanskot alvarlegum augum.
Slíkar áhyggjur mega þó ekki verða
til þess að snúist sé gegn bestu og
skilvirkustu þáttum skattkerfisins
með órökstuddum fullyrðingum ðg
rýrö kastað á verk sem vel eru unn-
in ...“ -S.dór
Verðbréfaþing:
Lífleg við-
skipti með
hlutabréf
Það sem af er nóvembermánuði
hafa hlutabréfaviðskipti á Verð-
bréfaþingi íslands numið um 60
milljónum króna. Það eru nánast
helmingi meiri viðskipti en i öllum
októbermánuði. Síðustu daga hefur
gengi hlutabréfa stórra fyrirtækja
hækkað ört. Sem dæmi má nefna
hlutabréf Eimskips. Fyrir tveimur
vikum var gengi bréfanna 4,10 en
eftir gærdaginn var gengið komið i
4,38.
Einstaklega lifleg viðskipti hafa
farið fram á Verðbréfaþingi að und-
anförnu og var gærdagurinn engin
undantekning. Þegar markaðinum
var lokað síðdegis höföu átt sér stað
verðbréfaviðskipti fyrir um 630 millj-
ónir króna.
Þar af námu viðskipti með ríkis-
víxla 343 milljónum króna og spari-
skírteini fyrir 205 milljónir. Viðskipti
með húsbréf námu 28 milljónum og
24 milljónir með ríkisbréf. Hluta-
bréfaviðskiptin námu 18 milijónum
króna sem þykir mjög mikið á einum
degi. Ávöxtunarkrafa spariskírteina
hækkaði örlítið frá deginum áður.
Vegin meðalávöxtun var 5,24% en
lægstaávöxtun4,93%. -bjb
Nauðgunar-
og ránsmálin
eru óupplýst
Lítið hefur miðað við rannsókn
nauðgunarmálsins í Kópavogi þar
sem 16 ára stúlka kærði mann fyrir
að hafa komið fram vilja sínum við
hana nauöuga við gám í iönaðar-
hverfi. Sömu sögu er að segja af ráni
í sölutumi í Tindaseli og ránstilraun
við Njálsgötu í Reykjavík um síðustu
helgi. Að sögn yflrlögregluþjóns hjá
RLR hefur mikil vinna verið lögö í
að freista þess að upplýsa þessi mál.
-Ótt
Macintosh LCIII er sérlega hentug tölva hvort
heldur er íyrir heimili, skóla eða fyrirtæki.
Hún er álíka öflug og Macintosh Ilci-tölvan
var, en veröiö á sér engan líka.
Hún er meö 4 Mb vinnsluminni, 80 Mb harö-
disk, Apple SuperDrive-diskadrifi, sem getur
einnig lesið og skrifað á diska með MS-DOS,
OS/2 og ProDOS-sniði. Nettenging er inn-
byggð og þannig má tengja hana við aðrar
tölvur og á þann hátt samnýtt skanna og
prentara, senda tölvupóst og vinna í sam-
eiginlegum gögnum.
Svo er stýrikerfi Macintosh-tölvanna
auðvitað allt á íslensku.
Samanburður á vinnslugetu:
Macintosh Classic
Macintosh Colour Classic
Macintosh LC
Macintosh LCII
Maeintosh LCIli
Macintosh Ild
Áætlaðar mánaðargreiðslur:
Euro-raðgreiðslur: Engin útborgun og
11.044, - kr. á mán. í 11 mánuði
Visa-raðgreiðslur: Engin útborgun og u.p.b.
6.910,- á mán. í 18 mánuði
Munalán: 26.855,- kr. útborgun og
3.707,- kr. á mán. í 30 mánuöi
Verð aðeins 107.419,- kr. eða
Umboðsmenn:
Haftækni, Akureyri
Póllinn, ísafirði
Apple-umboðið
Skipholti 21, sími: (91) 624800
Með hagstæðum samningum og sameiginlegum innkaupum Apple á
Norðurlöndunum tókst okkur að útvega um 100 stk. af Macintosh LCDI á þessu
ótrúlega verði. Við byrjum að selja úr þessar sendingu mánudaginn
15. nóvember, en tölvurnar eru væntanlegar til landsins viku síðar.