Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1993, Blaðsíða 9
LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 1993
9
Menning
Bókmenntir
Gísli Sigurðsson
Dagamunur
allra alda
Árni Björnsson hefur sent frá sér
stórvirkið Sögu daganna sem sam-
einar litlu nöfnu sína frá ’77, bækur
um jól og þorrablót frá ’63 og ’86
og Hræranlegar hátíðir frá ’87 auk
nokkurra ritgerða. Þjóðin hefur
tekið fræðum Árna opnum örmum
enda bækumar stórskemmtilega
skrifaðar um efni sem fólki er kært.
Við það sem fyrir lá hefur verið
aukið fjölmörgum nýjum köílum,
dregið að myndefni og hvergi til
sparað í vönduðum frágangi þann-
ig að Saga daganna hin meiri hefur
sjálfstætt gildi umfram fyrri bæk-
ur.
í inngangi er gerð almenn grein
fyrir rannsókninni, tímatcdi og
flokkun merkisdaga. Síðan er farið
frá hinum séríslenska fyrsta sum-
ardegi eftir dagatalinu til páska
tæpu ári síðar, og skrifað um merk-
isdaga sem eiga sér sögu á íslandi.
Hér standa hlið við hlið messudag-
ar miðaldardýrlinga, dagar sem
rekja má til heiðni, eins og eld-
bjargarmessa, og sjómannadagur-
inn. Víða er leitað fanga í fornrit-
um, heimildum síðari alda og hinu
ómetanlega safni sem Árni hefur
átt stóran þátt í að byggja upp:
svörum við spurningaskrám Þjóð-
minjasafns. Þannig kynnumst við
hverjum degi á ólíkum skeiðum
íslenskrar menningarsögu. Þetta
kemur vitaskuld ekki að sök þegar
flett er upp í Sögu daganna til að
fræðast um hvernig fyrri tíðar
menn hafl gert sér dagamun á til-
byggi á aldagamalli hefð til að Árni Björnsson
hljóta þegnrétt í íslenskri menn- Saga daganna (829 bls.)
ÍnSU. Mál °9 rnenning 1993
Ami Björnsson.
H E I M ILISLÍNA BÚNAÐARBANKANS
„Frá og með deginum
í dag hefég ekki áhyggjur
af fármálunum “
teknum degi. En þegar bókin er
lesin frá upphafi til enda verður
ögn einkennilegt að renna sér hvað
eftir annað í gegnum ólík menning-
arskeið sem eiga þaö eitt sameigin-
legt að hafa verið á íslandi.
Okkur er gjarnt að hugsa um ís-
lenska menningu í samfellu frá
landnámstíð til vorra daga og höld-
um þá að bændasamfélag 19. aldár
varpi ljósi á landnámsöld. En hér
hafa orðið kollsteypur og gömlum
siðum verið varpað fyrir róða. Því
hefði verið gagnlegt að segja les-
endum frá hátíða- og merkisdagat-
alinu t.d. í heiðni, eftir kristnitöku
á 13. og 14. öld og svo eftir siða-
skipti. Eða velta upp áhrifum sjálf-
stæðisbaráttunnar á hátíðahald og
athuga hvernig við gerum okkur
dagamun í borgum og bæjum eftir
stríð. Hægt er að fá hugmynd um
þetta með eigin lestri en þó hefði
verið gagn að matreiðslu þessara
ályktana. Víða er t.d. vísað til þess
að venjur eigi sér hliöstæðu á Bret-
landseyjum, eða hafi borist frá
meginlandinu og þá má spyrja
hvað siðir daganna geti sagt um
menningarsamskipti þeirra sem
hér hafa búið við fólk í öðrum lönd-
um. Þá er dögunum ekki alltaf fylgt
eftir inn í samtímann heldur skfiið
við þá í bændasamfélaginu og það
atferli jafnvel litið hornauga sem
ekki á sér langa forsögu með þjóð-
inni. Þar örlar á því viðhorfi að
sukk og svínarí forfeðranna á
Jörfagleði sé þjóðlegt og gott en
sams konar athæfi unglinga á úti-
hátíðum vorra daga sé heldur
skammarlegt!
Saga daganna er sjálfsögð hand-
bók við hlið íslenskrar orðabókar
og nauðsynlegt hjálpartæki þeim
sem vfija tengja menningu okkar
við það skapandi mannlíf sem hér
hefur þrifist í 1100 ár. En við þá
tengingu verðum við að gæta þess
að leyfa nýjum blómum að spretta
og gera ekki þá kröfu að hvaðeina
RAÐGJÓf 0G AÆTLANAGERÐ
cnmnno
VERÐBREFAMONUSTA
VERÐBRÉFAVARSLA
FJARMÖGNUNARLEIÐIR
FJARMALANAMSKEIÐ
T»F
HEIMILISLÍNAN
- Heildaiiausn á fjármálum
einstaklinga.
HEIMILISLÍNANJAFNAR ÚTSVEIFLUR OG
MYNDAR STÖÐUGLEIKA íFJÁRMÁLUM
EINSTAKLINGA OG HEIMILA.
Heimilislína Búnaðarbankans er fyrsta þjónusta sinnar tegundar
hér á landi. Þetta er alhliða fjármálaþjónusta, sniðin að þörfum
einstaklinga sem vilja háfa góða yfirsýn yfir fjármál sín, skipuleggja
þau, setja sér markmið og tryggja sér þannig fjárhagslegt öryggi.
ÞJÓNUSTA HEIMILISLÍNU SKIPTISTÍ TVÖ MEGINSVIÐ:
Greiðsluþjónustan annast útgjöldin; þú átt kost á að dreifa
útgjöldum ársins á 12 jafnar mánaðarlegar greiðslur.
Allir reikningar eru því greiddir á réttum tíma.
Spariþjónustan sér um allt það sem
tengist ávöxtun fjármuna. Að auki felur
Heimilislínan í sér margvíslegt annað hagræði
sem auðveldar skipulag, festu ogyfirsýn.
INNGÖNGUTILBOÐ
Félagar fá handhœga skipulagsbók
og möppu fyrirfyármál heimilisins.
Auk þess eru fyármálanámskeiðin á
sérstöku verSifyrir félaga.
BÚNAÐARBANKI
ÍSLANDS