Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1993, Blaðsíða 47
LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 1993
55
Fréttir
Sending frá New York City Ballet:
Fjaðrir í Svana-
vatnið sátu
f astar í tollinum
- iimflutmngurþeirraháðurleyfiyfirdýralækms
„Þaö er erfitt aö fá svansfjaðrir á
íslandi og því urðum viö að leita á
náöir New York ballettsins um hjálp.
Þar brugðust menn íljótt og vel viö
og sendu okkur svansfjaðrir úr bún-
ingageymslu sinni í hraðpósti. En
fjaðrirnar voru stoppaðar í tollinum
og við fengum þær ekki fyrr en eftir
japl, jaml og fuður. Þetta var hið
furðulegasta mál en fór betur en á
horfðist," sagði Salvör Nordal, fram-
kvæmdastjóri íslenska dansflokks-
ins, í samtali við DV.
Á hátíðarsýningu íslenska dans-
flokksins 1. desember mun María
Gisladóttir ballettdansari dansa atr-
iöi úr Svanavatninu. Þegar til átti að
taka vantaði fjaðrir í höfuðfat sem
hún á að bera og var því leitað til
New York City Ballet um hjálp. Það-
an komu síðan 100 svansfjaðrir með
hraðpósti á miðvikudag.
í Flugfrakt var innflutningur fjaðr-
anna stöðvaður. Var hann talinn
brjóta í bága við lög frá 1928 um vam-
ir gegn því að gin- og klaufaveiki og
aðrir alidýrasjúkdómar berist til
landsins. Þar segir að innflutningur
á notuðum fatnaði, fiðri, fjöðrum,
dún og fleiru sé bannaður en at-
vinnumálaráðherra geti „veitt und-
anþágu frá innflutningsbanni á vör-
um þessum í einstökum tilfellum".
Þegar málið var kannað í gær var
yfirdýralæknir ekki á skrifstofunni
né væntanlegur og því útlit fyrir að
fjaðrirnar fengjust ekki fyrir helgi.
Hins vegar virtist skriður hafa kom-
ist á málið eftir að DV fór að forvitn-
ast um fjaðrirnar í „kerfinu". Síðdeg-
is í gær var komið með þær á skrif-
stofu dansflokksins, öllum á óvörum
og án vitundar þeirra sem DV ræddi
við hjá flutningafyrirtæki sem átti
að annast sendinguna.
„Fjaðrirnar hafa verið notaðar af
ballerínum í New York og því fárán-
legt að stöðva þetta. Við þurfum að
útbúa höfuðskraut fyrir Maríu og lá
því á fjöðrunum," sagði Salvör.
-hlh
Heildsali í Hafnarfiröi:
Mats Wiebe Lund Ijósmyndari gaf i gaer Aðalsteini Guðmundssyni frá Lauga-
bóli í Mosdal í Arnarfirði loftmynd af Laugabóli. Aðalsteinn býr nú hjá bróð-
ur sinum í Reykjavík. Hann yfirgaf Laugból í seinasta mánuði eftir að yfir-
völd tóku skepnurnar af honum en seinasta vetur fauk þak af hlöðu á Lauga-
bóli og íbúðarhús Aðalsteins brann og þótti því húsakostur ekki við hæfi
til skepnuhalds þar. pp/DV-mynd BG
Stöðvaður í tollinum
í fyrsta sinn í 25 ár
- með 20 heilsuvörur úr soyabaunum
Eigandi heildsölunnar Faxafells í
Hafnarfirði, Sigurður Herlufsen, ætl-
aöi að sækja heilsuvörur úr tolli á
fimmtudag en fékk þau svör að búið
væri að stöðva innflutninginn. Inn-
flutningurinn var stöðvaður þar sem
hátt í 20 vörutegundir voru í einum
tollflokki þeirra landbúnaðarvara
sem bannað er að flytja inn nema
með samþykki Framleiðsluráðs,
samkvæmt nýrri reglugerð landbún-
aðarráðuneytisins frá í lok septemb-
er sl. Umræddar vörur voru einkum
niðursoðnar og frystar matvörur
unnar úr soyabaunum og öðru græn-
meti.
Framleiðsluráð tók þetta mál til
umfjöllunar á fundi sínum i gær.
Áður en fundurinn hófst sagði Gísli
Karlsson, framkvæmdastjóri ráðs-
ins, í samtali við DV að innflutning-
urinn yrði að öllum líkindum leyfður
og heildsalinn þyrfti ekki að lenda í
þessum aðstæðum aftur.
Sigurður Herlufsen hjá Faxafelli
sagði við DV aö hann hefði orðið
hvumsa þegar hann kom á skrifstofu
tollstjóra í Hafnarfirði. „Þetta hefur
ekki gerst í þau 25 ár sem ég hef flutt
inn þessar vörur. Mér finnst eins og
maður sé kominn 50 ár aftur í tím-
ann. Þetta er eins og á haftatímanum.
Það virðist vera búið að vekja upp
þann draug,“ sagði Sigurður.
í staðinn fyrir að Fcixafell heföi
getaö komið þessum vörum í sölu á
fimmtudag mun það sennilega tefjast
framyfirhelgi. -bjb
CORSA frá kr. 899.000.-
SíNIIM NfJDSTD OPEL BlLANA
á Akdbeíri, I Keflavik og Reykjavik,
LADGARDAG OG SONNDDAG KL. 14-17.
Frumsýnum á Akureyri hjá okkar nýja umboðsmanni, Bifreiðaverkstæði Sigurð
Valdimarssonar, Óseyri 5a. Okkar menn verða á staðnum og meta gömlu bílar
uppí nýja fallega Opel bíla. Þetta verður dúndursýning.
í Keflavík á BG bilasölunni I Bílakringlunni frumsýnum við Opel flotann, þýska
gæðavagna á verði sem hefur aldrei verið jafnhagstætt. Gömlu bílarnir verða
metnir af okkar mönnum og dæmið klárað á staðnum.
í Reykjavík verðum við á okkar stað að Fosshálsi 1. Opel bílar eru
vinsælustu bílar í Evrópu og nú er komið að íslandi. Gerið verðsamanburð, og
þegar bestu verðin liggja á borðinu, gerið þá gæðasamanburð.
Það er Ijóst að framleiðendur Opel ætla sér stóra hluti hér.
Verðin eru betri en nokkru sinni fyrr, en gæðin bera þó höfuð og herðar yfir ...
OPEL - ÖÐRUM TIL FYRIRMYNDAR
BÍLHEIMAR
Fosshálsi 1, Reykjavík
Sími 634000