Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1993, Síða 19
LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 1993
19
Fyrrum flotastöð Bandaríkjahers í Holy Loch í Skotlandi:
íbúðum breytt í orlofshús og
bærinn 1 miklum blóma
- segir Skarphéðinn Einarsson sem var þar á ferð
„Menn héldu aö Dunoon yröi svefn-
bær en raunin hefur orðið önnur því
Dunoon er í uppgangi frekar en hitt.
Bæjaryfirvöld hafa með hjálp hins
opinbera náð að koma öllum mann-
virkjum þarna í fulla starfsemi aftur
og það blasir við að bærinn verði
blómlegur ferðamannabær," segir
Skarphéðinn Hinrik Einarsson, sem
á að baki 25 ára starfsferil á Keflavík-
urflugvelli en hann heimsótti Duno-
on í annað sinn fyrir stuttu. „Þau sár
sem brotthvarf herstöðvarinnar
skildi eftir sig eru gróin. Framtakss-
amir og hugmyndaríkir menn hafa
séð til þess.“
í fyrravor birti DV grein þar sem
sagt var frá lokun flotastöðvar
bandaríska hersins í Holy Loch í
Skotlandi og þau áhrif sem lokunin
hafði á atvinnulíf staðarins. í grein-
inni sagði hann frá slæmu atvinnu-
ástandi sem fylgdi í kjölfar lokunar-
innar og hversu mikið áfall þetta var
fyrir allt svæðið í kringum herstöð-
ina en stöðin var svipuð að stærð og
herstöðin á Keflavíkurflugvelli. Lok-
unin hafði sérstaklega slæm áhrif á
Dunoon sem er 7 þúsund manna
bær. Þar höfðu 2.000 manns, sem
höfðu lifað beint og óbeint af veru
hersins, misst vinnu.
Skarphéðinn átti erindi til Bret-
lands fyrir stuttu og ákvað að
skreppa til Skotlands í leiðinni til að
kanna hvernig ástandið væri nú í
Dunoon, tæplega einu og hálfu ári
eftir brottflutning herstöðvarinnar.
Skarphéðinn sagði að þar hefðu
veriö hinar ýmsu tómstundamið-
stöðvar, veitingastaðir, stórt íþrótta-
hús, klúbbar og verslanir. Hann seg-
ir Skota hafa gert þær kröfur til
Bandaríkjamanna þegar þeir fóru að
þeir skildu sem mest eftir og að
helstu byggingarnar væru skildar
eftir í þannig ástandi að auðvelt væri
að koma starfseminni í gang aftur. í
verslunum voru t.d. hillur, kælar og
öll áhöld skilin eftir. Þá keyptu við-
komandi aðilar það af hernum og
héldu starfseminni áfram.
„Þarna voru einnig um 500 íbúðir
sem Bandaríkjamenn höfðu byggt og
húsin hafa nú öll verið seld almenn-
ingi og helmingur þeirra þá sem or-
lofshús." Skarphéðinn fékk þær upp-
lýsingar að hver íbúð hefði verið seld
á um 6,5 milljónir króna. Fólk frá
Englandi væri sérstaklega hrifið af
að setjast að í Dunoon sem þykir
mjög fallegur og skemmtilegur bær.
Skarphéðinn sagði Skota einnig
hafa sett fram þær kröfur við Banda-
ríkjamenn að þeir skildu við staðinn
eins og hann hafði verið þegar þeir
fengu hann í hendurnar. „Banda-
ríkjamenn sendu sérstaka deild frá
flotanum til að hreinsa og slæða
fjörðinn - hreinsa þurt alls kyns
kapla og pípur sem þeir höfðu komið
upp á meðan þeir dvöldu þama. Þetta
hefur sem sagt allt verið hreinsað og
nú er hægt að bjóða upp á snjósleða-
ferðir, sighngar og annað.
íslensk stjómvöld þurfa
að hugsa sinn gang
Skarphéðinn segir það verðugt
verkefni fyrir umhverfisráðherra að
sjá til þess að íslendingar láti við-
skilnað hersins hér á landi verða
betri en hann hefur verið. „Ég hall-
mæli ekki Bandaríkjamönnum sem
slíkum því það eru íslensk stjórnvöld
sem hafa verið sofandi í þessum efn-
um. Þaö má sjá á Vogastapa við
Reykjanesbrautina stórt og mikið
þaklaust hús úr steini sem blasir viö
öllum sem þar eiga leið um. Húsið,
sem var notað af hernum, var lagt
niður árið 1959 og þeim hefur ekki
verið skipað að rífa það eða hreinsa
upp eftir sig. Við Þórshöfn á Langa-
nesi er gömul herstöð sem er eins
og eftir loftárás og í Aðalvík við Vest-
firöi er önnur gömul herstöð sem er
mjög ljót sjón. Það er t.d. verðugt
verkefni fyrir íslenska ríkið að fela
Aðalverktökum að hreinsa þessi
svæði.“
Skarphéðinn segir eftirlit með
mengun af völdum hersins einnig
ábótvant hér á landi og aö lengi vel
hafi t.d. verið opnir sorphaugar á
vellinum þar sem rafgeymum, olíu-
tunnum og fleira drasli hafi verið
fleygt og það urðað. „Ég tók sjálfur
þátt í að grafa þetta og ég er hræddur
um að komandi kynslóðir eigi eftir
að súpa seyðið af mikilli mengun sem
íslensk stjórnvöld hafa verið sofandi fyrir því sem hefur verið að gerast á
Keflavikurflugvelli, segir Skarphéðinn Hinrik Einarsson sem á að baki 25
ára starfsferil á Keflavikurflugvelli. DV-mynd Brynjar Gauti
þarna er. Ég hef trú á að þarna sé
gifurleg kvikasilfurs- og olíumeng-
un.“
Mikil óvissa um
framtíð Suðumesjamanna
Að undanförnu hefur mikið verið
rætt um framtíð Suðurnesjamanna
ef til þess kæmi að herstöðin á Kefla-
víkurflugvelli yrði lögð niður eða
umsvif hennar minnkuð til muna. Á
vellinum eru t.d. um tólf hundruð
íbúðir sem eru í eigu Bandaríkja-
manna og það hafa komið fram ýms-
ar hugmyndir um hvað væri hægt
að gera við þessi mannvirki ef
Bandaríkjamenn fara héðan. „Vissu-
lega má nýta mannvirki á Keflavík-
urflugvelli," segir Skarphéðinn. „Það
má t.d. setja upp léttan iðnað og
reyna að fá erlend fyrirtæki hingað
sem myndu vilja nýta þessar bygg-
ingar.“
Skarphéðinn segir íslendinga
sækja það stíft að ástandið á Kefla-
víkurflugvelli verði óbreytt en
heimsmálin kalli á breytingu og því
sé það óhjákvæmilegt að Keflavíkur-
stöðin veröi fyrir niðurskurði. „Það
blasir auðvitað við gifurlegt atvinnu-
leysi hjá Suðurnesjamönnum ef her-
stöðin verður lögð niður en meðan
aðrar þjóðir taka á þessu af dugnaði,
eins og t.d. Skotar, þá er ekkert gert
hér á landi.“
-KMH
HANKOOK
mARDBM
á lága verðinu
Frábær vetrardekk - Einstakt verð
145R12
155R12
135R13
145R13
155R13
165R13
175/70R13
185/70R13
175R14
lorn stgr. Verðsýnishorn stgr.
KR.3540 KR.3186 185R14 KR.5680 KR.5112
KR. 3770 KR.3393 175/70R14 KR.5100 KR.4590
KR.3540 KR.3186 185/70R14 KR. 5440 KR.4896
KR.3660 KR.3294 195/70R14 KR. 6280 KR.5652
KR.3980 KR.3582 205/75R14 KR.7580 KR.6822
KR.4100 KR.3690 175/65R14 KR.5550 KR.4995
KR.4440 KR. 3990 185/60R14 KR.5980 KR. 5382
KR.4880 KR.4392 165R15 KR.4770 KR.4293
KR.4980 KR.4482 185/65R15 KR. 6420 KR.5778
Barðinn hf.
Skútuvogi 2 - simi 683080
Sendum gegn póstkröfu.
ikROkKUR flf PflttTA
FLOkki LAIDBAkJÓTI.
nflTTÚRUUGA 60TT
- í níCíTU voKum