Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1993, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1993
7
dv Sandkom
Dæmt á likum
Ðauðtnnhef-
ursinargrát-
brosiegi! híiðar
dnsogannaði
þcssumhcimi
Frægerorðin
: drila Likkistu-
vinnustpfuEy-
vindarÁrna-
sonarog
Kirkjugarða
Rtíykjavíkur.
Málernuna
höiðaðfyrir
héraðsdómi gegn Kirkjugörðunum
og sagan segir af verjanda Likkistu-
vinnustofUnnar. Hann var fengínn til
að haidatöiu á fundi Orators með
laganemum í Háskólanuro um fj öl-
miðla og fréttaflutning þeirra af saka-
málum. Hann kom aðeins inn á um-
rætt dómsmál og sagði að h vernig
sem niðurstaða dómarans yrði þá
myndi málið sennilega verða dæmtá
líkum.
Kínaförin
Ailirmuna
eftirlátunumí
kringumkjötiö
semBryndis
Schramkom
meö til lands-
ins, sem síðan
komíijósað
varíeiguvin-
konuhennar,
BrynjuBene-
diktsdóttur.
Þegarnokkuð
varumhðið
vildi svo til að þær vinkonur fóru
saraan í menningarreisu til Kina i
nokkra daga. Gárungar höföu á orði
að fróðlegt yröi að fylgjast með heim-
komu þeirra í ijósi fyrri atburða.
Hagyrðingar höfðu einnig skoðun á
málinu og meðal þeirra var Jón
Kristjánsson, framsóknarþingmaður
og fyrrum ritstjóri Tímans. Jón kom
með eftirfarandi iimru:
Þær komu úr reisu frá Kína,
þá kannske fer sólin að skína,
hvaðáfhennxhlýst
erailsekkivist
- en nú passa þær pakkana sína.
Skotfrá KK
Kristján
Kristjánsson,
KK.ermeðal :
þeiirasem
sendafrásér
getsladískfyrir
þessijóloger
sjálfur útgef-
andi.Eiitiagaf
:■ diskinum iteí'ur
vakiðathygli.
þ.e. textinnvið
Búmmsjagga.
Fróðirmenn
hafa komist að því að i textanum sé
KK að skjóta á óncfhda plötuútgef-
endur sem hann átti viöskipö viö, þar
sem vandræði með STEF-gjöld komu
m.a. upp. Sagan segir að sömu plötu-
utgefendur séu ævareiðir og hyggi á
hefndir. Menn geta spurt sig hvað
KK sé aðfara en textinn i Búmm-
sjagga er m.a. svona:
SvogetégvaHðúrallskonar lögum,
það er segja ef alltfer að vonum,
ég hef engar áhyggjur af því,
ég bauð þeim réttu á fyllirí,
stofna fyrirtækikalla það skref
og til að spara égborga ekkert STEF,
tökura lagiö syngið með.
Góður viðbömin
Sagansegir
fwlækniein-
umsemfórí
húsvitjuni
Ueykjavík
Husritjaniraf
þessutagi geta
otlvmðhinar
skringilegustu
oglæknarlent
í aiVt.rðum þar
semþeirhrein-
lcga vcröaorð-
iausir.Viökom-
andi læknir fór að skoða húsbónda
eínn sem lá fárveikur í hjónarúminu.
Eftir að hafa skoðað bónda talaði
iæknirinn við eiginkonuna um líðan
sjúklingsins og sagöi: „Maðurinn
þinn iiturheldur illaút." Þá sagði
eiginkonan, án þess að stökkva bros:
„Það finnstmér llka, en hann er góð-
urviðbornin."
Umsjón:
Bjöm Jóhann Bjömsson
Fréttir
Sjávarútvegsfrumvörpin:
Bíðafram
ánæstaár
- ekkert samkomulag í augsýn
Enn hefur ekkert samkomulag
náðst í þingflokkum stjórnarflokk-
anna um sjávarútvegsfrumvörpin
tvö. Annað um þróunarsjóðinn og
hitt um krókabátana. Nú er taliö full-
víst aö þau verði ekki lögð fram fyrir
áramót.
Matthías Bjamason sagðist ekki
geta fullyrt um hvort þau yrðu lögð
fram fyrir jólafrí þingmanna en sagð-
ist teija það ólíklegt, nánast útilokað.
„En frumvörp um þessi mál munu
verða lögð fram á þessu þingi, með
hvaða hætti sem það veröur gert,“
sagði Matthías við DV.
Til hefur staðið í allt haust að leggja
frumvörpin fram en vegna þess að
samkomulag næst ekki innan stjóm-
arflokkanna hefur það ekki verið
gert. í þingflokki Sjálfstæðisflokks-
ins em margir á móti þróunarsjóðn-
um og einnig nokkrir landsbyggðar-
þingmenn sem ekki sætta sig við fyr-
irhugaða meðferð á krókabátunum.
Innan þingflokks Alþýðuflokksins
eru allir sammála um að koma þró-
unarsjóðnum á en meirihluti er and-
vígur krókabátafrumvarpinu.
Svo em nokkrir þingmenn úr öll-
um stjórnmálaflokkum sem vilja
taka lögin um stjóm fiskveiða til
gagngerrar endurskoðunar.
-S.dór
Nokkrar vörur frá Akureyri
Borga ekki lengur
með kóki og mjólk
Gylfi Kristjánssan, DV, Akureyii
Þaö athyglisverðasta við verð-
könnun DV í Bónusi og KEA-NETTÓ
á Akureyri í gær er umtalsverð verð-
hækkun á mjólk og kóka kóla í 2ja
lítra flöskum.
í könnun DV fyrir siðustu helgi var
mjólkurlítrinn kominn niður í 53
krónur en kostaði í gær 62 krónur í
báðum verslununum eða sama og í
upphafi „stríösins“. Þá kostaði 2 lítra
kók fyrir síðustu helgi 125 krónur en
var í gær á sama verði í báðum búð-
unum, 145 krónur.
Af 11 vöruflokkum í innkaupa-
körfu DV í gær reyndust tveir vera
á sama verði, kókið og mjólkin.
Rækjur vora ódýrari í NETTO, 500 g
poki kostaði þar 264 krónur en 265 í
Bónusi. Aðrir vöruilokkar voru
ódýrari í Bónusi. í 6 tilfellum munaði
aðeins einni krónu en munurinn í
þessari könnun lá fyrst og fremst í
verði á appelsínum í lausu og banön-
um. Appelsínurnar kostuðu 99 krón-
ur í Bónusi en 123 krónur í NETTÓ
og kg af banönum var á 69 krónur í
Bónusi en á 76 í NETTÓ.
Þeir vöruflokkar sem kostuðu
einni krónu minna í Bónusi í gær
vom 1 kg af sykri sem kostaði þar
41 krónu en 42 í NETTÓ, Frón krem-
kex á 55 kr. í Bónusi en 56 í NETTÓ,
smjörvi á 154 kr. í Bónusi en 155 í
NETTÓ, stór pakki Cheerios á 187 í
Bónusi en 188 í NETTÓ, 'A dós gr.
baunir frá Strýtu á 29 kr. í Bónusi
en 30 kr. í NETTÓ og Toro aspassúpa
var á 36 kr. í Bónusi en 37 kr. í
NETTÓ. Heildarverð innkaupakörf-
unnar í gær var því 1142 krónur í
Bónusi en 1178 krónur í NETTÓ.
Þetta er sáralítill munur eða um 3%.
Síbruggari ákærður
Ríkissaksóknari hefur gefið út
ákæm á hendur 42 ára Reykvíkingi
fyrir að hafa ítrekað framleitt ólög-
legt áfengi á heimill sínu.
Þess er krafist að maðurinn verði
dæmdur til refsingar og að nær eitt
þúsund lítrar af gambra, á áttunda
tug lítra af landa og fjögur bmggtæki
verði gerð upptæk, sem lögreglan
lagði hald á í fjórum aðgerðum sínum
frá í aprO þar til í október í ár.
Fyrrgreindur maður hefur að
minnsta kosti sex sinnum áður hlotið
dóm eða fallist á dómsátt vegna fyrri
brota á áfengislöggjöfinni. I mars á
þessu ári samþykkti hann svokaUaða
viðuriagaákvörðun og var gert að
greiða300þúsundkrónasekt. -pp
UPPBOÐ Framhald uppboðs á eftirtöldum eignum verður háð á þeim sjálf- um sem hér segir: Engihjalli 1,7. hæð D, þingl. eig. Víð- ir Gunnarsson og Una Berglind Þor- leifsdóttir, gerðarbeiðandi Byggingar- sjóður ríkisins, 30. nóvember 1993 kl. 15.15.
Furugrund 8, þingl. eig. Rúnar Ingi Finnbogason, gerðarbeiðendur B.M. Vallá hf., Húsasmiðjan hf., Lífeyris- sjóður verslunarmanna, og Sparisjóð- ur Reykjavíkur og nágrennis, 30. nóv- ember 1993 kl. 16.45.
Ásbraut 9, 1. hæð, þingl. eig. Garðar Guðjónsson, gerðarbeiðandi húsbréfa- deild Húsnæðissto&unar ríkisins, 30. nóvember 1993 kl. 13.45.
Digranesvegur 42A, risíbúð, þingl. eig. Knstmann Ámason, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður ríkisins, 30. nóvemb- er 1993 kl. 14.30. Gnípuheiði 11, 2. hæð, þingl. eig. Ed- vard K. Sigurðsson, gerðarbeiðandi Walter Jónsson, 30. nóvember 1993 kl. 17.30.
Engihjalli 11, 3. hæð E, þingl. eig. Hrönn Halidórsdóttir, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður verkamanna, 30. nóvember 1993 kl. 16.00. SÝSLUMAÐURJNN í KÓPAV0GI
BÆKUR
OG
HUÓMFÖNG
///////////////////////////////
AUKABLAÐ UM
BÆKUROG HLJÓMFÖNG
Miðvikudaginn 8. desember nk.
koma út aukablöð um
með upplýsingum um bækur og
hljómföng sem gefin eru út fyrir jólin.
Þeir auglýsendur, sem hafa áhuga á að
auglýsa í DV - Bækur/Hljómföng, vinsamlega
hafi samband við Björk Brynjólfsdóttur,
auglýsingadeild DV, hið fyrsta í síma 63 27 23.
Vinsamlega athugið að síðasti skiladagur
auglýsinga er fimmtudagurinn 2. desember.
ATH.I Bréfasími okkar er 63 27 27.
ATHUGIÐ!
í DV - Bækur/Hljómföng verða birtar allar
tilkynningar um nýútkomnar bækur,
hljómplötur, geisladiska og kassettur ásamt
mynd af bókarkápu eða umslagi. Birting þessi
er útgefendum að kostnaðarlausu.
Æskilegt er að þeir sem enn hafa ekki sent á rit-
stjórn nýútkomnar bækur eða hljómföng og til-
kynningu, geri það fyrir 2. desember.
Verð þarf að fylgja með.
Umsjónarmaður efnis DV - Bækur/Hljómföng
er Hilmar Karlsson blaðamaður.