Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1993, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1993, Síða 28
36 FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1993 Getum fellt íhaldið, segir Guð- rún. Hægt að fella íhaldið „Þessi skoðanakönnun sýnir að þrátt fyrir að kosningabaráttan sé ekki hafin þá hafi minnihluta- flokkarnir möguleika á að fella íhaldið,“ segir Guðrún Ágústs- dóttir um skoöanakönnun DV sem hirtist í gær. Ekki hægt „Ég bendi hins vegar á að minnihlutaflokkar hafa samein- ast og undantekningarlaust hefur Ummæli dagsiris fylgi þeirra minnkað," segir Magnús L. Sveinsson um sömu könnun. Dýr myndi Hafliði allur „Þeir geta ekki annað ef ég næ samkomulagi við Örebro. Örebro þyrfti þá að greiða Hácken 400 þúsund sænskar krónur en það er uppsett verð fyrir mig,“ segir Arnór Guðjohnsen, aðspurður um hvort hans félag vilji sleppa honum. Óheiðarleiki „Því miður er ekki hægt að segja að í dag séu viðskipti með fisk heiðarleg og opinber. Þar er hver í feluleik fyrir þeim öðrum sem líka starfar í sjávarútvegi," segir Guðjón Amar Kristjánsson, formaður Farmanna- og fiski- mannasambandsins, í Tímanum í gær. bókaskatti Bókmenntavaka Rithöfunda- sambandsins, sem hófst í gær í Ráðhúsinu, veröur fram haldið í kvöld og á morgun. i kvöld fjalla Silja Aðalsteinsdóttir og Vésteinn Valgarðsson um barnabók- menntir. Guðmundur Ólafsson, Andrés indriðason, Guðrún Helgadótitr, Jóhanna Kristjóns- dóttix, Baldur Gunnarsson, Elisa- bet JökulsdóttJr og Þorsteinn Gylfason munu lesa úr verkum sínum og Ingólfur Margeirsson heldur fyrirlestur um ævisögur og ævisagnaritun. Fatlaðirog framleiðsla hjálpartækja Ráðstefna um málefni fatlaðra og framleiðsla hjálpartækja er i dag á Hótel Loftleiðum. Einnig eru sýnd tæki ætluð fótluðum. Félag eldri borgara Félagsvist verður i Risinu í dag kl. 14,00. Jóga og hugieiðsla Sri Chinmoy setrið stendur fyr- ir ókeypis helgarnámskeiði í jóga og hugleiðsiu. Það;er haldið að Hverfisgötu 76 og öllum opið. Námskeiðið er í sex hlutum og byxjar sá fyrsti í kvöld kL 20.00. Frekari upplýsingar í síma 25676. Hlýnandi í bili Stormviövörun í morgun kl. 7. Búist er við stormi eða roki á öllum miðum eða djúpum og jafnvel ofsaveðri á Veðrid í dag suðvesturmiðum, Faxaflóamiðum, suðuausturdjúpi, suðurdjúpi og suð- vesturdjúpi. Það er vaxandi suðaustanátt um allt land, stormur eöa rok og rigning um vestanvert landið er hður á morguninn en einnig austanlands síðdegis. í kvöld gengur vindur í sunnan stinningskalda vestanlands og styttir upp í nótt en austanlands verður suðaustan stormur eða rok og rigning fram eftir nóttu. Hlýnandi veður í bili. Sólarlag í Reykjavik: 15.59 Sólarupprás á morgun: 10.34 Síðdegisflóð í Reykjavík: 16.47 Árdegisflóð á morgun: 5.06 Veðrið kl. 6 í morgun: Akureyri heiðskírt 0 Egilsstaöir heiðskírt -1 Galtarviti hálfskýjað 4 Keílavíkurflugvöllur skýjað 4 Kirkjubæjarklaustur skýjað 0 Raufarhöfn léttskýjað -3 Reykjavík slydda 3 Vestmannaeyjar úrkoma 5 Bergen slydda 3 Ósló þokumóða -2 Þórshöfn léttskýjað 4 Amsterdam þoka 1 Barcelona þokumóða 8 Chicago súld 6 Feneyjar skýjað 3 Glasgow þokuruðn. -L. London þoka 3 Madríd heiöskírt 0 Malaga þokumóða 7 Maliorca skýjað 12 Montreal heiðskírt -10 New York heiðskírt -1 Nuuk léttskýjað -5 Orlando súld 19 París hrímþoka -1 Winnipeg snjókoma -6 „Það var gaman að sjá hvað við brögðin voru misjöfn hjá keppend- um við verðlaunaafhendinguna Við vorura ósköp róleg en Asíu- menxúmir, sem ekki hreyfðust í keppninni sjálfri, grétu eins og feg- urðardrottningar þegar þeir fengu verðlaunin,“ segir Bárður Guð- laugsson sem fékk gullverðlaun í Maður dagsins flokki þurra drykkja fyrir drykk- tnn Gullið tár í heimsmeístara- keppni Alþjóðabarþjónasamtak- anna. Þetta er i fyrsta sinn sem íslendingur fær verðlaun í þessari heimsmeistarakeppni en auk þess fékk Margrét Gunnarsdóttir, fram- reiðslumaður á Naustinu, verðlaun fyrir fagleg vinnubrögð á sviði. Drykkur Bárðar eru úr 4 cl Absol- : ut-sitrónuvodka, 1 cl Gold Bols og 1 cl af Dry Martirú. Yfir þetta er kreistur safi úr gullappelsínu Bárður Guðfaugsson. DV-mynd BG „Þó ég segi sjálfur frá er þetta erfiður drykkur að búa til. Ég var eígixúega kominn í strand með hann áöur en ég datt niöur á að nota gulllíkjörinn sem er lítið not- aöur en þykir góður.“ Bárður er framreiðslumaður í Perlunni og hefur gestum þar líkað verðlaunadrykkurinn vel. Hann lærði á Hótel Sögu hjá Hafsteini Egilssyni og útskrifaðist 1978. Hann hefur starfað i Perlunni frá opnun. Hann segist hafa mikla ánægju af framreiðslustarfinu þó vinnu- tímiim sé að mestu um kvöld og helgai'. „Maður ánetjast þessu starfi og þá á ég ekki viö áfengið þó mér þyki það gott. Þess utan dunda ég mikið við húseigrúna okkar. Þjóna- starfið hefur komið sér vel fyrir fjölskylduna þvi konan mín vinnur á daginn og ég á kvöldin." Kona Bárðar er Guðný Pála Ein- arsdóttir og eiga þau þrjú börn. Elst er Thelma Björk, 19 ára, Einar Valur, 16 ára, og yngst er Valgerður Bára 7, ára. -JJ Myndgátan DregSt á lappir Myndgátan hér að ofan lýsir nafnorði. Suðurnesja- slagur í körfunni Tvö Suðumesjalið keppa í kvöld í Visa-deildinm i körfu- bolta. Þetta eru Njarðvík og Grindavík og er leikur þeúra ki. 20.00 i Njarðvík. Liðin eru efst í B-riðli keppninnar og standa Njarðvíkingar sýnu betur þar sem þeir hafa aðeins tapaö einum leik það sem af er. Tveir leikir verða i bíkarkeppn- inni í handbolta i 16hða úrslitum. Klukkan 20.00 leika Völsungur og Selfoss á Húsavík og á sama tíma verður leikur ÍH og KA í íþróttahúsinu \úð Strandgötu. Skák Enn fá lesendur að kynnast skákum sænska stórmeistarans LTlfs Anderssons frá útsláttarmótinu í Tilburg. í þessari stöðu hafði hann hvitt og átti leik gegn Winants, Belgíu: 27. Df3! Hxal 28. Hxf7 Drottning, hrókur og biskup svarts á a-línunni koma ekki meira við sögu í þessari skák. Svartur er vamarlaus, enda aðeins kóngshrókur- inn til varnar gegn drottningu, hrók og riddara hvíts. Eftir 28. - Hd8 29. Hxg7 + Önnur leið er 29. Dg4 Hgl + 30. Kh3! g6 31. Dh4 og mátar. 29. - Kxg7 30. Df7+ Kh8 31. Df6+ gafst svartur upp. Jón L. Árnason Bridge Eftirfarandi spil sendi Þórður Sigfússon í dálkinn en það kom fyrir á Evrópumóti í leik Breta við Belgíumenn árið 1948. Suður gat ekki stillt sig um að vera með í sögnum og galt það dýru verði. Sagnir gengu þannig, vestur gjafari og allir á hættu: * 9743 V 942 ♦ 432 + Á107 * ÁK105 V 103 ♦ D5 + KG852 * D82 V ÁD86 ♦ 10987 4» D4 ♦ G6 V KG75 ♦ ÁKG6 + 963 Vestur Norður Austur Suöur 1+ Pass l¥ Pass 14' Pass Pass 1 G Pass Pass Dobl P/h í vöminni voru Boris Shapiro og Terence Reese, þá taldir eitt besta par heims. Út- spihð hjá Shapiro var spaðakóngur og síðan skipt yfir í lauf. Sagnhafi drap strax á ásinn og svínaði tígulgosa. Vestur tók öll svörtu háspilin sín og staðan var svona: V 942 ♦ -- + -- V ÁD8 ♦ -- + -- ¥ 103 ♦ 5 * -- V KG ♦ Á + -- Shapiro hafði talninguna á hreinu og spilaði tígli. Niðurstaðan var 5 niður og 1400 til austurs og vesturs. ísak Örn Sigurösson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.