Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1994, Page 5

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1994, Page 5
LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 1994 5 í Kvist&landi 3 Hmmastmt 30575 Páll Gíslason læknir stefnir á annað sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins Fréttir Jón Hákon Magnússon: Ekki algerlega á móti byggð við Nesstofu Jón Hákon Magnússon, frambjóð- andi í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnamesi, telur of snemmt fyr- ir sig að gefa út afdráttarlausa yfir- lýsingu um það hvort hann vilji að hætt verði við byggingu íbúðarhús- næðis á vestursvæðinu svokallaða við Nesstofu komist hann ofarlega á hsta Sjálfstæðisflokksins og inn í bæjarstjórn í kosningunum í vor. Jón Hákon segist þó vera opinn fyrir öllum hugmyndum og fylgjandi því að sem minnst verði byggt á svæð- inu. Jón Hákon var meðal þeirra sjálfstæðismanna sem gagnrýndu byggð við Nesstofu í fyrra. Minnihlutinn í bæjarstjóm Sel- tjarnarness hefur lagt fram tillögu um að hætt verði við fyrirhugaða íbúðabyggð þar sem meginrök meiri- hlutans fyrir byggð við Nesstofu séu falhn. Heildartekjur bæjarins aukist um rúmar 60 milljónir króna á þessu ári vegna nýrra tekjustofnalaga og því þurfi bæjaryfirvöld ekki lengur að selja lóðir á svæðinu til að geta keypt landið. „Heildartekjur bæjarins aukast um rúmar 60 milljónir króna á þessu ári og því legg ég til að við skilum 30 mihjónum óbeint aftur til íbúanna með því að nota peningana til að fegra bæinn. Byggðin við Nesstofu á að vera sem minnst og því mun ég taka þátt í að skoða leiðir til að halda henni í algjöru lágmarki og aUs ekki fara út fyrir mörkin," segir hann. - Er þetta sáttatónn við Sigurgeir og félaga? „Nei, við Sigurgeir erum langt frá því að vera sammála og það er ekk- ert samkomulag mUli okkar í þessu máli. Ég vU ekki leyfa fleiri bygging- ar þarna. Við féUumst á það á sínum tíma að það mætti byggja þama fáein hús en ef þaö er einhver leið til þess að komast hjá þvi að byggja þau þá Reykjavík: Framlag til listahátíðar hækkar um helming Framlag borgarsjóðs til Listahátíð- ar Reykjavíkur verður helmingi meira á þessu ári en í fyrra eða 15 miUjónir í stað tæplega sjö. í fyrra var gert ráð fyrir 3,5 miUjónum króna til Ustahátíðar en 2,5 miUjónir vom notaðar til að greiða hallahiut Reykjavíkurborgar á hátíðinni 1992 og rúmlega 700 þúsund fóru í kvik- myndahátíðina 1993. MiUi borgaryfirvalda og hins opin- bera er í gildi samningur um að greiða haUann til helminga þegar tekjur hrökkva ekki til. Þannig neyddust borgaryfirvöld tíl að hækka framlag borgarinnar úr 3,5 í sjömilljónirífyrra. -GHS Enginn tapað á Össuri Vegna Sandkorns í DV 19. janúar sl. viU Össur Skarphéðinsson um- hverfisráðherra taka skýrt fram að enginn kaupmaður hafi tapað tíma né peningum vegna ummæla hans um að leyfa innflutning á rjúpum frá Rússlandi. í Sandkomi hafi mátt skUja sem svo aö hann hefði dregið kaupmenn á asnaeyrunum en það hafi hann ekki gert: Þessu er hér með komið á framfæri. -bj b er það mjög gott mál og ég er reiðubú- inn að skoða það,“ segir hann. -GHS Taktu markvissa stefnu i spamabi 1994 Íslandsbanki kynnir nýjar, einfaldar og árangursríkar Sparileiöir Nýir möguleikar í sparnabi á Sparileibum íslandsbanka. Meginmarkmiöiö meö nýjum Sparileiöum er aö bjóöa spari- fjáreigendum fjölbreyttari valkosti og betri ávöxtun af sparnaöi sínum, eftir því sem spariféö stendur lengur óbreyft. ^Sparileib 12 Verötryggö Sparileiö 12 hentar vel fyrir sparnaö sem getur staöiö óhreyföurí aö minnsta kosti 12 mánuöi. & Sparileib 24 Verötryggö Sparileiö 24 er sniöin fyrir sparnaö í minnst 24 mánuöi. ^ Sparileib 48 Verötryggö Sparileiö 48 hentar vel fyrir sparnaö í48 mánuöi eöa lengur. Óbundnar Sparileibir Fyrir þá sem ekki vilja binda fé sitt bjóöast einnig óbundnar Sparileiöir, en íslandsbanki var einmitt meö bestu ávöxtunina á óbundnum reikningi árib 1993. Nú opnast nýir möguleikar fyrir þá sem vilja spara reglubundiö og taka allt spariféö út f lok sparnaöartímans. Efþú gerir samning um reglubundinn sparnaö á Sparileiöum 12, 24 eöa 48, þá er öll sparnaöarupphæöin laus aö loknum umsömdum binditíma reikningsins og öll upphœöin nýtur verbtryggingar, óháö því hvaö hvert innlegg hefur staöiö lengi á reikningnum. Ánœgjuleg „útgjöld" Þaö ánœgjulega viö reglubundinn sparnaö er aö jafnvel smáar upphœöir eru fljótar aö vaxa efþœr eru lagöar reglulega til hliöar. Þaö hefur því reynst mörgum vel aö gera sparnaöinn aö föstum, ófrávíkjanlegum hluta af „útgjöldum" hvers mánaöar. Þaö er auöveldara en þú heldur. Nú er réttl tíminn til ab taka markvissa stefnu ísparnabi. ISLANDSBANKI j

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.