Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1994, Side 14
14
LAUGARDAGUR 22. JANUAR 1994
Otgáfufélag: FRJALS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÖNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELiAS SNÆLAND JONSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjórar: PÁLL STEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11,
blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVlK. SlMI (91)63 27 00
FAX: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99
GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Áskrift: 99-6270
AKUREYRI: STRANDG. 25. SlMI: (96)25013. BLAÐAM.: (96)26613.
FAX: (96)11605
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
PRENTSMIÐJA FRJALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11
Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1400 kr. m/vsk.
Verð í lausasölu virka daga 140 kr. m/vsk. - Helgarblað 180 kr. m/vsk.
Réttlæti síast inn
Hæstiréttur hefur úrskurðað, að ráðherrar Sjálfstæð-
isflokksins hafi farið offari í haust, þegar þeir stöðvuðu
innflutning Hagkaups á skinku. Ráðherrar Alþýðu-
flokksins hafi hins vegar haft rétt fyrir sér, þegar þeir
reyndu án árangurs að greiða fyrir þessum innflutningi.
Dómur Hæstaréttar er að sjálfsögðu áfall fyrir Halldór
Blöndal landbúnaðarráðherra, sem hafði frumkvæði að
stöðvuninni; Friðrik Sophusson fj ármálaráðherra, sem
lét framkvæma hana; og Davíð Oddsson forsætisráð-
herra, sem úrskurðaði um forræði Halldórs í málinu.
Dómurinn er líka áfali fyrir embætti ríkislögmanns,
sem afgreiddi áht á málinu í samræmi við pöntun fjár-
málaráðherra og neitaði síðan að láta utanríkisráðaherra
hafa afrit af áhtinu eða að gefa honum sérstakt áht. Eft-
ir þá aumu framgöngu hefur ríkislögmaður ekkert vægi.
Af niðurstöðu Hæstaréttar er ljóst, að heimilt var að
flytja inn þær landbúnaðarvörur, sem fluttar voru inn í
haust í tilraunaskyni. Einnig er ljóst, að ráðherrar Sjáif-
stæðisflokksins fóru yfir mörkin í hefðbundinni viðleitni
þeirra við að bregða fæti fyrir íslenzka neytendur.
Ekki er nýtt, að Sjálfstæðisflokkurinn sé andvígur
neytendum og raunar skattgreiðendum líka. Hann hefur
um skeið sérhæft sig í varðveizlu landbúnaðar og einka-
vinavæðingu. Hann hefur um skeið notað heimsku kjós-
enda til að hlynna þeim, sem bezt mega sín í landinu.
Hins vegar er nýtt, að úrskurður Hæstaréttar gangi
gegn stjómvaldi. Vonandi er það merki þess, að réttlæti
verði í auknum mæh sótt til íslenzkra dómstóla í kjölfar
þess, að ógnarsverð fjölþjóðadómstóla hangir yfir þeim
íslenzkum dómstólum, sem em undirlægjur stjómvalda.
Að baki þessa bata hggur sú staðreynd, að íslenzkir
aðhar hafa í auknum mæh borið rangindi íslenzkra
stjómvalda og íslenzkra dómstóla fyrir úölþjóðlega dóm-
stóla, sem í hverju máhnu á fætur öðm hafa rassskeht
íslenzk yfirvöld og þvingað fram réttarbætur á íslandi.
Athyghsvert er, að mest af batanum á uppruna sinn
í útlöndum. Dómarar em farnir að sinna mannréttind-
um, svo að úrskurðum þeirra verði ekki hnekkt í útlönd-
um. Og stjómvöld horfa með kreppta hnefa á ýmsar
hagsbætur neytenda, sem koma frá fj ölþj óðastofnunum.
Hagsbætur fyrir neytendur og skattgreiðendur koma
aldrei að innan. Þær síast inn fyrir þrýsting og kröfur
frá fj ölþj óðastofnunum á borð við Evröpska efnahags-
svæðið, Evrópusamfélagið og Alþjóðlega fríverzlunar-
klúbbinn, sem verja íslendinga fyrir stjómvöldum.
Undir fomstu Sjálfstæðisflokksins berjast íslenzk
stjómvöld af hörku gegn þessari þróun. Þau beita öhum
thtækum ráðum og brögðum th að deyfa áhrifin og vega
upp á móti þeim með nýjum álögum. Þegar þau neyðast
th að lækka toha, setja þau vömgjöld í staðinn.
Ef Hagkaup og Bónus og aðrir aðhar, sem telja sig
hafa hag af góðu sambandi við neytendur, reyna að nota
úrskurð Hæstaréttar th að efla það samband, munu
stjómvöld finna nýjar leiðir th að koma í veg fyrir, að
íslenzkir smælingjar fái í nokkm að njóta þess.
Ef stjómvöld neyðast th að hleypa inn vöm, munu
þau skattleggja hana um hundmð prósenta th að kvelja
neytendur. A meðan munu þau láta Alþingi breyta lögum
th að loka innflutningssmugum. Síðan munu þau verja
shk ólög með kjafti og klóm fyrir hölþjóðadómstólum.
Meðan kjósendur halda heimsku sinni, munu þeir sem
neytendur og skattgreiðendur sæta ofsóknum stjóm-
valda, er hafa þrengstu sérhagsmuni að leiðarljósi.
Jónas Kristjánsson
Jeltsín hyggst
sigla milli
skers og báru
Nýr kafli er hafinn í aðlögun Rúss-
lands að umskiptunum frá valda-
einokun kommúnista og miðstýrðu
hagkerfi til fjölflokkakerfis og þátt-
töku í opnum heimsmarkaði. Tals-
menn skjótra og róttækra breyt-
inga til markaðsvæðingar eru
horfnir úr ríkisstjórn. Þar ráða nú
mestu fulltrúar þeirra sem eiga
völd að þakka stöðu sinni í gamla
kerfinu og vilja í rauninni reyna
að lappa upp á það.
Viktor Tsjemomirdín forsætis-
ráðherra, sem Borís Jeltsín forseti
hefur leyft að skipa ríkisstjóm að
mestu eftir sínu höföi, er reyndur
forstjóri úr stórfyrirtæki og var
gerður að forsætisráðherra tii að
reyna að blíöka meirihiutann á
fyrra þingi sem afsagt hafði um-
bótasinnann Égor Gaidar. Jeltsín
gerði svo Gaidar að efnahagsmála-
ráðherra og staðgengli forsætisráð-
herra síðastliðið haust þegar
stefndi í árekstur miili forsetans
og þess þings.
Eftir aö valdaránstilraun þing-
fomstunnar hafði verið kveðin nið-
ur með skriðdrekaskothríð á þing-
húsið var nýtt þing kosið. Síðan það
kom saman til starfa hefur sýnt sig
að eftirhreytumar af gamla komm-
únistaflokknum hafa ásamt þjóð-
ernissinnum meirihiuta í neðri
deildinni. í efri deildinni, sem að-
eins hefur stöövunarvald í laga-
setningu, er hins vegar meirihlut-
inn á bandi Jeltsíns.
Eftir kosningarnar hefur
Tsjernomirdín ekki farið dult með
að hann vill skella skuldinni af lé-
legum kosningaárangri flokka um-
bótasinna á Gaidar og hans nóta í
ríkisstjóminni. Nú hefur Jeltsín
gefið honum fijálsar hendur til að
mynda ríkisstjórn þar sem eini ein-
dregni markaðsvæðingarsinninn
er Anatólí Tsjúbais einkavæðing-
arráðherra.
Gaidar varð fyrstur til að afþakka
frekari stjómarsetu við núverandi
aðstæður. í kjölfar hans fór Borís
Fjodoroff fjármálaráöherra. Hann
hafði gert að skilyrði fyrir frekari
setu í því embætti aö Viktor Ger-
atsénko seðlabankastjóri yrði lát-
inn víkja. Geratsénko ber höfuð-
ábyrgð á verðbólguvextinum í
Rússlandi með lánveitingum til að
halda úti taprekstri stórfyrirtækja
forstjóranna.
Foringi þeirra, Arkadí Volskí,
hefur komist svo að orði: „Valdiö
tilheyrir þeim sem ráða yfir fast-
eignum og fé. Sem stendur er það
ekki ríkisstjórnin heldur verk-
smiðjustjóramir sem ráða yfir
hvoru tveggja."
Eftir lélegan árangur umbóta-
sinna í nýafstöðnum kosningum
Erlend tíöindi
Magnús Torfi Olafsson
hefur Jeltsín forseti ákveðið að
leyfa þessum hópi að sýna hvað
hann getur. Héðan af verður afleið-
ingunum af ástandi sem þessi
valdahópur hefur átt drjúgan þátt
í að móta ekki velt á aðra.
Frá áramótum, þegar sýnt varð
hvað í vændum var, hefur gengi
rúblunnar fallið um þrjátíu af
hundraði. Við stjórnarbreytinguna
hækkaði rúblan samt lítið eitt en
það stafaði af því að seðlabankinn
keypti rúblur í stórum stíl. Slíkt er
ekki unnt nema um takmarkaðan
tíma.
Fjármagnsflótti frá Rússlandi
hefur einnig aukist. Alan Fried-
man, fréttamaður International
Herald Tribune, hefur eftir kunn-
ugustu mönnum á alþjóðlegum
peningamarkaði að hann nemi nú
sem svarar milljarði Bandaríkja-
dollara á mánuði.
Fyrir íjármagnsflóttanum standa
fyrst og fremst forstjórar stóru rík-
isfyrirtækjanna sem fara í raun
með þau sem sína eign. Þeir láta
erlenda viðskiptavini leggja á
leynireikninga sína ríflegan hluta
af andvirði útflutnings, til dæmis á
áh. Með þessu móti er Rússland
svipt fjármagninu sem mikil þörf
er á tÚ að standa straum af end-
urnýjum úreltra atvinnutækja og
gera þau samkeppnisfær á alþjóða-
markaði.
Vandséð er því hvernig ný stjórn
Tsémomirdíns getur ráöið bót á
ríkjandi ófremdarástandi í rúss-
neskum efnahagsmálum. Hins veg-
ar má vera að henni takist aö ná
betra sambandi við nýkjörið þing
en ella eftir að talsmenn róttækra
efnahagsumbóta em farnir frá
borði.
Gaidar sagði, þegar hann hafnaöi
setu í endurskipulagðri stjóm
Tsémomirdíns, að hann hefði skýrt
Jeltsín forseta frá ákvörðun sinni
og hún nyti skilnings hans. Tals-
maður forseta sagði eftir útnefn-
ingu stjórnarinnar að skipan henn-
ar þyrfti ekki að vera komin í end-
anlegt horf. Jeltsín virðist því vera
að leika biðleik í valdatafli sem er
síður en svo úti.
Viktor Tsjernomirdín forsætisráðherra fer ásamt aðstoðarmanni yfir
skjöl fyrir fyrsta fund endurskipaðrar ríkisstjórnar. Simamynd Reuter
Skoðanir armarra
Svík við einangraða íbúa
Allt frá þvi Grænlendingar fengu heimastjóm
árið 1978 hefur landssijórnin í Nuuk stig af stigi yflr-
tekið verkefni sem áöur heyrðu undir dönsku stjóm-
ina. Þetta er gott fyrirkomulag og gefur Grænlend-
ingum færi á að leggja mesta áherslu á þá þætti sem
varða þá mestu. Heimastjórnin hefur líka reynst vel
eins og sést af því að landsmenn búa við batnandi
efnahag. En stjórnin virðist hafa gleymt þeim fáu
íbúum er hafast við á austurströndinni, einangraðir
frá samfélaginu á vesturströndinni. Þar hefur heima-
stjórnin bmgðist. Úr forystugrein Politiken 20. jan.
Fegurð í álögum
Suður-Kalifomía er fagur staður en á honum
hvíla álög. Þarna er fegurð náttúrannar spillt reglu-
lega með náttúruhamfórum. Á þennan hátt má líta
á flóð, skógarelda og jarðskjálfta sem aðgangseyri
sem menn verða því miður oft að greiða. Á síðustu
tveimur árum hafa skógareldar eyðilagt heimih 25
þúsund manna, fólk hefur farist í jarðskjálftum og
flóðum. Nú hefur jarðskjálfti enn á ný valdið miklum
hörmungiun. Gjaldið sem menn greiða fyrir að búa
í Kaliforníu virðist aldrei ætla að lækka.
Úr forystugrein USA Today 19. jan.
Hresst upp á ímyndina
Bill Clinton hressti mjög upp á ímynd sína sem
þjóðarleiðtogi í Evrópuferðinni. Hann heillaði leið-
toga Austur-Evrópuríkja um leið og hann hafnaði
óskum þeirra um aðild að NATO. Hann var jafn
sjálfsöraggur í Rússlandi og á fundi í smábæ í Banda-
ríkjunum. En persónutöfrar hans duga Rússum og
Austur-Evrópubúum skammt þegar kemur að
vandamálunum sem ógna tilvera þeirra.
Anthony Lewis í IHT 18. jan.