Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1994, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1994, Síða 15
LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 1994 15 Kerfið fer illa meö kjör lífeyrisþega. Þyingað til óhag- kvæms sparnaðar I sandkassanum okkar er margt skrýtið í laginu. Öllum væri hollt að skoða sem bezt, hvemig málum er fyrir komið, hvemig „uppamir" í þjóðfélaginu hafa hreiðrað um sig. Almenningur gerir sér ekki grein fyrir því, en í raun hefur hann vald- iö og máttinn til að breyta þessu kerfi. Sem betur fer er nú sá tími, að stöðugt er verið að afhjúpa sitt- hvað um kjör toppanna, sem áður ríkti þögn um. Við sjáum launa- kjörin, eftir að blaðamenn og fleiri hafa gruflað í málum. Enn einn þáttur misréttisins er efst á baugi þessa dagana, hvemig lífeyrismál- um er fyrir komið - vægast sagt illa. Stór hluti lífeyrissjóða stefnir í gjaldþrot. Þar eru horfur á að eitt- hvað mikið þurfi að koma til. Skerða þarf lífeyrisréttindi eða hækka iðgjöldin, til þess að sumir sjóðimir fái staðizt. Ella þurfa skatthorgarar bara að borga brús- ann fyrir þessa lífeyrisþega gegn- um fyrirgreiðslu frá ríkinu. Þetta er ljótt mál. Ekki er síður ömur- legt, þegar skoðað er, að vesalings gamla fólkið hefur verið tví- og jafnvel þrískattlagt fyrir lífeyrinn. Slíkt þarf að uppræta. Þrísköttun Hætt var að undanþiggja iðgjöld frá skattlagningu með breytingu á skattalögum árið 1988. Nú er sá háttur hafður á, að iðgjöldin em skattlögð en persónuafsláttur hafð- ur 2400 krónum hærri en ella. Þegar fólk fær lífeyri ber lífeyris- þega að greiða tekjuskatt af tekjum, sem em umfram skattleysismörk. Þannig gerist það, að fólk fer að borga skatt aftur af þessum sömu krónum. Sem sagt: tvísköttun líf- eyris. En ekki nóg meö það. Lífeyr- issjóðanefnd Verzlunarráðs segir í skýrslu, sem kom fram á miðviku- daginn, að í raun séu þessir pening- ar ekki hara tvískattaöir heldur þrískattaðir. Það gerist á þann veg, að greiðsl- ur frá Tryggingastofnun skeröast með hækkandi tekjum. I skýrslu ráðsins segir réttilega, aö hægt sé að líta á þessa skeröingu sem þriðja þrep skattlagningar lífeyris. Reikna má svonefndan ,jaöar- skatt", sem segir til um, hversu stórum hluta viðbótartekna er skil- að til hins opinbera í formi tekju- skatts og minnkandi greiðslna frá Tryggingastofnunm ríkisins. Þessi ,jaðarskattur“ getiu- hjá hjónum orðið 68 prósent og 77 prósent hjá einstaklingum, sem sé langstærsti hluti viðbótarteknanna fer í aukna skatta. Vitlaus „norræn" aðferð Vissu forráðamenn ekki, hvað þeir gerðu, þegar farið var að skatt- leggja lífeyrissparnað fólksins í landinu af slíkum þunga? Líklega „skorti þá yfirsýn" eins og segir í skýrslunni. Samkvæmt þeirri kenningu var þessi ráðstöfun ekki beinlínis gerð til að klekkja á lífeyr- isþegum, heldur af heimsku. Hvað gera aðrar þjóðir? Tvískött- un lífeyrisspamaðar er „norrænt fyrirhrigði". Hún á sér hliðstæðu í Noregi, Finnlandi, Danmörku og Svíþjóð. í þeim löndum, sem til- heyra Evrópubandalaginu, er ann- ars yfirleitt sú regla að skattieggja eftirlaunagreiðslumar eingöngu. Það er réttlátast gagnvart þeim sem sparar peningana. Hér verður að afnema tvi- og þrísköttunina hið bráðasta, þar sem um óviðunandi órréttlæti er að ræða. Við sjáum líka, að tvísköttunin gerir það óhagstætt fólki að spara gegnum lífeyrissjóðina samanborið viö aðrar leiðir til sparnaðar. Spar- endur verða með þessum hætti að greiða mikinn skatt fyrir lífeyris- spamað, meðan þeir gætu ella sem hægast náð betri sparnaði fyrir elli- árin með því að kaupa verðbréf. Enn hefur ekki verið lagður á flár- magnstekjuskattur hér á landi, og því eru vaxtatekjur af því tagi Laugardags- pistill Haukur Helgason aðstoðarritstjóri tekjuskattsfijálsar. „I staðinn fyrir að hvetja fólk til að leita að hag- stæðustu spamaðarleiðunum í skattalegu tLUlti, þegar safnað er til elliáranna, er fólkið í landinu þvingað til spamaðar í gegnum líf- eyrissjóðina með tilheyrandi margsköttun," segir í skýrslunni, eins og óumdeilanlegt er, að er rétt lýsing á misréttinu. Mál Sigurðar A. Sigurjónssonar Þannig leikur kerfið lífeyrisþega grátt í skattalegu tiiiiti. Víðar er vegið að þessu fólki. Menn ráða því ekki sjálfir, í hvaða lífeyrissjóði þeir em. Skylduaðild ríkir. Sumir sjóðimir standa illa, svo aö fólk fær ekki það sem vera ætti út úr því að spara til elliáranna. Hvað um þessa skylduaðild? Stenzt hún lög? Leigubílstjóramáiið í fyrra var merkilegt. Þar dæmdi Mannrétt- indadómstóll Evrópu í máli Sigurð- ar A. Siguijónssonar gegn íslenzk- um stjórnvöldum. Sigurður sætti sig ekki við skylduaðild að leigubíl- stjórafélaginu Frama. Málið hafði verið rekið fyrir dómstólum í sjö ár. Sigurður vann máliö fyrir Mannréttindadómstólnum. Dóm- stóllinn hafnaði skylduaðildinni. Mál þetta sýnÍFy að óvíst er, að skylduaðild, til dæmis að lífeyris- sjóði, fái staðizt. Jónas Fr. Jónsson lögmaður kemst að þeirri niður- stöðu, að skylduaðtid að tilteknum sjóðum samrýmist ekki 11. grein Mannréttindasáttmála Evrópu og 73. grein stjórnarskrár okkar lands. Hins vegar verði að telja, að lög- gjafanum sé heimilt að ákveðnu marki að kveða á um almenna skyldu fólks til að leggja á einhvem hátt tti hliðar tti elfiáranna, en slíkt virðist hafa verið meginmarkmið ákvæða í lögum um skylduaðild að lífeyrissjóðum, það er hin almenna spamaðarskylda. Einstaklingar eigi síðan að hafa valfrelsi um, hjá hverjum og á hvem hátt þeir ávaxta þennan spamað sinn. Val- frelsi fólks um þetta mundi stór- bæta stöðu mála. Samkvæmt því væri rétt að skylda fólk til lífeyrisspamaðar, en það fengi frelsi um, hvar spamað- urinn varðveittist. Að öðrum kosti mundu margir einstaklingar ekki leggja nægilegá mikið tti hliðar fyr- ir elliárin. Útkoman yrði þá að lok- um, að vandamálum þessa fólks yrði velt yfir á skattgreiðendur. Það er áhyggjuefnið. Eyða veröur núverandi kerfi óréttlætisins og láta fólk ráða, hvaða leiöir það velur til þessa sparnaðar. í núverandi kerfi hafa starfstengdu lífeyrissjóðirnir einkarétt á móttöku þessa spamað- ar. Fleiri aðilar á fjármagnsmark- aðinum ættu að fá leyfi til þess að taka við lögbundnum iðgjöldum, svo sem líftryggingafélög, bankar, sparisjóðir og verðbréfafyrirtæki. Slíkar stofnanir ættu einnig að mega bjóða upp á reikning fyrir líf- eyrisspamað í formi séreignar við- komandi manneskju. Miklu dýrari hér Á Alþingi hafa komið fram tillög- ur um valfrelsi í þessum málum. Nú er líklegt, að valfrelsið komist á innan tíðar. Andstaðan gegn því kemur mest frá þeim, sem hafa starf sitt hjá lífeyrissjóðum og lifa á óréttlætinu. Menn átta sig í vax- andi mæli á rökunum. Samkeppni milli lífeyrissjóða mun leiða til þess, að sjóðimir verða færri og stærri. Nú er rekstrarkostnaður lífeyrissjóða á íslandi miklu hærri en erlendis. Meðalkostnaður fimm stærstu sjóðanna hér á landi í hlut- falli af heildareignum er nú 0,33 prósent en í Bandaríkjunum og Bretlandi aðeins 0,01-0,1 prósent. Þama munar miklu. Þetta mundi batna, yrðu sjóðimir stærri. Áður- nefnd rök um að skylduaild að lif- eyrissjóði samrýmist ekki Mann- réttindasáttmála Evrópu vega þungt. Einnig er líklegt að í Evr- ópska efnahagssvæðinu verði leyfð samkeppni um lífeyris- og líftrygg- ingar milli sjóða í mismunandi löndum. Loks eru það öflug rök, að það eigi að vera sjálfsögð rétt- indi hvers einstaklings að geta var- ið sínar eignir eins og hann bezt getur. Leiðin liggur þannig til valfrelsis. Það breytir því ekki, að lífeyris- sjóðir glíma við vanda, sem að miklu leyti er „fortíðarvandi" og stafar til dæmis af því kerfi fyrri ára, að vextir vora lengi neikvæð- ir. Fleira kemur þó til, meðal ann- ars meiri útlát sjóðanna vegna ör- orkubóta en búizt var við, og svo er meðalævi þjóðarinnar alltaf að lengjast. En stóra máliö er, að stærð sjóðanna er óhagkvæm. Stokka þarf tilhögun okkar í líf- eyrismálum upp og koma skikki á málin. En jafnframt er líklegt, að hluta fortíðarvandans verði velt á skattgreiðendur í landinu. Haukur Helgason

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.