Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1994, Qupperneq 18
18
LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 1994
Dagur í lífi Katrínar Fjeldsted læknis:
Með sjúkling
á heimllinu
Ég vaknaði í myrkri og rigningu eins
og aðrir Reykvíkingar. Kvöldið áður
fór ég heldur seint að sofa, hlustaði
á Illuga Jökulsson og síðan Stundar-
kom í dúr og moll áður en ég fór að
lesa í rúminu. Þessa dagana er ég að
lesa bók eftir Mary Wesley, „A Du-
bious Legacy“, en Mary þessi er
bresk, fædd 1912, og er einn af uppá-
haldshöfundunum mínum núna.
Hún gaf út fyrstu skáldsögu sína um
sjötugt og hafa komið eftir hana fjöl-
margar áhugaverðar bækur, sumar
hafa verið kvikmyndaðar, m.a.
Camomile Lawn. Ég vaknaði þennan
morgun með efni bókarinnar í huga.
Eldri strákurinn minn, Vésteinn,
hafði verið með hita kvöldið áður,
og gat því ekki farið í skólann klukk-
an átta eins og hann er vanur. Sá
yngri, Einar Steinn, er í skóla eftir
hádegi. Amma þeirra, tónskáldið
Jórunn, kom til að vera hjá þeim til
hádegis.
Ég var mætt í vinnuna upp úr
klukkan níu og tók á móti tveimur
konum sem fóru í hjartalínurit. Hélt
síðan áfram móttöku sjúklinga fram
til hádegis en skrapp þá heim til að
kíkja á litla sjúklinginn minn. Hann
var alveg hitalaus og lét vel af sér.
Stráksi var kominn með matarlyst-
ina aftur og langaði bæði í langloku
og kók og McDonald’s hamborgara.
Ég sat svolitla stimd og spjallaði
við mömmu sem ennþá var hjá hon-
um. Við lásum meðal annars um nið-
urstöðu skoðanakönnunar DV sem
gerði ráð fyrir að vinstri flokkamir
fengju tíu fulltrúa ef nú yröi kosiö
Katrin Fjeldsted átti annasaman dag.
en viö sjálfstæðismenn fimm.
Mér finnast íjölmiðlar heldur ákaf-
ir í persónudýrkun sinni á Ingibjörgu
Sólrúnu og sé ekki annað en þeir
telji svo til óþarft að kosningar fari
fram í vor.
DV-mynd GVA
Erill á stofunni
Ég fór aftur á stofuna eftir hádegið
en þar var nokkur eriU þennan dag.
Meðal annars fékk ég símtal frá
formanni ökukennarafélagsins sem
er að reyna ða koma sér upp æfinga-
svæði fyrir ökumenn. Hann kom við
þjá mér á stofimni í lok vinnudagsins
og fórum við saman yfir málið.
Ég var komin heim um hálfsex og
dreif í að hita upp mat frá kvöldinu
áður en þá hafði ég verið með krydd-
að Borgameslæri og meðlæti fyrir
átta manns og átti samt afganga. Ég
gæddi sonum mínum og eiginmanni
á þessu og þvoði síðan upp. Eigin-
maðurinn sat inni í bókastofu og
hlustaði á Njáls sögu. Hann vildi
gjarnan að ég hlustaði á hana líka
en ég kaus fremur Þjóðarsálina í
brakandi biluðu útvarpi frammi í
eldhúsi. Eftir það sátum við hjónin
góða stund og spjölluðum saman í
rólegheitum.
Ég hjálpaði síðan yngri drengnum
að læra heima en hann á aö standa
skil á áætlun gagnvart kennaranum
vikulega. Um áttaleytið komu tveir
kollegar mínir, Halldór Jónsson,
læknir í Álftamýri, og Lúðvík Guð- ,
mundsson, læknir á Seltjarnarnesi,
en við emm í nefnd á vegum Félags
íslenskra heimilislækna sem á að
gera tillögur um aðgerðir félagsins á
ári fjölskyldunnar 1994. Við áttum
afar áhugavert samtal næstu þrjá
tímana og ræddum vandamál fjöl-
skyldunnar í íslensku samfélagi vítt
og breitt. Ég fór því allt of seint að
sofa enda þurfti ég að klára bókina
eftir Mary Wesley.
Finniir þú finun breytingai? 241
Heimilisfang:
Myndirnar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur
er að gáð kemur í ljós að á
myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt.
Finnir þú þessi fimm atriði
skaltu merkja við þau með
krossi á myndinni til hægri
og senda okkur hana ásamt
nafni þínu og heimiiisfangi.
Að tveimur vikum hðnum
birtum við nöfn sigurvegar-
anna.
1. verðlaun: Rummikub-spil-
ið, eitt vinsælasta fjölskyldu-
spil í heimi. Það er þroskandi,
skerpir athyglisgáfu og þjálfar
hugarreikning.
2. verðlaun: Fimm Úr-
valsbækur.
Bækumar, sem eru í verðlaun,
heita: Mömmudrengur, Þrumu-
hjarta, Blóðrúnir, Hetja og Banvæn
þrá. Bækumar em gefiiar út af
Fijálsri fjölmiðlun.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 241
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík
Vinningshafar fyrir tvö hundr-
uð þrítugustu og níundu get-
raun reyndust vera:
1. Ása Björk Antoníusdóttir,
Sævarlandi 18,108 Reykjavík.
Jóhanna Óskarsdóttir,
Knarrarbergi 1, 815 Þorláks-
höfn.
Vinningamir verða sendir
heim.