Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1994, Qupperneq 35

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1994, Qupperneq 35
LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 1994 43 ,ÖII erum vér eins og útsæöi í endalausum kartöflugarði tilverunnar. Enginn býður Nökkva lækni borgarstjórasætið Nökkvi læknir hefur setið spenntur við símann síðustu daga. Hann hefur beðið í ofvæni eftir ein- hveijum erindreka stjórnmála- flokks til að bjóða sér öruggt sæti á framboðslista fyrir næstu borgar- stjómarkosningar. „Þetta er dæmi- gert fyrir íslenskan kotimgsbú- skap,“ sagði Nökkvi nýlega við for- eldra sína. „Menn átta sig ekki á því að ég er besti maðurinn sem völ er á í sæti borgarstjóra. Ég hef kynnt mér sérstaklega ævisögu allra bandarísku forsetanna, kosn- ingaaðferðir amerísku flokkanna og meðferð þýskra þjóðemisjafn- aðarmanna á óvinum sínum á dög- um þriðja ríkisins." Faðir hans kinkaði kolb enda var hann Nökkva sammála. „Ég mundi ein- beita mér að markvissri stefnu í heilbrigðismálum og umhverfis- málum, auknu umferðaröryggi, minnkandi atvinnuleysi, stöðug- leika í efnahagsmálum, öruggri dagvist barna og aldraðra, upp- byggingu íþróttamannvirkja og skynsömum fjárfestingum í at- vinnumálum," sagði Nökkvi og horfði dreymandi út í loftið. „En segja ekki allir frambjóðendur þetta bka?“ spurði faðir hans. „Jú, og hvað með það?“ sagði Nökkvi, „þessi orð þýða hvort sem er ekki neitt." Tungulipur sem bam Móðir hans horfði á hann með aðdáun. „Þú værir góður borgar- stjóri. Þú ert bestur í því að svara engu á afgerandi hátt. Þegar þú varst barn gastu alltaf komið þér undan öllum spumingum með út- úrsnúningum. En segöu mér, Nökkvi, viltu gera meira fyrir bömin í borginni?" Nökkvi setti sig í stellingar, horfði þungbrýnn á móður sína og sagði: „Leyfið böm- unum að koma til mín, sagöi frels- arinn. Auðvitað vil ég gera meira fyrir börnin í borginni og öllum öðrum borgum heimsins. Hvað um börnin í Sarajevo? Eru allir búnir að gleyma þeim? Auðvitað byggjum barnabeimfli í takt við sívaxandi ásókn í undirstöður íslensks þjóð- emis og í öfugu hlutfalli við stærð hvalastofnsins." Móðir hans klapp- aði saman höndum af hrifningu og spurði. „Ætlar þú að berjast fyrir Álaeknavaktiimi Óttar Guðmundsson læknir því að gjaldskrá SVR hækki?“ „ Auðvitað verðum við alltaf að stefna á brattann,“ sagði Nökkvi, „sjálfur set ég markiö hátt eins og hástökkvari. En enginn getur hoppað eins hátt og hann sjálfur vifl og sama lögmál gfldir um bamabætur. Sumir verða að lækka rána tfl að komast yfir og hækka hana aftur til að geta fallið með sæmd.“ Alþýðlegur frambjóðandi ,Svo er ég alþýðlegur frambjóð- andi,“ sagði Nökkvi. „Ég gæti heimsótt bamaheimili, elliheimili, fangelsi og miðborg Reykjavíkur að næturþeli í fylgd flögurra lög- regluþjóna, bátahöfnina og áfengis- verslunina og talað við fólkið á máli sem það sjálft skflur. Enginn getur vænt mig um slettur eða óskýrt tungutak." Viltu meira kafii?" sagði móðir hans. Nökkvi var kominn langleiðina inn í hlut- verk sitt sem stjómmálamaður í slag um borgarstjóraembættið. „Hvort ég vil meira kafii? Ég gæti bæöi svarað spumingunni játandi og neitandi en er ekki spumingin í eðli sínu röng. Verða ekki allar manneskjur að bera ábyrgð á eigin lífi. Nýlega las ég skemmtflega könnun sem gerð var á ábyrgðartfl- finningu miðaldra pípulagninga- meistara. Enginn kærir sig um til- raunastarfsemi með fjöregg borg- arinnar. Sporin hræða. Öll erum vér eins og útsæði í endalausum kartöflugaröitflvemnnar." Móðir hans horfði á hann ráðvfllt. „En viltu meira kafii, Nökkvi minn.“ „Ég get ekki á þessu stigi málsins sagt neitt um þetta mál. En þessar endalausu spurningar um kaffi minna á miðstýringartflhneigingu í heilbrigöismálum og einokun á útivistarsvæðum,“ sagði Nökkvi læknir og horfði ákveðnum augum ámóður sína. Myndir „Ég gæti látið birta myndir af mér í fótboltabúningi ásamt eigin- konum mínum, bömum og ykkur tfl að trekkja að samtök beiskra fráskilinna, samtök einstæðca for- eldra, íþróttahreyfinguna og ellilíf- eyrisþegana. Auk þess væri hægt að segja frá öllum samtökunum sem ég hef verið meðlimur í, hætt í, verið rekinn úr eða yfirgefið í fússi. Allt getur þetta komið að gagni." Þau horfðust í augu um stund. „Ef sverð þitt er stutt, gakktu feti framar,“ sagði móðir hansákveðið. „Einmitt," sagði Nökkvi læknir og brosti tfl foreldra sinna. Hann settist við símann og beið beiskur efdr hringingu sem aldreikom. Lausafjáruppboð Eftirtaldar bifreiðar verða boðnar upp að Aðalstræti 92, Patreksfirði, laugar- daginn 29. janúar 1994 kl. 14.00: GO-930 HM-831 HT-654 HV-056 IM-612 JP-508 KS-193 KS-355 MX-011 OR-246 XR-446 XU-056 Einnig verður boðið upp eftirtalið lausafé: IBM tölvukerfi, Philco uppþvottavél, bátur, Gísli BA-156. Greiðsla áskilin við hamarshögg. Ávísanir ekki teknar gildar nema með samþykki uppboðshaldara. SÝSLUMAÐURINN Á PATREKSFIRÐI fLeikskólar Reykjavíkurborgar Fóstrur eða fólk með uppeldismenntun óskast til starfa á neðangreinda leikskóla: I fullt starf: Fálkaborg v/Fálkabakka, s. 78230 I hálft starf e.h.: Álftaborg v/Safamýri, s. 812488 Njálsborg v/Njálsgötu, s. 14860 Vesturborg v/Hagamel, s. 22438 Ægisborg v/Ægisíðu, s. 14810 I hálft starf f.h.: Sæborg v/Starhaga, s. 623664 Þá vantar í hlutastarf við stuðning á leikskólann Vesturborg v/Hagamel, s. 22438 Nánari upplýsingargefa viðkomandi leikskólastjórar. Dagvist barna, Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 27277 INNANHÚSS- 99 ARKITEKTÚR í frítíma yðar með bréfaskriftum Engrar sérstakrar undirbúningsmenntunar er krafist til þátttöku. Spennandi atvinna eða aðeins til eigin nota. Námskeiðið er m.a. um húsgögn og húsgagnaröðun, liti, lýsingu, list, þar tilheyrir listiðnaður, gamall og nýr stíll, blóm, skipulagning, nýtísku eldhús, gólflagnir,, vegg- klæðningar, vefnaðarvara, þar tilheyrir gólfteppi, hús- gagnaefni og gluggatjöld ásamt hagsýni o.fl. Eg óska án skuldbindingar að fá sendan bækling yðar um INNANHÚSS-ARKITEKT-NÁMSKEIÐ Nafn ......................... Heimilisfang ....................... Akademisk Brevskole Jyllandsvej 15 0 Postboks 2J4 2000 Frcderiksberg 0 Kobenhavn 0 Danmark „Út í heim á næstu leigu“ Vinningshafar í drætti 9, 20. janúar 1. Ferð fyrir 2 til Hamborgar: Andri Viðar Sveinsson, Ölduslóð 14, Hafnarf. 2. Ferð fyrir 1 til Khafnar: Smári Freyr Jóhannss., Fögrukinn 76, Hafn- arf. 3. Ferð fyrir 1 til Stokkhólms: Gísli Jónasson, Fálkagötu 19, Rvík 4. Ferðfyrirl tilÓslóar: Murenog Þorbjörg, Norðurbraut11, Höfn 5. Ferð fyrir 1 til Lúxemb.: Sveinbjörn Imsland, Fiskhóli 11, Höfn 6.-15. Gjafavörur frá Coke/Maarud og Nóa & Síriusi. Coke & Maarud Coke & Maarud Coke & Maarud Coke & Maarud Coke & Maarud Nói & Síríus Nói & Sfrius Nói & Sírius Nói & Síríus Nói & Sfrius Valtýr Helgason, Lágholti 18, Stykkishólmi Stefanía Helgadóttir, Fjörugranda 16, Rvik Hulda Pétursdóttir, Hjarðarlundi 9, Akureyri Kristján Siguröss., Vallarg. 12, Vestmeyjum Magnús G. Birgisson, Keilugranda 6, Rvík Óskar Ingimarsson, Hrisalundf 14c, Akureyri Sigurjón Haraldsson, Suðurhólum 26, Rvík Helena Kristjánsdóttir, Neshaga 12, Rvík Sóley Jónsdóttir, Mariubakka 28, Rvík Valgerður Júliusdóttir, Lambhaga 14, Rvík Þess má geta að vinningarnir verða sendir tit viðkomandi vinningshafa.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.