Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1994, Síða 36
44
LAUGARDAGUR 22. JANUAR 1994
Sviðsljós
Þrítugsafmæli Játvarðs prins nálgast:
Bretar bíða eftir til-
kynningu um brúðkaup
Elísabet Englandsdrottning er sögö
afar glöð þessa dagana. Ástæðan er
sögð sú að yngsti sonur hennar, Ját-
varður, hefur fundið sér konu og sú
er sögð mjög framhærileg. Stúlkan
heitir Sophie Rhys-Jones og er af
borgaralegum en góðum ættum eftir
þvi sem sagt er. Sögur um að Ját-
varður prins sé hommi hafa því
þagnað enda mun prinsinn hafa tekið
þær mjög nærri sér.
Þann 30. mars verður Játvarður
þrítugur og er því kominn vel á pip-
arsveinaíddur. Ákveðið hefur verið
að mikil veisla verði í tilefni þessa
dags og væntanlega mun þá unga
fólkið með bláa blóðið og kannski
einhverjir aðrir vinir mæta til leiks.
Sophie, sem er 28 ára, verður án
efa meðal þeirra. Henni var boðið til
nýársveislu í höllinni. Sophie starfar
'.að ráðgjöf og kynningar en fyrirtæk-
ið sem hún vinnur hjá starfar að
markaðssetningu ýmiss konar vam-
ings. Margt af því hefur slegið í gegn.
Sophie kynntist einmitt prinsinum í
gegnum starf sitt. Reyndar var hún
að vinna á útvarpsstöð þegar hún sá
hann í fyrsta skipti.
Játvarður er sá fimmti í röðinni
sem á tilkall til krúnunnar. Hann
hefur fengist við ýmis störf á vinnu-
markaðnum en herinn átti ekki við
hann. Hins vegar fellur honum lista-
heimurinn vel og hefur unnið mikið
innan hans, t.d. við leikhús. Nú hefur
hann eignast hlut í fyrirtæki sem
nefnist framleiðslufyrirtækið Arden
þar sem hann mætir í vinnu hvern
dag.
Sophie er ólík þeim yfirstéttar-
stúlkum sem Játvarður hefur áður
kynnst enda hefur hún þurft að
standa á eigin fótum og séð um sig
sjálf. Hún starfaði lengi hjá Capitol
útvarpsstöðinni, í markaðsdeildinni..
Síðan tók hún eitt ár í að ferðast um
Ástralíu og starfa þar á hinum ýmsu
stöðum. Þegar hún kom til baka fékk
hún gott starf sem PR-maður. Sophie
leigir góða íbúð í Kensington og virð-
ist nokkuð vel stæð.
Síðasthðiö haust kynntist hún enn-
Sagt er að Játvarður prins geisli af gleði þessa dagana.
frekar kóngafólkinu og hún fékk að
fara með Játvarði í Windsor og
Sandringham. Reyndar hefur hann
áður boðið stúlkum þangað án þess
að úr alvarlegum samböndum hafi
orðið. Eftir að Játvarður eignaðist
eigið fyrirtæki hefur hann haft mun
meira samband við Sophie sem þekk-
ir vel öll markaðslögmál.
Játvarður hefur alla tíð þótt mjög
ólíkur bræðrmn sínum. Hann er
mun hægverskari og rólegri. í stað
þess að stunda næturklúbba kýs
hann fremur að bjóða vinum heim í
htlu íbúðina sína í Buckingham-höU.
Játvarður hefur aidrei verið mikið
fyrir sviðsljósið. Fjölmiðlar hafa
nokkuð tekið tilUt tU þess. Það var
líka þess vegna sem Játvarður skrif-
aði bréf til bresku pressunnar og
óskaöi eftir að vinkona sín, Sophie,
Elísabet Englandsdrottning þykir
vera mjög ásátt með Sophie og hef-
ur þegar boðið henni til kvöldverðar
í höllina.
Sophie, kærustu Játvarðs, þykir svipa til Díönu. Hún
þykir þó ekki eiga sjö dagana sæla framundan ef hún
verður fyrir sama ágangi fjölmiðla og prinsessan.
fengi frið fyrir ljósmyndurum og
blaðamönnum. Bréfið var birt en
virkaði ekki sem skyldi. Sophie hefur
vakið mikla athygU fjölmiðlanna.
Hún þykir þó ekki öfundsverð ef hún
lendir í sömu stöðu og Díana og
Sarah Ferguson. Það þarf virkilega
sterk bein til að þola slíkt. Blöðin eru
þegar farin að Ukja þeim Sophie og
Díönu saman.
Hinsvegar telja þeir sem til þekkja
að konungsfjölskyldan hafl lært af
reynslu undanfarinna ára. Ef Sophie
verður hertogaynjan af Cambmdge,
en sá titill bíður Játvarðs þegar hann
kvænist, mun hún áreiðanlega geta
brugðist öðruvisi við árásum fjöl-
miðla og ágangi en fyrrum eiginkon-
ur bræðra Játvarðs.
Bandarískur listamaður:
Býr til gotterísmyndir
Listamenn taka sér ýmislegt fyrir
hendur tíl að eftir þeim sé tekið.
Bandaríski Ustamaðurinn Peter Roc-
ha hefur gert fjöldann aUan af risa-
stórum Ustaverkum með andUtum
þekkta einstakUnga og merkja. Það
væri nú vart í frásögur færandi nema
fyrir það að í stað Uta nota Peter
sælgæti. Myndimar hans eru unnar
úr þúsundum nammihlaupa.
Þó maður taU stundum um góða
lyst innan um góða Ust er ekki þar
með sagt að Ustaverkin skuU borð-
ast. Listamaðurinn Peter er þó mik-
iU sælkeri, bæði á mat og Ust. Reynd-
ar er hann mikið fyrir sætindi en
notar þau þó helst í þágu listarinnar.
Listaverkin hans eru öll mjög stór
aUt upp í tveggja metra há.
Þar má sjá rokkkónginn Elvis Pres-
ley, indíánahöfðingjann Regnboga-
tré, Frelsisstyttuna og sjálfa Díönu
prinsessu. í stytturnar fara aUt frá
níu til fjórtán þúsund hlaup þannig
að segja má að Peter haldi uppi sæl-
gætisfyrirtækinu sem framleiðir
hlaupið. Verkin selur hann þó ekki
mjög ódýrt því þau kosta frá 210 þús-
und krónum stykkið.
Ekki fylgir sögunni hvemig mynd-
irnar eldist né heldur hvemig þær
verði í of miklum hita eða ef sól skín
á þær. Svo mega þær auövitað ekki
vera nálægt nammisjúkum. En
myndirnar eru nýstárlegar og þá er
tilganginum náð.
Elvis Presley lítur vel út í namminu og svo er einnig með Freisisstyttuna.
Peter Rocha með indíánahötðingj-
anum Regnbogatré.
Díana prinsessa er alltaf jafn sæt
en varla hefur hún verið sætari en
á þessari mynd í þess orðs fyllstu
merkingu.
Ólyginn
... að hjartaknúsarinn Tom Cru-
ise hefði gefið eiginkonu sinni,
Nicole Kidman, þriggja vikna
hjólreíðatúr í Kína í jólagjöf. Litla
barnið, ísabella, verður heima
hjá bamfóstrunni á meðan.
... að Julia Roberts og eigin-
maður hennar, Lyle, hefðu ekki
kynnst þegar þau léku í kvik-
myndinni Leikmaðurinn eins og
flestir hafa haldið. Susan Saran-
don hafði kynnt þau hvort fyrir
öðru nokkru fyrr.
... að bréf sem ieikkonan dular-
fulla, Greta Garbo, skrifaði hefðu
verið seld fyrir rúmar tvær mlllj-
ónitkróna. í bréfunum segir leik-
konan m.a. að hún lifi á gulrót-
um. i öðru bréfinu segist hún
aldrei ætla að fara aftur heim tif
Svíþjóðar.
... að fyrirsætan Cindy Crawiord
þyrfti að koma skilaboðum tii
eiginmannsins, Richard Gere, ef
hún vitdi hitta hann. Hjónin eru
sífelit á ferðalögum vegna vinnu
sinnar og hafa mikið að gera.
Ritarar þeirra beggja hafa því
nóg að gera að koma skifaboð-
um á milli. Stundum vita þau
ekki i hvaða íbúð þeirra hitt
muni sofa í.
. að þegar Marlene Dietrich lék
í siöustu kvikmynd sinni árið
1979, eftir langt hlé, hefði David
Bowie verið mötspilari hennar.
Reyndar hittust þau aldrei því
að David lék sitt hlutverk i Beriin
en hún i París.