Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1994, Side 6
6
MÁNUDAGUR 24. JANÚAR 1994
Fréttir
Margrét og Jóhann Gíslason á „tvílembingsveiöar“:
Uppreisn ef mennirnir
hefðu neitað að fara
- segir formaður Sjómannafélags EyjaQarðar
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii:
Samherjatogarinn Margrét og tog-
arinn Jóhann Gíslason, sem Sam-
herji hefur á leigu frá Þorlákshöfn,
fóru á „tvílembingsveiöar" um helg-
ina. Áður hafði Samheiji sagt öllum
undirmönnum á Margréti upp og
einnig undirmönnum á Oddeyrinni
sem verið hafði á „tvpembingsveið-
um“ meö Nóa frá Árskógsströnd.
Oddeyrinni hefur verið lagt um óá-
kveðinn tíma.
Brottfór Margrétarinnar og Jó-
hanns Gíslasonar um helgina bar
brátt að en Þorsteinn Már Baldvins-
son, framkvæmdastjóri Samheija,
segir að allt sitji við það sama frá því
fyrir áramót og ákveðið hafi verið
að reyna þessar veiðar í einhvem
tíma. „Þetta var leyst í sátt við menn-
ina, en það mun vera umdeilanlegt
hvort bráðabirgðalögin nái eöa nái
ekki yfir þann samning sem gerður
var í haust um þessar veiðar. I fram-
haldi af þessu vinnum við að lausn
málsins," sagði Þorsteinn Már í gær.
Alls eru 28 menn á skipunum
tveimur. 24 þeirra eru á Margréti en
aðeins 4 á Jóhanni Gíslasyni, en deil-
an hefur einmitt staðið um skipta-
kjör þar sem tvö skip em að veiða
saman og annaö eingöngu notað sem
dráttarskip. Undirmennimir, sejn
fóm út um helgina, voru valdir úr
áhöfnum Margrétarinnar og Odd-
eyrarinnar.
„Það var ekki um neitt annað að
ræða fyrir mennina en að fara út
þegar kallað var á þá, það heföi verið
uppreisn að neita að fara því þeir
vom enn á uppsagnarfresti,“ sagði
Konráð Alfreðsson, formaður Sjó-
mannafélags Eyjafjarðar í gær.
„Annars finnst mér framkoma Sam-
heijamanna í þessu máli forkastan-
leg. Ef menn eru að reyna að semja
þýðir ekki fyrir annan aðilann að
standa óhaggánlegur á sínu, það eru
ekki samningar," sagði Konráð.
Sparisjóður-
inn breytti
áttavitanum
í júnimánuði síðastliðið sumar
birtist frétt í DV þar sem sagt var af
nýjum gólfdúk í salarkynnum Spari-
sjóðs Hafnarfjarðar.
í gólfdúknum var myndarleg átta-
vitarós og höfuðáttirnar merktar
með enskum bókstöfum: E í stað A
fyrir austur og W í stað V fyrir vest-
ur. Nú hafa Hafnfirðingar skipt út
hluta af áttavitarósinni.
, „Við fengum nýja stafi fyrir jól og
erum komnir með íslensk tákn fyrir
vestur og austur. Þaö er eingöngu
vegna fréttar ykkar aö við fórum út
í þetta. Við lögðum í smákostnað við
þetta að sérpanta dúkinn að utan í
gegnum umboðsaðilann, Barr hf.,“
segir Gunnlaugur Haröarson, deild-
arstjóri í Sparisjóði Hafnarfjarðar.
-PP
Flugvél lenti
áöðrum
hreyflinum
Kanadísk flugvél af gerðinni
Cessna 310, á leiðinni frá Reykjavík
til Syðri- Straumfjarðar á Græn-
landi, lenti á einum hreyfli í Keflavík
á laugardag. Vélin sneri við vegna
bilunar á hreyfli og tvær hervélar á
leið vestur um haf buðu strax fram
aðstoð sína.
Að beiöni Flugmálastjórnar sendi
Landhelgisgæslan þyrlu á móti flug-
vélinni og einnig var búið að fá kaf-
bátaleitarvél til þess að fylgja henni.
Vélin lenti klakklaust í fylgd þyrlu
gæslunnar á Keflavíkurflugvelli.
Einn maður var í vélinni. Tahð var
líklegt að vatn heföi komist í hreyfil-
inn og frosið með þeim afleiðingum
að drapst á mótornum. Maöurinn
flaugtilReykjavíkurígær. -em
Gunnlaugur Harðarson deildarstjóri við áttavitann með íslensku táknunum fyrir höfuðáttirnar. DV-mynd BG
Embætti veiðistjóra flutt norður:
Olíklegt að nokkur okkar fari norður
- segir Páll Hersteinsson veiðistjóri
„Þetta er pólitísk ákvörðun ráð-
herra og það skiptir ekki nokkru
- máli hvort hún fellur okkur í geð,“
segir Páll Hersveinsson veiðisljóri.
Ossur Skarphéðinsson umhverfis-
ráðherra hefur tekið þá ákvörðun að
flytja embættið norður til Akureyrar
og sameina það Náttúrufræðistofnun
á Akureyri. Segir hann það stefnu
ríkisstjómarinnar að flytja ríkis-
stofnanir út á land og á Akureyri séu
stofnanir sem samnýtist embætti
veiöistjóra.
Við flutninginn verða lögð niður
fjögur stöðugildi í Reykjavík og telur
Páll ólíklegt að nokkur starfsmann-
anna flytji norður. Hann segist sjálf-
ur ekki geta það af fjölskylduástæð-
um og sömu sögu sé að segja af
tveimur öðrum.
„Við emm náttúrlega búnir að
veija öllum okkar kröftum á þessu
sviði í nokkur ár en við erum ekki
svo einhæfir að við getum ekki fund-
ið okkur annað,“ segir Páll.
Starfsmenn embættis veiðistjóra
hafa ekki alltaf verið ráðherra sam-
mála í ákvöröunum hans. Þannig
skrifaði Amór P. Sigfússon, stjómar-
maður í Skotvis og starfsmaður
veiðistjóra, nýlega grein í Fréttabréf
Skotvíss og Sportveiðiblaðið og gagn-
rýndi harölega þá ákvörðun ráð-
herra að stytta ijúpnaveiðitímann.
í greininni talar Amór um að um-
hverfisráðuneytið hafi brotið „tíma-
mótalöggjöf' um fuglaveiðar og
fuglafriðun. Þegar Amór var spurð-
ur að því hvort ráðherra hefði farið
fram á að hann yrði rekinn eða hvort
upphlaup hans hefði haft ákvörðun
á ráðherra vék hann sér undan að
svara og benti á ráðuneytið.
-pp
Sandkom dv
BlaðiðAustriá
Egilsstöðmn
sækirnýlega
nokkrarskop-
sögurumlög-
fra’ðmga 1
smiðju Olats
Stefánssonar
aáKahnaims-
stoðuin.Þav
segirfráPáli
Skúlasynilög-
manni sem var
fonnaður
Dansk-ísienska féiagins þegar Mar-
grét Danadrottning kom í opinbera
heimsókn tii íslands. Pállyar þvi
meðal gesta þegar forseti Islands hélt
henni veislu. Undirlok veisiunnar
gekk drottníng millí gesta og tók þá
tali. Páll rey ndi að tjá sig á móður- :
máh hennar hátignar en vafðist
tungaum tönn. Drottninglét sér
hvergibregðaogbrosti breitt.Þegar
kunningjarPáls híttu hann kvöldið
eftir og spurðu hvort hann hefði ekki
hitt drottninguna, svaraði hann:
„Heiisaðihún mérdrortningin oghló
aðmérumleið."
Auslnhefur
einnigsöguoft-
nOlafiaf
verkamönnum i
:i Eskilirði stan
vuruaðskega-
ræöalandsmál-
in.Talþeirra
barstmeöal
annarsaðPétri
heitnumBone-::
ilikNsynisein
þáhafðinýiega
veriðskipaður
sendiherra íslands í Moskvu. Þetta
var um miðjan firamta áratuginn
þegar Stalín var enn við völd, Verka-
mennirnir iögðu misjafnt tii um mál-
ið en loks sagði einn gallharður
kommúnisti: „Ekki líst mér á þessa
ráðstöfun þvi að Pétur nr s.iáifstæðis-
maður en ég vona samt að Stalín iáti
hann ekki hafa áhrif á sig. ‘ ‘
Sárir Ulfar
Áhangendur
knattspymu-
liðsúlfannaí
Engiandieru
enn töluvert
margirhérá
landioghluti
þeirrasemlas
Alþýðubiaðið
sl. fóstudag
varðsárog
reiður.íblað-
inuhirtist get-
raunapistilleft-
ir Ólaf nokkurn Lúther Einarsson
um leiki ensku knattspyrnunnai- um
helgina. Þar spáír Ölafur að Ölfarnír
annaöhvort vinni heimasigur eöa
gerijafhtefli við MiliwaO í 1. deild-
inni. Eitthvaö hefur skolast til þvi
Úlfarnir léku við Nottingham Eorest
: í gær á utivelli! Svo fók steininn úr
Jmgar Ólafur sagði Úlfana vera í
fjórða neðsta sæti í deildinni með 25
stig. Hið rérta er að fvrir helgi vora
þeir með 41 stig i 8. sæti. Tipparar :
getavart trevst á svona skrif, að ekki
sé talað um sárindi Úlfanna! Að auki
er óskiljanieg setning Ólafs í pistlin-
um um fyrri leik Manchester United
og Everton sem haii farið fram, ,í yrir
framan svekkta Tottenham-áhang-
endur.“
Hættulegur bíll
Þorriheilsaöi
hressilegaað-
faranóttbónda-
dagsins. Kvökt-
iðaður'.ýndi
Rikissjónvarp-
ið i ellefufrétt-
um viötö! við
feröalang.i í
I.itlu katfistof-
unni sem lentn
íóvcðriáHell-
ishoiöi. Meðal
þeirravarÁnn
igmaðursem ætiaði aust-
áfund. ViðSandskeiö
að snua við vegna óveð-
ursins,En ekki gckk bemr en svo að
þegar Ami bélt sig vera kominn nær
Reykjavík blasti Utla kafllslofan við
miíli bylja. Svo er að skilja að bíllinn
hansliafi vöjað á íUndínn eníspor-
um þingmarmsins myndi Sandkoms-
ritari skipta um bíl!
Umsjón; Björn Jóhann Björnsson