Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1994, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1994, Qupperneq 20
20 MÁNUDAGUR 24. JANÚAR 1994 Fréttir Uppsagnir hjá Sementsverksmiðjunni: Aðgerðir til að treysta rekstrargrundvöll „Uppsagnir hafa verið talsverðar á undanfornu ári. Það hættu hérna margir starfsmenn um áramótin en flestir þeirra voru með 6 mánaða uppsagnarfrest. Við höfum þurft að segja nokkrum upp til viöbótar 'en hljótum að vera að ná botninum nú. Uppsagnir hljóta að fara að ná enda en ef við neyðumst til að segja einhverjum upp að auki verður það ekki meira en tugur starfsmanna. Fyrir ári voru 120 starfsmenn hér í Sementsverksmiðjunni en nú eru þeir 90 talsins. Það er verið að reyna að treysta rekstrargrundvöll verksmiðjunnar með þessum að- gerðum og um 90 manna starfs- liði,“ sagði Gylfi Þórðarson, fram- kvæmdastjóri Sementsverksmiðj- unnar, í samtah við DV. Treysti því að botninum sé náð „Þaö fer ekki hjá því að undan- farna daga og vikur hefur starfs- fólk verið mjög óöruggt um sig. Menn hafa ekki vitað hvað stæði til og hversu margir myndu hætta. Sementsalan er lítil sem engin og við gerum okkur fulla grein fyrir því að það hlýtur að bitna á okkur að einhveiju leyti. Stjórnendur hér hafa reynt að standa að þessu eins manneskju- lega og hægt er. Mér skilst að nú sé botninum náð og treysti því aö svo sé. Mórallinn er ekki upp á það besta en þó merkilega góður miðað við aðstæður. Mér finnst menn bera þessar þrengingar nokkuð vel þrátt fyrir að því fylgi óhjákvæmi- lega þjáningar að missa vinnuna," sagði Bjarni Árnason, trúnaðar- maður starfsfólks Sementsverk- smiðj unnar, við DV. -ÍS Sjómenn fjölmenntu á námskeiöið. DV-mynd Ómar Garðarsson, DV, Vestmannaeyjum; Slysavarnaskóli sjómanna var með námskeið í Eyjum meðan á verkfall- inu stóö og fjöldi sjómanna, auk nem- enda Stýrimannaskólans, nýtti sér það og sótti námskeiðið. Ekkert betra við tímann að gera þá. Námskeiðið stóð í tæpa viku og lauk með æfmgu í björgun með þyrlu. Sorpa þróar uppskrift að gæðamold: Hrossataði blandað út í garðaúrgang - tilraunin hefst í vor og kostar 6 milljónir „Þetta er tilraun sem verður að gera en hversu ábatasamt það verður að búa til moldina kemur fyrst í Ijós þegar tiirauninni lýkur. Aðstæður á Islandi eru aðrar en í nágrannalönd- unum og því verðum við að þreifa okkur áfram, til dæmis varðandi uppskrift, þannig að útkoman verði gæðavara. Uppistaðan er garðaúr- gangur og hrossatað en að auki get- um við hugsanlega blandað í þetta pappír og trjáflísum," segir Ög- mundur Einarsson, framkvæmda- stjóri Sorpu. Sorpa ætlar að hefja framleiðslu á gæðamold í tilraunaskyni með vor- inu. Reykjavíkurborg hefur ákveðið að taka þátt í verkefninu og beðið er eftir svari frá öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu. Kostnaður- inn er áætlaður um 6 milljónir og skiptist hann á milli sveitarfélag- anna í samræmi við íbúafjölda. Ætl- unin er að framleiða allt aö 8 þúsund rúmmetra afjarðvegi til að byrja með sem verður eign viðkomandi sveitar- félaga. Að sögn Ögmundar hefur Sorpa nú safnað garðaúrgangi í tvö ár þannig að til staðar eru'nægar birgðir til að hefja framleiðslu. Hann segist bjart- sýnn á framhaldið og vonast til að sveitarfélögin muni í framtíðinni sjálf fær um að stunda þessa endur- vinnslu enda muni það spara mikla fiármuniíflutningskostnaði. -kaa Ríkissjóður: Rekstrarhallinn 2,4% minni en búist var við Bráðabirgðatölur um afkomu rík- issjóös á síðasta ári staðfesta að um- skipti hafa oröið í ríkisfiármálum á síðustu árum. Rekstrarhalli ríkis- sjóðs nam 9,5 milljörðum króna eöa 2,4 prósentum af landsframleiðslu og er það minni halli en gert var ráð fyrir. Ef ekki hefðu komið til sérstak- ar skuldbindingar í tengslum við kjarasamninga og meira atvinnu- leysi en reiknað var með í forsendum fiárlaga væri útkoman nánast í sam- ræmi við áætlun fiárlaga. Þetta kem- ur fram í bráðabirgðatölum um af- komu ríkissjóðs á síðasta ári sem fiármálaráðuneytið sendi frá sér ný- lega. Hrein lánsfiárþörf ríkissjóðs til að fiármagna halla á rekstri og út- streymi á lánareikningum nam 10,6 milljörðum króna en frávik frá fiár- lögum var aðeins 1,7 mfiljarðar. í fyrra aflaði ríkissjóður lánsfiár í fyrsta sinn alfarið á almennum markaði í stað yfirdráttar í Seðla- banka íslands. Þrátt fyrir þetta fóru vextir innanlands lækkandi og voru í lok ársins lægri en þeir hafa verið um árabil. Heildarútgjöld ríkissjóðs árið 1993 námu 112,8 milljörðum, eða 1,8 millj- örðum umfram fiárlög, meðan heild- artekjurnar voru 103,3 milljarðar króna. Útgjöld ríkissjóðs hækkuðu um 600 milljónir að raungildi milli áranna 1992 og 1993 og kemur það fram í vaxtagreiðslum og framlögum til fiárfestinga og viðhalds. Heildar- tekjumar lækkuðu hins vegar að raungildi um 1,6 milljarða á síðasta ári. Þar af lækkuðu skatttekjurnar um 800 milljónir króna. „Ég bendi á að við höfum þurft að nota ríkisfiármálin til að ná fram hóflegum kjarasamningum, lægri verðbólgu og stöðugleika á vinnu- markaði, svo eitthvað sé nefnt. Okk- ur hefur tekist aö halda hallanum í skefium en auðvitað _eru ríkisfiár- málin ekki í lagi fyrr'en við höfum náð fuUu jafnvægi," segir Friðrik Sophusson fiármálaráðherra. -GHS Dansað á nýársfagnaði í Eyjum. DV-mynd Ómar Nýársf agnaður í 68. sinn Ómar Garðarsson, DV, Vestmannaeyjuni; Árlegur nýársfagnaður Kvenfé- lagsins Líknar hér í Eyjum var hald- inn í 68. sinn í Akógeshúsinu um miðjan mánuðinn. Fyrst var hann haldinn 1926 og hefur ekki falhð nið- ur eitt einasta ár. 85 eldri borgarar hér mættu nú og nokkrir ungir menn sem dönsuðu við konumar þegar karlamir þreyttust. Dagskrá nýársfagnaðarins er mjög hefðbundin, veitingar, skemmtiat- riði, dans og spil fyrir þá sem ekki treysta sér í dansinn. Kvenfélagið verður 85 ára 14. febrúar nk. Ólafsfjörður: Fjárhagsáætlun lögð fram Helgi Jónsson, DV, Ólafsfirði: Fyrri umræða um fiárhagsáætlun Ólafsfiarðarbæjar fyrir árið 1994 fór fram um miðjan mánuðinn. Sam- kvæmt henni verða heildartekjur 162 millj. króna en gjöldin 113 milljónir. Mismunurinn þvf 49 millj. króna. Greiðslubyrði lána verður um 30 millj. króna en ný lán upp á 74 millj- ónir verða tekin á árinu. Til ráðstöf- unar verða 89 milljónir. Langstærsti útgjaldaliðurinn verður íþróttahúsið nýja eða tæpar 50 millj. króna. Til fræðslumála fara 6,5 millj. 7 millj. til gatna-, umferðar- og hol- ræsamála og 10 millj. tengdar ungl- ingavinnu næsta sumars. Fram- kvæmdir til hitaveitu verða 7,4 millj. Af einstökum framkvæmdaliðum má nefna tvær milljónir til að end- urnýja tölvukerfi gagnfræðaskólans og 2,6 milljónir til að fiölga kennslu- stofum barnaskólans. Selfoss: Jólin voru kvödd hér á Selfossi stjórnasamkomumungafólksinsá með miklum glæsibrag á þrettánd- þrettándanum. Sföan hefur allt anum - á sama hátt og verið hefur gengið eins og í sögu. Allt fór vel síðustu sjö árin og til mikils sóma. fram nú og dansleíkir haldnir þeg- Áður fyiT voru oft ólæti hér á þrett- ar liða tók á kvöldið fyrir börn og ándanum. unglinga á hótelinu. Ókeypis aö- ÞaðvarÓlöfThorarensen,félags- gangur og krökkunum ekið heim málafulltrúi Selfossbæjar, sem eftir þá.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.